Morgunblaðið - 22.09.1966, Side 26
26
MORGUNBLADIÐ
Ffmmfuðajíiir 22. sept. 19í
ISI viII framkvæmdaáætlun um upp-
byggingu ibi'óttakennaraskólans
Sigurvegarar Fram í 3. flokki íslandsmótsins. Liðið sigraði Keflavík í úrslitaleik með 2:1 eftir
framlengingu. Fremri röð frá vinstri: Stefán Eggertsson, Marteinn Geirsson, Sturla Þorsteins-
son, Rúnar Vilhjálmsson, Ágúst Guðmundsson, Einar Matthíasson, og þjálfarinn, Jóhannes Atla-
son. Aftari röð: Birgir Sigurbjörnsson, Eyþjólfur Bergþórsson, Ingvar Bjarnason, Snorri Hauks
son og Jón Pétursson.
Kennaraskortur háir
öilu íþróttastarfinu
Á ÍÞRÓTTAÞINGI Í.S.Í. á fsa-
firði var rætt um kenn^ra- og
leiðbeinendaskort íþróttahreyf-
ingarinnar og samþykkt eftir-
farandi tillaga til úrbóta.
íþróttaþing Í9Í 1966 beinir
þeim eindrengu tilmælum til
menntamálaráðherra, að beita
sér fyrir því að gerð verði fram-
kvæmdaáætlun um uppbyggingu
íþróttakennaraskóla íslands. Þeg
ar áætlun verður samin, er æski-
legt að tekið verðx tillit til frum-
varps þess, sem nefnd á vegum
menntamálaráðuneytisins hefur
samið um íþróttakennaraskóla
íslands, þar sem m.a. er gert ráð
fyrir að nám við skólann taki
tvö ár.
Greinargerð:
Sú staðreynd er fyrir löngu
kunn, að skortur á íþróttakenn-
urum og leiðbeinendum, stend-
ur mjög fyrir þrifum eðlilegra
framvindu íþróttamála í land-
inu. Orsök þessa ástands er sú,
hveru takmarkaðir eru möguleik
ar íþróttakennaraskóla íslands
að útskrifa íþróttakennara, vegna
húsnæðisskorts og margs konar
vanbúnaðar.
Það er því mjög aðkallandi að
gerð verði framkvæmdaáætlun
um uppbyggingu þessa skóla,
sem og verið hefur um aðra
skóla landsins, og hann hafi yfir
að ráða þeim mannvirkjum, sem
gera honum kleift að taka á
Framhald á bls. 21
Þetta eru sigurvegarar ÍBK í 2. aldurstlokki á íslandsmótinu. Liðið vann alla sína Ieiki í mot-
inu og skoraði 18 mörk gegn 6. í úrslitaleik sigraði liðið Val með 3:2
k . ..
LAUGARD. 3. sept. síðastlið-
inn var háð samtímis keppni í
3 flokkum á velli Golfklúbbs
Rvíkur við Grafarholt þ.e. eldri
flokks, Nýliða- og unglinga-
keppni. Kappleikir þessur eru
meistarakeppnir. Á laugardag
áttu að fara fram undirbúnings I
18 holu höggleikir, sem gæfu til '
kynna 8 eða 16 beztu innan
hvers flokks. Vikuna á eftir
skyldi síðan fara fram sjálf að-
aikeppnin, sem er holukeppni
með útsláttar-fyrirkomulagi og
ljúka með úrslitum laugardag-
inn 10. sept.
Sú undantekning frá þessari
reglu sem aldrei hefur komið I
fyrir áður var, að í eldri flokks 1
meistarakeppni mættu aðeins 2
keppendur til leiks. Var ákveðið
að þeir lykju bæði höggleiknum
og holukeppninni þennan sama |
dag. I eldri flokk G.R. hafa þeir
einir þátttökurétt, sem eru 50
ára og eldri. Þessir tveir sem
nú háðu harða baráttu um meist
aratitilinn voru Sigurjón Hall-
björnsson og Sverrir Guðmuríds
son. Eftir tvísýna keppni fór !
svo að Sverrir Guðmundsson
varð eldri flokks meistari G.R.
1966. Sigurjón var hins vegar :
höggleikinn, þannig að báðir ,
fengu sín sigurlaun.
í nýliðakeppninni var hins ;
vegar geysileg þátttaka eða 25
keppendur. Ungur nýliði Gunn-
laugur Ragnarsson sigraði glæsi
lega í undirbúningskeppninni
að þessu sinni. 16 keppendur
komust í aðalkeppnina, og var
mjótt á mununum hveijir hlytu
sess í hópi hinna 16 útvöldu.
Þeir háðu síðan harða hildi alla
næstu viku, unz aðeins 2 stóðu
eftir í vikulokin.
Á laugardaginn 3. sept fóru
úrslitin fram milli Jóns Agnars
og Vilhjálms Ólafssonar. Lauk
þeirri viðureign svo, að Jón
Agnars sigraði. Jón lék mjög
jafnt og af festu, sem Vilhjálmi
varð um megn að standast. Jón
Agnars hafði áður sigrað 2 mjög
efnilega nýliða, þá Berg Guðna-
son og Svan Friðgeirsson, með
talsverðum yfirburðum. Jón
Agnars varð því Nýliðameistari
G.R. 1966.
í unglingakeppninni voru
keppendur því miður aðeins 5.
Allir þessir efnilegu unglingar
eiga þakkir skildar fyrir, þá
rækt, sem þeir hafa lagt við að
taka þátt í keppnum félagsins
í sumar. Hans ísebarn sigraði
glæsilega í undirbúningskeppn-
inni í 84 höggum brúttó (án
forgjafar). Hans fsebarn, sem
varð Unglingameistari íslands í
2. sinn í röð í sumar, sigraði
einnig keppinauta sína að þessu
sinni, og hlaut því titilinn Ungl-
ingameistari G.R 1966.
Myndin er af sigurvegurum Fram í 5. flokki Islandsmótsins. Fram lék til úrslita gegn FH og
þurftu liðin að leika þrjá leiki áður en úrslit fengust. Sigraði Fram í þriðja leiknum með 2:L
Á myndinni eru, neðri röð frá vinstri: Árni Grétarsson, Birgir Sveinsson, Sveinbjörn Egilsson,
Hlöðver Rafnsson, Sigurjón Ólafsson og Bjarni Jónsson. Aftari röð: Alfreð Þorsteinsson, þjáif-
ari, Sighvatur Magnússon, Björn Arnarson, Kristinn Guðlaugsson, Guðmundur Arnarson, Sig-
urður Svavarsson, ólafur Jóhansson, Bergsteinn Gunnarsson, Finnbjörn Hermannsson og Skúli
Nielsen, þjálfari.
Vinna í anda gamallar og
góðrar áhugamennsku
99
ÞÆR GERAST æ sjaldgæfari
sagnirnar nm aö einhverju —
hvað þá miklu — sé fórnaff til
þess að menn geti stundað sin
ar íþróttir og margir eru fljót
ir til að fullyróa að áhuga-
mennska í orðsins fyllstu
merkingu sé úr sögunni. Fé-
lagar i norska handknattleiks
liðinu Faik í Horten í Noregi
hafa afsannað þessa kenningu
— í bili. Og þó sagan eigi hlið
stæður í ísl. félógum einhvcrj
um, er hún læruómsrik.
Þeir íélagar unnu sér rétt
til setu í I. deilú í Noregi nú
í vetur. Aðalstjórn félagsins
vildi ekki gefa þeim leyfi t.il
að nota þennan rétt nema
ílokkurinn tryggði 3000 kron
ur norskar í ,.terðasjóð“ því
mikil útgjóld eru vegna ferða
laga vegna lentja í deildinni.
Leiknxennirnir greiddu því
300 kr. bver í sjóð og af-
hentu aðalstjórninni. Þessi
upphæð nægir þó ekki nema
til þriggja lengstu ferða liðs
ins vegna keppninnar þ.e. til
Þrándheims, Rjukan og Elver
um.
Til þess enn frekar að efla
fjárhag félagsins hafa hand-
knattleiksmenmrnir að undan
förnu tekið að sér ýmis störf
í frístundum sinum. Þeir mála
hús, hreinsr baðstrendur, laga
til í görðum o. fl. og leggja
launin í ferðasjóðinn.
Ofan á allt þetta erfiði
horfa þeir fram á það að
heimaleiki sína verða þeir að
leika í næstu byggð, Sande-
fjord þar sem enginn íþrótta-
höll af löglegri stærð er í Hor
etan. Þeir missa því af flest-
um sírium „dyggu“ heima-
stuðningsmönnum.
Lengsta
boðhlaup
heimsins“
fór fram nýlega — eða 8.-9. sept.
er stúdentar í Osló og í Þránd-
heimi háðu boðhlaupskeppni
milli borganna. 56 stúdentar
voru í sveit hvors aðila og hljóp
hver þeirra 10 km vegalengd.
Hófst boðhlaupið á torgi Þránd
heims á miðnætti 8. sept. og lauk
snemma að morgni 10. sept. í
Osló.
Sveit Þrándheims tók forystu
á 1. spretti en síðan náðu Osló-
stúdentar forystu, uku hana
smám saman og sigruðu með
yfirburðum.
Það þætti tíðindum sæta ef
boðhlaupskcppni væri háð á
vegalengdkinni frá Mývatni til
Reykjavikur sem er þó aðeins
styttri. Og hvað er íþróttaáhugi
meðal stúdenta í Noregi meiri
en meðal stúdenta hér?