Morgunblaðið - 24.07.1966, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.07.1966, Blaðsíða 14
14 MORCU NBLAÐIÐ Sunnudagut 24. júlí 1966 Guttormur Erlends- son = Minningarorð GUTTORMUR Erlendsson var á meðal nýst.údenta í lagadeild Há skólans 19‘Í2, þegar ég tók þar fyrst við kennslu. Lagaprófi lauk hann árið 1938 og kenndi ég hon um því öU hans háskólaár. Er skemmst frá þ-/í að segja, að Guttormur var meðal skarp- greindustu þeirra nemenda, sem ég kvnntist á kcnnara-árum mín um. Ég vissi raunar þegar áður á honum noklcur skil og átti á stúdentsárum íians nokkur sam- skipti við hann utan kennslu- stunda. Náin kynni og vinátta tók ust þó ekki með okkur fyrr en í London sumanð 1939. en þar dvöldum við þ'- báðir til fram- haldsnáms í fr.eðum okkar. Þó að hvergi væri slegið slöku við, höfðum við félagar gaman af að hittast öðiu hvoru og fórum þá víða og skoðuðum margt. Eftir heimko'nuna hélzt kunn- ugleiki okkar svo að við hitt- umst nær vikulega vetrarlangt hátt á annan áratug. Eftir það urðu samfundir okkar strjálir en ætíð til ánægju, þegar leiðir lágu saman. Á borgarstj./ia-árum mínum átti ég hlut að bvi, að Guttorm- ur varð- aðal-endurskoðandi Reykjavíkur-bæjar. Síðan varð hann einnig formaður niðurjöfn- unarnefndar. 1 báðum þessum störfum hefur Guttormur unnið bæjarfélaginu cinetanlegt gagn. Hann vann sem víkingur að hverju því starfi, er hann sinnti — v_ar frábærlega töluglöggur, fljótur að átta sig, vel að sér og ósérhlííinn. Jón heitinn Á.sbjörnsson hæsta réttardómari sagði mér skömmu eftir að Gnttorrnur fór að flytja mál fyrir Hæstarétti, að hann væri méð gagnorðustu og greinar beztu málf lutningsmönnum. Kom það ekki á óvart þeim, er Gutt- orm þekkiu. Mikið starf liggur eftir Gutt- orm, nú er hann hefir látizt langt fyrir aldur fram. En enginn ræð- ur sínum næturstað og því verð- ur að taka, sem að höndum ber. Guttormur gerði sér stund- um upp kæruloysi, en var í raun og veru maður viðkvæmur og óvenju tryggur í lund. Vinir hans munu því í senn minnast hans frábæru hæfileika og miklu mannkosta Bjarni Benediktsson. menn að ósekiu Verklundaður var hann öðrum fremur og skil- aði að ég hygg drýgra dagsverki á of skammri rovi en margur sem árin hafa átt fleiri. Það munu vera liðnir röskir þrír áratugir frá því að kunn- ingsskapur tókst með okkur Guttormi. Kunningsskapur, sem fljótlega varð svo náin vinátta, að sjaldan liðu dagai svo að við ræddumst ekki við I þeim vin- áttutengslum var hann veitand- inn, ráðgjafinn, lægði skapofsa minn og mildaði málstað þeirra, sem roér fannst mér andsnúnir. Naut ég nans ekki sízt á vett- vangi stjórnmáianna, því þótt hann hefði sig lítt frammi var hann manna glöggskyggnastur á öll þau veðrabrigði og sá klár- um augurn í gegnum þoku og brigðlýsi dægurþrassins. Þegar kynni okkar Guttorms hófust var ég enn í Menntaskóla, en hann hafði þá nýhafið lög- fræðinám. Bjó hann þá hjá systur sinni, Stefaníu, en tíðum fórum við þá út Álftanesið að Breiða- bólsstöðum að heimsækja for- eldra hans og bræður. Faðir hans Erlendur Sjörnsson, hreppstjóri, var þá enn við góða heilsu og var gaman að fara með honum í þyrsklinginn. Erlendur var ætt- aður úr Kjósinni, en María móð- mínu viti óvenjulegur maður. Hann var jafn knár við ár og orf, sem við lagakrókana og ís- lenzka tungu kunni hann öðrum betur. Hann var líka orðheppinn án þess að vei a orðhvatur. Sér- vitringsþótti og sjálfbirgingshátt ur voru andstæð hans sinnislagi. Við slíka var hann ekki alltaf góðsvörull. — Einhvernveginn kemur mér í hug mannlýsing úr Grettissögu, þegar mér verður hugsa til Guttorms, en hún mun vera svo orðfærð: „Hann var gegn maður og gæfur, hægur og hógvær; við hann líkaði hverj- um manni vel“. . . . Hann átti líka jafnan til bros að minnsta kosti í öðru munnviki . . . Nú er hann kvaddur sá góði vinur og við sitjum eftir væng- brotnir í bili. Guð blessi minningu hans og veiti ættmennum hans huggun. Birgir Kjaran. GUTTORMUR Erlendsson borg- arendursknðandi og hæstaréttar- lögmaður starfaði hjá Reykja- víkurborg i nærfellt 25 ár. Hann hóf störf í borgarstjóratíð Bjarna Benediktssor.ar og tók þá við nýrri stöðu, sem aðal- lærðra manna og annarra, að hann væri í hópi færustu mál- flutningsmanna landsins. Við Guttormur vorum skóla- bræður úr mer.ntaskóla og sam- tímis í Háskólanum. Gengum við undir embættispróf sama vorið. Hlaut hann miög háa einkunn við lagapróf. Hafði hann þó lítt stundað námið framan af vegna annarra hugðarefna Enda þótt góður kunningsskap ur væri á milli okkar skólaárin, urðu kynni okkar miklu nánari, þegar ég réðist. í bjónustu Reykja víkurbæjar árið 1956. Alla tíð síðan áttum við mjög náið sam- starf. Stend ég í mikilli þakkar- skuld við Guttorm heitin fyrir ómetanlegan stuðning í starfi, er hann fúslega veitti mér þá alls ókunnugum starfsemi borg- arinnar. Upp úr samstarfi okkar varð vinátta, sem gott er að minn ast nú, þegar leiðir skilja. Guttormur var hamhleypa til vinnu. Hefi ég aldrei kynnzt af- kastameiri manni. Hann vand- aði og mjag allan frágang verk- efna sinna Átti hann einkar létt með að kryfja máiin til mergjar og greina aðalatriði frá aukaat- riðum. Kom þar bæði til skýr hugsun og örugg dómgreind. Er óhætt að segja. að engu mikils- verðu múii ht-fi verið ráðið til lykta, án bess að tillagna hans væri leitað Hann hafði gaman af að fást v:ð tölur, enda mikill stærðfræðingur. Vakti það oft kátínu bans. þegar samverka- mennirnit- áttu íullt í fangi með að fylgja honum eftir. Kímnigáf an var r.k og græskulaus, en maðurinn orðhagur og orðhepp- inn. Kveðja til afa Hér kem ég til þín, elsku afi minn, og augum leiði bjarta svipinn þinn. Og barnsins unga lófa á luktar brár þér leggur hinzta sinn þinn vinur smár. Ég veit mín hugsun öll nær enn svo skammt. Að öðrum duldum leiðum finn ég samt þá hljóðu sorg, sem hefur beð minn gist, og hlýju þá og vernd, sem ég hef misst. En sjálfsagt betur seinna þó ég skil, að sárast alls þú mundir finna til þess beizka harms að geta ei lengur leitt þinn litla dreng og honum veginn greitt. En mundu afi, að mömmu og pabba hjá er mýksta skjól, sem barni hlotnast má. Þar á ég vísa ást, sem gætir mín, og öllum stundum bernsku minni skín. Já, hjartans afi minn, í friði far. Við fáum seinna öll að hittast þar sem ný og fegri lífssól ljómar þér. Ó, líttu einnig þaðan til með mér. Guttormur Þorfinnsson. GENGINN er góður vinur, og verður mcrgum söknuður að. Sl. sunnudag, 17. júlí, lézt Guttorm- ur Erlendsson lögfræðingur. Hafði hann alla tíð verið heilsu- hraustur og þr.okmenni, svo að andlát hans kom okkur vinum hans mjög á óvart. En örlög- um ræður enginn, og örlög og at- gerfi eiga ekki jafnan samleið. Við dánarbeð vinar mins rifj- ast upp margar minningar. Af þeim er hcfug reyrangan og það glóir á marga kristalla sam- eiginlegrar upplifunar á ferðum í miðnætursól og kyrrum kvöld- um í skammdegi, er hann fór með ljóð nábúa síns Gríms Thom sens. Mér far.nst hr.nn öðrum mönn um vitrari, sem ég hefi kynnzt, fljótskarpur, skynjaði strax : kjarna máls, hlutlægur í mati staðreynda, rökfastur í ályktun, aldrei kaldbriósta þó og jafn- an fús til að þoka steini úr götu sarnferðamanna. Kjark hafði hann líka til þess að standa í eldi og skaut sér aldrei á bak við annars skjöid. Og laupana lagði hann ekki upp þótt í móti blési. Hann gat að vísu verið harður í horn að taka, en nátt- úra hans var ekki að illskast við ir Guttorms var dóttir Sveins Jónssonai-, skípasmiðs, í Gufu- nesi. Þau hión, Erlendur og Mar- ía eignuðust 7 börn og var Gutt- ormur þe.rra yngstur. Að loknu háskólanámi hér heima fór Guttormur til fram- haldsnáms í Danmörku, Þýzka- landi og Bretlandi. Þar vorum við samtímis á sumarnámskeiði í Oxford. Er heim kom réðist hann fyrst ti! samtaka iðnrek- enda og siðar til Reykjavíkur- borgar, hvar hann vann síðan og naut bæjarfélagið allan þann tima hans einstöku verklundar og afkasta. — Sökum hæfileika og trausts voru honum falin fjöl- mörg önnur trúnaðarstörf, svo I sem formennska í niðurjöfnunar- nefnd o. fl., sem ekki verður rakið hér. Guttormur kvæntist Guðlaugu Þorfinnsdóttur árið 1943. Þau eignuðust einn son, Þorfinn, sem nú er kvæntur maður og hefur eignazt lítinn Guttorm, sem.af- anum var mjög annt um. Fyrir hjónaband átti Guttormur dótt- ur, Unni, sem nú er við hjúkrun- arnám í Svíþjóð Guttormur Erlendsson var að endurskoðandi reikninga Reykja víkurbæjar. Jafnframt því að móta og skipuleggja starfsemi endurskoðunarcleildarinnar voru ur mikilvæg störf. Guttormur honum fljótlega falin ýmis önn- var í niðui jöfnanarnefnd Reykja víkur frá 1952 og var síðar kos- inn í framtalsr.efnd borgarinnar. Formaður beggja þessara nefnda var hann frá árinu 1956 til dauða dags. Þá átti hann sæti í sparn- aðarnefnd Reykjavíkurborgar frá árinu 1951. Sú nefnd undir- býr árlega fjárhagsáætlun borg- arinnar í hendur borgarráðs og borgarstjórnar.. Auk þessara starfa var Guttormur um langt skeið og þó sérstaklega nokkur síðastliðin ár aðalsamninga- maður af hálfu borgaryfirvalda í samningum um kaup og kjör við borgarstarfsmenn og aðra starfshópa Jafnfratnt því að sinna þess- um umfaugsmiklu verkefnum fyrir borgina starfaði Guttormur allmikið að málflutningi, enda var sérstaklega eftir aðstoð hans sótzt, þegar um vandasöm og flókin viðfangsefni var að ræða. Var það og mjög á orði meðal lög Guttormur var óvenjulega fjöl hæfur maður og eftirtektarverð ur fyrir þá, sem með hon-um störf uðu. Hann var gæddur miklum vitsmunum og hafði aflað sér við tækrar þekkingar á mönnum og málefnum. Störf hans í þágu Reykjavíkurborgar voru oft fram úrskarandi vel af hendi leyst. Voru þau líka mikils metin af yfirboðurum hans og það að mak leikum. Starfið fól það í sér, að Guttormur átti oft og tíðum við- kvæm samskipti við borgarana. Þetta fórst honum ávallt vel úr hendi, því maðurinn var rétt- sýnn, góðgjarn og yfirlætislaus. Hygg ég, að þessi ábyrgðarstörf hafi yfirleitt aflað honum mik- illa vinsælda almennings í borg- inni. Við sarnstarfsmenn hans í Borgarskrifstofunum söknum Guttorms mikið Við þökkum honum nú að leiðarlokum alla vináttu í okkar garð og margt drengskaparbragðið. Ég votta fjclskyldu hans og vandamönnum innilega samúð mína. BLessuð veri minning Guttorms Erlendssonar. Gunnl. Pétursson. t VORIÐ 1926 lágu leiðir okkar Guttorms Erlendssonar saman við inntöknpróf í Menntaskólann í Reykjavík. Hávaxinn, Ijóshærð- ur, beinn í baki, alvarlegur á svip nærri hörkulegur, stóð hann í hópi okkar ; anddyri skólans, vel á verði með að láta ekki okkur bæjarstrakana stjaka sér um koll. Við vorum 55, sem stóðumst inntökupr- Jið og sökum þrengsla í skólahúsinu varð nú í fyrsta sinni í sögu skélans að leigja húa rými úti •' bæ fyrir kennslustofu. Af þessum hópi náðu 21 „hærra“ gagnfræðaprófi til framhaldsnáma í skólanum V.ð bættust 6 utan skóla og síðar eða í 6. bekk stækkaði hópurinn um 2. Af þess um 29 luku 24 stúdentsprófi vor ið 1932. A-ð vísu höfum við talið stúdentsb.ópinn 2 fleiri, því að einn skólaféiaginn tók prófið ut anskóla á öndverðu skólaármu og annar síðar. Af þessum fámenna stúdenta- hópi eru við lát Guttorms Erlendsssonar helmingurinn lát- inn. Ég hygg, að enginn stúdenta- hópur 34 árum frá stúdentsprófi hafi beðið slíkt afhroð. Þegar í fyrsta bekk hófst náin vinátta okkar Guttorms. Tókum við snemma að lesa saman og leið vart sá dagur að við hitt- umst ekki á heimili foreldra minna eða á heimili hans ágætu systur Stefaníu en hjá henni bjó hann öll sín Menntaskólaár. Ég hafði í 6. bek.k slegið slöku við nám vegna þátttöku í félags málum sk.'.lans og íþróttaiðkun- um utan hans Leit því eigi vel út fyrir mér með undirbúning undir stúdentspróf. Guttormur bauð mér þá að lesa með sér á heimili foreldra sinna að Breiða bólstöðum á Álffanesi. Alúð for eldra Guttorms, þeirra heiðurs- hjóna Maríu Sveinsdóttur og Erlendar hreppstjóra Björnsson ar gleymi ég aldrei. Þrátt fyrir erfiðan prófiestur í 5 vikur urðu þessir vordagar unaðslegir og mér óglevmanlegir. Guttormur var sérstaklega ein beittur við nám og störf enda hlaut hann ágætiseinkunn við öll próf sín í skóla. Þó hann virt ist hrjúfur og dulur í dáglegu fari faldi hann með sér sérstaka mannúð ,og nærgætni. í skóla var hann ákafur andstæðingur vínnautnar og fór ekki dult með það viðhorf sitt. Nákvæmni hans við lausn trúnaðarstarfa komu þegar fram á skólaárunum. Við vorum saman í bókasafnsnefnd íþöku, stjórn Bræðrasjóðs og sölunefnd riámsbóka. Tveir þess ara sjóða höfðu búið við óreiðu og var það Guttormi að þakka að bókhald þeirra og hagur komst í gott lag Aldrei minnist ég þess að Guttormur tæki til máls á félagsfundum innan skól- ans eða á almennum skólafund- um. í skólatíð okkar var róstur samt innan skólans. Embættis- taka nýs rektors varð eigi átaka- laus. Starfsemi kommúnista var víðtæk og skipulögð. Víndrykkia var almenn og eftir alvarleg á- föll gengust nokkrir nemendur ásamt rektor fyrir stofnun bind indisfélags, sem varð upphaf að starfsemi bindindisfélaga í skól um. Kristindómskennslu í skól- anum var reynt að afhrópa. Þorri nemenda mætti ekki til náms í skólanum í 3 daga í mót mælaskyni við stjórn skólans, vegna brottvikningar eins nem- anda. Allt þetta og fleira mun hafa haft djúp og varanleg áhrif á dulann hug fáskíptins skóla- sveins eins og Guttorms. Hann bjó yfir andófi, sem gat brotizt út í þráa, tilfinningasemi, sem hann duldi og bvrgði um of með sjálfum sér. Þessar eigindir munu síðar hafa haft áhrifaríkar afleiðingar á lífsferil hans. Við skólasystkinin nutum þess, að verða annar nemendahópur 5. bekkjar, sem skólinn styrkti til langferðar um landið. Fagra vor Framhald á bis. 19

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.