Morgunblaðið - 23.04.1966, Page 5
Laugardagur 3f« *prf! 1966
MORGUNBLAÐIÐ
S
Hlégarðsreið
Fáksmanna
á morgun
HIN árlega Hlégarðsreið
Hestamannafélagsins Fáks verð-
ur á sunnudaginn.
Félagsmenn hittast á skeið-
vellinum upp úr hádegi, en kL
13.30 leggja þeir af stað ríðandi
upp í Mosfellssveit Mosfelling-
ar koma á móti þeim á gæð-
ingum sínum, og hittast hóparn-
ir við félagsheimilið Hlégarð.
Þar verður drukkið kaffi í boði
kvenfélagskvenna í Mosfells-
sveit
Mikil þátttaka hefur verið í
Klégarðsreiðinni undanfarin ár,
t.d. voru á fjórða hundrað fé-
lagsmenn með í henni í fyrra,
Fjáröflunarnefnd kvenna í
Fáki hefur happdrætti í sam-
bandi við þetta, og verður dreg-
ið á annan í hvítasunnu. Meðal
vinninga er skagfirzkur gæðing-
ur frá Stóra-Vatnsskarði, sex
vetra og mjög álitlegur, flugferð
til Kaupmannahafnar og til baka
aftur, hringferð í kringum land-
ið fyrir tvo með Ríkisskip og
flugferð fyrir tvo til Sauðár-
króks í samlbandi við landsmót
hestamanna, sem haldið verður
á Hólum í Hjaltadal í sumar.
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
AMERICAN FIELD SERVICE,
féíagsskapur sá, sem gengst fyr-
ir nemendaskiptum milli Banda
rikjanna og Islands, er nú um
þessar mundir að hefja sumar-
starf sitt. Hafa forráðamenn fé-
lagsins hér í hyggju að reyna að
fá sex fjölskyldur til þess að
taka bandaríska unglinga inn á
heimili sín, þar sem þeir búi
þessa tvo rnánuði, er þeir dvelja
hér. Forstöðumenn AFS hér eru
mest megnis ungt fólk, er hefur
dvalið í Bandarikjunum á veg-
um félagsins, en nú fyrir
skömmu hafði Mbl. tal af for-
manni . sumarstarfsins, Mariu
Einarsdóttur, og ræddi litillega
við hana um starfsemi AFS.
— Þetta er áttunda árið, sem
AFS starfar hér á landi, en félag
ið hefir gengist fyrir því, að ís-
lenzkir nemendur hafa dvalizt
í Bandaríkjunum og gengið þar
á skóla í árs tíma, og ennfremur
útvegað bandarískum nemend-
um sem hingað hafa komið dval
arstað á íslenzkum heimilum, en
þeir hafa aðeins verið hér um
tveggja mánaða skeið að sumr-
inu. Hafa þegar 126 nemendur
verið í Bandaríkjunum á vegum
AFS, en þar með eru taldir
þeir neemndur, sem dvelja þar
nú, en þeir eru 18 talsins. Aftur
á móti hafa hingað til lands að-
eins komið 16 bandarískir ung-
lingar á vegum AFS.
Fyrirkomulagið er það, að
nemendurnir dvelja á heimilum
þar úti og ganga á skóla í borg
þeirri, þar sem þeir búa. Bera
nemendurnir þeim fjölskyldum,
sem þeir hafa dvalið hjá, yfir-
leitt mjög vel söguna, enda er
mikið til þess vandað að fá góða
fjölskyldu handa hverjum nem-
anda, þar sem þeir njóta góðs
aðhalds.
María Einarsdóttir
— Banarísku skiptinemendurn
ir í ár eru væntanlegir hingað
um 20. júní. Verða þeir sex að
tölu, og þvi er ætlunin að reyna
að fá handa þeim sex fjölskyld-
ur hér, sem þeir geti búið hjá.
Hingað til hefur gengið fremur
erfiðlega að fá fjölskyldur
handa þeim. t.d. komu aðeins
fjórir í fyrra. Er sú nemenda-
tala alltof lág þegar tekið er til-
lit til þess að héðan fara ár
hvert til ársdvalar í Bandaríkj-
unum um 20 nemendur. En ég
held að orsökin fyrir því, hve
fáar fjölskylur hafi gefið sig
fram, sé sú, að hér telur fólk,
að einungis komi tii greina fín
heimili, en það er hins vegar
mikill misskilningur, því að við
viljum ekki síður að þau dvelji
á venjulegum meðaliheimilum,
t.d. vildum við gjarnan koma
einhverju þeirra fyrir á góðu
sveitabeimili.
— En ég vil segja það að
lokum, að ef það væri einhver
fjölskylda hér, sem treysti sér
eða hefði áhuga á því að fiá
bandarískan skiptinemanda inn
á heimili sitt, þá vildi ég biðja
hana að snúa sér tl mín í síma
18005. í>að væri æskilegt, að á
þeim heimilum, þar sem nem-
endurnir dvelja, sé einhver ung
lingur á aldrinum 16-18 ára, og
helzt að einhver tali þar ensku.
Sumarstarf AFS að hefjast
Rætt við IViaríu Einarsdóttur, formann sumarstarfsins
Afmælistónleikar
Fóstbræ&ra
í BYRJUN síðustu viku hélt
Karlakórinn Fóstþræður veglega
tónleika í tilefni af 50 ára af-
mæli kórsins. Stjórnendur voru
þeir Jón Þórarinsson og Ragnar
Björnsson.
Á fyrsta hluta efnisskrárinnar
voru lögin „Ár vas alda“ eftir
Þórarin Jónsson og „Fjallgang-
an“ eftir Ragnar Björnsson við
samnefnt Ijóð eftir Tómas Guð-
mundsson. Ragnar Björnsson
stjórnaði þessum tveimur lögum.
Þetta nýja lag Ragnars er á-
heyrilegt mjög. Höfundur notar
ýmsa sérkennilega kóreffekta,
sem því miður virtust stundum
vera endir í sjálfu sér. Að
Vel má vera að nánari kynni af
verkinu muni breyta afstöðu
áheyrandans til þess hvað þetta
snertir.
Á öðrum hluta tónlieikanna
voru verk eftir íslenzk tónskáld,
þ.á.m. eitt eftir söngstjóra þessa
hluta tónleikanna, Jón Þórarins-
son, og einnig gullfallegt lag eft-
ir Gylfa Þ. Gíslason, sem Erling-
ur Vigfússon söng einsöng í.
Nú um nokkurt skeið hefur Er-
lingur verið við söngnám er-
lendis, og er það greinilegt að
hann hefur þar mikið unnið á
stuttum tíma. Söngtækni hans
hefur mikið aukizt og meðferð
hans á lagi Gylfa var frábær.
Erlingur hefur þroskazt mikið
sem söngvari á skömmum tíma
og er á góðri leið með að verða
traustur og smekkvís söngvari,
minnsta kosti virtist við fyrstu
heyrn vera erfitt að greina text-
ann á sumum stöðum; vegna
skiptinga og orða milli radda.
sem mikill fengur verður í í
framtíðinni.
Á þriðja hluta tónleikanna
voru verk eftir erlenda höfunda
og stjórnaði Jón Þórarinsson
þeim. Þar bar tvö lög hæst;
„Naohthelle" eftir Schubert og
„Fylgdu hjarta þíns rödd“ eftir
Járnefelt. Einsöngvari í fyrra
laginu var Sigurður Björnsson,
sem enn á ný kom íslenzkum
áheyrendum á óvart; með betri
og fegurri söng en nokkurntíma
áður. Kristinn Hallsson söng ein-
söng í laginu eftir Járnefelt og
gerði hann því frábær skil, allt
annað verður reyndar að telj-
ast undantekning þegar þessi
ágæti söngvari laetur til sín
heyra. Seinustu tvö lögin á þess-
um hluta tónleikanna voru eftir
finnska tónskáldið Erik Bergman
og hafa verk hans oft skipað
Iháan sess á tónleikum Fóst-
bræðra og það gerðu þau einn-
ig nú, þótt söngurinn hafi ekki
verið eins góður og oftast áður.
Mér er kunnugt að inflúenzu-
tilfelli hafi verið mörg meðal
kórmanna í vikunni fyrir tón-
leiakna. Einkum mun pestin hafa
komið hart niður á efsta hluta®-
kórsins og átti hann til að síga
í nokkrum laganna á fyrstu af-
mælistónleikunum.
Fyrir seinasta hluta þessara
hátíðlegu tónleika, sameinuðust
eldri og yngri félagar og hefur
tala söngmanna þá vart verið
mikið undir 100 manns. Söng-
stjórarnir tveir skiptu fjórum
lögum bróðurlega á milli sín og
var söngur kórsins þróttmikill
og tilhlýðilegur endahnútur á af-
mæilstónleika elzta kórs á fs-
landi í dag. Jón S .Jónsson.
Gestirnir frá Grimsby
farnir heim
Borgarstjórahjónin í Grimsby,
Denys og Kristin Petchell, borg-
arfulltrúar og útgerðarmenn
þaðan, sem dvalizt hafa í Reykja
vík í boði borgarstjórnarinnar,
héldu heimleiðis í gærmorgun.
Heimsókn fulltrúanna frá
Grimsby var til endurgjalds á
heimsókn fulltrúa Reykjavíkur
þangað á s.l. ári. Dvöldust gest-
irnir hér í 5 daga, skoðuðu
borgarstofnanir,
fl.
fiskiðjuver
Morgunblaðinu barst f gær
eftirfarandi tilkynning varðandi
heimsóknina:
„Alderman Denys Petchell
borgarstjóri í Grimsby og kona
hans frú Denys Petchell (fædd
Guðmundsdóttir) senda innileg-
ar árnaðaróskir og beztu kveðj-
ur til allra í Reykjavík og harma
það um leið, að vegna hinnar frá
bæru opinberu dagskréir heim-
sóknarinnar gátu þau ekki heim-
sótt vinafólk hér í Reykjavík.
Þau meta mjög mikils gest-
risni þá, sem þeim hefur verið
sýnd og hefur veitt þeim mikla
gleði þessa minnisstæðu daga
heimsóknarinnar til ættlands frú
Petchell og vita, að fólk hefur
skilið, að tíminn var svo stuttur,
að ekki vannst tóm til þess að
njóta einkaheimsókna.
Alderman Petchell- og kona
hans vona að þau geti heimsótt
Reykjavík áður en langt uni líð
ur og geti þá endurnýjað vin-
áttubönd, sem þau hafa notið
við fjölda fólks í Reykjavík í
m/örg ár. Þau eru þakklát fyrir
hinn mikla fjölda vinarkveðja,
sem þeim hafa borizt.
Samemaður kór eldri og yngri félaga í Fóstbræðrum sem batt endahnútinn á afmælistónleik ana.
Gestrisni og skipulagning borg-
arstjórans í Reykjavík, Geirs
Hallgrímssonar, starfsmanna
hans og meðlima borgarstjórnar-
innar og starfsmanna borgar-
stofnanna, hefur verið frábær
og þau hjónin og aðrir meðlim-
ir sendinefndarinnar frá Grims-
by munu aldrei gleyma hinni
dæmigerðu gestrisni og vináttu
íbúa Reykjavíkur."