Morgunblaðið - 13.10.1966, Qupperneq 2
2
MÖRGUNBLAÐID
Fimmtudagur 13. okt. 1968
Myndin er tekin við undirritun samninga um framkvæmdir við fyrsta áfanga Sundahafnar-
innar. Standandi frá vinstri: Bengt Forsberg, verkfr., stjórnandi framkvremda við Sundahöfn,
Níels Magnúss, verkfr., Skanska Cementgjuteriet, Guðmundur Gunnarsson, verkfr., fulltrúi
Loftorku sf., og Ásgeir Valdemarsson, verkfr., fulltrúi Malbikunar h.f. Sitjandi eru, frá vinstri:
Einar Ágústsson, bankastjóri, hafnarstjórnarmaður, Ögmundur Jónsson, framkvæmdastjóri verk
fræðistofu Almenna Byggingafélagsins, Gunnar B. Guðmundsson, hafnarstjóri, Ulf Traneus,
yfirverkfræðingur Skanska Ce mentgjuteriet, og Geir Hallgrímsson, borgarstjóri.
Hafði áður gerzt sekur
um kynferðisafbrot
Tældi telpuna í Hafnarfirði með sælgæti
MORGUNBLAÐIÐ aflaSi sér í
gær nánari upplýsinga um hinn
óhugnanlega atburð í Hafnar-
firði, er rúmlega tvítugur mað-
ur svívirti 5 ára telpu.
Hafði maðurinn komið inn í
Mánabúð í Hafnarfirði á mánu-
dag, þar sem hann hitti stúlk-
una. Tældi hann hana með sér
út á Hvaleyrarholt með sælgæti,
sem hann hafði keypt í búðinni,
þar sem hann svívirti hana. Þeg-
ar stúlkan kom heim um kl. 6
þennan sama dag, var hún illa
leikin eftir átök við manninn,
og gerði móðir telpunnar lög-
reglunni aðvart. Eftir að læknis-
skoðun hafði farið fram, og lækn
ir staðfest að hér hefði verið
um nauðgun að ræða, hóf lög-
reglan í Hafnarfirði þegar leit
að manninum.
Hafði lögreglan upp á mann-
inum daginn eftir, og var það
mest að þakka greinargóðum.
lýsingum, er lögreglan fékk hjá
afgreiðslustúlkum í Mánabúð, og
vagnstjóra hjá Landleiðum ,en
þeim hafði öllum fundizt þessi
maður koma sér undarlega fyrir
sjónir.
Maðurinn viðurkenndi brot sitt
við yfirheyrzlur hjá lögreglunni
í Hafnarfirði og eins hjá saka-
dómi. Það kom í ljós við yfir-
heyrzlur hjá sakadómi, að mað-
urinn hefur áður verið gripinn
fyrir kynferðisbrot í Keflavík,
en þá ekki eins alvarlegs eðlis,
en í það skipti var ákæru á hann
frestað.
Á þessu stigi málsins telur
lögreglan ekki rétt að birta nafn
mannsins, sem er í haldi.
Samningar um smíði Sunda
hafnar undirritaðir
f GÆR voru undirritaðir samn-
ingar við Skánska Cementgjut-
eriet um smíði 1. áfanga Sunda-
hafnar. Islenzku fyrirtækin
Malbikun h.f. og Loftorka s.f.
munu starfa að verkinu með
Skánska Cementgjuteriet.
Verkið var boðið út 16. febr-
úar 1966 og er skilafrestur var
útrunninn 18. maí sl. höfðu sex
fyrirtæki sent inn tilboð. Lægst
tilboð í aðaltilögu útboðsins
kom frá þýzka fyrirtækinu
Hochtief og ísl. fyrirtækinu Vél-
tækni í samvinnu, að upphæð
Gerfitungl sést i
fró Kópuvogi? j
ÞAÐ bar til í Kópavogi í •
gærkvöldi kl. 3 mínútur yfir :
tíu, að 14 ára gamall drengur, ■
Einar Valgarð Björnsson, sá :
skæran hlut á himinhvolfinu, •
hátt uppi, að sjá yfir kirkju- :
garðinum í Fossvogi frá •
heimili hans við Meltröð 8. ■
Kallaði hann inn í húsið á I
móður sína, Gunnvöru Sig- :
urðardóttir, og gestkomanda, !
Jón Bjarnason frá Skarði, og •
bað þau líta á „stjörnuna“. :
Gunnvör sagði blaðamanni •
Mbl. í gærkvöldi, að er þau :
komu út, gaf að líta skæran •
hlut á himinhvolfinu. Bar ;
þennan hlut við Karlsvagn- !
inn er þau komu út, en var á ;
jafnri sígandi ferð frá suðri !
til norðurs. Bar birtu af •
hlutnum, mjög skæran hvít- !
an lit, og gat Gunnvör sér ■
þess til, að hér hefði verið um :
gerfihnött að ræða.
Klukkan 10 mínútur yfir :
tíu hvarf „hluturinn“ sjónum I
þeirra, og höfðu þá tveir ■
synir Gunnvarar og Björns !
Einarssonar, manns hennar. ;
komið út til að horfa á fyrir- !
bærið.
93 millj. kr. Vegna margháttaðra
fyrirvara reyndist boð þetta all-
miklu hærra en tilboðsupphæðin
greinir. Lægst boð í fráviks-
tillögu barst frá Skánska Cem-
entgjuteriet í samvinnu við áður
nefnd ísl. fyrirtæki, að upphæð
81,7 millj. kr.
Tillaga þessi miðast við að gera
hafnarbakkann úr stálþili. Þil-
ið hugsast varið gegn tæringu
með bakskautsvörn (cathodic
protection), en sú aðferð hefir
rutt sér mjög til rúms á síðari
árum og er taíin tryggasta
vörn gegn tæringu járns. Svo
sem áður hefir verið greint frá
er 1. áfangi verksins í Vatna-
görðum utanverðum. Verður
byggður garður út á sker sem er
nokkuð frá ströndinni og hafnar
bakki meðfram ströndipni til
suðausturs. Lengd hafnarbakka
verður 379 m og landsvæði í
næsta nágrenni 1. áfanga verður
um 20 ha.
Verktakar eru þegar komnir
með tæki og mannafla á staðinn
og á verkinu að vera lokið 1.
júní 1968.
Landsbanki fslands hefir heit-
ið hafnarsjóði láni til fram-
kvæmdanna.
Fyrir hönd Reykjavíkurhafnar
undirritaði samninginn Gunnar
B. Guðmundsson, hafnarstjóri,
en fyrir hönd verktaka undirrit-
aði Ulf Traneus, yfirverkfræð-
ingur brúa og hafnargerðardeild-
ar Skánska Cementgjuteriet.
Stórgjafir til sjúkra-
húss Akraness
Akranesi, 12. okt.
Á ÁRINU 1966 hafa sjúkra-
húsi Akraness borist eftirtaldar
gjafir, sem að mestu leyti hafa
verið notaðar og verða notaðar
til kaupa á ýmsum lækninga-
tækjum fyrir sjúkrahúsið:
Frá hjónunum Óskari Egg-
ertssyni og frú, Andakílsárvirkj
un: 10 þúsund kr., frá Lion-
klúbb Akraness 82.418 þús., frá
Kvenfélagi Akraness 65.000 þús.
frá Ásgeiri Guðmundssyni og
Sigurði- Ólafssyni, Suðurgötu beztu þakkir,
64, 2000 krónur, áheit 32000 kr.,
Rauðakrossdeild Akraness 50.000
kr., Ingunni Sveindóttur Vestur-
götu 32, 150.000 þús. Frá Sigríði
Árnadóttur, Melteig 8, 34.696 kr.
Stefáni Sigurðssyni, Suðurgötu
29, til minningar um konu sína
Sólveigu A. Þorvaldsdóttur,
5000 krónur. Samtals er þetta
kr. 412.314.00 Auk þessa hafa
fjölmargir styrkt sjúkrahúsið
með því að kaupa minningar-
kort þess.
Fyrir allan góðvilja og þessar
rausnarlegu gjafir til sjúkrahúss
ins hefur Sigurður Ólafsson, for
stöðumaður þess beðið Morgun-
blaðið að færa hlutaðeigandi
—Hjþ.
íþróttahús
birgða á
til bráða-
Akureyri
Akureyri, 10. okt.
# Bráðabirgðaíþróttahús er óð-
um að rísa á Gleráreyrum norð
an Tryggvabrautar. Akureyrar
bær lætur reisa húsið en Hagi h.f.
sér um framkvæmdir.
Forsaga málsins er sú, að fyrir
nokkru var ákveðið að koma upp
stóru og fullkomnu íþróttahúsi á
Akureyri, en sýnt þótti, að löng
bið yrði á því, að slíkt hús kæm-
ist í notkun. Þess vegna bauðst
bærinn til að hraða byggingu
áhaldaskemmu sinnar og leggja
íþróttasamtökum í bænum þang-
að til stóra húsið kemst upp. Var
því tekið fenginshendi af íþrótta
mönnum bæjarins. Rekstur
skemmunnar verður í höndum
íþróttaráðs.
Framkvæmdir hófust í maí í
vor og standa björtustu vonir
til þess, að húsið komizt í notk-
un um næstu áramót. Nú er það
hér um bil fokhelt og mun kosta
frágengið að utan og einangrað
að innan 3,4 millj. kr. Brátt mun
hefjast múrhúðun utanhúss, síð-
an verður gengið frá búnings-
Véli iiunarst ulka
Ritstjórn Morgunblaðsins vantar góða
vélritunarstúlku. — Upplýsingar gefnar á
ritstjórn blaðsins kl. 10—11 f.h. þessa viku.
herbergjum og böðum og gólfið
malbikað.
Húsið er 25x40 metrar að flat-
armáli og um 6,5 metrar undir
loft. Vallarstærð innanhúss verð-
ur 18x32 metrar og upphækkað
áhorfendasvæði verður fyrir öðr
um gaflinum. Húsið er ætlað
fyrir handknattleik og ýmsar
aðrar inniíþróttir, en þó er ekki
gert ráð fyrir að skólaleikfimi
verði þar kennd.
Handknattleiksfólk á Akureyri
hefur búið við mjög léleg skil-
yrði til iðkunar íþróttarinnar
innanhúss undanfarin ár og hefði
raunar ekkert húsnæði haft til
sinna nota, ef það hefði ekki not-
ið sérstakrar greiðvikni og vel-
vildar Knúts Otterstedts rafveitu
stjóra, en fyrir hans orð hafa
handknattleiksiðkendur fengið
inni í skemmu rafveitunnar á
Oddeyri. Hún er að vísu óupp-
hituð og með steyptu gólfi og
hafa tognanir og meiðsl verið
algeng. íþróttafólk á Akureyri
sér nú fram á betri daga, þó að
ijóst sé, að húsið sem nú er í
smíðum, verður aðeins bráða-
birgðalausn. — Bygginganefnd
íþróttaskemmunnar skipa: Stefán
Stefánsson bæjarverkfræðingur,
form.; Knútur Otterstedt; Hreinn
Óskarsson, Sigurður Óli Bryn-
jólfsson og Hermann Stefáns-
son.
Sv. P.
UM nónbilið í gær var logn Bretlandseyjar veldur stormi
eða hæg norðaustlæg átt. á stóru svæði. En ekki var
Suðvestan til var léttskýjað í gær gert ráð fyrir, að ill-
og hiti 7—9 stig, en skýjað viðrið næði til íslands, því að
og hiti 5—6 stig á N- og hún þokaðist þá suður á bóg-
A-landi. inn.
Djúpa Jægðin fyrir vestan
Tveir sækja um
prófessorsem-
bættið í lögum
UMSÓKNAFRESTI um próf-
essorsembætti í lögfræði við Há-
skóla íslands lauk 10. þ.m. Um-
sækjendur utn embættið eru:
Lúðvík Ingvarsson, fyrrv. sýslu-
maður, og Þór Vilhjálmsson,
borgardómari.
Bruni í
Hveragerði
GE YMSLUHÚSN ÆÐI Hans
Gústafssonar garðyrkjubónda í
Hveragerði brann í gær um
og eftir kl. 3. Tjón varð tölu-
vert, er inni brann magn af
plasteinangrun og áburði og öðr-
um vörum. Engu varð bjargað úr
geymslunni. Ókunnugt er um
eldsupptök.
Ritarastarf hjá
norrænu sam-
starfsnefndinni
STAÐA ritara norrænnar sam-
starfsnefndar um rannsóknir á
sviði alþjóðastjórnmála er laus
til umsóknar. Umsækjendur
þurfa að vera háskólagengnir og
geta hafið störf sem fyrst á ár-
inu 1967 með búsetu í Osló til
eigi skemmri tíma en 1 árs.
Heildartekjur á ári munu nema
um 330.000,00 ísl. krónum. Um-
sóknir skulu berast í síðasta lagi
hinn 20. nóvember nk. til utan-
ríkisráðuneytisins, sem veitir nán
ari upplýsingar.
(Utanríkisráðuneytið 11. okt.).