Morgunblaðið - 16.07.1966, Blaðsíða 1
24 siður
Myndin sýnlr hermenn N-Víetnam fylgja tveimur bandarísk-
um flugmönnum, handjárnuðum. Myndinni var dreift af frétta
stofu N-Víetnam með þeim ummælum að hér sé verið að
„færa“ flugmennina til yfirheyrslu um götur Hanoi. — Þotur
flugmannanna voru skotnar niður yfir N-Víetnam.
Flugmannaréttarhöld
undirbúin í Hanoi?
Rússneskur fréttamaðuir
gefur slíkt í skyn
Moskvu, Washington, 15. júlí.
— NTB —
SOVÉZKUR blaðamaður í Hanoi
gaf í dag til kynna að unnið
væri nú að undirbúningi þess að
draga bandaríska flugmenn, sem
skotnir hafa verið niður yfir N-
Víetnam, fyrir dómstóla. Blaða-
maður þessi, Evgeny Kobelev frá
Tass, ritaði í stjórnarblaðið Iz-
vestia í dag að fólk í Hanoi tali
mikið um væntanleg réttarhöld
yfir bandarísku flugmönnunum.
Robert McCloskey, talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins, sagði í dag, að Bandaríkin
litu svo á, að verði flugmenn-
irnir dregnir fyrir rétt sem
stríðsglæpamenn, væri það brot á
Genfarsáttmálanum um meðferð
stríðsfanga. Hann upplýsti, að
Bandaríkjastjórn hefði tekið mál
fanganna upp við mörg tækifæri
og við marga a'ðila, bæði opin-
bera og einkaaðila. Ekki kvað
McCloskey þó tilefni til að greina
nánar frá þessu, því tilraunir til
þess að reyna að bjarga flug-
mönnunum yrðu að fara leynt,
ef þær ættu að bera nokkurn ár-
angur.
Tass-fréttastofan í Hanoi skrif-
aði þaðan, að hundruð þúsunda
STUTTGART —
Tveir fyrrum SS-menn hafa
verið dæmdir í ævilanga þrælk-
unarvinnu fyrir morð eða hlut-
deild í morðurn 30.000 Gyðinga
á TarnopoI-svæðinu í Sovétríkj
unum á stríðsárunum. Tveir aðr
ir voru dæmdir í samtals 31 árs
fangelsi, en þrír. af sjö ákærð-
um, voru sýknaðir.
Sovézk þyrla égnar bandarískri
yfir V-Þýzkalandi
Mótmœli borin fram; í gœr kom til skot-
hríðar á Elbu, er a-þýzkir landamœraverðir
hugðust ná v-þýzkum bát á sitt vald
limlestra líkama í rústum þorpa
og bæja myndu verða ákæran á
hendur flugmönnunum. „Hanoi
er borg, sem er líkt og í víglín-
unni. Heimavarnarliðið, skipað
sjálfboðalfðum, og meðlimir
æskulýðssamtaka grafa skotgraf-
ir og byrgi. Fólkið í Hanoi undir-
býr varnirnar“, skrifaði Kobelev.
Átján bandarískir öldunga-
deildarþingmenn, sem eru and-
snúnir stefnu Johnsons í Víet-
nam, skoruðu í dag á stjórnina
í Hanoi að grípa ekki til þess að
lífláta bandaríska fanga í N-Víet-
nam eða láta til annarra alvar-
legra refsiaðgerða koma gagn-
vart þeim. Slíkar ráðstafanir
Framhald á bls. 8
Heidelberg, 15. júlí AP NTB
BANDARÍSK yfirvöld hafa
mótmælt við sovézk yfirvöld,
vegna atburðar, er átti sér stað
í gær yfir v-þýzku landssvæði.
Þá neyddi sovézk þyrla banda-
ríska þyrlu til að lenda, tvo km
frá landamærum A-Þýzkalands.
Yfirmaður bandaríska herliðs
ins í Evrópu, Andrew P. O’Meara
gaf í dag út sérstaka tilkynningu
í Heidelberg í dag, og var hún
send yfirmanni sovézka herafl-
ans í A-Þýzkalandi, Peter Kiril-
lovitsj Kosjevoj, hershöfðingja.
Fulltrúar sovézkrar hersendi-
nefndar í Heidelberg veittu mót
mælaorðsendingunni mótöku.
Áhöfn bandarísku þyrlunn-
ar hefur skýrt svo frá, að sov-
ézka þyrlan hafi í gær farið inn
yfir landamæri V-Þýzkalands,
nærri Heringen í Hessen. Flaug
sovézka þyrlan beint yfir þá
bandarísku, og lá við árekstri,
svo að sú síðarnefnda varð að
lenda í skyndi. Er svo var komið,
staðnæmtist sovézka þyrlan í
um 100 m fjarlægð frá þeirri
bandarísku, og var að henni
beint vélbyssu. Einn sovézku
flugmannanna veifaði til þeirra
bandarísku, oig mun hann hafa
ætlazt til, að hreyfill hennar
skyldi stöðvaður. Því var ekki
sinnt.
Er v-þýzkir tollverðir komu
á vettvang, nokkrum mínutum
síðar, flaug sovézka þyrlan burt.
Hún sneri þó aftur skömmu síð-
ar, en hvarf á ný burt, er skot-
ið var aðvörunarskotum.
í dag skutu a-þýzkir landa-
mæraverðir af vélbyssum, er
þeir reyndu að ná á sitt vald
v-þýzkum eftirlitsbát á ánni
Elbu, en honum hafði hlekkzt á.
A-þýzku verðirnir reyndu með
skothríðinni að koma í veg fyrir,
að aðrir v-þýzkir bátar gætu
komið til hjálpar.
Skothríðinni var hætt um síð-
ir, og tókst að koma eftirlitsbátn
um að landi, réttu megin.
Chicago-morð-
inginn ófundinn
1,000 manna lögreglulið leitar hans
um gjörvalla borgina
CARTHAGE, Missouri —
Sprengiefnaverksmiðja í Cart
hage eyðilagðist af eldi og spreng
ingum á fimmtudag, en aðeins
einn af 300 staifsmönnum verk
smiðjunnar slasaðist alvarlega.
í fyrstu var haldið að fimra
menn hefðu farizt.
Chicago, 15. júlí — NTB — AP
HIN 33 ára gamli hjúkrunarnemi
frá Filipseyjum, ungfrú Corazon
Amurao, sem ein lifði af morðin
í hjúkrunarnemabústaðnum í
Chicago í fyrrakvöld, vaknaði í
kvöld eftir langan og þungan
svefn í sjúkrahúsi. Henni voru
þá sýndar myndir af 200 þekkt-
um kynferðisafbrotamönnum, en
hún gat ekki borið kennsl á
manninn, sem aöfaranótt fimmtu
dags myrti átta starfssystur henn
ar, hverja af annarri.
Að viðtalinu við Amurao loknu
upplýsti lögreglan að hún hefði
engu að síður getað veitt gagn-
legar upplýsingar.
„Við erum nú bjartsýnni um
horfur á því, að okkur takizt að
upplýsa málið“, sagði Michael
Spiotti, leynilögreglumaður, við
fréttamenn. „Stúlkan hefur gef-
ið teiknara lögreglunnar grei'nan*
góða lýsingu á andlitsdráttum
morðingjans".
Um 1,000 lögreglumenn unnu
að rannsókn málsins í Chicago 1
dag, en er síðast fréttist var
morðinginn enn ófundinn. Hon-
utn er lýst sem háum manni,
dökkum yfirlitum.
„Ég hefi aldrei séð neitt hroða-
legra en þetta“, sag’ði sami lög-
reglumaður.
í Chicago, þar sem menn eru
þó ýmsu vanir, er fólk felmtri
slegið vegna atburðar þessa, sem
sagður er hinn hroðalegasti í allri
glæpasögu borgarinnar.
Uppvíst varð um ódæðið er
ungfrú Amurao kom hlaupandi
út á götuna skömmu eftir að
morðinginn yfirgaf húsið. Henni
tókst að gefa lögreglunni stutta
Framhald á bls. S
Gerðardómur
kaup og kjör
ákveður
þjóna
Verkfallirm aflétt með bráðabirgðarlögum
FORSETI íslands gaf í gær
út bráðabirgðalög að tillögu
ríkisstjórnarinnar um gerðar-
dóm í þjónadeilunni og lok
verkfallsins í veitingahúsum.
Aldrei meiri loft-
árásiráN-Vietnam
Tvær MIG-þotur skotnar niður
og jdrnbrautabrú eyðilögð
Saigon, 15. júlí — AP:
BANDARÍSKAR flugvélar fóru
í 114 árásarferðir yfir N-Viet-
nam á fimmtudag, og hafa aldrei
jafn margar árásarferðir verið
farnar þangað á einum einum
degi, að því er talsmaður Banda
ríkjahers greindi frá í Saigon í
dag. 1 ferðum þessum lentu
bandarísku flugvélarnar þríveg-
is í loftbardögum við MIG-þotur
kommúnista, véku sér undan
flugskeytum, sem skotið var af
Framhald á bls. 8
Samkvæmt því hófst vinna í
veitingahúsum í gær og mun
rekstur þeirra nú vera að
komast í eðlilegt horf að
nýju. — Hafði verkfall fram-
reiðslumanna staðið í rúma
viku og valdið í senn tjóni og
óhagræði, ekki sízt vegna
heimsókna erlendra ferða-
manna til landsins, sem nú
standa sem hæst.
Samkvæmt bráðabirgðalög-
unum skal Hæstiréttur til-
nefna þrjá rnenn í gerðar-
dóm, sem ákveði kaup og
kjör faglærðra framleiðslu-
manna og barmanna í veit-
ingahúsum.
Bráðabirgðalögin ásamt for
sendum þeirra fara hér á eftir
í heild:
Forsendur laganna
Forseti íslands, herra Ásgeir
Ásgeirsson, hefur í dag, að til-
lögu Ingólfs Jónssonar samgöngu
málaráðherra, fallizt á setningu
bráðabirgðalaga um lausn deilu
framreiðslumanna og veitinga-
manna, sem lðitt hefur til stöðv-
unar á rekstri veitingahúsa. Hef-
ur forseti íslands sett bráða-
brigðalög um þetta efni, sem hér
segir:
Forseti íslands
gjörir kunnugt: Samgöngumála-
ráðherra hefiur tjáð mér, að verk
fall hafi staðið yfir hjá félögum
í Félagi framreiðslumanna frá
því 8. þ. m., og hafi sáttatilraunir
ekki borið árangur og ekki horf-
ur á lausn deilunnar í bráð, m.a.
vegna djúpstæðs ágreinings um
rétt Félags framreiðslumanna til
afskipta af vinnutilhögun í veit-
ingahúsum.
Ennfremur, að Samband veit-
inga- og gistihúsaeigenda hafi á-
kve'ðið að loka veitingahúsum
sínum fyrir alla, nema erlenda
dvalargesti, meðan verkfallið
stendur, og tilkynnt það sam-
göngumálaráðuneytinu bréflega.
Muni þá ekki unnt að veita öðr-
um mönnum, þar á meðal far-
þegum erlendra skemmtiferða-
skipa almenna og samnings-
Framhald á bls. 8