Morgunblaðið - 23.04.1966, Síða 31
31
Laugardagur 23. apríl 1966
MORGUNBLAÐIÐ
— íþrótfir
Framhald af bls. 30
- íslandsmótið
unum og lítum á lokastöðuna í
riðlum 3. flokks.
A-riðiIl:
Víkingur 5 5-0-0 10 79:37
Fram 5 3-1-1 7 55:47
ÍR 5 3-0-2 6 53:52
Haukar 5 1-1-3 3 40:53
Þróttur 5 1-0-4 2 45:60
ÍBK 5 1-0-4 2 46:59
Sigurvegari ingur. í riðlinum er Vík-
B-riðilI:
Valur 4 4-0-0 8 56:26
KR 4 2-1-1 5 45:39
Ármann 4 1-1-2 3 32:37
FH 4 1-1-2 3 34:46
Breiðablik 4 0-1-0 1 30:51
Sigurvegari er Valur. — Til
úrslita leika því Víkingur — Val-
um úrslitaleik, þó svo að lið þessi
ur. — Þarna er von á skemmtileg
*éu ólík að mörgu leyti. Víking
•rnir t.d. stórhættulegir með sitt
linuspil, en Valsmenn beita aft
ur á móti meira af langskotum.
Um úrslit þess leiks skal engu
spáð.
Þá er komið að þeim i 2. fl.
karla.
A-riðill:
Fram 3 3-0-0 6 47:28
Valur 3 1-1-1 3 35:34
ÍR 3 1-1-1 3 39:38
KR 3 0-0-0 0 24:45
Sigurvegari í þessum riðli er
Fram, með yfirburðum.
B-riðilI:
Víkingur 3 3-0-0 6 51:25
FH 3 2-0-1 4 33:30
Þróttur 3 1-0-2 2 36:32
ÍBK 3 0-0-0 0 22:55
Sigurvegari í riðlinum er Vík-
ingur.
Úrslitaleikur I 2. flokki karla
er því leikur Fram — Víkings.
Verður þar eflaust um spenn-
andi og jafnframt harðan leik að
ræða. f liðunum eru nokkrir pilt
ar, er léku með unglingalands-
liðinu.
Aðrir leikir á laugardagskvöld
ið, sem einnig eru úrslitaleikir,
eru þessir.
í 1. deild kvenna leika Valur
og FH, bæði þessi lið hafa sigrað
alla andstæðinga sína og heyja
því baráttuna um titilinn. Vals-
stúlkurnar eru svo sem kunnugt
er íslandsmeistarar frá fyrra
ári. Þarna verður sennilega um
mjög skemmtilegan leik að ræða.
í 2. deild kvenna leika KR og
ÍBK. Það lið, sem sigrar í kvöld
hlýtur sæti í 1. deild að ári. Lið
þessi eru nokkuð svipuð að getu
og því erfitt að spá nokkru um
úrslit þessa leiks.
í 1. flokki kvenna er eftir einn
leikur, sem fer fram í kvöld og
er það leikur Fram og Ármanns.
Með sigri í leik þessum tryggja
Framstúlkurnar sér titilinn svo
er einnig ef jafntefli verður. En
tapi Fram verða þrjú lið jöfn að
stigum, þ.e.a.s Fram, Ármann og
Valur.
-- XXX -----
Og loks leikur i 1. flokki karla
á milli Fram og FH. Lið þessi
sigruðu í sitt hvorum riðlinum.
Framliðið er öllu sigurstrang-
legra.
— Snjóskriða
aðrir, því skriðan hljóp nokk
uð þvert á brautina. En braut
in var ónýt sem fyrr segir.
í keppninni, sem lokið var,
urðu úrslit þessi:
TELPUR:
1. Auður Björg Sigurjónsdóttir,
ÍR, 47,9 sek.
2. Auður Harðardóttir, Á,
59,0 sek.
3. Áslaug Sigurðardóttir, Á,
61,5 sek.
DRENGIR:
1. Tómas Jónsson, Á, 50,5 sek.
2. Haraldur Haraldsson, ÍR, 55,3.
3. Eyþór Haraldsson, ÍR, 59,3.
KVENNAFLOKKUR:
1. Ásdís Þórðardóttir, Sigluf.
■ ó9,3 sek.
2. Hrafnhildur Helgadóttir, Á,
65.8 sek.
3. Jóna Jónsdóttir, fsafirði,
68.8 sek.
4. Guðrún Sigurlaugsdóttir,
Akureyri, 72,0 sek.
Keppni í A, B og C flokki karla
verður í Jósefsdal kl. 5 í dag
(laugardag). Um helgina verður
þar og háð drengj akeppni Stein-
þórsmótsins og Innanfélagsmót
verður hjá KR í Skálafelli á
sunnudag.
— Víðavangshl. H.
sigraði Hafsteinn Aðalsteinsson.
í flokki pilta 17 ára og eldri
voru einnig þrír keppendur, en
þar sigraði Ólafur Valgeirsson.
Meðal keppenda í þeim flokki
var Trausti Sveinbjörnsson, en
hann sigraði í þessum flokki
1964 og ’65. Ef hann hefði sigrað
nú hefði unnið til eignar bikar
þann s©m er keppt í þessum
fiokki. Ólafur hefur tvisvar áður
tekið þátt í þessu hlaupi 1963 og
’65 og í bæði skiptin varð hann
í þriðja sæti, má því segja að
hann sé vel að sigrinum kominn.
Keppnin fór í alla staði vel fram,
en þó mætti skipta meir þeim
mikla fjölda sem þátt tekur, en
keppendur voru 96.
Sigurvegari í elzta flokki í
Hafnarfirði.
Úrslit i flokkunum urðu sem
hér segir:
Stúlkur 12 ára og eldri.
1. Oddný Sigurðardóttir 4:18.7
2. Elísabét Ingibergsd. 4:28.3
3. Guðrún R. Pálsdóttir 4:35.6
Stúlkur 11 ára og yngri
1. Ingibjörg Elísdóttir 4:27.0
2. Rósa L. Guðlaugsd. 4:51.^
3. Svanhvít Magnúsdóttir 4:53.5
Piltar 13 ára og yngri
1. Viðar Halldórsson 3:50 4
2. Daníel Hálfdánarson 4:01 0
3. Ágúst Ólafsson 4:05.4
Piltar 14 — 16 ára .
1. Hafsteinn Aðalsteinsson 5:43.0
2. Helgi M. Arthúrsson 6:11.0
3. Dýri Guðmundsson 6:24.7
17 ára og eldri
1. Ólafur Valgeirsson 5:30.7
2. Trausti Sveinbjörnsson 5:40.0
3. Gunnar Kristjánsson 5:55.2
„IVtobergsstapar
og Surtsey4*
HIÐ islenzka náttúrufræðifélag
heldur fræðslusamkomu í há-
tiðasal Háslcólans mánudaginn
25. april kl. 20,30. Þar flytur
Guðmundur Kjartansson, jarð-
fræðingur erindi, sem hann
nefnir Móbergsstapar og Surts-
ey.
Móbergsstaparnir og móbergs-
hryggirnir hafa löngum verið
jarðfræðingum, islenzkum sem
erlendum, mikið umhugsunar-
efni, enda hafa ótal kenningar
um uppruna þeirra komið fram.
Árið 1943 setti Guðmundur
Kjartansson fram þá kenningu,
að móbergsfjöllin væru hlaðin
upp í eldgosum undir jöklum á
jökulskeiðum ísaldarinnar, og
hafa flestír, sem síðan hafa
unnið að athugunum á móbergs-
fjöllum, hallazt að skýringum
Guðmundar á uppruna þeirra.
Er leið á Surtseyjargosið, varð
ljóst að því svipaði um margt
til eldgosa undir jöklum, og
myndi það því verða prófsteinn
á kenningu Guðmundar um upp-
' rua móbergsfj allanna.
í erindinu mun Guðmundur
Kjartansson gera grein fyrir
hinum ýmsu kenningum um
uppruna móbergsfjallanna, og
þá einkum móbergsstapanna,
og gera samanburð á myndun
þeirra og upphleðslu Surtseyjan
Deilur um brezka inn-
flutningstollinn
London, 22. apríl — NTB.
PER Hækkerup, utanríkisráð-
herra Danmerkur, fer í opin-
bera lieimsókn til Bretlands í
næstu viku. Álitiff er, aff viff-
rætlur hans viff brezka ráffa-
menn muni aff mestu leyti fjalla
um brezka innflutningstollinn,
sem nú er 10%.
Hækkerup mun einnig ræða
þau mál er efst verða á baugi á
ráðherrafundi EFTA-landanna,
sem haldinn verður í Bergen
12. og 13. maí n.k.
Innflutningstollur þessi er nú
orðinn alvarlegt deiluefni milli
brezkra yfirvalda og brezku
iðnaðarsamtakanna, sem skor-
uðu á ríkisstjórnina sl. fimmtu-
dag, að afnema hann þegar í
stað.
Tollurinn hefur sætt mikilli
gagnrýni í Evrópu, þó einkum
í Noregi, og hafa verið uppi um
það hótanir, að Norðmenn muni
hundsa brezku vörusýninguna,
sem opnuð verður í Osló í næjtu
viku.
Tollur þessi var upphaflega
16% og var honum komið á um
haustið 1964, til að vega upp á
móti greiðsluhallanum sem þá
var.
Af hálfu brezku stjórnarinnar
er sagt, að hún bíði nánari
fregna frá Osló. Sagt er að svip-
aðar hótanir hafi verið uppi í
sambandi við brezka vörusýn-
ingu, sem nýlega var haldin í
Hong Kong, en hún er sögð hafa
heppnazt mjög vel.
1 orðsendingu brezka iðnaðar-
sambandsins til stjórnarinnar
segir m.a.: „Afnema ber þennan
aukainnflutningstoll eins fljótt
og mögulegt er. Sé það ekki
hægt án einhverrar gagnráðstaf-
ana, er það von okkur, að þær
verði í fullu samræmi við al-
þjóðlegar skuld'bindingar þjóðar
innar.
1 svarbréfi, sem brezki iðn-
aðarmálaráðherrann, Douglas
Jay, ritaði iðnaðarsambandinu,
leggur hann enn á ný áherzlu á
þá stefnu stjórnarinnar um að
lækka og síðar afnema tollinn
jafnskjótt og greiðslujöfnuður-
inn leyfi það. Hann hafi aldrei
verið ætlaður sem vecndarráð-
stöfun fyrir brezka iðnaðinn, og
að hann verði aldrei afnuminn
á þann hátt að aðrar innflutn-
ingshömlur kæmu í staðinn, til
verndar brezka iðnaðinum.
Vorsýning Mynálistoriélagsins
í Listamannaskálannm
MYNDLISTARFÉLAGIÐ opnar
hina árlegu vorsýningu sína i
dag kl. 4 i Listamannaskálan-
um. Á sýningunni eru 52 verk
eftir 17 listamenn, þ.á.m. lág-
myndir (reliefs), listaverk í tré,
og ein vírmynd.
Listamennirnir, sem sýna
Jafntefli í
fimmtu skákinni
MOSKVA, 21. april —. Fimmtu
skákinni í einvígi Tigran Petr-
osjan og Boris Spasskí um
heimsmeistaratitilinn í skák
Iauk með jafntefli eins og fjór-
um fyrstu skákunum. Sömdu
þeir félagar um jafntefli eftir 80
leiki.
Sjötta skákin verður tefld á
morgun (föstudag).
—
Utankjörstaða-
atkvæðagreiðsla
hefst á sunnu-
dag
FRAMBOÐSFRESTUR vegna
bæjar- og sveitarstjórnarkosning
anna þann 22. maí næstkom-
andi rann út á miðnætti þann
20. apríl. Utankjörstaðaatkvæða-
greiðsla má hefjast n.k. sunnu-
dag.
Þann 22. maí verður kosið í
kaupstöðum og kauptúnum, en
þann 26. júní í sveitum.
Unglingadans-
leikir kl. 3-5
á sunnudögum
ÞÓRSCAFÉ tekur upp þá ný-
breytni n.k. sunnudag aff halda
unglingadansleiki kl. 3—5 síð-
degis. „Dátar“ leika fyrir dans-
ínum.
Þórir Baldursson hefur útsett
lögin og æft „Dáta“ undanfarið,
en fyrsta fjögurra laga hljóm-
plata þeirra er nýlega komin á
markaðinn.
Aðgangseyri að þessum síð-
degisdansleikjum verður stillt í
hóf.
verk sín á vorsýningunni að
þessu sinni eru: Eyjólfur J. Ey-
fells, Þorlákur Halldorsen, Jón
Gunnarsson, Sigurður K. Árna-
son, Jóhannes S. Kjarval, Jón E.
Guðmundsson, Sigfús Halldórs-
son, Helgi Guðmundsson, Helga
Weisshappel, Gunnar Hjartar-
son, Jutta Guðbergsson, Rík-
harður Jónsson, Finnur Jóns-
son, Eggert Guðmundsson, Hörð
ur Haraldsson, Sveinn Björns-
son og Freymóður Jóhannesson.
Flestir eiga listamennirnir
2-4 verk á sýningunni og flest
ef ekki öll verkin eru gerð á
síðasta ári. Lágmyndirnar tvær
á vorsýningunni eru gerðar af
Ríkharði Jónssyni, myndhöggv-
ara og eru af þeim Aðalsteini
Eiríkssyni og Sigurði Guðjóns-
syni. Fyrrgreint listaverk í tré
er gert af Sveini Björnssyni og
nefnist það Marzbúinn. Meistari
Kjarval á fjögur málverk á sýn-
ingunni, öll nýleg.
Sýningin verður opnuð kl. 4
i dag, eins og fyrr getur, og
stendur hún yfir í níu daga, til
1. maí. Hún er opin frá kl. 14-22
alla þessa daga.
Pipinelis ræðis-
maður i Reykja-
vikurheimsókn
UNDANFARNA daga hefur ver-
iff staddur í Reykjavík Mario G.
Pipinelis, og kona hans Elvira,
en hann hefur veriff umboðs-
maffur SÍF í Grikklandi í 28 ár
og ræðismaffur íslands i 16 ár.
Hingað kom Pipinelis til að
ræða við forráðamenn SfF og
hitta íslenzka vini sina, sem eru
margir.
Pipinelis tjáði Morgunblaðinu
í gær, að þau hjónin hefðu m.a.
hitt forseta íslands, hr. Ásgeir
Ásgeirsson, Emil Jónsson, yitan-
ríkisráðherra, Hálldór Laxness
og fjölmargra kunningja og vini
úr viðskiptaheiminum.,
Hann sagðist hafa komið til
Reykjavíkur fyrir 11 árum og
finnast mikil breyting hafa orð-
ið á borginni, mikið byggt og
framkvæmdir á öllum sviðum.
Kvað Pipinelis þau hjónin
þakklát öllum þeim mörgu, sem
sýnt hafa þeim vináttu og gest-
risni þá daga sem þau hafa
dvalið í Reykjavík.
Pipinelishjónin héldu til Lon-
don í morgun og fara þaðan
heim til Aþenu.
Fró Fulltrúoráði Sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík
STARFANDI eru á vegum Fulltrúaráffs Sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík eftirtaldar hverfaskrifstofur í borginni. Skrif-
stofurnar eru opnar milli kl. 2—10 e. h. alla virka daga nema
laugardaga milli kl. 9—4.
VESTUR- og MIÐBÆJARHVERFI
Hafnarstræti 19
Sími: 22719
NES- OG MELAHVERFI
Tómasarhaga 31
Simi: 24376 -
AUSTUR- OG NORÐURMÝRARHVERFI
Bergþórugötu 23
Sími: 22673
HLÍÐA- OG HOLTAHVERFI
Mjölnisholti 12
Sími: 22674
LAUGARNESHVERFI
Laugarnesvegi 114
Sími: 38517
LANGHOLTS-, VOGA- OG HEIMAHVERFI
Sunnuvegi 27
Sími: 38519
SMÁfBÚÐA-, BÚSTAÐA- OG HÁALEITISHVERFI
Starmýri 2
Simi: 38518
I