Morgunblaðið - 22.09.1966, Side 27
Fimmtudagur 22. sept. 1§66
27
MORGUNBLAÐIÐ
Umræður um kjör leikara
við sjónvarpið að hefjast
Fundur i Norræna leikararáðinu
F U N D U R var haldinn i
„Norræna ieikararáðinu“ að
Hótel Sögu í Reykjavík,
sunnudaginn 11. þ. m.
Fulltrúar frá leikarasam-
böndum Norðurlanda vora
staddir hér í Reykjavík, í til-
efni af 25 ára afmæli Félags
íslenzkra leikara.
Fulltrúi Norska leikarasam-
bandsins, Ella Hval, leikkona,
gat ekki sótt fundinn, eða venð
fulltrúi Norska sambandsins á af
mælishátið Félags íslenzkra leik
ara, vegna þess að þá stóð yfu
verkfall hjá norskum leikurum.
Af þeim sökum var ekki hægt
að ganga endanlega frá öllum
málum, sem fyrir fundimnn
lágu.
Eftirtaldir fulltrúar sátu fund-
inn:
Emil Hass Christensen, form.
Danska leikarasambandsins, J m
Palle Buhl, lögfræðilegur ráðu-
nautur danska sambandsins,
Ritva Arvelo, fulltrúi FinnsKu
leikarasambandanna, Rolf Rembe,
fulltrúi og iögfræðingur Sænska
leikarasambandsins, og Brynjólf-
ur Jóhannesson. form. Félags is-
lenzkra leikara. og var hann
kjörinn forseti fundarins. Ritar-
ar fundarins voru Rolf Rembe
og Klemenz Jónsson.
Fimm mál voru á dagskrá
fundarins og voru þau þessi:
1. íslenzka sjónvarpið.
2. Notkun kvikmynda í danska
og sænska sjónvarpinu.
3. Leikaraverkfallið i Noregi.
4. Starfsemi Alþjó'ðaleikara-
Hanoi áhugalaus um
samningaviðræður
— segir Bandaríkjaforseti —
Breytingar i utanríkisirádu-
neyti IJSA
Washington 21. sept. NTB-AP
JOHNSON, Bandaríkjaforseti,
sagði á blaðamannafundi í dag
að honum hefði engin vitneskja
um það borizt, að N-Vietnam
hafi áhuga á samningaviðræðum
um friðsamlega lausn í Vietnam
málinu. Vísaði Johnson þar með
á bug orðrómi þeim, sem uppi
hefur verið um að Bandaríkja-
stjórn hafi verið þeirrar skoðun-
ar að e.t.v. væri Hanoistjóm fá-
anleg til samningaviðræðna á
grundvelli tillagna U Thants,
framkvæmdastjóra SÞ.
Á blaðamannafundi þessum
kunngjörði Johnson ennfremur
breytingar á stjórn landsins.
Nicholas Katzenbach, dómsmála
ráðherra, mun taka við störfum
George Ball, aðstoðarutanríkis-
ráðherra, sem óskað hefur eftir
því að láta af störfum. Forsetinn
kvaðst ekki vera búinn að á-
kveða hvern hann myndi skipa
í stöðu dómsmálaráðherra. Þá
greindi Johnson frá því, að inn-
an tíðar myndi hann grípa til
ýmissa ráða til þess að draga ur
verðbólgu í Bandaríkjunum.
Um hugsanlega friðarsamninga
um Vietnam sagði forsetinn m.a.:
„Við höfum áhuga á öllum til-
lögum, sem vekja kynnu áhuga
N-Vietnammanna. En okkur er
ekki kunnugt um neitt, sem bend
ir til þess að N-Vietnam hafi
áhuga á því, að setjast við samn
ingaborðið".
U Thant hefur lagt til að
hætt verði árásum á N-Vietnam
og komið verði á vopnahléi milli
styrjaldaraðila. Hann hefur og
hvatt alla aðila til þess að sýna
vilja til að semja við „alla þá
aðila, sem raunverulega eiga að-
ild að bardögunum“, en sam-
kvæmt því yrðu Viet Cong
kommúnistar samningsaðilar.
Bandaríkjastjórn hefur ekki viJj
að samþykkja Viet Cong sem
sjálfstæðan samningsaðila, en
jafnframt sagt, að Viet Cong-
menn muni ekki eiga í neinum
erfiðleikum varðandi það að
skýra sjónarmið sín á hugsan-
legri friðarráðstefnu.
Johnson forseti lýsti ánægju
sinni vegna friðarboðskaps þess,
f sem Páll páfi sendi frá sér s.l.
mánudag.
I „Við gleðjumst yfir því, að páf
j inn skuli sýna þessu máli slíkan
áhuga, og við munum reyna að
gera allt, sem í okkar valdi stend
ur, til að koma til móts við óskir
hans“, sagði forsetinn.
„Við óskum eftir friði. Við
viljum gjarnan að byssurnar
þögnuðu á morgun. Við viljum
fremur, að deila þessi verði leyst
með samningum en vopnavaldi.
En þar til árásaraðilarnir fást til
að láta af stefnu sinni og setjast
við samningaborð eigum við
einskis annars úrkosta en að
verja og vernda friðelskandi
þjóðir. Við hyggjumst og gera
það.“
Aðspurður sagði Johnson að
hann hafi aldrei efast uni að
Sovétríkin æsktu samningavið-
ræðna vegna Vietnamsdeilunnar.
„Ég hefi ávallt litið svo á. að
sovézku leiðtogarnir æsktu frem
ur samninga og viðræðna en
þess, sem nú á sér stað,“ sagði
Johnson.
Þá lýsti forsetinn nokkrum
breytingum á embættaskipan í
Washington. Hann sagði, að
I George Ball, aðstoðarutanríkis-
! ráðherra, hafi óskað að láta af
I störfum fyrir alliöngu, en orðið
j við þeirri ósk að starfa áfram
þar til hæfur eftirmaður væri
• fundinn. Forsetinn kvað Bail
I formlega hafa látið af störfum á
! þriðjudag, en hann yrði áfram
stjórninni til ráðuneytis um á-
! kveðin mál. Tilkynnti forsetinn
síðan að við störfum Balls ta:ki
Nicholas Katzenbech, dómsmála-
ráðherra. Eugene Rostow, íor-
seti lagadeildar Harvardháskóla,
mun taka við stöðu aðstoðarutan-
ríkisráðherra með ábyrgð a efna-
hagsmálum. Staða þessi losnaði
er Thomas Mann sagði af sér í
júní sl. Þá á Foy Kohler, sendi-
herra Bandaríkjanna í Moskvu
að taka við embætti aðsroðar-
varautanríkisráðherra, en sú
staða losnaði er U. Alexis John-
son var gerður að sendiherra í
Japan. — Fyrrgreindar þrjár stöð
ur ganga næstar sjálfu utanríkis
ráðherraembættinu í Washing-
i ton.
sambandsins.
5. Skýrslur sambandanna til
Norræna leikararáðsins.
Miklar umræður urðu á funa-
inum um þau mál, er fyrir lágu
og þá sérstaklega um fyrsta mái-
ið, „íslenzka sjónvarpið". Algjór
samstaða ríkti hjá fundarmönn-
um um þetta mál og bar Jjn
Palle Buhl fram svohljóðandi á-
litsgerð, sem var samþykkt sain-
hljóða af öllum fulltrúum:
„Norræna leikararáðið hefur
haldið fund i Reykjavík 11. sept-
ember 19B6.
Aðalefni fundarins voru sjón-
varpssendingar, sem hefjast eiga
á íslandi.
Menn hörmuðu þá staðreynd
að enn hefði ekki verið gerður
samningur milli Sjónvarps ís-
lands og Félags íslenzkra leikar*
og Félags íslenzkra leikara um
skilybði fyrir þátttöku íslenzkra
leikara í sjónvarpinu.
Norræna leikarasambandið
staðfesti einróma ‘þá ályktun,
sem gerð var 4. október 1965
Helsingfors, þar sem m.a. var
lögð mikil áherzla á menningar
legt gildi þess. að stuðla að þjóð-
legri dagskrá hins íslenzka sjón-
varps — einkum að því er sneró-
ir flutning íslenzkra leikrita i
sjónvarpi.
Norræna leikararáðið hlýtur
að álíta það eðlilegt að gerður
verði samningur milli Sjónvarps
íslands og Félags islenzkra leik-
ara með skilyrðum, sem sam-
svara þeim kjörum, er nú gilda
á hinum Nor’ðurlöndunum.
Þegar Félag íslenzkra leikara
hefur komizt að sliku samkomu-
lagi, mun Norræna leikararáðið
mæla með því, að félög leikara
á hinum Norðurlöndunum fallist
um tíma á sérstök kjör fyrir
endurvarpi leikrita frá hinum
norrænu löndunum í samræmi
við skilyrði þau, sem gilda milli
Norðurlandanna að öðru leyti.
Slík sérstök kjör munu þó
verða bundin því skilyrði, að
þessar endursendingar frá hin-
um norrænu löndunum verði
takmarkaðar við, að í hæsta lagi
verði endurvarpa'ð einu leiknti
á móti hverri íslenzkri útsend-
ingu leikrita í Sjónvarpi ís-
lands“.
Þess skal getið, að umræður
við útvarpsstjóra um þessi mál
eru að hefjast.
Brynjólfur Jóhannesson, for-
maður Félags íslenzkra leikara.
er nú á förum til Finnlands þar
sem hann situr 9. leikhúsmanna-
ráðstefnu Norðurlandanna, sem
haldin verður í Abo (Turku) og
stendur yfir í fjóra daga. — Það-
an fer hann til Helsingfors í boði
Svenska Teatern sem heldur
upp á 100 ára afmæli leikhúss
ins dagana 29. og 30. 9.
— Uppsfokkun
Framh. af bls. 1
órólegir vegnd þess að kommún-
istar virðast hafa aukið hlutfall
sitt verulega meðal þeirra, er nú
kusu í fyrsta sinn. Reikna jafn-
aðarmenn með því, að af töpuð-
um atkvæðum hafi um tveir
þriðju runnið til borgarflokkanna
og einn þriðji til kommúnista.
Hvaða ráðherrar það verða,
sem hugsanlega yrðu að víkja
fyrir yngri mönnum í ríkisstjórn,
veit enginn fyrr en flokksforyst-
an og þingflokkur í jafnaðar-
manna hafa átt með sér fundi í
októberbyrjun, en m. a. er rætt
um Hans Gustavsson, nýskipaðan
ráðherra borgaralegra málefna
og Ulla Lindström, sem fer með
mál er varða aðstoð Svía við
þróunarlöndin o. fl.
Bezt að auglýsa
* MorgunbJaðinu
Fjórðungsþing
Norðlendingu
10. FJÓRÐUNGSÞING Norð-
lendinga var háð á Siglufirði
dagana 17. og 18. þ. m.
Fráfarandi formaður Fjórðungs
samb. Norðlendinga var Magnús
E. Guðjónsson, bæjarstjóri á Ak-
ureyri, en núverandi fjórðungs-
ráð, kjörið til tveggja ára, er
skipað eftirfarandi aðilum: For-
maður: .Stefán Friðbjarnarson,
bæjarstjóri á Siglufirði. Vara-
formaður: Jóhann Salberg Guð-
mundsson, sýslumaður á Sauð-
árkróki. Gjaldkeri: Hákon Torfa-
son, bæjarstjóri á Sauðárkróki.
Varagjaldkeri: Björn Friðfinns-
son, bæjarstjóri á Húsavík. Rit-
ari: Ásgrímur Hartmannsson,
bæjarstjóri í Ólafsfirði. Vararit-
ari: Magnús E. Guðjónsson, bæj-
arstjóri á Akureyri. Meðstj.: Jó-
hann Skaftason, sýslumaður
Húsavík.
Þingið samþykkti allmargar
ályktanir, varðandi hagsmunamál
byggðanna í Norðurlendingafjórð
ungi, m. a. varðandi Fram-
ækvmdaáætlun Norðurlands, at-
vinnujöfnunarsjóð, staðsetningu
atvinnufyrirtækja og samgöngu-
mál og verða þær ályktanir send-
ar blöðum og útvarpi innan
skamms.
Rafhlöðuknúinn
bill?
París, 21. sept. — NTB:
FRÖNSKU Renault-verksmiðj-
urnar, sem eru í eigu ríkisins,
hafa stigið stórt skref í tilraun-
um sínum til þess að smíða raf
hlöðuknúinn bíl, sagði talsmaður
verksmiðjanna í dag. Búizt væri
við, að hægt yrði að smiða fyrsta
tilraunabílinn innan fárra ára.
Hinsvegar vrði langt þar til al-
menn framleiðsla slíkra bíla
gæti hafizt sökum þess að raf-
hlöður eru alltof dýrar og fyrir-
ferðarmiklsr eins og nú háttar
málum sagði talsmaðurinn.
— Helgafell
Framhald af bls. 28.
er að tjónið er mjög mikið.
Sjóréttur í máli þessu var sett-
ur kl. 13.15 í dag og sátu í hon-
um þeir skipstjórarnir Bjarni
Jóhannesson og Björn Baldvins-
son. Viðstaddir voru m.a. full-
trúar vátryggjenda (Samvinnu-
trygginga), Skipadeildar SÍS og
Akureyrarhafnar. Réttarhöldun-
um lauk 15,15 og lagði Helgafell
úr höfn skömmu síðar. Sv. P.
- NYJAR
Framhala af bls. 28 '
inga engu síðui en aðrar þjóðir
okkur skyldar. Hún hafi marga
kosti umfram hina venjubundnu
stærðfræðikennslu og að íslend-
ingum sé nauðsyn að kunna
veruleg skil á hinum nýju hug-
myndum og nútímaviðhorfum úl
stærðfræðinnar bæði vegna
náms við erlendar menntastofn-
anir og einnig til að kunna skil
á því táknmáli og stærðfræðileg-
um hugtökum sem tíðkast með
öðrum þjóðum .Einnig hefur ver^
ið haft samráð við Guðmund
Arnlaugsson rektor, sem hefur
kynnt þessa stefnu í mennta-
skóla og á kennaranámskeiðum,
og ritað um það bókina „Töiur
og mengi“.
Það hefur orðið að ráði að
nota við reikningskennslu 7 ára
barnanna í tveimur fyrrgreind-
um skólum dör.sk kennsiuveric -
efni eftir Agnete Bundgaard og
Eva Kytta, sem m.a. hafa verið
reynd í skólum á Frederiksberg
í nokkur undanfarin ár. Mun
Kristinn Gíslason kynna verk-
efnin fyrir þeim kennurum, sem
taka þátt í tilrauninni og kaila
þá saman til funda, þar sem ræ't
verður um árangur, sem náðst
hefur í hverjum einstökum á-
fanga og bera saman niðurstöður
fenginnar reynslu, og verða þá
gerðar áætlanir um starfið 1
næsta áfanga.
Þyki tilraunin í 7 ára bekkj-
unum í vetur skila jákvæðum ár-
angri, telur fræðslustjóri eðlilegt
að taka þetta kennsluform upp
í fyrsta bekk barnaskólanna í
Reykjavík almennt. Þá hefur
þeirri hugmynd verið hreyft að
taka jafnframt upp nýja kennslu
hætti í 4. og 7. bekk skyldustigs-
ins. Eru þá verulegar líkur til
að áðurnefnd verkefni verði teK-
in til notkunai í fleiri skólum
Reykjavíkur. Sá vandi er þó %
fer'ðum að fáir kennarar eru
undir það búnii að breyta þann-
ig um kennsluhætti, og því nauð
synlegt að efna til námskeiða til
að kynna þeim þær grundvallar-
hugmyndir, sem verkefnin byggj
ast á. Þessa dagana eru haldnir
fundir með foreldrum þeirra 7
ára barna, sem nú taka þátt í
tilrauninni, þar sem þeim er nán-
ar skýrt frá málinu.
Stolið fyrir
20 þús. kr.
í FYRRINOTT var brotin rúða 1
ljósmyndavélaverzlun Gevafoto
við Læk;artorg. Lét þjófurinn
greipar sópa um sýningarglugg-
ann og hafði á brott með sér
þrjár myndavélar, flasstæki og
ljósmæli. Eru þessi tæki metin á
rúm 20 þúsund kronur.
Surveyor kollsteyp-
ist á braut sinni
Ottast oð geimfarib malist mélinu
smærra á tunglinu
Pasadena, Kaleforníu,
21. sept. — NTB.
BANDARÍSKA tunglfarið Sur-
veyor II. tók í morgun að velta
um sjálft sig á braut sinni
skömmu eftir að vísidamenn
höfðu reynt að leiðrétta smá-
vægilega skekkju á stefnu þess.
Hélt Surveyor áfram veltingnum
í allan dag, og eftir öllum sólar
merkjum að dæma mun tungl-
farið skella á yfirborði tungl-
ins í stað þess að lenda þar
„mjúkri lendingu". Ef svo fer, .
hefur tilraunin misheppnast 1
með öllu, en Surveyor-tilraunin
kostar um 4000 millj. ísl. kr. í
Vísindamenn í Pasadena stóðu
í dag ráðþrota andspænis því, i
hvað gera skyldi til þess að
reyna að gera Surveyor stöðug
an á braut sinni. Voru vísinda-
mennirnir á ráðstefnu í dag, en
niðurstaða hennar varð sú, að .
menn voru sammála um að litl-
ar horfur væru á því, að takast
mundi að ráða bót á veltingi
tunglfarsins. í kvöld átti að
halda annan fund til þess að
ákveða hvað reynt skyldi að
gera.
Erfiðleikarnir varðandi Survey
or hófust í morgun er vísinda-
menn sendu Surveyor merki
um að kveikja á stýriseldflaug
unum.
Aðeins tvær eldflaugar af
þremur tóku til starfa, og tók
þá tunglfarið að steypa sér koll
hnís á braut sinni. Hafa vísinda
menn ékki náð stjórn á því aftur
þrátt fyrir endurteknar tilraun
ir. Eini árangurinn nefur orð-
ið sá, að Surveyor hefur oltið
hraðar. Óttast menn því mjög
að Surveyor malist mélinu
smærra á yfirborði lunglsins á
föoiudag.