Morgunblaðið - 23.04.1966, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 23. apríl 1966
Guðmundur Á. Auðbjörnsson Karl Símonarson Valtýr Guðmundsson Elís H. Guönason Herdís Hermóðsdóttir
Framboöslisti Sjálfstæöisflokks-
ins í Eskifjaröarhreppi
!
FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis-
flokksins til hreppsnefndarkosn-
. ínga í Eskifjarðarhreppi 22.
maí 1966.
*
Hreppsnefnd:
1. Guðmundur Á. Auðbjörnsson,
málarameistari.
2. Karl Símonarson,
vélsmíðameistari.
3. Valtýr Guðmundsson,
sýslufulltrúi.
4. Elís H. Guðnason,
kaupmaður.
5. Herdís Hermóðsdóttir,
húsfrú.
ö.Árni Halldórsson,
Skipstjóri.
7. Ævar Auðbjörnsson,
rafvirki.
8. Ingvar í>. Gunnarsson,
netagerðamaður.
9. Malmfreð Árnason,
járnsmiður.
10. Yngvi Rafn Albertsson,
stýrimaður.
11. Ragnar Björnsson,
húsasmíðameistari.
12. Þorvaldur Friðriksson,
múrari.
13. Aðalsteinn Jónsson,
forstjóri.
14. Þorleifur Jónsson,
sveitarstjórL
Til sýslunefndar:
Aðalm.: Ingólfur Fr. Hallgríms-
son, forstjóri.
Varam.: Gunnar St. Wed'holm,
skrifstofumaður.
Jósef Þorgeirsson Gísli Sigfurðsson Marselía Guðjónsdóttir
Sjólfstæðismenn í meiríhlutn
í Bolungnrvík ón kosningu
Sameiginlegur framboðslisti allra flokka
Akranes
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN á
Akranesi efna til kvöldfagnað-
ar að Hótel Akranes sunnudag-
inn 24. apríl kl. 814 síðdegis.
Dagskrá:
1. Ávörp flytja:
Jósef H. Þorgeirsson, lögfr.
Gísli Sigurðsson, byggingam.
Marselía Guðjónsdóttir, húsfr.
2. Sameiginleg kaffidrykkja.
3. Skemmtiatriði, — Dans.
Hljómsveit: Dúmbó og Steini.
SJÁLFSTÆÐISMENN fá meiri
hluta í hreppsnefnd Bolungarvik
ur án þess að kosningar fari þar
fram. Sjálfstaeðisfélögin og
vinstri flokkarnir bera þar fram
sameiginlegan lista, sem varð
sjálfkjörinn. Af sjö hreppsnefnd
armönnum fá Sjálfstæðismenn 4,
Alþýðuflokkurinn 1, Framsókn-
arflokkurinn 1 og Alþýðubanda-
lagið 1.
Hinn sameiginlegi listi Sjálf-
stæðisfélaganna og vinstri flokk
anna er skipaður þessum mönn-
um:
1. Jónatan Einarsson,
oddviti (S).
2. Guðmundur B. Jónsson,
vélsmiðjustjóri (S).
3 .Guðmundur Magnússon,
bóndi (F).
4. Elías H. Guðmundsson,
símstjóri (A).
5. Ósk Ólafsdóttir,
húsfrú (S).
6. Ólafur Kristjánsson,
skólastjóri (S).
7. Karvel Pálmason,
kennari (Alþýðub.)
8. Hafliði Hafliðason,
skósmiður (Alþýðub.).
9. Finnur Th. Jónsson,
skrifstofumaður (S).
10. Hálfdán Einarsson,
skipstjóri (S).
11. Ósk Guðmundsdóttir,
húsfrú (A).
12. Gunnar Halldórsson,
verzlunarmaður (F).
13. Högni Pétursson,
bóndi (S).
14. Siggeir Sigurðsson,
skipstjóri (S).
í sýslunefnd Norður-fsafjarð-
arsýslu var sjálfkjörinn Einar
Guðfinnsson, útgerðarmaður (S)
og til vara Jónatan Einarsson,
oddviti (S).
Lægðin fyrir sunnan land veður og næturfrost, en á
var þaulsætin í gær og olli Eyrarbakka og Hellu var ÍO1"
enn stormi á Stórhöfða. Norð- hiti klukkan 15. — Út af
an lands var stillt og bjart Húnaflóa var þokuslæðingur.
Árni Halldórsson
Ævar Auðbjörnsson
*
Ohjákvæmilegt að mál
Sinjavskí og Daniels
verði endurskoðuð
Frá íslandsdeild Sambands evrópskra
rithöfunda, COMES
FORSETARÁÐ Sambands
evrópskra rithöfunda, COMES
kom saman til fundar í París
16. marz, undir forsæti Guis-
eppe Ungaretti, til að fjaila
um þau vandamál, sem hafa
risið af máli Sovétrithöfund-
anna Sinjavskis og Daníels.
Meirihluti forsetaráðsins lít-
ur svo á, og lýsir yfir þeirri
skoðun sinni að forsendurnar
fyrir dóminum yfir þessum
tveim rithöfundum brjóti í
bága við þann anda sem frá
upphafi hafi mótað starf og
athafnir COMES og harmar
ennifremur að forsvars-
menn Sovetdeildar COMES
skuli ekki hafa gert þær ráð-
starfanir sem hægt var né haft
samráð við COM.ES, sva sem
var skylda þeirra. Engu að
síður treystir Forsetaráðið
enn á vinsamleg samskipti og
samvinnu rithöfunda í hinum
ýmsu löndum sem eru í sam-
bandinu og telur að óhjá-
Sfp&M
Yuri Daniel
kvæmilegt sé, að mál Sinja-
vskiis og Daníels verði endur-
skoðað sem fyrst og rithöf-
undarnir verði náðaðir.
Andrei Sinjavskí
Loks hefur verið ákveðið
að aðalritari COMES, Gianc-
arlo Vigorelli, fari til Moskvu
til að kynna sovézkum yfir-
völdum þessar ákvarðanir
forsetaráðsins og kanna- hvort
enn séu forsendur fyrir að
halda áfram samskiptum. Til-
kynningin er undirrituð af
Guiseppe Ungaretti (Ítalíu),
forseta, J. Luis Aranguren
(Spáni), Halldóri Laxness
Nóbelsverðlaunahöfundi (ís-
landi) John Lehman (Bret-
landi), Jean Paul Sartre
(Frakklandi) varaforsetum,
og Giancarlo Vigorelli (íta-
líu) aðalritara.
Einn af varaiforsetum
COMES er Halldór Laxness
og Thor Vilihjálmsson á sæti
í stjórnarnefnd COMES.
Því má bæta við þessa
frétt, að Vigorelli heifur dval-
izt í Moskvu og lýsti því yfir
við brottför þaðan, að hann
vænti þess að viðræðurnar
við sovézka rithöfunda myndu
greiða fyrir þvi, að aftur yrði
lekin upp sú samvinna við
rússneska rithöfunda sem áð-
ur var.