Morgunblaðið - 16.07.1966, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 16. júlí 1966
— Gerðardómur
Framh. af bls. 1
bundna þjónustu. Nú sé mesti
annatími veitingahúsa, vegna
mikils fjölda erlendra ferða-
manna og ferSamannaskipa.
Verði ekki unnt að veita þessu
ferðafólki sæmilega þjónustu, sé
hætta á að varanlega verði spillt
árangri langrar og ötullar land-
kynningarstarfsemi, sem erfitt
yrði að bæta, og bitna myndi á
öllum peim aðilum hér á landi,
sem hafa atvinnu af þjónustu við
fer'ðamenn, og verða þjóðinni til
vansæmdar.
Því telur ríkLsstj órnin, að
brýna nauðsyn beri til að koma
í veg fyrir stöðvun á rekstri
veitingahúsanna.
Fyrir því eru hér með sett
bi áðabirgðalög, samkvæmt 28.
gr. stjórnarskrárinnar, á þessa
leið:
Gerðardómurinn
1. gr.
Hæstiréttur tilnefnir 3 menn í
gerðardóm, sem ákveði kaup og
kjör faglærðra framreiðslu-
manna og barmanna í veitinga-
húsum.
Hæstiréttur kveður á um, hver
hinna þriggja gerðardómsmanna
skuli vera formaður dómsins.
Gerðardómurinn setur sér
starfsreglur, aflar sér af sjálfs-
dáðum nauðsynlegra gagna, og
er rétt áð krefjast skýrslna, munn
legra eða skriflegra, af einstök-
um mönnum og embættismönn-
um.
2. gr.
Gerðardómurinn skal við á-
kvörðun þóknunar og starfs-
kjara hafa hliðsjón af samningi
frá 4, júní 1965 milli Sambands
veitinga- og gistihúsaeigenda og
Félags framreiðslumanna, svo og
þeirra kauphækkana og kjara-
bóta, sem sambærilegar stéttir
hafa orðið aðnjótandi frá þvi 4.
júní 1965.
Verkföll óheimil
3. gr.
Verkföll, þar á meðal samúðar-
verkföll í því skyni að knýja
fram aðra skipan kjaramála, sem
lög þessi taka til, eru óheimil,
þar á meðal framhald verkfalls
Félags framreiðslumanna, sem
hófst 8. júlí 1966.
4. gr.
Ákvarðanir gerðardóms, sam-
kvæmt 1. gr. skulu að því er
varðar greiðslur veitingahúsaeig-
enda til félaga I Félagi fram-
reiðslumanna gilda frá gildis-
töku laga þessara.
Að öðru leyti skal samningur
Sambands veitinga- og gistihúsa-
eigenda og Félags framreiðslu-
manna, dags. 4. júní 1965, gilda,
þar til gerðardómur fellur.
5. gr.
Kostnaður við gerðardóminn,
þar á meðal laun gerðardóms-
manna eftir ákvörðun ráðherra,
greiðist úr ríkissjóði.
6. gr.
Með brot gegn lögum þessum
skal farið að hætti opinberra
mála, og varða brot sektum.
7. gr.
Lög þessi öfðlast þegar gildi og
gilda þar til nýr samningur tekst
milli Sambands veitinga- og
gistihúsaeigenda og Félags fram-
reiðslumanna, þó eigi lengur en
til 1. febrúar 1967.
G j ö r t á Bessastöðum,
15. júlí 1966.
Ágeir Ásgeirsson
(L. S.)
— Loftárásir
Framhald af bls. 1
jörðu, og eyðilögðu mikilvæga
járnbrautarbrú á járnbrautinni
milli Kína og Hanoi. í einni loft-
orrustunni skutu bandarískar
orrustuþotur niður tvær MIG-21
þotur Hanoistjórnar. — Þotur
þessar eru sagðar þær fullkomn
ustu, sem kommúnistalöndin eiga
yfir að ráða.
í annarri leftorrustu réðust
tvær MIG-21 að þremur F-8
Crusader-þotum, sem komu frá
flugþiljuskipinu Oriskany. Ein
F-8 þotan og önnur MIG þotan
löskuðust, en engin vél var skot
ín niður.
f þriðju orrustunni réðust tvær
MIG-17 þotur rð hóp Thunder-
chief-þota. Skutu MIG-þoturnar
á bandarísku vélarnar án þess að
hæfa, en lögðu síðan á flótta.
Thunderchiefvél&rnar réðust þá
á eldflaugastöð 64 km frá Hanoi.
Þá var frá því greint í dag, að
tveimur eldflaugum hefði verið
skotið af jörðu á hóp Fhantom-
véla, 48 km. frá Hanoi. Eldflaug
arnar sprungu báðar alllangt frá
bandarísku vélunum og ollu engu
tjóni.
Fregnir herma, að flugvélum N-
Vietnam og kröftugri loftvarna
skothríð liafi tekizt að koma í
veg fyrir að bandaríksar flug-
vélar gætu gert frekari árásir á
olíubirgðastöðvar í N-Vietnam á
fimmtudag Sneru vélarnar sér
því að árásum á radarstöðvar og
eldflaugastöðvar.
Bandaríkjamenn segjast hafa
misst 292 flugvélar yfir N-Viet
nam á sl. 17 mánuðum. Hinsveg
ar tilkynnti fréttastofa N-Viet-
nam í dag, að 1200 bandarískar
flugvélar hefðu verið skotnar
niður.
— Ófundinn
Framhald af bls. 2
lýsingu á því, sem gerzt hafði,
áður en taugaáfall yfirbugaði
hana.
Amurao faldi sig undir rúmi,
og það hefur að líkindum bjarg-
að lífi hennar að moi'ðinginn
hreint og beint gleymdi henni.
Upplýsingar þær, sem stúlkan
veitti lögreglunni í kvöld, benda
til þess að morðinginn sé hvítur
maður, ca. 76 kg. að‘ þyngd, 1.80
má hæð með stuttklippt hár. —
Amurao var þó ekki alveg viss
um háralit hans.
Er Amurao var að því spurð,
hvernig á því hefði staðið, að
engin neyðaróp hefðu heyrzt frá
íbúðinni, sagði hún að stúlkurn-
ar hefðu líklega verið gjörsam-
legá lamaðar af skelfingu. Hún
gaf einnig til kynna, að félagar
hennar hefðu ekki gert sér grein
fyrir tilgangi ódæðismannsins,
og haldið sig mundu sleppa ó-
meiddar ef þær fylgdu honum
inn í herbergi það, sem morðin
fóru fram í.
— Kaffi
Framhald af bls. 24
framleiðslu fyrir O. Johnson &
Kaaber kaffi.
Því er augljóst, að um enga
leið er að ræða aðra en þá, að
stöðvuð verður framleiðsla og
dreifing á O. Johnson & Kaab-
er kaffi, þangað til tekst að afla
hráefnis, sem svarar þeim kröf-
um um gæði, sem að framan
er lýst. Þykjr því stjórn Kaffi-
brennslu O. Johnson & Kaaber
hf mjög leitt að þurfa að til-
kynna viðskiptavinum sínum, að
um nokkurra daga skeið verð-
ur O. Johnson & Kaaber kaffi
eigi fáanlegt á markaðinum. Nú
þegar hafa verið gefðar ráð-
stafanir til að kaupa frá kaffi
seljendum í Evrópu birgðir af
Rio-kaffi í hæsta gæðaflokki, og
verður framleiðsla og dreifing
hafin á ný, strax og þessar birgð
ir berast til landsins. Má búast
við að þetta taki allt að viku-
tíma.
— Leitað álits
Framhald af bls. 24
leg, enda ekki gripið inn í af
þeim fyrr en á seinustu stundu
og þegar deilan var komin í
■hreint óefni.
Verkfallið var þegar búið að
skaða okkur íslendinga erlend-
is og valda fjánhags- og gjald-
eyristjóni, en ástandið hefði þó
stórversnað eftir 15. júlí, vegna
skemmtiferðaskipanna, ráð-
stefna, funda og lokunar á veit-
inga- og matstöðum í Reykja-
vík.
Fáist ekki í framtíðinni lausn
á stimpilkassaspursmálinu í vín
stúkum, hlýtur það fyllilega að
koma til álita, að veitingamenn
loki hreinlega vínstúkunum, en
hætt er við því að barmenn
verði lítt hrifnir af slíku.
Því er álit SVG það, að hiá
bráðabirgðalögunum hafi ekki
verið hægt að komast“.
— Réttarhöld
Framh. af bls. 1
myndu aðeins hafa það í för með
sér að háværar kröfur yrðu uppi
um að gripið yfði til skjótra og
harkalegra gagnráðstafana, og
slíkt gæti skapað mikla hættu,
sögðu þingmennirnir.
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu
Gólfklæðning frá
DL
w
er heimskunn gæðavara.
GÓLFDÚKAR
GÓLFFLÍSAR
GÓLFTEPFI
við allra hæfi.
Munið
merkið
er trygging yðar fyrir beztu
fáanlegri gólfklæðningu.
Deutsche Linoleum Werke AG
Ingólfur Jónsson.
Sími 33494.
VeiÖimenn
jöklafarar
Sportklúbbar
Mesti vegleysubíll landsins 18 — 20 far-
þega, hraði 90 — 100 km. á klst., spil, drif
í öllum hásingum, dúnþýður.
Söluupplýsingar kl. 12—13 og eftir kl. 19.
Nælonsloppar
Allar núverandi birgðir seldar á
kr. 198.00
Félag
■slenzkra
hljómlistarmanna
Áríðandi félagsfundur verður haldinn í dag (laug-
ardag) kl. 13,15 að Óðinsgötu 7.
Fundarefni: Samníngarnir.
STJÓRNIN.
Vestmanneyingar
Höfum tekið að okkur söluumboð fyrir hin þekktu
Ekco sjónvörp
Fagmaður annast uppsetningu á loftnetum og
stillingu tækjanna.
Tækin eru til sýnis í verzluninm Orin Kirkjuvegi.
Greiðsluskilmálar.
Rafvirkinn sf.
Símar 1956 og 2295.
MOFTLEIBIR
Húsnæði vegna
söluskrifstofu
Loftleiðir vilja leigja strax rúmgott hús-
næði í miðbænum til farmiðasölu og ann-
arrar almennrar afgreiðslu. — Tilboð
sendist skrifstofustjóra eða afgreiðslu-
deild Loftleiða, sem allra fyrst.
OFmiOIR