Morgunblaðið - 16.07.1966, Síða 24
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Langstærsta og
fjölbreyttasta
blað landsins
159. tbl. — Laugardagur 16. júlí 1966
Boeing 727 þotan af jieirri gerð, sem Fiugfélag Islands hei'ur núfest kaup á og verður afhení í maí 1967.
Samningar undirritaðir um kaup
á Boeing 727 farþegaþotu
— Ein mesta fjárfesting, sem einkaframtakið á
Islandi hefur lagt í, segir stjornarformaður
Flugfélagsins, Birgir Kjaran
í G Æ R voru undirritaðir er 2 klukkustundir og 40 mín-
samningar milli Flugfélags útur.
Heitt vatn
í Gnúpverja
hreppi ?
UNNIÐ er að því núna um þess-
ar mundir að bora eftir heitu
vatni við Geldingaholt í Gnúp-
verjahreppi. Þar hagar þannig til
að á Áreyri kemur um 20 stiga
heitt vatn upp, og er um að ræða
leit að uppsprettunni. Voru í því
skyni boraðar þar tvær holur fyr
ir nokkrum árum, en þær gáfu
ekki fullnægjandi árangur. Er nú
um framhaldsrannsókn að ræða,
en þarna hafa mælingar ekki
gefið neina niðurstöður. Boranir
þessar hófust fyrir skömmu, og
eru í fullum gangi, en enginn
endanlegur árangur hefur feng-
izt ennþá.
Bíll veltur á
Skogarstrond
ÞAÐ slys vildi til á Skógarströnd
í gær, að þar valt Ford Bronco-
bifreið. Einn maður sem í bif-
reiðinni var slasaðist, og var
hann fluttur í sjúkrahúsið í
Stykkishólmi nokkuð slasaður á
hendi. Var þar gert að sárum
hans, en maðurinn liggur þar enn
þá, og líðan hans góð eftir atvik-
um. Bifreiðin mun hafa skemmzt
Kaffibrennsla O. Johnson &
Kaaber heur stöðvað brennslu
og dreifingu á síðustu kaffisend
ingu frá Brasilíu, þar sem kom-
ið hefur í Ijós, að gæði kaffis-
ins voru lélegri en vera bar.
Verður kaffi frá fyrirtækinu
ekki fáanlegt á markaðinum í
um það bil vikutíma.
Mbl. leitaði í gær álits for-
manna Félags íslenzkra fram-
reiðslumanna og talsmanns Sam
bands gisti- og veitingahúss-
manna á hinum nýsettu bráða-
birgðalögum til þess að leysa
þjónaverkfallið, og greint er
frá á öðrum stað í blaðinu.
Jón Maríusson, formaður F.F.
sagði, að hann væri persónulega
mjög hneykslaður á þessum
lögum, og að þjónar væru að
vonum mjög óánægðir með þau.
„Mér finnst“, sagði Jón, „þessi
setning bráðabirgðalaga algjört
rothögg á allt sem heitir verk-
fallsréttur, því að fyrir þeim
íslands og Boeing-flugvéla-
verksmiðjanna um kaup á
þotu af gerðinni Boeing 727.
Verður þotan afhent Flugfé-
laginu í maí á næsta ári. Hin
nýja þota Flugfélagsins mun
taka 119 farþega og flugtími
hennar til Kaupmannahafnar
Kaffibrennsla O. Johnson &
Kaaber hefur sent Morgunblað-
inu eftirfarandi fréttatilkynn-
ingu vegna þessa:
„Innkaupum Kaffibrennslu O.
Johnson & Kaaber hf er hagað
þannig, að kaffið er keypt í
Brasilíu og flutt frá útskipun-
arhöfnum þaðan til islands með
eru engar forsendur. Forsend-
urnar vegna komu erlendu ferða
skipanna eru t.d. úr lausu lofti
gripnar, því að þjónar hafa veitt
þeim alla fyrirgreiðslu og und-
anþágur, sem mögulegar hafa
verið“.
Talsmaður SVG Jón Magnús-
son sagði:
„Mbl. spyr, hvaða augum
veitinga- og gistihúsaeigendur
líti bráðabirgðalögin til að leysa
úr deilunni milli SVG og FF.
Útgáfa bráðabirgðaiaganna
var að sjálfsögðu neyðarráð-
stöfun stjórnvalda, en nauðsyn-
Framhald á bls. 8
Við undirritun samning-
anna í gær sagði Birgir Kjar-
an, stjórnarformaður Flugfé-
lagsins, að hér væri um að
ræða eina stærstu fjárfest-
ingu, sem einkaframtakið á
íslandi hefði lagt í, en þotan
kostar ásamt varahlutum um
300 milljónir króna. „Við höf-
umskipun í Evrópúhöfn. Síðasta
sendingin, sem kom til landsins,
var tekin til brennslu og dreif-
ingar fyrir nokkrum dögum.
Mjög bráðlega kom í ljós, að
vörugæði þessarar sendingar
voru eigi sem skyldi, og fór
það ekki milli mála, að bragð-
gæði voru önnur og verri heldur
en vera bar samkvæmt þeim
kaupum, sem gerð höfðu verið.
Á þessu stigi málsins skal það
tekið fram, að kaffi það, sem
keypt er yrir Kaffibrennslu O.
Johnson & Kaaber hf í Brasi-
líu, er ávallt hæsti gæðaflokkur
af Rio-kaffi, og eru öll tiltæki-
leg ráð nýtt, til þess að tryggja
að eingöngu beztu gæði séu
raunverulega send. Er í þessum
tilgangi notuð þjónusta óvil-
hallra mats-stofnanna, sem
starfa undir opinberu eftirliti.
Nú er það hinsvegar augljóst,
að einhvers staðar hefur hlekk-
ur brostið í sambandi við trygg
ingu þess, að bragðgæði þessar-
ar sendingar yrðu sem skyldi,
en að sjálfsögðu verður það
málefni rannsakað niður í kjöl-
inn.
Það hefur ávallt verið stað-
föst ákvörðun Kaffibrennslu O.
Johnson & Kaaber h.f., að aldrei
yrði slakað á hinni áratuga
gömlu og hefðbundnu ákvörð-
un, að framleiðsluvara fyrirtæk-
isins skuli ávallt vera í hæsta
gæðaflokki. Nú er hins vegar í
fyrsta skipti svo komið, að
Kaffibrennslan h,efur fengið hrá
efnabirgðir, sem ekki svara
þessum kröfum, og með hlið-
sjón af framanskráðu hefur
stjórn fyrirtækisins, eftir ná-
kvæma yfirvegun, ákveðið, að
þar sem hráefni þetta fullnæg-
ir ekki framangreindum gæða-
kröfum, sé það ónothæft til
Framhald á bls. 8
nm lifað merkan viðburð í
sögu þjóðar okkar og félags
okkar“, sagði Birgir Kjaran,
„og væntum þess að þjóðin
muni hafa mikið gagn af
hinni nýju þotu, sem er sú
fyrsta sem íslendingar eign-
ast“.
Örn Ó. Johnson, forstjóri
Flugfélagsins, sagði, að þetta
væri merkur áfangi í sögu
Flugfélagsins, sem hann von-
aði að verða mundi þjóðinni
allri til gagns og heilla.
Fulltrúi Boeing-verksmiðj-
anna, Tom Roth, lýsti sér-
stakri ánægju félagsins yfir
því, að þessi viðskipti hefðu
tekizt og sagði, að samningar
hefðu verið undirritaðir ein-
mitt á hálfrar aldar afmæli
Boeing-verksmiðjanna.
Forstjóri Flugfélagsins ræddi
við blaðamenn, þegar samning-
arnir höfðu verið undirritaðir og
sagði, að þeir væru lokastig í
löngu starfi, sem hafizt hefði fyr-
ir alvöru fyrir einu ári. Hann
kvað samningana undirritaða
með fyrirvara um lántöku, en
ekki hefði unnizt tími til þess
að ganga frá lántökum vegna
kaupanna, hins vegar hefði Flug-
félagið fulla ástæðu til að ætla
að lán fengjust.
Fyrir 3—4 árum var stjórn fé-
lagsins Ijóst að endurnýja þyrfti
flugvélakost þess og var þá sú
ákvörðun tekin að leggja fyrst
áherzlu á endurnýjun flugvéla til
innanlandsflugs. í því skyni voru
keyptar tvær flugvélar af gerð-
HÖRMULEGT slys varð í fyrra-
kvöld á Siglufirði, er 6 ára gam-
all drengur féll fram af svokall-
aðri Hjaltalínsbryggju og drukkn
aði, að því er Guðjón Jónsson,
fréttaritari Mbl. tjáir blaðinu.
Drengurinn, sem hét Hjalti
Sveinsson, sonur hjónanna Önnu
Egilsdóttur og Sveins Björnsson-
ar, Túngötu 23, Siglufirði, var að
leik með öðrum börnum um 9
inni Fokker Friendship. Þcgar
þeim áfanga var náð var hafinn
undirbúningur að kaupum full-
kominnar flugvélar til utan-
landsflugs, en það starf hófst,
sem fyrr segir, af alvöru fyrir
einu ári. Voru þá skipaðaj þrjár
nefndir, tækninefnd, flugtækni-
nefnd og vi'ðskiptanefnd til þess
að undirbúa málið. Þessar nefnd-
ir unnu mikið starf um tveggja
mánaða skeið og að þeim athug-
unum loknum var enginn vafi
talinn leika á því að vél af gerð-
inni Boeing 727 mundi henta fé-
laginu bezt.
Var þá byrjað að undirbúa
kaupin. Fyrst var aflað forkaups-
réttar en síðan unnið að lánaút-
vegun og öflun ríkisábyrgðar,
Vill félagið þakka ríkisstjórn
og Alþingi svo og Bandsbanka ís-
lands fyrir mikilvæga fyrir-
greiðslu í málinu. Þessi fyrsta
þota íslendinga verður afhent í
maí 1967 og teljum við hana
henta okkur bezt bæ'ði hvað flug-
þol og burðargetu snertir.
Það er mikil trygging, að þot-
an er framleidd af Boeing-verk-
smiðjunum en helmingur allra
þota, sem á flugi eru og í pöntun
Framhald á bls. 5-
Hjólaði
á vörubifreið
SKÖMMU eftir hádegi í gaer
hjólaði níu ára gamall drengur
á kyrrstæða og mannlausa vöru-
bifreið, er stóð á bifreiðastæði
fyrir utan verzlunarhúsið að Álf-
heimum 2.
Hjólaði drengurinn undir pall
bifreiðarinnar og hlaut áverka á
höfði, þannig að flytja varð
hann á slysavai'ðstofuna.
Að gefnu tilefni vill lögreglan
brýna fyrir börnum og ungling-
um að vera ekki að leik á bif-
reiðastæðum.
.eytið í fyrrakvöld, er hann
hvarf, og þegar farið var að
leita, skömmu sfðar, fannst hjól-
ið hans á Hjaltalínsbryggju, á ná-
kvæmiega sama stað og drengur
drukknaði fyrir um það bil þrem
ur vikum.
Froskmaður var fenginn til
þess að leita í sjónum og fann
hann lík drengsins á fyrsta tím-
anum í fyrrinótt.
Kaffi frá 0. Johnson & Kaaber
ekki f áanlegt í vikutíma
Ásiæban eru léleg gæði síðustu kaffi-
sendingar frá Brasiliu og hefur
fyrirtækið stöðvað sölu kaffisins
Leitað álits deilu-
aðila í þjónadeilunni
Hörmulegt dauðaslys
á Siglufirði
6 ára drengur féll fram af bryggju
og druklcnaði