Morgunblaðið - 24.07.1966, Síða 31

Morgunblaðið - 24.07.1966, Síða 31
Sunnoéfagur 24. fttfi 1966 MORGUNBLAÐ1Ð 31 Forstjórarnir á fundi um borð í ÓðnL sjómælinga á Noröur- Forstjórar löndum á EINS og skýrt hefur verið frá í Mbl., hefur staðið yfir í Reykja- vík ráðstefna forstjóra sjómæl- ingastofnana á Norðurlöndum. Ráðstefnan hófst sl. mánudag og lauk í gær, laugardag. Þátttakendur ráðstefnunnar voru kommand^r Madsen, for- Btjóri danska sjókortasafnsins, dir. Rolf Kjær frá norska sjó- kortasafninu, dr. Fagerholm, for stjóri sænska sjókortasafnsins, Mattila, forstjóri finnska sjó- kortasafnsins, Tegner, skipherra, varaforstjóri danska sjókorta- safnsins, og af hálfu íslands þeir Pétur Sigurðsson, forstjóri Land helgisgæzlunnar, og Gunnar Bergsteinsson, sjómælingarmað- ur. Fundir voru aðallega haldnir í Vitamálaskrifstofunni, þar sem íslenzku sjómælingarnar hafa aðsetur, en auk þess voru aliir fundarmenn í tvo daga um borð í varðskipinu Óðni. Var þá siglt til Vestmannaeyja og Surtseyjar, en þar hafa varðskipin verið mjög oft undanfarin ár við sjó- — Kuldinn Framhald af bls. 32. kaLsaveður i byggðum. Á Akur- eyri var t.d. hvítt af snjó niður í mitt Hliðarfjall. í Skagafirði var grátt í fjöllum og hafði vöxtur hlaupið í ár, var verið ®ð gera við skemmdir á vegum, seim Valagilsá hafði unnið. í ÓláMfirði var hvítt niður í miðj- ar hlíðar og slydda á efstu bæj- um í gær. Og Siglufjarðarskarð var lokað af snjó og aurskrið- um. Var áætlunarbílnum hjálp- að yfir í gærmorgun, en síðan var skarðið alveg lokað bílum. Sama var að segja fyrir aust- an. Fjarðarheiði var t.d. grá ofan á brúnir. Sama var að segja um Norðfjarðafjöllin. Bregður þeim við á fjörðunum, þar sem hefur verið eins og í suðupotti undanfarna daga, logn og 25 stiga hiti. Sunnanlands var bjart og 10 Btiga hiti. — Morðmálið 4 Framh. af bls. 1 Að sögn Chicago blaðanna eru staðreyndirnar Speck hins veg- ar svo mjög í óhag, að talið er næsta víst, að hann verði sek- ur fundinn. Þá segir í frétt frá Chicago, að hjúkrunarkonan, sem komst af, Ungfrú Corazon Amurao, hafi ráðið sér lögfræðing, John P. Oroglan að nafni. Hún er nú smám saman að ná sér eftir taugaáfallið, sem hún iékk eftir hin skelfilegu nótt, er hún lá í felum imdir rúmi og fylgdist *neð því, er hver stallsystir henn •r af annari var færð burt og xnyrt. ráöstefnu mælingar, eins og kunnugt er. Slíkar ráðstefnur eru haldnar VEÐURSTOFAN hefur sent frá sérfréttatilkynningu um veður- far á Hveravöllum og fleiri stöð um í vetur. Fer hún hér á eftir. Um síðustu mánaðamót hófust sumarferðir til Hveravalla, og lauk þá fyrstu vetursetu þar, síðan á dögum Eyvindar og Höllu. Stofnað var til þessarar vetrardvalar í því skyni að kanna veðurskilyrði á hálendi landsins árið um kring. Veðurstofan á- l'ítur því rétt að birta nú mjög stutt yfirlit um mælingarnar, þar sem fullnaðarúrvinnsla mun taka langan tíma, mánuði eða ár. Yfirlit þetta nær yfir mán- uðina sepember 1965 til júní 1966. Á þessu tímabili var veðurfar á landinu óvenjulega kalt, sér- staklega nóvember til marz, en þá var mánaðarmeðalhiti 1—2 stigum lægri en að jafnaðí í Reykjavík og 2—4 stigum lægri á Akureyri. Úrkoma sunnanlands var þessa mánuði lan,gt undir meðallagi, í Reykjavík var mán- aðarúrkoman í febrúar hin minnsta, sem mælzt hefir þar. Á Akureyri var úrkoman í nóv- —apr. undir meðallagi, en þó nær því. Norðan- og norðaustan átt var mjög tíð. í október 1965 var veðurlag all annað, hiti og úrkoma var þá mikið yfir með- allagi. Að því er úrkomu varð- ar munaði mestu um sólarhring- inn 19.—20. október, er mjög mikið rigndi víða um land. Á Hveravöllum var meðal- hiti vetrarmánuðina des.—marz -f- 7 til H- 9 stig, um 6 til 8 stigum kaldara en í Reykjavík, en 3—4 stigum kaldara en á Akureyri. Kaldastur að meðal- tali var febrúar, -f- 9.3 stig. Lág- markshiti var minni en -f- 20 stig alla vetrarmánuðina, lægst- ur 25. marz, -f- 23.5 stig. Há- markshiti var alla mánuði yfir fróstmarki, þó aðeins 0.7 stig í febrúar. Úrkoma mældist í október, 264 mm, en þar af féllu 109 mm á 24 stundum þ. 19.—20. Aðra mánuði mældist úrkoma fremur lítil, suma mánuði minni en í Reykjavík og á Akureyri. Fjöldi sólskinsstunda var alla xnánuði meiri en á Akureyri, og árlega til skiptis á Norður- löndunum fimm. Á þeim er aðal- lega fjallað um ýmis samskipti þessara landa í sjómælingum og sjókortaútgáfu, svo og um önnur sameiginleg mál. Þetta var 14. ráðstefnan. tvo mánuði (apríl og júní) meiri en í Reykjavík. Apríl var þó sól- ríkari en í meðallagi í Reykja- vík. Stormasamt var á Hveravöllum eins og við mátti búast. Alla vetr- armánuðina fór mestur vind- hraði (10 mínútna meðaltal) upp í 50 hnúta (10 vindstig). Hvass- ast var 31. marz, 64 hnútar (12 vindstig), en 2. og 5. febrúar var vindur litlu minni, 62 hnútur (11 vindstig). Fremur var snjólétt í nágrenni athugunarstöðvarinnar. Mest snjódýpi mældist 110 cm. Auk veðurathugana voru einnig gerðar margar jarðvegs- hitamælingar, en úr þeim hefir ekki verið unnið ennþá. Athyglisvert við mælingarnar er einkum hve úrkoma er lítil og sólskinsstundir margar. Einnig virðist veðurlag mjög óstöðugt. Sem dæmi um það má nefna, að í marz mældist úrkoma 24 daga, en sólskin mældist 25 daga. Hef- ir því mjög oft verið úrkoma og sólskin sama daginn. Fyrir næsta vetur er ráðgert að setja upp á Hveravöllum nýj- an vindrita og nokkra síritandi jarðvegshitamæla. Einnig verð- ur snjómælistöngum fjÖlgað og mælisvæðið stækkað. H. S. IJ Thant til Moskvu á mánudag New York, 23. júlí, AP. U THANT, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna leggur upp í Rússlandsferð sína á morgun, sunnudag, og er væntanlegur til Moskvu á mánudag, kl. 4.30 að staðartíma. U Thant verður í Moskvu í fjóra daga. Ekki hefur verið tilkynnt um dagskrá heimsóknarinnar en tal- ið er víst, að framkvæmdastjór- inn muni ræða Víetnam málið við þá Alexei Kosygin, forsætis- ráðherra, og Leonid Brezhnev, aðalritara kommúnistafiokiksins. — Slátfur Framhald af bls. 32. ir blaðinu. Segir hann að gamlir menn fullyrði að ekki hafi sprott ið svo vel á Héraði sl. 40 ár. Nokkuð hefur verið óþurrka- samt á Héraði í sumar. 1 gær var á Egilsstöðum norðan hvass- viðri og snjóaði í fjöll. Var Fjarðarheiðin orðin grá niður í brúnir. Frá Hornafirði símar Gunnar Snjólfsson í Höfn og segir að gras sé mikið. Sláttur hafi geng- ið með. ágætum og væru bænd- ur þeir, sem hefðu mikla sand- rækt búnir að heyja mikið. Þó væri mikið af því heyi úti enn. Jón Ólafsson í Geldingaholti í Árnessýslu segir að sláttur sé þar í sveitum skammt á veg kominn. Alla síðustu viku hafi verið rigning, eða þangað til í gær, er stytti upp. Væru nú all- ir komnir í gang og væri spretta góð, en þó sums staðar eitt- hvað misjöfn. — Það lítur nú betur út en áður með slátt hér um slóðir sagði Gunnar Sigurðsson í Selja tungu í Árnessýslu, er blaðið hafði tal af honum í gær. Eft- ir fjögra daga stanzlausa rign- ingu létti í gærdag og gátu menn farið að sinna heyverkum. í gær var í Gaulverjabæjarhr. hvass- viðri og léttskýjað og vonuðust menn til áframhaldandi yrði á þesari tíð. Víða er búið þar um slóðir að ná inn alimiklu af ágætis heyi, en áliðið er orðið sumars og því full þörf á að sláttur geti haldið áfram af full um krafti. — Dularfullt Framhald af bls. 1 kenndu Pekingstjórnina árið 1950 og fjórum árum síðar skiptust þjóðirnar á sendifull- trúum) — og hann beðinn gefa skýringu á atviki þessu. Því neitaði hann afdráttar- laust og neitaði einnig áð framselja verkfræðinginn í hendur lögreglunnar. Á sunnu dag var þess aftur óskað, að sendifulltrúinn gæfi skýr- ingu, en hann neitaði enn og gaf þær upplýsingar einar, að maðurinn væri látinn. Síðar var sagt í Peking, að verk- fræðingurinn hefði stokkið út um glugga í sendiráðinu, hefði hann ætlað að svíkja þjóð sína og óska hælis í Hollandi sem pólitískur flóttamaður. Hollenzka lögreglan sta’ðhæfir hinsvegar, að sé dæmt frá stað þeim, er maðurinn fannst á og ummerkjum þar í grennd, sé þessi skýring útilokuð. Verkfræðingurinn, Hsu Tzu- tsai að nafni, 42 ára, hafði verið í Hollandi í níu manna kínverskri verkfræðinganefnd sem sat alþjóðlega tækniráð- stefnu í Delft í síðustu viku. Þegar á sunnudag var sendi ráðsfulltrúanum gefinn 24 klst. frestur til þess að hafa sig á brott frá Hollandi vegna afskipta sinna af þessu máli. Jafnframt var settur öflugur lögregluvörður umhverfis sendiráðið og náði lögreglan líkinu, þegar starfsmenn sendiráðsins reyndu að lauma . því burt að næturlagi. Ná- kvæm rannsókn var gerð á því og hefur ekkert verið gef- ið upp af opinlberri hálfu um — S-Vietnam Framhald af bls. 1 að föllnum hermönnum, sem höfuðin hefðu verið skorin af, sprengd í tætlur eða afmynduð á þann hátt, að ætla má að þar hafi vísvitandi verið reynt að gera hina föllnu ókennilega. AP hefur eftir einum tals- manni Bandaríkjahers, að hon- um kæmi ekkert á óvart, þótt Kínverjar væru farnir að taka þátt í bardögunum — „en reyn- ist það rétt, verður enn breyt- ing á þessu stríði“, hafði hann sagt. • Fregnir frá Hanoi herma, að stjórnin þar hafi lýst yfir myndun nefndar, er fjalla eigi um „stríðsglæmi" Bandaríkja- manna. Kanadískur sendimaður sem nýkominn er frá Hanoi tel- ur, að bandarísku fangarn- ir í N-Vietnam verði dæmdir til dauða en dómunum verði ekki fullnægt og hyggist Hanoi- stjórnin þar með sýna gæzku sína og friðarvilja. Nefnd Alþjóða Rauða krossins ræddi mál bandarísku fanganna á fundi í Genf í morgun. Þar skýrði forsetinn, Samuel Can- ard, frá nýafstaðinni ferð til Hanoi og tilraunum sínum til að koma í veg fyrir að fanga- arnir verði dregnir fyrir rétt sem stríðsglæpamenn. Nefndar- menn vildu ekkert segja um málið í morgun. úrslit líkskoðunarinnar. Hins- vegar var haft eftir góðum heimildum, að fundizt hefðu á manninum ýmis sár — sum þess eðlis, að um misþyrming- ar hefði getað verið að ræða — önnur þess eðlis, að mað- urinn hefði getað látizt af völdum bifreiðaslyss. Að rannsókn lokinni var líkið afhent sendiráðinu á ný. Lögregluvörður var hinsvegar hafður áfram umhverfis sendi ráðshúsið, til þess að fylgjast með hinum nefndarmönnun- um átta, sem lögreglan hyggst ekki hleypa úr landi, án yfir- heyrslu. Hollenzk blö>ð velta máli þessu mjög fyrir sér og hafa komið fram allslkonar getgát- ur. Eitt blaðanna spyr, hvort Hsu hafi verið njósnari fyrir Vesturveldin — annað spyr, hvort hann hafi verið drepinn af kínverskum atvinnumorð- ingja af pólitískum ástæðum — og enn eitt spyr, hvort ekið hafi verið á hann, annað hvort af slysni eða ásettu ráði. Kínversk blöð og fréttastof- an Nýja-Kína hafa farið mjög hörðum orðum um afstöðu hollenzku stjórnarinnar í máli þessu og segja tilganginn að grafa undan samskiptum Hol- lands og Kína og sé það liður í stuðningi við árásarafstöðu bandarískra heimsvaldasinna gagnvart Peking. Þess er getið í sambandi við þetta mál, að fyrir nolkkrum mánuðum hafi annar kín- verskur verkfræðingur reynt að leita hælis sem pólitískur flóttamaður í Hollandi, en starfsmenn kínverska sendi- ráðsins í Haag hafi neytt hann til að fara heim. Eiginma’ður minn og faðir okkar, ÓLAFUR GUÐMUNDSSON, Réttarholtsvegi 39, sem andaðist 17. þ. m., verður jarðsunginn frá Hallgríms- kirkju þriðjudaginn 26. júlí kl. 1,30 síðdegis. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á liknarstofnanir. Ingibjörg Sturludóttir og börn. Jarðarför konu minnar, HELMU J. SELBY, sem lézt í Keflavíkurspítala 19. júlí sl. fer fram frá Foss- vogskirkju miðvikudaginn 27. júlí kl. 1,30, en ekki 10,30, eins og áður var auglýst. Georg Selby og börn. V7 Á Hveravöllum var 7-9 stiga frost að meðaltali i desember og janúar Stormasamt var en snjólétt i vetur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.