Morgunblaðið - 18.08.1966, Qupperneq 1
24 siður
53. árgangur
186. tbl. — Fimmtudagur 18. ágúst 1966
Prentsmiðja Morgunbladsins
Fónum prýdd
borg í dug
I D A G er borgin okkar
180 ára. Þennan dag árið
1786 hlaut verksmiðjuþorpið
Reykjavík kaupstaðarréttindi
með konungsúrskurði.
Morgunblaðið birtir í til-
efni afmælisins þessa mynd,
sem tekin er af Arnarhóli.
vestur yfir Miðbæinn, og
stendur landnámsmaðurinn,
Ingólfur Arnarson, í forgrunni
myndarinnar.
I fréttatilkynningu til blað-
anna í gær, frá borgarstjórn.
er allur almenningur hvatt-
ur til þess að draga fána að
húni til að minnast dagsins.
Kveikt í þorpi
Saigan, 17. ágúst — AP
HRYÐJUVERKAMENN Viet
Cong komúnista réðust að þorpi
einu í Quang Ngai héraði, um
550 km. NA af Saigon, á þriðju-
dagsmorgun og kveiktu þar í
um eitt hundrað húsum þorps-
búa. Skýrði talsmaður stjórnar
S-Vietnam frá þessu í dag.
Fregnir af atburði þessum eru
enn óljósar, og er ekki enn vit-
að hvort hryðjuverkamennirnir
myrtu einhverja þorpsbúa. Að
loknu hervirkinu flúðu Viet
Cong menn til skógar.
Izvestia ræðst á
fiugvélakaup SAS
— Segir SAS og fleiri félög pind til
bandariskra flugvélakaupa
Moskvu, 17. ágúst — NTB.
IZVESTIA, málgagn Sovétstjórn-
arinnar, sakaði í dag bandaríska
flugvélaiðnaðinn um að hafa
neytt SAS og ýmis önnur evrópsk
flugfélög til þess að kaupa banda
rískar flugvélar í stað franskra
Caravelle-þota. — Lýsti Izvestia
því yfir, að þetta hefði gerzt eft-
ir langvinnt baktjaldamakk.
Blaðið sagði að SAS, belgíska
félagið Sabena, Swissair og Al-
italia hafi verið neydd til þess
að kaupa einvörðungu bandarísk-
ar þotur, iþrátt fyrir að til þessa
hafi félögin notað Caravelle-þot-
ur með góðum árangri.
„Eitt er víst: Samtímis því, að
Bandaríkin halda áfram hinni
blóðugu styrjöld í Víetnam, hafa
þau ekki hætt hættuspili sínu á
efnahagsvígstöðvum Evrópu“,
segir Izvestia í greininni, sem ber
yfirskriftina „Svindlið bak við
skýin“.
Odd Medboe, deildarstjóri SAS,
hefur skýrt NTB svo frá, að val
SAS á flugvélategundum hafi
farið fram áð loknum ítarlegum
tæknilegum, rekstrarlegum og
efnahagslegum athugunum. Eng-
inn vafi hafi leikið á því, hvaða
flugvélagerðir væru hinar beztu
í heimi, nefnilega þær banda-
rísku.
Malasía ekki viðurkennd
íyrr en að loknum kosningum í Sabah og Sarawak, segir Sukarno
Jakarta 17. ágúst NTB
Sukarnó, Indónesíuforseti hélt
í dag áfram einsmannsherferð
sinni gegn friðarsamningum
þeim, er stjórn hans gerði við
Malasíu í sl. viku. 1 harðyrtri
ræðu, sem hann flutti fyrir um
1 millj. áheyrenda á hinu gríðar
stóra Frelsistorgi í Jakarta í dag
sagði Sukarnó að Indónesía
myndi ekki viðurkenna Malasíu
fyrr en kosningarnar hefðu farið
fram í Sabah og Sarawak, en
það eru tvö landssvæði á Borneó fjöldanum og erlendum sendi-
herrum, sem viðstaddir voru frá
því, að hann hefði gefið hers-
höfðingjanum ráð á bak við
tjöldin í samningaviðræðum
þeim, sem leiddu til friðar-
samninganna við Malasíu. Á með
an forsetinn talaði hófu stúd-
entar, sem sýnilega voru óánægð
Framihald á bls. 23.
sem teljast til Malasíu.
Sukarnó hefur ætíð haldið
því fram, að íbúar þessara
svæða hafi ekki verið nægilega
spurðir ráða áður en þau gengu
i Malasíuríkjasambandið.
Yfirmaður Indónesíuhers, Su-
harto hershöfðingi, var myrkur
á svip er Sukarnó skýrði mann
Lögreg lu mor ðin:
Einn hinna grunuðu
handtekinn í Glasgow
Þriðji maðurinn enn ófundinn
Glasgow og London, 17. ágúst
— NTB —
EINN af mönnum þeim, sem eft-
irlýstir eru vegna morðanna á
lögreglumönnunum þremur í
London í síðustu viku, var í dag
handtekinn óvopnaður og án
mótþróa í íbúð í Glasgow í að-
eins 45 m. fjarlægð frá stórri
lögreglustöð.
Enda þótt lögreglan hefði sent
út tilkynningar um að maður-
inn væri hættulegur og líkind-
um vopnaður, veitti John
Duddy, sem er 33 ára gamall,
enga mótspyrnu er tveir bílar, I
fullhlaðnir lögreglumönnum,
komu akandi að leigubyggingu
við Charlton-götu, sem er í
verkamannahverfi Glasgow, fæð
ingarborgar hans.
Handtakan fór svo friðsam-
lega fram, að íbúar hússins
höfðu ekki hugmynd um hvað
gerzt hafði fyrr en klukku-
stundu síðar er fréttamenn
streymdu til hússins til þess að
spyrja þá spjörunum úr.
Tveir lögreglumenn frá Scot-
land Yard héldu í dag flugleið-
is til Glasgow til þess að flytja
Framhald á bls. 23
Sprengjutilræði
á hátíiasamkomu
Viet Cong sprengja sprakk yfir Jbéf/-
skipuðum sal - 6 létust, 50 særðust
Hué, 17. ágúst — AP
HRYÐJUVERKAMENN Viet
Cong kommúnista sprengdu
i kvöld sprengju í þéttskip-
uöum sal óbreyttra borgara
S-Vietnam með þeim afleið-
ingum að a.m.k. sex manns
biðu bana og yfir 50 særðust.
Gerðist þetta á hátíðasam-
komu, sem stjórnarvöld lands
ins efndu til í því skyni að
vekja athygli á kosningunum,
sem fram eiga að fara í land-
inu í september n.k.
Saigonstjórn hefur látið
reisa bráðabirgðabyggingar í
Hué, og hafa þar verið haldn
ar samkomur til þess að
hvetja menn til þátttöku í
kosningunum. Komu hryðju-
verkamenn kommúnista
sprengjunni fyrir á báru-
járnsþaki einnar byggingar-
innar, en undir sat fjöldi
fólks að spilum og við ýmsa
aðra dægradvöl.
„Það var troðfullt af fólki
þarna inni“, sagði einn sjón-
arvottur. „Þegar sprengjan
sprakk, hrundi þakið yfir
það“.
Framhald á bls. 23