Morgunblaðið - 10.08.1966, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 10.08.1966, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIO Miðvikudagur 10. ágúst 1966 Drukkinn maður veltir bifreið á ofsaferð f IVIiSdi að piltarnir þrír skyldu lítt meiddir XTMFERÐARSLYS var3 í fyrri- aiótt um kl. 3 á Vesturlandsvegi á móts við Engi í Mosfellssveit. I>ar var bifreið á leið austur Vesturlandsveg, og ók mjög ®reitt. Er hún var komin á móts við Engi náði ökumaðurinn ekki einni beygjunni, þannig að bun valt á vegarbrúninni, sem er nokkuð há á þessum stað, og virðist bifreiðin síðan hafa stungizt yfir sig. í bifreiðinni voru þrír piltar, og voru þeir allir fluttir á Slysa varðstofuna til rannsóknar. Af benni var svo annar farþeginn fluttur í Landakot, en hann var með skurð á fæti, mjög marinn og skrámaður. Hinir meiddust mun minna. * 1 Kýr réðist SA FÁHEYRÐI atburður gerð ist í Kjósinni skömmu fyrir sl. helgi, að kýr réðist á mann með þeim afleiðingum að hann mun hafa rifbeinsbrotnað, og liggur nú rúmfastur af þeim sökum. . Nánari tildrög voru þau að Gíslj Andrésson, hrepp- stjóri, á Neðra-Hálsi í Kjós var að stugga við kúahóp skammt frá bænum ásamt syni sínum. Var hundur í för með þeim, og virtist einni kúnni vera einstaklega illa við hann. Fór svo að hún réðist á hann, en Gísli hljóp þá í veg fyrir kúna og hugð- ist bjarga hundinum. Var kýr in þá orðin svo óð, að hún skeytti engu um Gísla, held- ur hljóp á h:inn, og varð hann undir henni. Við það mun Gísli hafa rifbeinsbrotnað, og hefur hann legið að mestu rúmfastur síðan. —4>- Piltarnir þrír munu allir hafa verið undir áhrifum áfengis. Ökumaðurinn var réttindalaus, þar sem hann hafði áður verið tekinn undir áhrifum áfengis, t.d. olli hann hörðum árekstri í Elliðaárbrekkunni sl. sunnudag, en hann var þá ölvaður á bif reiðinni. Bifreiðin er gjörónýt á eftir og þykir mesta mildi að pilt- arnir skulu hafa sloppið svo vel út úr henni. Á 20 mílna hraða í gegn- um gatið á Dyrhólaey Suzie Wong er komin til Hornafjarbar FERÐALÖNGUNUM tveimur, sem eru á hringferð um landið á hraðbátnum Suzie Wong, mið- ar allvel áfram og voru þeir komnir til Hornafjarðar í gær. Þar náði Mbl. tali af öðrum þeirra, Þórarni Ragnarssyni, og spurði hann um ferðina frá Eyjum. — Við lög'ðum af stað frá Vest mannaeyjum um kl. 2 e.h. í gær, og vorum komnir til Hornafjarð- ar um kl. 5 í morgun. Ferðin gekk mjög þokkalega, við feng- um ágætt í sjóinn út að Dyr- hólaey, en þar sigldum við i gegnum gatið á 20 mílna hraða, og þar áfram meðfram strand- lengjunni. En þegar við vorum komnir að IngólfshöfðSP fór að verða meiri ólga í sjónum, þann- ig að við urðum að hægja fehð- ina nokkuð. Síðan tók það okk- ur nokkurn tíma að fikra okk- ur inn í höfnina á Hornafirði, sem er fremur viðsjálverð. — Við höfðum með okkur um 300 lítra af benzíni, en áttum 60 lítra eftir, þegar við komum hingað. Þóttumst við vera nokk- Tveir þurrkdag- ar sl. 3 vikur uð hólpnir, því a'ð á tímabili vor um við jafnvel smeykir um að benzínbirgðirnar myndu ekki nægja. En þetta er lengsta vega- lengdin, sem við förum í einu, í allri ferðinni, og við erum að sjálfsögðu ánægðir að henni er lokið. Núna er bræla hérna fyrir utan höfnina, en við vonumst til að lægi með kvöldinu, og ætlum við þá að halda áfram til næsta viðkomusta'ðar, sem er Djúpi- vogur. 1200 kr. stolið UM MIÐJAN dag í gær var hand tösku stolið frá ungri stúlku sem vinnur í Naustinu. Var stúlkan nýkomin á vinnustaðinn, og hafði lagt brúna leðurtösku frá sér í herbergi við dymar, sem snúa út að Tryggvagötu. Hún vék sér síðan frá ör- skamma stund en er hún kom aftur var taskan horfin, með öllu sem í henni var en það var m.a. nafnskírteini, ekuskirteini sjúkra samlagsskírfeini og bankabók með nokkurri innistæðu í, ásamt Framhald á bls. 27 Situr við sama í sjónvarpsmálinu Húsavík, 9. ágúst. „HÆÐ er yfir Grænlandi“. Svo hefur veðurstofan hafið lýsingu 7 ára drengur veiddi mink á stöng RAUFARHÖFN, 9. ágnóst. Sá atburður gerðist hér á bæn- um Höfða, sem er skammt frá Raufarhöfn að 7 ára piltur veiddi minkalæðu á stöng, og tókst að ráða niðurlögum hennar. Drengurinn hafði verið að sil- ungaveiðum í á, sem rennur skammt frá bænum, er hann sá hvar minkalæða kom að honum ásamt tveimur yrðlingum. Virtist honum sem læðan ætlaði að ráð- ast á sig, og rak því veiðistöng- ina sína í átt að henni. Við iþað flæktist hún í færinu, og var svo kojnið undir lokin að hún hafði dregið alla línuna út af veiði- hjólinu, og gat sig hvergi hrært í línunni. Náði drengurinn þá í stein og kastaði í höfuð læðunn- ar. Því næst hljóp hann heim og náði í föður sinn.- Er þeir komu aftur, var læðan dauð. Þeim tókst að finna grenið, en náðu ekki yrðlingunum. — Einar. sína undamfarna viku eða vikur, og slíkt boðar ekki gott fyrir okkur hér norðanlands. Bændur og aðrir þeir, sem allt sitt eiga undir sól og regni gerast nú svartsýnir um öflun heyja, vegna hinna langvarandi óþurrka ofan á skemmd og kalin tún frá sl. vori, og eftir gjafþungan snjóa- vetur. Aðeins tvo daga hefur verið hægt að hreyfa við heyi hér í nærsveitum, sl. 3 vikur. 1 morgun virtist heldur vera að birta í lofti, og mætti ég þá á götu reyndum bónda, sem sagði: ,,Þetta er nú aðeins þriðju- dagsglenna — hún kemur aldrei að gagni, svo var gamalla manna mál“, um miðjan dag var aftur byrjað að rigna. — Fréttaritari. Nemendahús vSð Mennta- skólann að LaugarvatnS ÍFORMAÐ er að taka í lotkun á þessu ári nýtt nem- endahús við Menntaskólann á Laugarvatni og hófst bygg- ing þess í júlímánuði sl. Á næsta ári verður byggt ann- að nemendahús, en þessar framkvæmdir eru liðir í þeirri áætlun að byggja á Laugarvatni þrjár húsasam- stæður fyrir menntaskóla- nema á Laugarvatni með tvö nemendahús í hverri þeirra, samkvæmt þeim upp- lýsingum, sem Jóhann Hann- esson skólameistari gaf blað- inu í gær. Sagðist skólameistari von- ast til að nemendahúsið nýja yi'ði til'búið á hausti komanda. en það mun taka 50—52 nem- endur. En vegna lí'tils hús- rýmis heimavistarinnar í skól anum sjálfum hefur orðið að vísa fjölmörgum umsækjend- um. frá á hverju ári. Hefur einnig orðið að hýsa nemend ur í leiguihiúsnæði hér og hvar á Laugarvatni. Er nú leyst úr brýnustu húsnæðisþörfinni með tilkomu hins nýja nem- endahúss, þótt enn geti skól- :nn ekki sinnt öllum þeim ida umsókna, sem berast á ri hverju. -nendahúsin nýju eru að af arki'tektunum Þor- valdi Þorvaldssyni og Helga HjálmarssynL ADFÖRINNI að sjónvarpssend- inum á Stóra-Klifi í Vestmanna- eyjum var enn frestað í gær, þar sem Magnús H. Magnússon símstöðvarstjóra höfðu þá enn ekki borizt upplýsingar um ein hver lögfræðileg atriði, sem ver- ið er að kanna í Reykjavík. — Sagði Magnús ■ samtali við MbL í gærkveldi að hann myndi því bíða með að íella sjónvarps- mastrið enn um sinn, þar til hann heíði þessar upplýsingar á milli handanna. Reytingsafli tog- ara s/. 2 mánuði Karlsefni með géða sölu í Hull REYTINGSAFLI hefur verið hjá togurunum undanfarna tvo mánuði. Hafa þeir fengið allt upp í 340 tonn í veiðiferð, en þeir hafa aðallega haldið sig á heimamiðum og á Grænlands- miðum. Aflinn hefur mestmegn- is verið karfi. í gær var Úranus að landa í Reykjavík 240 tonn- um, og Maí var að landa í Hafn- arfirði 290 tonnum. Fremur lítið hefur verið um landanir íslenzkra togara er- lendis. Þó seldi Karlsefni í Hull 28. júlí sl. 146 tonn fyrir 13642 pund og Marz seldi sömuleiðis í Hull hinn 6. ágúst sl. 84 tonn fyrir 6791 pund. VEÐURKORTIÐ hefur tekið litlum breytingum undanfarn- ar vikur, hæðin hefur setið sem fastast á Grænlandi og lægðir verið aðgerðarlitlar upp á síðkastið. í gær mátti þó sjá lœgð sem dýpkaði með talsverðu offorsi vestur af Irlandi. I svipinn var þó að sjá, að hún hefði nein bei áhrif á veður hér á land Enn er mjög kalt á annesju. nyrðra, 5 stig um hádaginn Raufarhöfn og víðar, en hlý ast var á SV-landi, og í Bori arfirðL 1S stig í Síðumúla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.