Morgunblaðið - 16.07.1966, Blaðsíða 10
10
MORCUNBLAÐIÐ
Laugardagur 16. júlí 1966
Gandhi hafði ekki
erindi sem erfiði
Sovézkir leiðtogar gata ekki faliizt \
á indverskar tillögur, sem mibað
er að friði i Vietnam
Moskva, 15. júlí — AP-NTB.
Forsætisrá'ðherra Indlands, frú
Indira Gandhi, hélt í dag áfram
viðræðum sínum við sovézka
leiðtoga um tillögur þær, sem
hún hefur sett fram, og miða að
því að koma á friði í Vietnam.
Hins vegar virðist allt benda til
þess, að hún hafi ekki haft er-
indi sem erfiði í Kreml.
Gandhi átti í dag fjórða einka
samtal sitt við Kosygin, forsætis
ráðherra, og stóð það á aðra
KAÍRÓ —
Sjö manns, þar af tvær kon-
nr og eitt barn. dóu af þorsta
fyrir skömmu, eftir að hópurinn
hafði farið villur vegar í eyði-
mörkinni vestan Nílar, að því
er egypzk blöð segja.
klukkustund, en mun ekki, frek-
ar en þau fyrri, hafa Leitt til sam
komulags eða árangurs.
Kosygin mun hafa gert for-
sætiSráðherranum indverska
grein fyrir því, að sovézkir ráða-
menn geti ekki fallizt á tillögur
indversku stjórnarinnar um al-
þjóðlega ráðstefnu, sem fjalli um
Vietnamstyrjöldina.
I veizlu, sem haldin var í kvöid
í Moskvu, lýsti frú Indira
Gandhi því yfir, að Alþýðulýð-
veldið Kína hefði reynt að auka
á erfiðleikana í Vietnam með
því að halda því fram, að
styrjöld væri óumflýjanleg. Ekki
nefndi hún Kína réttu nafni, en
talaði um „stórt land í Asíu“.
Forsætisráðherrann indverski
hefur nú dvalizt fimm daga í
Moskvu.
Slitlagið ó HainarijorSarveg kcstar 5,5 milljónir
HAFIZT var handa um að mal
bika Hafnafjarðarveginn í gær,
og á að setja nýtt slitlag á veg-
inn frá Engidal, við gatnamót
Álftanesvegar, að Kópavogslækn
um. Það eru verktakasamtökin
íslenzkir aðalverktakar sem sjá
um verkið. Kostnaður við þessa
malbikun er áætlaður um 514
milljón krónur. Snæbjörn Jónas-
son, verkfr. hjá Vegagerðinni,
sagði í samtali við Mbl. í gær, að
gamla slitlagið hefði verið orðið
svo slæmt að Ve-gagerðin hefði
ekki séð sér fært að halda veg-
inum við með viðgerðum á ein-
stökum holum.
Aætlað er að aðalverkið muni
taka sex vinnudaga ,en svo kem-
ur frágangur við veginn að auki.
Meðan verkið stendur yjiir verð-
ur því ekki hægt að aka um
Hafnafjarðarveginn, en lögregl-
an í Hafnarfirði, Reykjavík og
Kópavogi hafa tekið að sér að
stjórna umferðinni þarna á með
an. Verður henni víða beint út
fyrir veginn, þar sem verið er
að malbika í það og það skiptið.
Aðalvandamálið verður þó með-
an malbikað er frá Vífilstaðavegs
afleggjaranum að Arnarnesi, því
að þar er hvergi hægt að beina
umferðinni út fyrir veginn. Verð
ur þá að beina umferðinni hér
umbil allri yfir á Vífilstaðaveg,
ELliðavatnsveg. Útvarpsstöðvar-
veg og Breiðholtsveg.
Gemini-skot
á mánudag
Hafinn innflufningur á
rússneskum drátfarvélum
Geimfari á að fara tvivegis út úr
geimfarinu á braut umhverfis jörðu
Kennedyhöfða, 15. júlí —
NTB: —
NÆSTKOMANÐT mánudag verð
ur geimfarinu Gemini 10 skotið
á braut umhverfis jörðu frá
Kennedyhófða. f geimfarinu
verða þeir John Young og Mich-
ael Colling. og mun geimferð
þeirra marka nýjan áfanga varð
andi lendingu mannaðs geim-
fars á tunglinu. Gemini 10 á að
vera á braut umhverfis jörðu í
þrjá daga, og verður þetta átt-
undan mannaða geimfarið, sem
Bandaríkin skjóta á braut á 16
mánuðum.
Geimfarið á eð fara 43 hringi
umhverfis jörðu Á þeim tíma er
ætlunin að tengja Gemini við
Agena-eldflaug, sem skotið I
verður upp 100 mínútum á und
an Gemini. Gerr.ini-geimfar hef
ir einu sinni áður verið tengt
Agena-eldílaug. er tenging sú,
sem fram á að fara í. næstu viku
verður einstæð. því þá verður
hún framkvæmd í fyrsta sinn á
grundvelli útreikninga, sem að
öllu leyti fara fram í geimf’ar-
inu sjálfu, en ekki á jörðu niðri
eins og áður.
Á meðar. á gr-imferðinni stend
ur, verða hlerar geimfarsins opn
aðir þrisvar sinnum, en þetta
hefur aðeins verið gert einu
sinni í senn í fyrri Gemini-ferð-
um. Colling á að fara tvívegis út
úr geimfatinu og vera fyrir ut-
an það í 55 mínútur í hvort
I skiptið.
*
Mikil aðsókn að Arbæ
MIKIL aðsókn hefur verið að i
Árbæjarsafni undanfarna daga,
og hafa um 3000 manns skoðað
það síðan það var opnað um sl.
mánaðamót, og langstærsti hluti
þessa fólks erlendir ferðamenn.
Hin mikla aðsókn undanfarna
daga á ekki sízt rætur sínar að
rekja til þess, hve veður hefur
verið gott, og því hægt að koma
því við um helgar að hafa þjóð-
dansa og glímur. í dag kl. 4
l munu íslenzkir þjóðdansarar
sýna þar íslenzka víkivaka og
þjóðdansa.
Eins og áður segir hafa þetta
að langmestu leyti verið erlendir
ferðamenn. sérstaklega hafa þeir
heimsótt safnið í miðri viku, t.d.
komu 140 ferðamenn þanga'ð sl.
miðvikudag. Borgarbúar koma á
hinn bóginn um helgar, enda eru
aukaferðir frá Lækjartorgi upp
að Árbæ kl. 3, 4 og 5.
HAFINN hefur verið innflutn-
ingur á rússneskum dráttarvél-
um og ýmsum öðrum stórvírk-
um vinnuvélum. Er það fyrir-
tækið Björn og Halldór sem um
boð hefur fyrir þessar vélar.
Var hafin sýning á þessum vél-
um í dag í húsakynnum Björns
og Halldórs að Síðumúla 9 í dag,
og mun hún standa í vikutíma.
Verzlunarfulltrúi Sovétríkj-
anna, A. P. Grachev gerði
nokkra grein fyrir þessum vél-
um á fundi með fréttamönnum.
Hann drap fyrst á útflutning
Sovétríkjanna á bifreiðum til
fslands, sem hafizt hefðu fyrir
um 10 árum, og næmu þau við-
skipti nú 60 milljónum króna
ár hvert, og mætti enn búast við
aukningu á þeim. í -sambandi
við dráttarvélarnar, sem nú er
hafinn innflutningur, á sagði
Grachev, að Rússar hefðu fram-
leitt þessar vélar frá því 1932,
og væru þær fluttar út víða um
heim, m.a. til Finnlands, Noregs,
Indlands og Frakklands, og hvar
vetna reynst ágætlega.
Dráttarvélarnar eru af fimrn
gerðum og eru þær 40, 50 og 52
ha., en Björn upplýsti að væntan
leg væri ennfremur 28 ha. drátt-
arvél, er nefnist Lipetsk. Hann
sagði ennfremur, að óhætt væri
að fuílyrða að verð þessara véla
væri 20—25% lægra, en á sam-
svarandi tækjum, sem eru hér á
markaðinum fyrir. Hann sagði,
að þessar vélar hefðu oftsinnis
verið á erlendum sýningum,
m.a. hefði stærsta gerðin MTS
52 hlotið fyrstu verðlaun í
Briissel 1958, og í ár á sýning-
um í Leipzig og í París.
Vélarnar eru allar með diesel-
vél, sem hingað til hefur þótt
reynast mjög vel að styrkleika.
Ýmsar nýjungar eru í vélunum,
sem eru innifaldar í verði þeirra,
svo sem tvívirkur beizliútbúnað-
ur, sem lyftir vélinni jafnt upp
og niður, sjálfhreinsandi smur-
olíuskilvinda, þannig að ta's-
verður sparnaður verður í olíu-
sigtakaupum. Við þessar dráttar-
vélar má tengja ailar landbún-
aðarvélar, þar sem hún er með
þrítengibeizli af standardgerð.
Mögulegt er að hækka og lækka
vélina allt að 15 sm. og breyta
sporvídd hennar um 60 sm. í
vélunum er vökvakrókur, sem
opnast, stjórnað er af sérstakri
stöng á vélinni sjálfri, svo að
ekki þarf að fara af vélinni, -r
tengt er við krókinn. Öllum v .-
unum fylgir hús, sem innifa' i.i
eru í verðinu, en vegna óssar
öryggiseftirlits um sérstaka
styrkingu á þau má búast við
um 5 þús. kr. hækkun á ve: J-
inu, sem upphaflega er geii.ð
upp.
Á sýningunni eru ennfrem ir
stórvirk jarðýta og vörulyftari,
sem Björn og Halldór, ha.a
einnig umboð fyrir.
Sakaður um njósnir
FRÁ ÞVÍ var skýrt sl.
fimmtudag, að bandarískur
ofursti, William H. Whalen,
hefði verið handtekinn sakað
ur um njósnir í þágu Sovét-
ríkjanna. Var hann sagður-
hafa selt starfsmönnum so-
vézka sendiráðsins í Washing-
ton upplýsingar um kjarnorku
vopn. eldflaugar, áætlanir um
varnir Evrópu og fleira. Upp
lýsingar þessar átti hann að
hafa gefið á árunum 1959 —
63, en Whalen var starfsmað
ur bandaríska hersins fram til
ársins 1961, er hann varð að
láta af störfum vegna hjarta-
bilunar.
Whalen getur átt á hættu
dauðarefsingu, ef sakir þess-
ar sannast á hann. Meðfylgj-
andi mynd var tekin af
Whalen og konu hans er þau
komu út úr dómshúsinu í
Alexandria í Virginia, eftir
að hann hafði verið látinn
laus gegn 15.000 dollara trygg
ingu.