Morgunblaðið - 07.06.1966, Qupperneq 30
V/ V/
mwm
** aw mmr
Jtrxxvj nvactgm |. J Ulll i^UU
Syndi sinn bezta leik ■ förinni
ÞEGAR Jeikmenn skozka liðsins Dundee United komu hingað til
lands á dögunum, kváðust leikmenn Jiðsins vera næsta ófróðir
um getu íslenzkra knattspyrnumanna og því hálfragir við að
mæta þeim. En í dag halda þeir áleiði s til Kaupmannahafnar
nokkru fróðari um íslenzka knattspyrnu, og vart eru miklar Iíkur
á því, að þeir muni bera henni lof í eyru hinna dönsku knatt-
spyrnumanna. Enda höfum við vist varla gefið þeim ástæðu til
þess. Þessir þrir leikir, sem Skotarnir hafa leikið hér í förinni,
hafa eiginlega verið martröð fyrir áhorfendur — og þó sérstaklega
hinir tveir síðustu. 2. deildar lið Fram sýndi það á móti þeim,
sem búizt hafði verið við, og tókst að skora tvö mörk. En bæði ís-
landsmeistararnir KR og svo úrvalsliðið, sem lék á móti þeim í gær-
kveldi, ollu mönnum miklum vonbrigðum. Héðan heldur Dundee
með markatöluna 17:2, því að það vann úrvalsliðið 6:0.
Hörmulegur fyrri hálfleikur 4:0.
Það varð strax ljóst á fyrstu
mínútum leiksins í gærkvöldi,
hver myndi fara með sigur af
hóimi í þessari viðureign. Skot-
arnir voru mun ákveðnari. fljót-
ari á knöttinn, höfðu öll návígi,
og náðu oft og tíðum bráðgóðum
samleik. Strax á 6. mín. skapað-
ist mikil hætta við íslenzka mark
ið, er Dössing komst inn fyrir,
en Kjartani markverði tókst að
bjarga með naumindum, þannig
að knötturinn hrökk aftur út til
Skota, sem skaut viðstöðulaust
að marki, en nú var það Árni
Njálsson sem bjargaði á línu.
Tveimur mínútum síðar kom svo
fyrsta mark Dundee, og var það
Mitchel sem þar var að verki,
eftir að hafa komizt einn inn
fyrir. Virtist hann vera greini-
lega rangstæður. Tvívegis eftir
þetta skapaðist mikil hætta við
íslenzka markið, Seeman komst
einn inn fyrir, en Kjartan bjarg-
aði, og litlu síðar átti Dundee
skot í stöng. Á 18. mín. skoraði
Pearson svo annað mark Dundee
með viðstöðulausu skoti sem
Kjartan réði ekki við. íslending-
um tókst að ná örfáum upphlaup
um, sem fóru öll út í sandinn.
á 23. mín. kom þriðja mark
Dundee, og varð það Lennart
Wing, sem skoraði það með
hörkuskoti, og óverjandi fyrir
Kjartan. Og það var ekki fyrr
en tveimur mínútum síðar að
íslenzku leikmennirntr létu eitt-
hvað að sér kveða. Eyieifur
sendi knöttinn vel fyrir
frá vinstri vallarhelming, þvert
fyrir markið og til Guðmundar
Haraldssonar sem skaut að
markL MacKey markörður
missti af knettinum, en Briggs
vinstri bakvörður kom aðvif-
andi og ætlaði að hreinsa, en
knötturinn fór í þverslá og það
an út. Þar skall hurð svo sann-
arlega nærri hælum. Og litlu
síðar komst Hermann svo inn
fyrir, en Skotum tókst að bjarga
á siðustu stundu, Þar með má
segja að tækifæri íslendinga í
þessum hálfleik séu upptalin, en
Dundee átti hins vegar eftir að
bæta einu marki við. Það kom
á 30. mínútu, er Dössing fékk
góða sendingu fyrir markið frá
Pearson, og skoraði ágætt mark.
fyrstu mínúturnar heiðarlegar
tilraun til þess að nú samspili.
En Skotunum tókst þó að kæfa
nær hverja einustu sóknartil-
raun í fæðingu, og náði þeir
upp upphlaupi sem lauk með
skoti frá Gillespie, sem Kjartan
réð ekki og þar með var stað-
an orðin 5:0 Eftir þetta mark
gerðist leikurinn þófkenndari,
enda þótt Dundee hefði ávallt
bæði höglin og hagldirnar í leikn
um. Þeir sýndu oft listilega góð-
an samleik en átti í erfiðleik-
um með að finna leiðina að
markinu. Eða kannski voru
þeir bara að leika sér
Þó kom að því á 25. minútu að
þeir skoruðu sjötta og síðasta
markið, og var það Mitchel sem
var þar að verki enn einu sinni
(hann hefur þá skorað samtais
sex mörk í öllum þremur leikj
unum) eftir góða fyrirgjöf frá
Seeman. Eftir það féll allt í
sama horfið — knötturinn hélt
áfram að leika sér að músinni —
undir lokin heyrði maður suma
áhorfendur vera farna að hvetja
landa sína með þessum orðum:
„Áfram Hríseyingar". Leiknum
lauk eins og áður segir með yfir-
burðasigri Dundee 6:0.
Liðin
Það er líklega bezt að vera
ekki langorður um íslenzka úr-
valsliðið, enda vart mögulegí.
Vörnin réði ekki við hina fljótu
framherja Dundee, og framlínan
var ósamstillt og máttvana gagn
vart varnarmönnum Dundee.
Skárstir voru Guðjón Guðmunds
son og Reynir af framlínumönn-
unum, en af varnarleikmönnum
komst Ársæll einna bezt frá
leiknum.
Dundee sýndi án efa sinn
bezta leik í förinni, náði oft
upp skemmtilegum samleik, eins
og áður segir, og bókstaflega
léku sér að hinum islenzku and
stæðingum sínum. Erfitt er að
Framhaid á bls. 31
Tommy Bryceland
— lék með St. Mirren
Norwich kemur í boði Akurnesinga
Lelkur á föstudag við
tilraunHlandslið64
99
Á SL. vetri voru Iiðin 20
ár frá stofnun íþróttabanda-
lags Akraness og hefur banda
lagið viljað mínnast þess á
ýmsan hátt. Einn liðurinn í
því að minnast afmælisins er
sá, að enska atvinnumanna-
liðinu Norwich hefur verið
boðið til landsins og mun lið-
ið koma til landsins 9. júní
nk. og leika hér á landi þrjá
leiki. Þá hefur einnig verið
ákveðið að 1. deildar lið Í.A.
fari til Færeyja 27. júlí nk. í
boði B-36 og leiki þar nokkra
leiki. Einnig eru ráðgerð
íþróttamót á Akranesi í til-
efni afmælisins.
Jþróttabandalag Akraness
hefur tekið þátt i fslandsmót-
um ailt frá stofnun þess og
varð fyrst íslandsmeistari i
knattspyrnu árið 1951. Síðan
hefur lið f. A. stöðugt verið
í fremstu röð íslenzkra knatt
spyrnuliða og oftast verið í
úrslitum bæði í íslandsmóti
1. deildar og bikarkeppninni.
Alls hefur í. A. orðið íslands-
meistari 6 sinnum á þessu
tímabili og fjölmargir leik-
menn liðsins leikið í lands-
liði.
Enskal liðið Norwich, sem
koma mun hingað í boði í. A.
hefur leikið í 2. deildinni
ensku nú um nokkurra ára
skeiö og hefur liðið verið
mjög vaxandi. Hefur félagið
á undanförnum árum keypt
marga góða leikmenn frá öðr
um félögum og hefur koma
þeirra til Norwich orðið til að
styrkja liðið mjög. Af leik-
mönnum liðsins, sem keyptir
hafa verið skulu hér nefndir
nokkrir:
Ron Davies, miðframherji
eða innherji, var keyptur til
liðsins 1963 fyrir 35 þúsund
sterlingspund og hefur hann
sýnt mjög góða leiki og verið
einn bezti leikmaður liðsins.
Hann hefur leikið í landsliði
Welsh og með úrvali leik-
manna undir 23ja ára aldri.
Terry Anderson lék með
Arsenal 1961—1965, en það
ár var hann keyptur til Nor-
wich. Hægri útherji. Hann
lék áður í unglingalandsliði
Englands.
Gordon Bolland, innherji.
Hann lék áðúr með Chelseá
og er annar dýrasti leikmað-
ur, sem Norwich hefur keypt.
Phil Kelly, hægri bakvörð-
ur. Hann lék áðúr með Wolv
es og heíur ennfremur leikið
fimm sinum með írska lands-
liðinu, en hann er fæddur í
írlandi.
Malcolm Lucas, hægri fram
vörður. Hann leikur í lands-
liði Welsh.
Freddie Sharpe, varnarmað
ur. Hann lék áður með Tott-
enham, níu keppnistímabil og
var þar fastur leikmaður.
Dave Stringer, bakvörður
eða miðframvörður. Hann
hefur leikið í áhugamanna-
landsliði unglinga fyrir Eng-
land.
Eins og að framan getur
Framhald á bls. 31
Lið Norwich
Dundee lék sér aö úrvalinu - vann 6:0
Nöfnurnar börðust um metin
og settu sitt metið hvor
Síðari hálfleikur 2:0
Siðari hálfleikur var þó held-
ur skárri en hinn fyrri að því
leyti, að úrvaisliðið gerði þá
Meistoramótið í
útihandknattleik
MEISTARAMÓT íslands í úti-
handknattleik karla og kvenna
fer fram á félagssvæði Ármanns
15. júli til 15. ágúst. Þátttökutil-
kynningar þurfa að berast til Ol-
fert Naabue Melhaga 8 Rvík
ásamt 35 kr. gjaldi fyrir hvern
ílokk fyrir 25. júní n.k
FYRRI hluti Sundmeistaramóts
íslands fór fram í Sundhöllinni í
gær og tvö íslandsmet voru sett.
Keppt var í þrem greinum, 1500
m skriðsundi karla, 800 m skrið-
sundi kvenna og 400 m bringu-
sundi karla. Metin settu Hrafn-
hildur Guðmundsdóttir ÍR í 500
m skriðsundi á 6:56,2 mín. og í
800 m skriðsundi Hrafnhildur
Kristjánsd ittir Á á 11:19.2 mín.
Sund þeirra nafnanna var
mjög skemmtilegt. Hrafnhildur
Guðmundsdóttir tók forystuna í
byrjun og millitími á 400 m var
5:27.0 hjá henni en tími Hrafn-
hildar Kristjánsdóttur var
5:37.5. —
Mettimi var hjá Hrafnhildi
Guðmundsaóttur á 500 m sem
fyrr segir 6:56,2 en tími Hrafn-
hildar Kristjánsdóttur var 7:03,8.
Gamla metið sem Hrafnhildur
Guðmundsdóttir átti var 7:05.7
mín. Svo báðar voru undir því.
Á síðustu 100 m vann Hrafn-
hildur Kristjánsdóttir upp for-
skot nöfnu sinnar og fór fram
úr og setti ísl. met á 800 m
11:19.2 en nafna hennar Guð-
mundsd. synti á 11:22.3. Gamla
meti'ð átti sú síðarnefnda og var
það 11:31.0 (sett í fyrra) svo um
stórstígar framfarir er að ræða
ekki sízt hjá Hrafnhildi Kristj-
ánsdóttur, sem enn er í aldurs-
flokki stúlkna.
í 1500 m skriðsundi karla sigr-
aði Davíð Valgarðsson á 19:44.4
— 2. Guðm. Þ. Harðarson Æ á
19:42.0 og er hann fjórði ís-
lendingurinn sem syndir vegá-
lengdina undir 20 mín. og aldrei
fyrr hafa tveir gert það í sömu
keppni.
í 400 m bringusundi sigraði
Gestur Jónsson SH á 5:54.0 —-
ágætur tími. 2. var Ólafur Ein-
arsson Æ 6:21.6 — efnilegur
unglingur og 3. Reynir Guð-
mundsson Á 6:22.2.