Morgunblaðið - 13.10.1966, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.10.1966, Blaðsíða 12
12 MORCUNBLAÐIÐ Fimmtudagiir 13. okt. 1966 í upphafí starfsars KAUPMANNAHOFN, 24 sept. KONUNGLEGA leikhúsið í Kaupmannahöfn opnar árlega 1. sept. Það tók upp þráðinn frá síðasta vori. Engar nýj- ungar, a'ð minnsta kosti ekki um leið og opnað var. Jú, það er kominn nýr leikhússtjóri Brönsted, sá gamli, er kom- inn á eftirlaun. Það ku eng- inn sjá eftir hdnum — nema vera skyldu húsdraugarnir. I öllum vandamálum, sem upp komu á stjórnarárum Brön- steds valdi hann ávallt auð- veldustu lausnina: að styðj- ast við aldagamla hefð og erfðavenjur hússins. Nýi leikstjórinn heitir Peer Gregaard. Margir munu kann ast við hann fyrir framúrskar andi stjórn hans á næst- stærsta leikhúsi borgarinnar, Det Ny Teater. Mikils er vænzt af leiðsögn hans í fram tíðinni. En hann fer sér að engu óðslega. Eins og ég sagði eru engar nýjungar á boðstólum, en aftur á móti mun hann hafa sett ýmsar nýjar reglur í sambandi við daglegan rekstur. Einna merkilegast frá sjónarmiði leikhúsgesta er afnám hinn- ar aldagömlu reglu, þar sem leikurum er bannað að taka á móti lófaklappi áhorfenda í lok sýningar. Strax og síð- asta orðinu eða tóninum var sleppt, var hið mikla járn- tjald dregið fyrir — og síð- an alger þögn. Nú má fólk klappa, og leikarar fá að bukka sig eins og þeim listir — og allir eru ánægðir. Sá hinn gamli siður var víst byggður á þeim ídealistisku forsendum, að heiðurinn væri ekki leikaranna einna o. s. frv. Annað opinbert leikhús er Det Ny Scala, sem er eign Kaupmannahafnarborgar. Það er alveg nýtt af nálinni, nema hvað það er undir gömlu ó- perettuhúsnæði á NörrebrO. Opnunarsýning þess var Hey- sótt Noel Cowards. Ómerki- leg sýning, sem þó hefur þann kostinn, að ekki getur það versnað. Önnur leikhús borgarinnar eru öll í prívatleigu, þó með meiri eða minni opinberum stuðningi. Fyrst hóf sýningar Ungdommen Teater, sem er í því æruverðuga húsi Allé- scenen. Eins og nafnið ber með sér, er þetta leikhús ungs fólks, sem hefur einsett sér að sýna verk ungra höfunda. séu þau bara ekki fráleit (absurd) í anda Ionescos eða Beckets og annarra þesshátt- ar kalla. Með öðrum orðum: Hér er farið fram á nýmóðins leikrit með innihaldi og mein ingu. hvað sem það nú kann áð þýða. Að minnsta kosti vantar hvorki innihald né meiningu í fyrstu sýningu ■ þess, sem er Alfie eftir Bill Naugton. Innihaldið er í fullu samræmi við pop-anda nútim ans. Svo kom Folketeateret með sýningar sínar í alþýðlegum anda, og þar á eftir opnaði hið örlitla Comediehus í gömlu borginni með Gas, eða The Meter Man eins og það hét upphaflega, eftir . . . hvað ■ heita þeir nú allir þessir Har old Pinter-höfundar, sem hvíla á minni eins og mara nú á dögum . . . jú, hann heit ir C. Scott Forbes þessi. Til að fylla upp í þetta — í raun og veru mjög fátæklegt leik- húslíf milljónaborgar — held ur ABC Teatret stundum tvær sýningar á dag. Auðvitað fyr ir fullu húsi, þar sem um er að ræða þrautómerkilegar re- výjur. Ekki er því að undra þótt beðið hafi verið me'ð óþreyju^ og eftirvæntingu eftir opn- unarsýningu Nýja leikhússins (Det Ny Teater), sem var í gærkveldi 23. sept. fyrir fullu húsi hrifinna áhorfenda. Eft- irvænting í tvennum skiln- ingi. Annars vegar opnun leik hússins undir handleiðslu nýja leikstjórans Meir Feigen berg, sem er kunnur leikhús maður eftir athyglisverða stjórn á Frederiksberg Teater fyrir einum fimmtán árum. Hinsvegar og vafalaust mest vegna frumsýningar í nýju dönsku leikriti eftir hinn kunna leikritahöfund Ernst Bruun Olsen, sem mun flest- um lesendum kunnur sem höf undur Teenagerlove, er farið hefur frægðarför um öll Norð urlönd. Nýja leikrit hans heitir á dönsku „Bal i den borger- lige“, sem er stytting á „Bal i den borgerlige forening". Orðrétt þýtt: Dansleikur hjá borgarafélaginu. Höfundur kallar verkið alþýðugaman- leik (folkekomedie) með söng um í tveim þáttum. Músíkin er eftir Finn Savery, þann hinn sama og gerði lögin í Teenagerlove. Þráður leiksins er í stuttu máli: Við erum stödd á-heim- ili karls og konu á laugardags kvöldi. Þetta er alþýðufólk, sem búið er að vinna sig upp úr hópi óbreyttra verka- manna í gráa millistéttina —■ og sér sig nú í anda fylla flokk smáborgara, einkum fyr ir tilstilli sonarins, hálfvax- ins, sem gengur í mennta- skóla þar sem annars stunda Nú. Strákur fer á ballið, og í fullar tvær klukkustund ir dregur höfundur á víxl upp myndir af stráksa á ballinu með broddborgarabörnunum og myndir úr sögu foreldr- anna allt frá fyrstu kynnum þeirra fyrir stríðslok sem hug sjónasprengdum ungum sósí- aldemókrötum. (Hingað til hafði maður nú alltaf haldið áð sósíaldemókrati og hug- sjónir væru andstæður. Manni dettur jafnvel í hug, að Niels Bohr hafi einmitt haft það til fyrirmyndar, þeg ar hann mótaði komplement- aritetskenningu sína). Síðan er rakið hvert atriðið af öðru úr hnignunarsögu þeirra hjóna, allt fram á þetta laug afdagskvöld, þegar botninum er um það bil að verða náð: afkvæmið tekið upp í félag broddborgara. Svo endar Úr „Bal í den borgerlige“. Buster Larsen og Lily Weid- ing tvímenna á stórum tréhesti. nám eingöngu yfirstéttarbörn (að því er skilizt getur). Þetta laugardagskvöld er strákur að fara á ball í félagi broddborgaranna, og í aug- um móður hans sérílagi er þetta í sjálfu sér einskonar aðgöngumiði að sælu borgar- anna. Nú gengur þetta ekki allskostar sársaukalaust, vita skuld, því annars kæmi ekk- ert drama úr því handa höf- undi. Gengur á vorum dög- um furðuverki næst, að hon- um tekst að sjá drama í slíku efni. BJÖRN MARKAN: LEIKHÚS- BRÉF r m a þetta allt í einni allsherjar miðlun eftir beztu kraftafyr- irmynd: Allir þjóna öllum og mismunur mannanna er ekki meiri en svo, að kratarnir geti þjóna'ð hagsmunum allra í senn. Vitanlega dregur höfundur þessa mynd upp í háðungar- skyni við þann danska sósíal- demókrataflokk, sem setið hef ur við völd í landinu, ham- ingjan má vita hversu lengi. En svo vakna spurningarnar: Hefur það nokkra þýðingu að eyða heilu leikriti í hvurs- Mennirnir að baki „Bal i den borgerlige“. Frá vinstri: Tónskáldið Finn Savery, leikhús- stjórinn Knud Poulsen, höfundurinn Ernst Bruun Olsen og leikstjórinn Meir Feienberg. FRA HOFN dagslega pólítíska ádeilu? Og er hægt að færa slíka pólí- tíska ádeilu í þann búning, að hún svari jafnframt list- rænum kröfum, sem verður að gera til hennar úr því að hún er látin á svið í nafni leikrits? Ég held ekki. Það er hægt að skapa ann- að hvort. Slíka ádeilu er hægt að gera og fullnægja kröfum hennar í algjörum skrípaleik (farce). Þá er hægt að leika sér áð hugmyndum og skop- stælingum næstum að absurd um, og bara sjá um að skemmta fólki. Svo má auð- vitað spyrja, hvort ádeilan nái tilgangi sínum. Eigi hins vegar að skapa listrænt drama, verður hugmynda- og hugsjónamunstrið að víkja fyrir lögmálum mannlegs eðl is eða óeðlis. í stað stjórn- málakenninga og gullinna setninga, sem dregnar eru upp úr pólítískum skúffum sannleika og lygi, koma bara orð, orð, sem koma hvergi að og ef til vill hafa enga merk- ingu, heldur aðeins eru. Ernst Bruun Olsen hefur við uppsetningu sína reynt að skapa verk, sem svarað gæti bæ'ði kröfum hinna pólítísku ádeilu og kröfum listræns drama. Það hefur mistekizt, því það er ekki hægt, jafn- vel með fyrsta flokks hljóm list og þar til búnum snjöll- um hexametrum. Höfundur- inn hefur á leiksviðinu mis- tekizt það sem krötum í raun veruleikanum aldrei hefur tekizt: að þjóna andstæðum hagsmunum. Eg hugsa, að það mætti með góðum árangri gera úr því fullkominn skrípaleik. Það má jafnvel með sæmileg um árangri setja það á ís- lenzkt svið í umskrifuðu formi, og þá í stað kratanna setja . . . Nei, ég þori ekki að segja það, því þá vill Morg- unbla'ðið ekki birta þetta. Ungur lögiræðingur í , bö!) » ^ndX minn,. J óskar eftir vel launuðu starfi. Gefur hafið störf 1. nóvember nk. Tilboð ieggist inn á algr. Mbl. íyrir 23. þ.m., merkt: „123“. w Raðhús G] Til sölu raðhús í smíðum, við Hrauntuncu í Kópavogi. — Húsið stendur á mjog laiæ^um stað. að auglrsing i utbreiddasta blaðlnu borgar sig bezt. Skip og fasteignir Austurstræti 18 — Sími 21735 JptorcjtmMsi&fd Skrifstofustúlka Opinber stofnun óskar að ráða stúlku til skrifstofu starfa. Hálfs dags starf kemur emrug til greina. Umsóknir sendist fyrir 20. þ.m. í pósthólí 1278, Reykjavík, merkt: „Vélritun — 4388 . Framtíð Mig vantar ungan og efnilegan mann, sem hefur áhuga á business. Þarf að hafa kunnáttu í sem fiestu, sem viðkemur heildsölu. — Tilboð, merkt: „Framtíð — 4440“ sendist afgr. Mbl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.