Morgunblaðið - 22.09.1966, Side 15
Fimmtudagur 22. sept. 1968
MORCUNBLAÐIÐ
15
Ævisaga Churchills
ÞANN 24. október n.k. kemur
út hjá í'orlagi Heinemanns í
Lundúnum fyrsta bindi ævi-
sögu Churchills, rituð af syni
hans, Randolph Churchill.
Höfundurinn vinnur bókina
á heimili sínu, East Bergholt
í Suffolk á Englandi, ásamt
aðstoðarmönnum. East Berg-
holt er byggt í georgískum
stíl, gamalt og virðulegt hús.
Sagt er að Constable hafi
málað fræga landslagsmynd
á garðsvölum þessa húss, en
þar er mjög fagurt útsýni yfir
dalinn fyrir neðan og allt til
turna Dedhamkirkju, sem
gnæfa við himin í fjarska.
Nú ér þarna varðveitt eitt
mesta safn einkaplagga, bréfa
og opinberra skjala og skil-
ríkja, sem nokkru sinni hefur
komið saman á einum stað,
varðandi einn mann. Hér er
ef til vill síðasta margbinda
ævisagan skráð í klassískum
stíl.
Safn þetta er geysimikið. Sá
hluti þess, sem var í eigu Sir
Winstons er geymt í 24 eld-
traustum stálskápum, og hver
skápur vegur um 750 kg. full-
ur. í þessum skápum eru um
300.000 bréf, skjöl og skilríki.
Þessar heimildir eru vátryggð
ar fyrir 750.000 pund. Sér-
stakt herbergi var reist við
húsið undir allt þetta bréfa-
og skjalamagn, það er eld-
traust og stálhurðirnar að því
vega um 2 tonn. Til þess að
vinna úr slíku magni heimilda
var öll efsta hæð hússins tekin
undir skrifstofur, og eitt her-
bergið hefur verið útbúið sér
staklega til ljósmyndunar
skj ala.
Árið 1960 ákvað Randolph
Churchill að helga sig ritun
ævisögunnar, garðrækt og
þessari eign sinni. Hann hvarf
af stjórnmálasviðinu, þótt
hann fylgist með öllu, sem
gerist á þeim vettvangi af
miklum áhuga. En ævisagan
er aðalviðfangsefnið. Garð-
ræktin verður honum tilbreyt
ing. Hann telur sig hafa fund
ið griðastaðinn í East Berg-
holt, eftir nokkuð stormasamt
líf. Hann segist aldrei fara
til Lundúna, nema hann eigi
þangað brýnt erindi, garð-
urinn, húsið og bókin eru hans
heimur. Allt heimilið snýst
um bókina. Umræðuefnið við
málsverði er venjulega eitt-
hvað, sem varðar hana, nýjar
heimildir úr, British Museum
eða frá Bodleian-safninu í
Oxford eða þá bréf, sem ein-
hver aðstoðarmannanna hefur
nýlega fundið og varpar nýju
ljósi á einhvern atburð í lífi
Churchills.
Eftir síðdegisverðinn er oft
tekið til við upplestur úr bréf-
um Sir Winstons. Sá, sem les,
stendur við púlt það, sem eitt
sinn var í eigu Disraelis og
Sir Winston notaði, þar til
hann gaf syni sínum það. Þess
ir upplestrar fara fram í bóka
herbergi hússins, þar sem all-
ir veggir eru þaktir bókum
frá gólfi til lofts. Meðan lesið
er úr bréfunum, er rétt eins
og hundarnir, sem sitja fyrir
framan arineldinn hlusti með
athygli. Randolph Churchill
og aðstoðarmenn hans fylgjast
með og skrifa niður athuga-
semdir.
Þessir upplestrar virðast
færa Sir Winston nær þeim,
sem vinna að ævisögunni. Þeir
verða næmari á ýmiskonar
blæbrigði orðanna, og merk-
ing þeirra verður skarpari við
upplestur en hljóðlestur. Auk
þess yrði það augum flestra
ofraun að lesa sjálfur allt
þetta heimildamagn. Höfund-
urinn og aðstoðarmennirnir
fylgjast allir með og það er
gert að undirlagi höfundar.
Randolph Churchill ætlar að
láta Sir Winston segja ævi-
sögu sína sem mest sjálfan,
en það er ekki auðunnið,
heimildamagnið er slíkt. Hann
varð sjálfur undrandi þegar
fyrsta sending bréfa og skjala
barst honum. í þeirri send-
ingu voru um 300 bréf, sem
Sir Winston hafði skrifað for-
eldrum sínum frá sjö ára
aldri og til þess tíma, að hann
hvarf frá Harrow átján ára
gamall. Hann skrifaði móður
sinni síðan reglulega, frá
Sandhurst herskóla, úr her-
búðum, meðan hann var ný-
liði, frá Indlandi, Egyptalandi
og lýsti fyrir henni orrustunni
við Amdurman, hann lýsir
fyrir henni, þegar hann var
tekinn til fanga í Búastríðinu
og hvernig honum tókst að
strjúka. Öll þessi bréf eru lif-
andi og stílsnilldin með ein-
dæmum. Þau bera með sér
vopnabrak, gleði, hryggð og
allan blæ liðins tíma.
Randolph segir: „Menn geta
séð, hve heimildaauðurinn er
mikill, á því, að þegar Bos-
well tók að setja saman ævi-
sögu Johnsons, náðu heimild-
ir hans aðeins frá tuttugusta
aldursári hans og ritaðar
heimildir um Nelson ná enn
skemmra aftur í tímann. En
hér eru komin saman bréf, allt
frá því að faðir minn tók að
draga til stafs“.
Og móðir Churchills, Lady
Randolph, var ekki sú eina,
sem þessi ópennalati ungling-
ur skrifaði til. Ætt hans var
geysifjölmenn, systkinabörnin
og þremenningarnir voru 69
í föðurætt. Starfið er margt,
það krefst ekki lítillar vinnu
að lesa eða heyra lesin öll
bréf um hann, rannsaka þau
og fella inn í heildarmynd þá,
sem gefin verður með birt-
ingu þeirra.
Bréfin frá, til og varðandi
Sir Winston munu, einkum
þau frá síðari hluta ævi hans,
fylla þær eyður sem kunna að
verða í atburðarásinni og
verða oft bezta heimildin, sem
kostur er á. Minningum vina
og samstarfsmanna Sir Wins-
Sir Winston Churchill.
tons er safnað af mikilli elju.
Randolph Churchill notar
segulband í samræðum sínum
við slíka, á þann hátt er aflað
dýrmætra heimilda um ensk
stjórnmál síðustu fimmtíu ár-
in. Ein nánasta heimildin er
Randolph Churchill sjálfur.
Hann fékk að sitja til borðs
með allri fjölskyldunni frá því
að hann var þrettán ára, þá
í Eton. Sami háttur var hafð-
ur á um systur hans.
Þetta var mjög frábrugðið
því sem tíðkaðist á unglings-
árum Sir Winstons sjálfs. Þá
voru börn höfð sér og Rand-
olph Churchill minnist þess,
þegar hann var að fara til
Eton, 17 ára gamall, að af-
loknu sumarleyfi, að faðir
hans sagði við hann með
nokkrum trega: „Veiztu,
drengur minn, að ég held að
við tveir höfum talað meira
saman þessa sumardaga, en
ég og faðir minn allan þann
tíma, sem við vorum sam-
tíða“. Sir Winston var tvítug-
ur þegar farðir hans lézt.
„Ég er hræddur um, að ég
hafi verið full hirðulaus við
nám, eins og faðir minn, ég
kynntist stjórnmálum, sögu
og lærði ensku af honum, þeg
ar ég hlustaði á hann við mál
tíðir og á samræður hans við
vini sína, eins og Birkenhead
lávarð, Lloyd George og
Beaverbrook lávarð".
Nærvera Sir Winstons er
sterk I East Bergholt, þar er
allt fullt af málverkum eftir
hann, rissmyndum, ljósmynd-
um af honum og myndum af
ættmönnum hans í föðurætt.
Fyrsta útgáfa allra bóka Sir
Winstons eru í bókaherberg-
inu og á stigaveggjunum eru
14 olíumyndir eftir hann.
Sumir segja það erfitt fyrir
son að rita ævi föður síns. En
ýmsir hana afsannað þessa
staðhæfingu, meðal þeirra Sir
Winston sjálfur, hann ritaði
ævisögu föður síns ungur að
árum.
Randolph Churchill hefur
lært einna mest ævisagnarit-
un af föður sínum. „Tímatalið
er lykillinn að allri frásögn",
sagði Sir Winston oft. Eins og
málum er komið nú, mun ævi
sagan líklega fylla fimm þykk
bindi og auk þessa verða önn
ur fimm með bréfum, skjöl-
um og athugagreinum.
Fyrsta bindið spannar tíma
bilið 1874—1901, eða frá fæð
ingu hans og til þess að hann
er í fyrsta skipti kosinn á
þing, rétt fyrir fráfall Viktoríu
drottningar í janúarmánuði
1901. Næsta bindi nær frá
1901 fram að styrjöldinni 1914.
Þriðja bindið spannar stríðs-
árin 1914—-1918 og fram að
falli samsteypustjórnarinnar
1922. Fjórða bindið segir sögu
áranna milli stríða og fimmta
bindið síðari styrjöldina og
eftirstríðsárin.
Randolph Churchill hefur
skipulagt alla vinnu og rann-
sóknir. Aðstoðarmenn hans
eiga að sjá um efni og athug-
anir, hver á sínu bindi eða
bindishluta. Mr. Michael
Wolff hefur yfirumsjón með
rannsóknum og sér um fyrsta
bindið. Mr. Michael Molian
sér um annað bindið. Mr.
Martin Mauthner hefur eink-
um athugað tímabilið 1905—•
1908 og Búastríðið og er hann
Molian til aðstoðar. Mr. Mart-
in Gilbert sér um þriðja bind-
ið.
Þrátt fyrir þessa aðstoð, er
öll ævisagan rituð af Rand-
olph Churchill. Aðstoðarmenn
láta mjög vel af stjórn Rand-
olphs Churchills, hann lætur
þá sjálfráða og skiptir sér ekk
ert af vinnu þeirra, les síðan
yfir árangur rannsókna þeirra,
velur og hafnar.
Loks þegar tekið er að rita
bókina, er allt heimildaefni
til staðar og Randolph Chur-
chill les síðan ritara fyrir.
Áður en það gerist hefur
hann farið yfir eða látið lesa
fyrir sig, allar þær heimildir,
sem tiltækar eru.
Afritunarvélin er mjög mik-
ið notuð. Tekin er afritun af
bréfum og skjölum og síðan
vélritað eftir þeim, þetta kem-
ur í veg fyrir það, að frum-
ritin verði fyrir hnjaski, auk
þess er þannig hægt að afrita
skjöl og bréf, sem fengin eru
að láni.
Þessi bók verður ekki að-
eins æVisaga Sir Winstons,
heldur einnig veraldarsaga síð
ustu 75 ára. Hún mun að sjálf-
sögðu vekja nokkurn úlfaþyt
þegar hún kemur út, og menn
munu endurskoða álit sitt um
ýmsa menn og málefni. En
hún mun gefa þá fullkomn-
ustu heildarmynd af Sir
Winston Churchill, sem kost-
ur er á að gefa í bókum.
Meðal heimilda, sem höf-
undurinn hefur, eru óútgefin
bréf allra brezkra forsætisráð-
herra síðustu 95 ára, meðal
þeirra eru bréf frá Gladstone
og Disraeli.
Churchill lifði á ríkisstjórn-
arárum sex konunga og drottn
inga, hann varð leiðaraefni
blaða í Lundúnum áður en
hann varð 21 árs, kosinn á
þing 25 ára, aðstoðarráðherra
31 árs og ráðherra 3i3 ára
gamall.
Nákvæm ættartala fylgir
ritinu og þar má sjá á hvern
hátt Sir Winston er skyldur
og tengdur mörgum, sem hafa
á einhvern hátt sett sinn svip
á þetta tímabil. Það er einkum
gegnum Marlborough og Jer-
ome ættirnar. Meðal þessara
manna eru stjórnmálamenn,
listamenn og rithöfundar.
Þessi bók verður vafalaust
talin með allra merkustu ævi-
ritum, sem sett hafa verið
saman fram að þessu á 20.
öld.
Norrænu samtökin á
íyrsta fundi sínum
Steí nuskrá samtakanna samþykkt
— og bráðlega kynnt
DAGANA 3. og 4. sept. síðastl. i
var haldinn aðalfundur Sam-
bands Norrænu félaganna á
Norðurlöndum í Drammen.
Fulltrúar íslands á fundinum
voru Sigurður Bjarnason rit-
stjóri, formaður Norræna fé-
lagsins á íslandi, Einar Pálsson,
núverandi framkvæmdastjóri fé-
lagsins, Magnús Gíslason, frá-
farandi framkvæmdastjóri, og
Arnheiður Jónsdóttir, gjaldkeri.
Samband Norrænu félaganna
var stofnað í Reykjavík árið
1905. Er það sameiginleg stjórn
allra félaganna í Danmörku,
I Finnlandi, Færeyjum, íslandi,
Noregi og Svíþjóð. Var þetta
fyrsti sameiginlegi fundur ráðs-
ins frá stofnun þess í Reykjavík.
Stjórnaði formaður samtakanna,
Norðmaðurinn Harald Throne-
Holst, fundinum. Til fundarins
mættu fulltrúar allra Norður-
landa.
Mikilvægasta mál fundarins
var afgreiðsla tillögu um stefnu-
skrá samtakanna í náinni fram-
tíð. Var stefnuskráin lögð fram
og afgreidd á fundinum. Verður
hún birt á íslenzku bráðlega.
Meginefni hennar er það, að
Norðurlönd skuli stefna mark-
visst að sameiningu á sem flest-
um sviðum, svo að Norðurlönd
verði með tímanum ein menning
arleg og þjóðfélagsleg heild:
Skýrt er þó fram tekið, að urinið
skuli á afmörkuðum sviðum hér
eftir sem hingað til, og fullt til-
lit tekið til breytilegra hátta
þjóðanna á Norðurlöndum. Er
síðasttalda atriðið mikilvægt
fyrir íslendinga, ekki sízt vegna
sérstöðu okkar í efnahagsmálum.
Á fundinum var og rætt hið
svonefnda „frítíma-vandamál“
á Norðurlöndum og hugsanleg
samvinna Norðurlandabúa um
lausn þess. Svo er mál með vexti,
að Mið-Evrópubúar, einkum Þjóð
verjar, sækja mikið til Norður-
landa í sumarleyfi og kaupa upp
eignir þar. Stafa af þessu ýmis
vandamál, sem Norðurlönd hyggj
ast leysa hið bráðasta. En frí-
tími Norðurlandabúa sjálfra
blandast að sjálfsögðu umræð
um um þessi mál, nýting hans
og notkun landsvæða á Norður-
löndum til frístundaiðkana. Kem
ur til mála að friða stór land-
svæði á Norðurlöndum svo að
unnt verði að hagnýta þau í þágu
sumarleyfa almennings.
Þá voru einnig rædd vanda-
mál landamærahéraða, einkum
Noregs og Svíþjóðar. Sums stað-
ar liggja landamæri þannig, að
skólaganga, læknisþjónusta og
ýmiskonar opinberar framkvæmd
ir nýtast mun betur með náinni
samvinnu hins norska og sænska
hluta. Er unnið að ýmiskonar
samræmingu og hagræðingu
norskra og sænskra laga er að
þessu lúta.
Þá urðu miklar umræður um
sameiginlegt málgagn allra Nor-
rænu félaganna. Var ákveðið að
reyna að finna grundvöll slíkr-
ar útgáfu og málið sent til af-
greiðslu innan stjórnar samtak-
anna. Einnig var rætt um æsku-
lýðsár Norðurlanda 1967-68. Er
áformað að helga því ári upp-
byggingu ungmennasamtaka
allra Norðurlanda.
Formaður Norræna félagsins á
íslandi, Sigurður Bjarnason,
skýrði frá framkvæmdum við
Norræna húsið í Reykjavík. Er
áætlað, að byggingu hússins ljúki
árið 1968. Fögnuðu fundar-
menn mjög þeim upplýsingum.
Á mótinu var fyrrverandi for
maður Norræna félagsins í Finn-
landi, Karl-August Fagerholm,
útnefndur heiðursmeðlimur sam
takanna. Erik Eriksen, fyrrver-
andi forsætisráðherra Dana, var
kosinn formaður samtakanna
næsta starfsár.
Næsti aðalfundur Sambands
Norrænu félaganna verður hald-
inn í Danmörku í október 1967.
(Fréttatilkynning frá Norræna
félaginu sept. 1966).
París, 21. sept. —- NTB:
FRAKKLAND hefur ákveðið að
þjóðaratkvæöagreiðsla skuli fara
fram í Franska-Somalilandi fyrir
1. júlí næsta ár. — Allt frá því
að de Gaulle forseti heimsótti
Somalil and í sl. mánuði hafa átt
sér þar stað óeirðir og kröfu-
gerð um sjaifstæði. Franski lands
stjórinn þar hefur tjáð stjórn-
málamönnum þar að þeir eigi
um þrennt að velja, þ.e. óbreytt
ástand, „innri sjálísstjórn" og
sjálfstæði. „Fólkið mun nú fá
tækifæri til að velja", segir lands
stjórinn