Morgunblaðið - 24.07.1966, Side 8

Morgunblaðið - 24.07.1966, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SunnudagMt 24. júlí 1966 Nýkomið IMýkomið Amerískar vinyl-gólfflísar og tilheyrandi lím. — Vandaðasta gerð. Með fallegri gólfflisum, sem fluttar hafa verið til landsins. Mjög lágt verð miðað við gæði. Komið — skoðið — kaupið Byggingavöruverzlun Þ. Þorgrímsson & Co Suðurlandsbraut 6. — Sími 38640. Útsalan í fullum gangi. Mikil verðlækkun. Hjá Báru Austurstræti 14. Útsala — Útsala Útsala hefst á mánudag. — Mikill afsláttur aí sumarfatnaði. LAUFIÐ Austurstræti 1 Mai :TE INFANT FOOD riex Barnnmiolhi irfœdnn sem sunror fullhi hröfum timi M nmlegn ins AIVIEX ' j Ví . jrdinu stillt í hóf | MAME stendur mu mest nd > Heildsölubii Hermes s.f. • sendum um m mjr :X durmjnlhinni inmsetningu gdir: Öldugata 4 sími 33490 allt land Páll Líndal: „Aö hjálpa erroribus á gang“ SÍÐASTLIÐINN sunnudag birt- ist í Lesbók Morgunblaðsins greinarkorn eftir Sigurð A. Magnússon. Greinarhöfundur kemur að vanda víða við og veit ir ýmsum ádrepur. I>ar á með- al fá skipulagsyfirvöld Reykja- víkur sinn skammt. Nú skal sizt úr því dregið, að þau eiga marga ádrepuna skilið fyrir sitthvað, sem þeim hefur orðið á fyrr og síðar. Mér þykir hins vegar all- ósanngjarnt, að annars vegár skuli bætt ofan á ærið þungan. syndabagga nýjum syndum, serr. hvergi eiga sér tilvist nema í hugskoti höfundar og hins veg- ar reynt að hafa af skipulags- yfirvöldum það, sem gott er, að dómi hans. Það er víst ekki svo margt. En hvort tveggja er gert. Ekki virðist til allt of mikils mælzt, þótt um störfum hlaðinn mann eins og SAM sé að ræða, að hann kynni sér málefni, áður en ritstýllinn er hafinn á loft til gagnrýni. Stundum eru upp- lýsingar að vísu torfengnar, en sú afsökun á ekki við í því máli, sem hér er gert að umræðuefni. SAM hefur mál sitt með þess- um orðum: „Eins og frægt er orðið, gleymdist að gera ráð fyr- ir Listasafni ríkisins á hinum nýja skipulagsuppdrætti Reykja- víkurborgar......“ Er síðan lagt út af þessari „gleymsku" með miklum alvöruþunga eins og við er að búast. - Þá er fyrst það að segja, að ekki er þessi gleymska „fræg- ari‘ en svo, að við, sem helzt höfum starfað við gerð skipu- lagsins, höfum ekki heyrt á hana minnzt fyrr en í grein SAM. Að sjálfsögðu sannar það þó ekkert um „frægðina". En ef SAM hefði lagt á sig að kynna sér málin, geri ég varla ráð fyr- ir, að hneykslunartónninn hefði orðið jafn mikill og raun ber vitni. í þessu sambandi er ekki hægt eins og áður segir að skjóta sér bak við það, að upp- lýsingar hafi ekki verið tiltæk- ar, því að eins og flestir vita hefur greinargerðin um skipu- lag Reykjavíkur ásamt uppdrátt um og skýringarmyndum verið gefin út í bókarformi. í þeirri bók, „Aðalskipulag Reykjavíkur 1962-83“, er gerð nákvæm grein fyrir vinnubrögð um öllum, að hverju hafi verið stefnt og hvernig lagt sé til, að mál verði leyst. Þar er m.a. út- skýrt, hvað sé aðalskipulag, og hver sé tilgangur með gerð þess, og vísast um það í I. kafla bók- arinnar. Kemur þar m.a. fram, að aðalskipulaginu er ætlað að kveða á um notkun borgarlands- ins í heild, þ.á.m., hvaða svæði skuli ætluð til atvinnurekstrar, íbúðar, opinberra bygginga, úti- vistar o.s.frv„ ennfremur um legu helztu umferðarbrauta, tengingu borgarhlutanna inn- byrðis o.s.frv. Þá kemur og fram, að í aðalskipulaginu sé yfirleitt ekki ætlazt til, að kveðið verði á um staðsetningu einstakra mannvirkja. Það skuli hins veg- ar gert í svokölluðu deiliskipu- lagi, þar sem fjallað sé um upp- byggingu einstakra borgarhluta innan marka aðalskipulagsins. Þar er ákveðin t.d. staðsetning einstakra bygginga, breidd gatna, hæð húsa o.s.frv. Ef SAM hefði gefið sér tóm til að kynna sér bókina, hefði hann einnig séð, að þar er ekki fjallað um deiliskipulag, nema deiliskipulag Miðbæjarins gamla og norðurhluta Austurbæjarins. Mér vitanlega hefur ekki komið til orða, að Listasafn ríkisins yrði reist á þeim stöðum, heid- ur einmitt utan þeirra. Þegar af þeirri ástæðu, hafði SAM enga ástæðu til að búast við því, að staðsetningu listasafnsins væri að finna á, skipulagsuppdrættin um“, sem hann nefnir svo. (Hér er að sjálfsögðu um fleiri upp- drætti en einn að ræða, en það skiptir ekki máli í þessu sam- bandi nema sem sýnishorn vinnubragða). Það þýðir hins vegar ekki, að Listasafn ríkisins hafi „gleymzt“; þvert á móti. í bókinni kemur greinilega fram, hvað eftir ann- að, að opinberum byggingum er ætlaður staður í suðurhluta hins fyrirhugaða Miðbæjar við Kringlumýrarbraut, en hann á að tengjast gróðursvæði neðst í Fossvogi. Ef óskað yrði eftir lóð undir listasafn á þessum stað, trúi ég ekki öðru, en henni yrði vel tekið og deiliskipulaginu hag að mjög með tilliti til þeirrar byggingar. Þá hefur verið talað lun Öskjuhlíðina suðvestan- verða. Virðist SAM telja það heppilegan stað. Sjálfsagt yrði því líka vel tekið, ef um yrði sótt. Þá er og bent á þá mögu- leika að staðsetja opinberar byggingar við önnur útivistar- svæði, og er þá fyrst og fremst átt. við byggingar á borð við listasafnghús. SAM mun kanske nota þau „gagnrök“, að listasafn ið sé ekki nefnt sérstaklega, en því er þá til að svara, að orð- in „opinberar byggingar" og „menningarstofnanir“ eru notuð i stað upptalninga, sem aldrei gætu orðið tæmandi. Með sömu „rökum“ gæti SAM haldið fram, að nýtt hús fyrir Landsbókasafn og fleiri menningarstofnanir hafi gleymzt, þar sem þeirra er ekki heldur sérstaklega getið, en það er ekki hlutverk skipulags- ins að staðsetja fyrirfram ein- stakar ríkisstofnanir, heldjr veita valfrelsi eftir því sem unní er — að sjálfsögðu innan þeirra marka, er aðalskipulagið setur, Þá kemur að siðara atriðinu, sem mér finnst ástæða: til a3 minnast á. f greinarlok segix SAM: „Nú er það tillaga mín, að Laugarnestanginn verði írið- aður fyrir fjáraflamönnum o.s. frv.“ Sjálfsagt er að þakka skyn samlegar tillögur svo langt sem þær ná, en þessi tillaga kemur óneitanlega nokkuð seint. Fyrir ári síðan (15. júlí 1965) sam- þykkti borgarstj órnin, að Laug- arnestanginn skyldi friðaður, og var þá málið búið að vera á dag skrá töluvert lengi. Þótt SAM hafi sjálfsagt verið ofraun að lesa bókmenntir á borð við skipu lagsbókina og skoða uppdrættl þar, hefði mátt ætla, að hann hefði rekið augun í stóra skipu- lagsuppdrætti, sem til skamms tíma voru til sýnis í gluggum ýmissa bókabúða og síðast en ekki sízt í gluggum Morgunblaðs hússins, en á þeim uppdráttum kemur þessi samþykkt borgar- stjórnar greinilega fram. Þótt SAM hafi gert ársgamla samþykkt borgarstjórnar að til- lögu sinni þykir mér þó fremur ósennilegt að borgarstjórn muni ásælast þá tillögu, sem SAM ber fram síðast í grein sini, en til- lagan virðist á þá leið, að horf- ið verði þrátt fyrir allt frá frið- un Laugarnestanga og sett þar úpp einskonar sýningarsvæði, þar sem listamenn verði hafðir almenningi til sýnis eins og sjald gæfar dýrategundir eða önnur furðuverk. Ég held að slíkar út- stillingar, þótt „litríkar" kunni að vera, eigi varla við. Raunveru legir listamenn eru nefnilega — að öllum jafnaði — ósköp venju- legt fólk. Þegar ég las grein SAM, komu mér í huj» ummæli, sem höfð eru eftir Árna Magnússyni próf- essor og handritasafnara, en þau eru á þessa leið: „Svo gengur það til í heiminum, að sumir hjálpa erroribus (þ.e. vitleysum) á gang, og aðrir leitast siðan við að útryðja aptur þeim sömu erroribus. Hafa svo hverir tveggju nokkuð að iðja.“ Hluti gesta á bindindismótinu í Vaglaskógi 1965 (Ljósm. Sv. P.) Bindindismót í Vaglaskógi NOKKUR æskulýðsfélög á Akureyri, í Eyjafirði og Suður- Þingeyjarsýslu hafa ákveðið að efna til bindindismóts í Vagla- skógi um n.k. verzlunarmanna- helgi. Mótið hefst að kveldi laugar- dagsins 30. júlí með útiskemmt- un. Dansað verður í Brúarlundi, og á miðnætti verður flugelda- sýnmg og brenna. Daginn eftir, verða tvær útisamkomur og einnig dansað um kvöldið. Með- al skemmtiatriða á mótinu er söngur Magnúsar Jónssonar og Svölu Nielsen, Jóhanns Daníels- sonar og Sigríðar Schiöth, Lúðra sveit Siglufjarðar leikur, kvart- ett frá Húsavík syngur, Ómar Ragnarsson og Alli Rúts flytja skemmtiþætti, Gunnar Stefáns- son frá Dalvík les upp og hljóm- sveitin Póló frá Akureyri með söngvurunum Betu og Bjarka leika og syngja fyrir dansi. Þá fer fram keppni í knattspyrnu og handbolta. Á sunnudag verð- ur guðsþjónusta, og predikar sr. Friðrik A. Friðriksson, sóknar- prestur á Hálsi. Mótsgestum verður séð fyrir tjaldstæðum, og lögreglu- og Framhald á bls. 25

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.