Morgunblaðið - 07.06.1966, Page 3
J^liOJUUdgUl I. JUill i»UU
IN V A W W II w b n v ( v
MARGIR sem áttu leið um
Vesturlandsveg sl. laugardag
ráku upp stór augu er þeir
sáu, hvar stór þyrilvængja
frá varnarliðinu á Keflavík-
urflugvelli lenti þar skammt
frá fiskiræktarstöðinni að
Laxalóni. Sumir álitu jafn-
vel, að þyrlan væri að nauð-
lenda þarna.
Svo var þó ekki, heldur var
I’okarnir bornir í þyrluna
Unglax fluttur meö þyriu
Enginn lax drapst á ferðalaginu
erindi þyrlumanna að ná í eigu fyrirtækisins Látravík
4-5000 unglaxa, sem voru í hf., og átti að flytja þá með
þyrilvængjunni til Láróss,
sem er skammt frá Grafar-
nesi.
Löxunum sem flytja átti,
var komið fyrir í plastpok-
um, sem höfðu áður verið
fylltir með vatni, en síðan
var pokinn áfylltur með súr-
efni. Laxalón mun vera
fyrsta fiskiræktarstöðin hér
á landi, sem notar þessa flutn
ingaaðferð, sem er að sögn
Skúla Fálssonar á Laxalóni,'
á allan hátt hagkvæmari en
að flytja þá í kerum eða
brúsum.
Þegar unglöxunum hafði
verið komið vel fyrir í þyrl-
unni hóf hún sig aftur á loft,
og fiaug beint til Láróss.
Gekk ferðin mjög vel, og
drapst ekki einn einasti lax
á ferðalaginu. Skúli tjáði
Mbl. í gær að í þessari viku
stæði til að flytja um 2 þús-
und unglaxa til Svartár í
Skagafirði, en í stað þess
að flytja þá með þyrlum,
yrðu þeir fluttir með venju-.
legri flugvéL
STAKSTIINAR
Laxinn tekinn úr þrónni
Von á nýjum kart-
öflum í júnílok
C&tt að þurrka hvítu, írsku kartöflurnar
effir suðu til að ná úr þeim vatninu
Laxarnir settir í plastpokann
AW ÞVÍ er Jóhann Jónasson, for
stjóri Grænmetisverzlunar land
húnaðarins tjáði Mbl. í gær, eru
væntanlegar nýjar kartöflur á
markaðinn hér í júnílok, senni-
lega frá Portúgal eða Ítalíu. —
Salan á kartöflum er 600—700
Fyrsti luxinn ór
Lnxú í Kjós
IFYRSTI laxinn sem veiítst í
Laxá í Kjós á þessu sumri,
fékkst sl. sunnudag, öðrum degi
veiðitímabilsins.
Laxinn var 10 pund og sá er
veiddi hann heitir Guðlaugur
Franzon.
Ragnar Lár. sýnir
í Mokka-kaffi
RAGNAR LÁR opnaði sýningu á
Mokka-kaffi sl. sunnudag. Hann
sýnir 14 myndir, álímingar- og
svartlistarmyndir.
Þetta er í annað skipti’ð, sem
Ragnar sýnir í Mokka-kaffi, en
hann hefur að auki haldið 2 sjálf-
6tæðar sýningar í Reykjavík og
ennfremur á Akranesi
tonn á mánuði yfir sumartím-
ann.
Morgunblaðið sneri sér til
Jóhanns í gær sökum þess, að
kvartað hefur verið undan írsk
um kartöflum, sem nú eru hér
á boðstólum.
Jóhánn sagði, að íslenzkar kart
öflur hefðu verið uppseldar í
maílok, en vegna gin- og klaufa ;
veikinnar á meginiandi Evrópu 1
hefði orðið að leita annað með
innkaupin.
Keypt hefðu verið 600 tonn af
uppskeru síðasta árs í írlandi.
en þar hefði ekki fengizt nema
lítið magn af gulum kartöflum,
sem íslendingar vilja helzt, og
því orðið að kaupa hvítar, sem
írum sjálfum finnast beztar. —
Ekki hefði verið um annað að
ræða þar sem frar áttu aðeins
lítið magn af kartöflum til ut-
flutnings.
Jóhann kvað íslendingum yfir
leitt ekki falla hvítar kartöflur
í geð. Kvast hann vilja benda
húsmæðrum á, þar sem kvartað
hefði verið undan vatnsbragði
af þessum hvítu kartöflum, að
hella af þeim vatninu eftir suðu
og hita þær um stund, í ofni
til dæmis, því við það fengist
vatnið úr þeim. Einnig væru
þessar kai-töflur mjög góðar til
að steikjast.
50 veðurfrœðing
ar þirsga í Rvík
í DAG hefst í Hagaskólanum í
Reykjavík 5. ráðstefna norrænna
veöurfræöinga. Flosi Hrafn Sig-
urösson, veðurfræðingur, sem á-
samt þeim Páll Bergþórs-
syni og Markúsi Á. Einarssyni
hefur annazt undirbúning ráð-
stefnunnar, greindi fréttamanni
Morgunblaðsins frá því, að þetta
væri i fyrsta sinn, sem norrænir
veðurfræðingar koma saman til
þings á íslandi, en áður hafa
slíkar ráðstefnur verið haldnar á
öllum hinum Norðurlöndunum.
Að þessu sinni sækja norrænu
veðurfræðirá'ðstefnuna rúmlega
50 veðurfræðingar, 3 frá Dan-
mörku, 5 frá Finnlandi, 12 frá
Svíþjóð, 74 frá Noregi og 18 ís-
lendingar. Flosi greindi frá því,
að venjulega hefðu ráðstefnurn-
ar verið fremur takmarkaðar við
Brotist inn í Gosa
INNBROT var framið í verzlun
ina Gosa að Skólavörðustíg 10 að
faranótt sunnudags og þar var
stolið 80 krónum í skiptimynt
og þrem kartonum af sígarett-
ákveðin efni, en að þessu sinni
verða fleiri svið tekin til um-
ræðu, m.a. úrkoma, þoka, veð-
urspár og flugveðurfræði. Ráð-
stefnan stendur til laugardags
og verður þátttakendum boðið í
ferð um Reykjavík í dag og á
morgun fara þeir í boði Veður-
stofunnar til Hveragerðis, Skál-
holts, Gullfoss, Geysis og Þing-
valla. Flosi Hrafn lét þess getið,
að það væri íslenzkum veður-
fræðingum mjög mikiivægt a’ð fá
tækifæri til að halda slíka ráð-
stefnu og hitta starfsbræður
sína frá hinum Norðurlöndun-
um.
FuElt. úaráð
He!mikal*ar
FULLTRÚARÁÐ Heimdallar
FUS er boðað til fundar í Félags
heimilinu Valhöll við Suðurgötu
kl. 20,30 miðvikudag 8. júní nk.
Áríðandi er að sem allra flestir
meðlimir fulllrúaráðsins mæti á
fundinum.
Hræb ai
Sá blaðamaður íslenzkur, sem
af mestri þröngsýni og ofstæki
ritar um stjórnmál hneykslast
mjög á því í blaði sinu, Þjóðvilj-
anum, sl, sunnudag, að umræður m
um Vietnam í islenzkum blöðum
hafi ekki farið inn á þær braut-
ir, sem honum eru þóknanlegar.
Útlendum manni sagði hann:
„að Þjóðviljinn hefði rætt mik-
ið um styrjöldina í Vietnam og
birt greinar og ræður eftir kunna
rithöfunda og menntamenn, en
þar með væri upptalið”. Og í
lok greinarinnar segir hann:
„Tilgangurinn með þessum
greinarstúfi var sá að vekja at-
hygli á því hvað opinberar i»m-
ræður á íslandi eru yfirleitt ein-
staklega lákúruregar. Hér koma
naumast fyrir frjáls skoðana-
skipti um þau mál. sem mestu
varðar. En séu mál ekki rædd á
frjálslegan og heiðarlegan háti*
fást aldrei neinar markverðar
niðurstöður”. »
Við hér á íslandi höfum af
einhverjum furðulegum ástæðum
ekki gert okkur grein fyrir því
að dagblaðið Þjóðviljinn ræðir
málin á „frjálslegan og heiðar-
íegan hátt“, og að skrif þess
blaðs eru ekki „Iágkúruleg“ eins
og hinna .Það er vissulega tími
til kominn að þessi staðreynd
verði landsmönnum ljós, enda
birtist hún daglega í heiðarlegum
^og flekklausum skrifum Magnús
ar Kjartanssonar!
Berlín, Kórea
og Vietnam
Styrjöldin í Vietnam er aðeins *
einn þáttur þeirrar ofbeldis-
stefnu, sem konnnúnistar hafa
rekið um heim allan frá lokum
heimstyrjaldarinnar síðari. í
Berlín skildu kommúnistar að
sókn þeirra í Evrópu var stöðv-
uð, í Kóreu tóku aðildarríki Sant
einuðu þjóðanna höndum saman
og hrundu árás kommúnista. Nú
stendur stríðið um Suður-Viet-
nam. Styrjaldir hafa miklar
hörmungar í för með sér, og eng-
in þekkir það betur en það fólk
sem býr í Vietnam og hefur ekki
aðeins síðastliðinn aldarfjórðung
heldur í margar aldir verið hrjáð
af styrjöldum og hernaðarátök-**
um. En þeir menn, sem hafa gert
það að sínu lífsstarfi að verja
ofbeldisverk kommúnista í Sovét
ríkjunum í allri Austur-Evrópu,
í Berlín, í Ungverjalandi, t Kóreu
og Kina og nú síðast í Vietnam,
eru ekki til þess fallnir að rísa
upp með vandlætingarsvip og
ásaka aðra um ofsóknir á hendur
lítilli þjóð. Þeirra samvizka er
flekkuð, þeirra fortið er dökk, og
þeim væri sæmst að láta sem
minnst í sér heyra um ofbeldis-
verk kommúnista í Vietnam,
meðan þeir eru ekki reiðubunir ^
til þess að koma fram eins og
menn og fordæma þá ofbeldis-
stefnu sem valdið hefur fólki i
fjölmörgum löndum viðsvegar
um heim ólýsanlegum hörmung-
um. En kommúnistar hér á landi
eru enn samir við sig. Þeir mæla
enn bót árásarstefnu skoðana-
bræðra þeirra hvar sem hún
kemur fram i heiminum.