Morgunblaðið - 16.07.1966, Qupperneq 3
Laugardagur 16. júlí 1966
MORCU NBLAÐIÐ
3
Landsmót hestamanna sett
að Hdlum í blíðskaparveöri
Þytur sigraði Gianna í 800 m hlaupi á 65.0 sek.
Hólum, Hjaltadal, 15. júlí.
Frá blaðamanni Mbl., Elínu
Pálmadóttur.
HÉR á Hólum er blíðskaparveð-
ur, hlýtt og notalegt. Sennilega
eru komnir hingað um 1000 lang-
ferðahestar og á grænum völlum
við Víðinesá er risin marglit
tjaldborg, þar sem líklegast eru
um 1000 manns. Streymir fóik
hingað í bifreiðum.
Færri komu ríðandi, en búizt
var við, af ótta við fjallvegi,
sem svo reyndust ekki svo slæm-
ir og ætlað var. Munu því nær
allir hóparnir ætla fjöll suður.
Lengst að eru komnir Aust-
firðingar, en ferðin tók þá sex
daga, svo og Reykvíkingar.
Á fimmtudag var unnið að
dómsstörfum allan daginn og
Orloisheimilið
Lumbhaga .
ORLOFSHEIMILIÐ í Lambhaga
við Straumsvík, sunnan Hafnar-
fjarðar er nú starfandi. Öllum
hafnfirzkum konum, sem þess
óska, er boðin 10 daga ókeypis
dvöl á heimilinu.
Ráðskona er frú Ruth Guð-
mundsdóttir.
Konur, komið og njótið þeirr-
ar einstæðu náttúrufegurðar,
sem Lambhagi hefur uppá að
bjóða, þetta er síðasta sumarið,
sem hafnfirzkar konur eiga þess
kost að dvelja þar, vegna þeirra
stórframkvæmda, sem fyrirhug-
aðar eru.
Þetta er 12 starfsárið.
Frá árinu 1960 hafa þau heið-
urshjón, frú Sólveig og Loftur
Bjarnason útgerðarmaður sýnt
þann höfðingsskap og skilning á
oriofsmáli hafnfirzkra kvenna,
að iána hús sitt, Lambhaga, end-
urgjaldslaus fyrir þessa starf-
semi, og verður það aldrei full-
þakkað.
í orlofsnefnd Kvenfélagsins
„Sunnu“ eru: Sigurrós Sveins-
dóttir, sími 50858; Soffa Sigurðar
dóttir, sími 50304 og Gróa Fri-
mannsdóttir sími 50661.
HINN 25. júní sl. var opnuð í
Hannover norræn listsýning, ein
hin mesta, sem haldin hefur ver
ið í Þýzkalandi. Þar eiga hlut
að Norðurlönd öll, en Norræna
listbandalagið er sýningaraðili.
Sýningin var opnuð með við-
böfn og lék Den danske Kvart-
ett norræna tónlist á staðnum.
Frá Hannover mun sýningin
verða send til V-Berlínar og það
an til Frankfurt, Stuttgart og
Essen, en hún verður um háift
ár í landinu.
Sýningunni er ekki stúkað
eftir þjóðerni, heldur Norður-
lönd kynnt sem heild, en sá hátt
ur hefur verið hafður á um sýn
ingar Norræna listgandalagsins
um nokkurt skeið. Á sýningunni
eru verk eftir þessa íslendinga:
Kjarval, Jóhann Briem, Jón
Engiiberts, Benedikt Gunnarsson,
Valtý Pétursson, Eirík Smith,
Kjartan Guðjónsson, Svavar
Guðnason, Hafstein Austmann,
Jóhannes Jóhannesson, Sigurjón
Óiafsson, Ólöfu Pálsdóttur, Jó-
hestar skoðaðir og reyndir. í
góðnestakeppninm eru um 46
gæðingar og er mikið talað um
það manna á meðal, að Blær frá
Langholtskoti sé sigurstrangleg-
astur. Á hestamannamótinu á
Þingvöllum varð hann annar.
Dómnefnd verst allra frétta, en
hana skipa: Steinþór Gestsson á
Hæli, Haraldur Sveinsson og
Sveinbjörn Jónsson á Hafsteins-
stöðum.
Stóðhestar eru 33 og verða
sýndir í 14 flokkum eftir aldri
og með afkvæmum. Kynbóta-
hrossin eru alls 128, þar af 67
hryssur.
hann -Eyfells, Jón Benedikisson
og Guðmund Benediktsson.
(Frá félagi íslenzkra myndlist-
armanna).
Allt hér hefur gengið mjög vel,
utan það að einn piltur brenndi
sig á gasi, sem þó var ekki stór-
vægilegt. Hér er sjúkrabifreið á
staðnum og dýraiæknir.
Fimmta landsmót hestamanna
var svo formlega sett að Hólum
kl. 2 eftir hádegi í dag. Einar G.
E. Sæmundsen formaður Lands-
sambands hestamanna setti
mótið. í setningarræðu sinm
sagði hann m.a.:
„Einn af höfuðþáttum þeirra
samtaka, er standa að þessu
móti er að stuðla að því, að hin
forna þjóðaríþrótt íslendinga,
hestamennska, eflist og dafni
og um leið að treysta ræktun ís-
lenzka reiðhestastofnsins. Störf
hestamananfélaganna hvíla því
á þjóðlegum grunni og þótt að-
eins hluti af þeim fjölda, sem
sækir heim að Hólum þetta mót,
komi á hestum, er líklegt að
hverfa þurfi æði langt aftur í
aldir til þess að ná samjöfnuði í
fjölda ríðandi manna á Hólastað
sem þessa daga. Við lifum hér
upp horfinn þátt sögunnar þessa
daga og minnumst þess, er ver-
Einar G. E. Sæmundsen setur
Landsmót liestamanna að Hól-
um í gær.
aldlegir höfðingjar fylktu liði á
þessum slóðum. Á þeirri tíð
blikaði á spjót og skildi við
Viðinesá, og farið ófriðlega. Nú
ríkir hér friður og samlyndi og
fagurlit tjöld hylja orustuvöll-
inn forna. Þar njóta hestamenn
hvíldar um nætur og sólskin
blikar á gljáfægð farartæki nú-
tímans, bílana“.
Eftir það var riðið um svæðið
stóðhestum, hryssum og góðhest-
um og mátti sjá margan fallegan
grip. Kynntu það Hjalti Pálsson
og Haraldur Árnason.
Kl. 5 voru svo undanrásir
kappreiða. Keppt á -250 m. skeið
spretti, 300 m. spretti og 800 m.
hlaupi.
Bezta tímann á skeiðinu höfðu:
Hrollur Sigurðar Ólafssonar á
26.4 sek., Buska Guðmundar
Gíslason i Reykjavik á 27,4 sek
og Blakkur frá Ásthildarholti á
27,8 sek.
Á 300 m. spretti keppti 21 hest
ur. Beztan tíma höfðu: Ölvaldur
frá Sólheimatungu í Mýrarsýslu
23.5 sek., Glóð frá Hvítárholti i
Hreppum á 23,5 og Fjallaskjóni
frá Kúskerpi í Skagafirði á 23,8
sek.
Mesti spenningurinn var í 800
m. hlaupinu. Kepptu 19 hestar í
þremu’r riðlum. Meðal þeirra eru
margir hlaupagarpar og stendur
úrslitakeppnin einkum milli
tveggja þeirra, Glanna úr Rang-
árvallasýslu, sem hefur bezta
tíma á landsmóti, hljóp á Þing-
völlum á 64,5 sek. og Þyts Sveins
Sveinssonar úr Reykjavík, sem
setti íslandsmet á 800 m. hvíta-
sunnukappreiðum Fáks. Hafði
Þytur nú bezta tímann, hljóp
800 m. á 65.0 sek., Glanni hljóp
á 67,7 sek og Gustur Baldurs
Beigsteinssonar á 70,1 sek. Verð-
ur hlaup þessara hesta mest
spennandi á mótinu.
Lauk kappreiðum kl. 19.30. Á
morgun verður dómum um stóð-
hesta lýst, svo og dómum um
hryssur. Norðlendingar og Sunn-
lendingar keppa í naglaboð-
hlaupi og milliriðlar verða i
■ kappreiðum.
SIAKSTilNAR
Ever er þeirra stefna?
Stjórnarandstæðingar hafa
að undanförnu sakað ríkisstjórn
ina um erfiðleika ákveðinna at-
vinnugreina og haldið því fram,
að þeir erfiðleikar væru ein-,
göngu afleiðing rangrar stjórn-
arstefnu. Hins vegar hefur far-
ið minna fyrir því, að þeir hafi
látið uppi, hver þeirra stefna
er i málefnum þessara tilteknu
atvinnugreina.
Togaraútgerðin
Að undanförnu bafa t.d.
vandamál togaraútgerðarinnar
verið mjög til umræðu. Þótt það
liggi raunar ljóst fyrir að þau
vandamál eru ekki til komin
vegna stefnu núverandi rikis-
stjórnar í málefnum sjávarút-
vegsins heldur sökum þess að
togararnir hafa misst veiðisvæði,
sem þeir áður höfðu svo og
vegna úreltra ákvæða um fjölda
áhafnar o.fl. hafa stjórnarand-
stæðingar reynt að koma sök-
inni á ríkisstjórnina. En þess
vegna er full ástæða til að
spyrja: Hver er stefna Framsókn
armanna og kommúnista í mál-
efnum togaraútgerðarinnar?
Hvað vilja þeir gera henni til
bjargar? Mbi. hefur lýst þeirri
skoðun sinni, að athuga beri
gaumgæfilega hvort leyfa beri
togurum að veiða innan land-
helgi ákveðinn tíma á ákveðnum
svæðum. Eru Framsóknarmenn
og kommúnistar samþykkir því?
Það hefur a.m.k. ekki enn kom-
ið fram. Mbl. hefur bent á þá
staðreynd að togararnir geta
komizt af með færri menn en
nú er en það mundi hafa í för
með sér kjarabót fyrir áhafnir
tegaranna. Eru Framsóknarmenn
og kommúnistar hlynntir því?
Mikið hefur verið talað um það
af hálfu Framsóknarmanna og
kommúnista að kaupa beri ný
skip, þegar gömul eru seld. En
hvaða vit er í því meðan ekki
liggur fyrir hvort rekstrar-
grundvöllur er fyrir hendi.
Eru Framsóknarmenn og
kommúnistar reiðubúnir að
leggja til og taka ábyrgð á því,
að skattgreiðendur verði að
greiða stórar fúlgur vegna tap-
reksturs skipa sem ekki er rekst
ursgrundvöllur fyrir? Hver er
stefna stjórnarandstæðinga í má)
efnum togaraútgerðarinnar?
Iðnaðuiinn
Á sama hátt hafa stjórnarand-
stæðingar sakað ríkisstjórnina
um tímbundna erfiðleika ákveð-
inna iðngreina sérstaklega fata-
iðnaðarins. Þótt sýnt hafi verið
fram á með rökum að rik-
isstjórnin hefur beitt sér fyrir
stórlega auknum stuðningi við
iðnaðinn einmitt til þess að
gera honum kleyft að aðlaga
sig breyttum aðstæðum hafa
Framsóknarmenn og kommún-
istar. gengið svo langt að saka
ríkisstjórnina um erfiðleika ein
stakra iðnfyrirtækja, sem í mörg
um tilvikum eru af allt öðrum
toga spunnir. En hver er þá
stefna stjórnarandstæðinga í iðn
aoarmálum? Vilja þeir láta
hækka tolla og takmarka inn-
flutning á erlendum iðnaðarvör
um. Það mundi hafa í för með
sér hækkun á verðlagi innan-
lands, kauphækkanir vegna visi
tölubindingar og almenn verð-
bólguáhrif. Auk þess yrði þar
um að ræða stórkostlega kjara-
skerðingu fyrir aimenning í
landinu. Er þetta stefna stjórn-
arandstæöinga í iðnaðarmálum?
Því verða þeir að svara hispurs
laust um leið og þeir áfellast
ríkisstjórnina fyrir þá stefnu,
sem hún hefur markað i mál-
efnum iðnaðarins og miðar að
því að hér verði byggður upp
lieilbrigður og samkeppnishæfur
I io.iaður.
í gær lentu fjórar bifreiðar i árekstri á Hringbraut skammt fyrir austan Landsspitalann. Á
myndinni sjást afleiðingarnar. Skemmdust bifreiðarnar töluvcrt.
Horræn listsýning
opnuð í Hannover