Morgunblaðið - 16.07.1966, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.07.1966, Blaðsíða 22
22 MORGU N BLAÐID Laugardagur 16. júlí 1966 Mark Mexico í leiknum við Frakka. Enrique Borja (í dökkri peysu) skoraði af stuttu færi. Marcel Aubour markv. Frakka er liggjandi. Kóreumsnn kræktu í stig2 m n íyrir íeiks’o!; Fólkíb æsti bá og jbe/r fólkið Það rignir jafnt á réttláta sem rangláta. Það fengu heimsmeistaraliðin að reyna er fjórir leikir heimsmeist- arakeppninnar fóru fram í Englandi í gær. Ungverjar stóðu fyrir fyrstu stóru ó- væntu tíðindunum með sigri sínum yfir heimsmeisturun- um frá Brasilíu. Skyndilega er aðstaða Brasilíumanna orðin afar tví Staðan í riðlunum eftirkeppnina í gær er þannig: 1. riðill 3. riðill Uruguay England Mexico Frakkland V-Þýzkal. Argentína Spánn Sviss L U J T Mark St. 2 110 2 13 Portúgal 1 0 1 0 0 0 1 Ungverjal. 10 10 111 Brasiiía 2 0 1 1 2 3 1 Búlgaría 2. riðill L U J T Mark St. 1100502 Sovét 1 1 0 0 2 1 2 Ítalía 2 1 0 1 3 3 2 Chile 2 0 0 2 1 7 0 N-Kórea L U J T Mark St. 1 1 0 0 3 1 2 2 10 14 4 2 2 10 13 3 2 1 0 0 1 0 2 0 4. riðill L U J T Mark St. 1 1 0 0 3 0 2 1 1 0 0 2 0 2 2 0 1113 1 2 0 1114 1 sýn, enda mátti búast við öllu í þessum riðli, sem var svo áberandi jafnast skipað- ur. Brasilíumenn eru í þeirri aðstöðu að VERÐA AÐ VINNA Portúgali til að vera öruggir um að komast í 8 liða úrslit. Annars er staðan í riðlinum þannig að senni- lega kemur markahlutfall til með að ráða hvaða „stórmeist arar“ falla og hverjir komast áfram. Það skeði síðast 1954, að liðið tapaði leik í riðlakeppni — en vann síðan heimsmeist- aratitilinn. Það var herbragð Þjóðverja. Það var ekkert her bragð hjá Brasilíumínnum að tapa í gær. Það var hreinlega stórglæsilegur leikur Ung- verja sem setti heimsmeistar- ana út af laginu og setti þá fram á „fallbrúnina“. Allir vellirnir voru regn- votir í gær og rigning meðan á þeim stóð. Þetta skapaði ó- venjulegar aðstæður, en ekk- ert óvænt skeði — nema þessi sigur Ungverja. Ungverjár hafa tvívegis ver ið í úrslitaleik um heimsmeist aratitil og tapað. Þeir eru Ólympíumeistarar frá Tókíó og það voru Ólympíumeistar- arnir sem sigurinn sköpuðu. Mazurkieviez markv. Uruguay er vel á verði gegn hásendingu að marki hans í leik Uruguay Englands í upphafi keppninnar. Jackie Chariton (5) stekkur einnig upp í von um að geta skallað að marki l'.v. er Jimmy Greaves, miðherji enska liðsins. ÞAÐ hékk á bíáþræði eina stigið sem N-Kóreumenn geta gert sér vonir um að fá í heims meistarakeppninni. Tveim mín- fyrir leikslok tókst þeim að skora í leiknum gegn Chile í gær á Ayresome Park í Middles- borough. Lokasprettur sá er N-Kóreu menn táku í leiknum _— og fengu fullan stuðning samúðar- fullra áhorfenda, sem aðeins voru 14 þúsund taisins, setti svip á leikinn, sem annars var daufur og í lélegra lagi. Vitaspyrnumark : 14 mín leiksins færði Chile forystuna í íeiknum. Það var Ruben Marc- os sem skoraði. I En í síðari hálfieik börðust N- j Kóreumennirnir lágvöxnu t-.ns og Ijón í von um að jafna einjí- um síðustu mínúturnar. Fólkið æsti þá upp og þeir íólkið. Úthald Kóreumanna og gott keppnisskap og baráttuviiji færði þeim þetta eina stig. Leikurinn var lélegur lengst- um og langtímum saman var engu líkara en tvö slök ensk fjórðu deildariið ættust við. ChiLemenn voru aligóðir í byrjun og stöðvuðu tilrauuir Kóreumanna í fæðingu án erf- iðleika. Brotið var gróflega á Pedræo Araya og vítaspyrnan var örugglega framkvæmd. Ungverjar unnu fyrir frábæran leik lllarkvörður Brasilíu var þeirra bezti maður UNGVERJAR gtrðu það ótrúlega — unnu heimsmeistarana frá Brasiliu með 3—1 i Liverpool í gær. Og sigurinn var engin tilviij- un. Það var frábær knattspyrna sem skapaði hann og síðari hálf- leikur hjá Ungvcrium er einhver glæsilegasti leikkafli sem lengi hefur sézt. Og með irábærum leik sínum, rituðu Ungverjarnir kapi tula í knattspyrnusöguna sem lengi mun minnzt verða. Það eru engar ofsögur að segja að sigurinn hafi komið eins og reiðarslag í „heimi knattspvrnunnar. Þetta er fyrsti ósigur Bras- ilíu í kappleik á heimsmeist- arakeppni í 12 ár. Og síðasti ósigur þeirra á þeim vett- vangi var í Bern 1954 — fyr- ir Ungverjum. ■ Leikur lið- anna þá varð frægur að end- emum, slík var harkan og er tii búningsklefanna kom eft- ir leikinn þá, brutust út áflog milli leikmanna, sem síðan hafa verið nefnd „Bernaror- ustan“. Nú fór allt friðsamlega fram. Bæði lið lögðu sig fram um að sýna góða knattspyrnu — og gerðu það í ríkum mæli. Og allir skildu sem vinir. En janvel heimsmeist- ararnir dá Ungverjana fyrir þeirra glæsilegu knattspyrnu. Brasilíumenn hvíldu Pele. Hann er sagður lítillega meidd- ur á hné. Sumir segja að það sé ekki aðalorsökin heldur hafi átt að geyma hann til síðari ieikja. En úrslitin nú gera hreinlega þýtt það, að Brasilía komist ekki í átta liða úrslit. Þrjú lið eru nú jöfn og efst í riðlinum, Portugal Ungverjaland og Brasilía, öil með 2 stig. Brasiiía á eftir að leika við Portugal og Ungverja- land við Búlgaríu. Gerum ráð fyrir sigri Ungverja, þá eru þeir öruggir, en þá nægir Portugöl- um jafntefli til að komast áfram og slá heimsmeistarana út úr ! keppninni. Það er skammt öfg- anna á milli. Ungverjar fengu „óskabyrjun'* Innherjinn Vargas Bene skoraði á 3. mínútu. Staðgengill Pele í leiknum jafnaði fyrir Brasilíu á 15. min og síðan var baráttan jöfn, frábær leikur á báða bóga ★ Yfirburðir. Er síðari háifleikur hófst náðu Ungverjar enn betra taki á íeikn um og virtust nú knattspyrnu- geta þeir snögglega blómstra eins og blóm á sumardegi. Smá saman náðu þeir algerum yfirburðum í leik og heimsmeist- ararnir urðu eins og börn í með förum þeirra. A 19. mín. skorar Farkas fyrir Ungverja og við það mairCt brotna Brasilium&nn gersamiega. Vörn- in varð reikul í rásinni og fram- iínan gugnaði og fékk litlu á o r k a ð . Ungverjarnir voru „kiassa“ betri. Rétt áður en þetta mark var skorað komu þó Brasilíumenn knettinum í ungversika markið, en það var rangstöðumark. Er 16 mín. voru eftir a>f leik var gróflega brotið á Bene og úr vítaspyrnu skoraði Meszoly a.f mikliu öryggi. Litlu síðar var knötturinn enn einu sinni í marki Brasilíu en það var rangstöðu- mark. Með þessum sigri fengu Ung- verjar uppbót fyrir 1:3 tapið fyrir Portúgal í leik sem þeir annars hefðu átt að vinna eftir samleik þeirra og tækifærum. Brasilíumenn geta afsakað sig með fráveru Peles og með siæm- ar aðstæður vegna rigndngar. En. allir eru á einu máli um að Brasilíumenn með alla sína beztu menn í bezta formi og við ágætar aðstæður hefðu ekki get- að unnið Ungverja eins og þeir léku þennan dag. Oiæsilegt scg&i þjálfari Brasilíu „Liðsmenn minir áttu slæman leik, en Ungverjarnir léku glæsilega knattspyrnu“, sagði þjálfari Brasiliumanna Vincente Feola eftir hin ó- væntu úrslit í gær. „Það var greinilegt að liðs men voru taugaóstyrkir og fjarvera Peles hafði mikil sál ræn áhrif. Okkar lið var einnig óheppið þar sem marg- ir okkar manna voru haltrandi með meiri og minni sár. I næsta leik — gegn Portugal leggjum við okkur alla fram.“ Gylmar markv. • Brasilíu, sem var bezti maður í liði þeirra kvað Ungverja mjög góða skotmenn og sagðist ekki skilja hvernig svona gott lið gæti tapað 1-3 fyrir Portugal. rnsilía í hættu ?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.