Morgunblaðið - 14.10.1966, Blaðsíða 25
Föstuotagur 14 oM T966
MOXGUtiB' 4ÐIÐ
25
r
— Brandt
Framhald af bls. 3.
Austur-Berlín, og snæddu þar
hádegisverð með Pjotr Abrass-
imov, sendiherra Sovétríkjanna.
Segja öll dagblöðin í V-Berlín
að bifreið borgarstjórans hafi
verið ekið yfir borgarmörkin án
þess að landamæraverðir hafi
skipt sér af henni eins og þó er
venja þeirra. Sjálfur sagði
iBrandt, að viðræðurnar við
Abrassimov hafi verið mjög ein-
lægar og vinsamlegar. Hafi þeir
rætt ýms mál, sem varða
Berlín.
í Austur-Berlín var sagt að
ekkert hefði frétzt af viðræðun-
um. En því var við bætt að
báðir aðiiar hafi viljað vinna að
bættri sambúð. Þeir Brandt og
Abrassimov hafa tvisvar áður
ræðst við í Vestur-Berlín nýver-
ið, í annað skiptið í skrifstofu
sænska ræðismannsins í borg-
inni í júní s.l., í hitt skiptið við
opinbera móttöku.
— Nóbelsverðlaun
Framh. af bls. 1
eru algjörlega frábrugðnar þeim
sellum, sem þær eru myndaðar
af. Ef sumar krabbameinssellur
fá ekki hormóna, deyja þær.
2. Of mikið magn af hormón-
um getur valdið dauða sumra
krabbameinssella.
3. Þessi selludauði er svipaður
rakalausri jörð — eða skaðlegu
veðurfari.
„Við þurfum á drykkjarvatni
að halda. Sé vatnið tekið frá okk-
ur, deyjum við. Ef okkur er
sökkt niður í vatn, drukknum
við.“
Niðurstöður Huggins prófess-
ors eru nú notaðar við lækningu
á krabbameini í blöðruhálskirtli
um allan heim.
Á fundi með fréttamönnum í
Chicago í dag sagði Huggins að
hann fagnaði því að fá að skipta
Nóbelsverðlaununum með Rous
prófessor, sem hann kvaðst ætíð
hafa litið upp til og virt.
— Utan úr beimi
Framhald af bls. 16
tjaldað í aðeins sex metra
fjarlægð frá honum. Og þarna
varð Leguen að liggja í átta
daga og níu nætur. Næturnar
voru verstar. Því að með
rökkrinu komu rotturnar og
bitu hann í andlit, hendur og
fætur.
Á áttunda degi hafði Le
Jeannic fengið svo mikið sam
vizkubit að hann skýrði frá
farþeganum, sem hafði verið
með honum í bílnum. Lög-
reglumenn skunduðu á sta'ð-
inn og leituðu þar í kjarrinu,
en fundu ekki Leguen. Það
var ekki fyrr en næsta morg-
un að Ieitarmenn komu að
Leguen þar sem hann lá kinn
fiskasoginn og skeggjaður og
kom ekki upp einu orði. Og
þegar lögreglumennirnir
beygðu sig yfir hann gat hann
aðeins lyft annari hendinni
upp að augum, en svo féll hún
máttlaus niður.
Leguen var fluttur í sama
sjúkrahúsið og Le Jeannic
áður. Þótti læknum sjúkra-
hússins það mesta furða að
hann skyldi hafa lifað af þess
ar útilegunætur eftir slysið,
og þökkuðu það þrénnu. f
fyrsta lagi að þetta var að
sumarlagi. Veður var milt og
kjarrið skýldi honum fyrir
sólinni. í öðru lagi safnaðist
dögg á steina og blöð hjá
Leguen og gat hann slökkt
sárasta þorstann. í þriðja lagi
er Leguen sterklega byggður
og hraustur, og hjálpaði það
honum að sjálfsögðu mest.
Þegar Le Jeannic var að því
spurður hvers vegna hann
hefði logið því að hann heí'ði
verið einn í bifreiðinni þegar
slysið varð, svaraði hann: „Ég
var hræddur um að eitthvað
slæmt hefði komið fyrir Legu
en, og að ég yrði þess vegna
dreginn fyrir dóm. Það hefði
getað spillt fyrir framtíð
minni hjá flotanum".
— Stefnuyfirlýsing
Undanfarna fimm mánuði hefur lcikið og sungið í Uídó hljómsveit Ólafs Gauks. Hljómsveitin
hefur notið mikilla vinsælda, enda skipuð góðum hljóðfæraleikurum. Myndin er af hljóm-
sveitinni. Talið frá vinstri, efri röð: Helgi Kristjánsson, bassaieikari, Þórarinn Ólafsson píanó-
leikari, Svanhildur Jakobsdóttir, söngkona. Guðmundur R. Einarsson, trommuleikari Björn R.
Einarsson basúnuleikari og söngvari. Fremri röð. einnig frá vinstri: Ólafur Gaukur, gítarleik-
ari og hljómsveitarstjóri og Andrés Ingolfsson, saxofónleikari.
Framhald af ols. 1
atbeina ríkisvaldsins takist, er, að
ekki séu gerðar aðrar ráðstaf-
anir, sem leiða hljóta til verð-
hækkana, og veltur þá á miklu,
að í þeim efnum takist samvinna
milli rikisstjórnar og Alþingis
annarsvegar og stéttarfélaga
verkalýðs og annarra launþega
og atvinnurekenda hinsvegar.
Þá þarf og skjótlega að taka
ákvörðun um, hvort gera eigi
með rýmkun veiðiheimilda innan
fiskveiðilögsögunnar, ráðstafanir
til öflunar efnivöru til hraðfrysti
húsanna, og þar með létta undir
með útgerð minni báta og tog-
aranna, jafnframt því, sem gerð-
ar verði nauðsynlegar breytingar
til að draga úr reksturskostnaði
þeirra.
Af einstökum málum, sem lögð
verða fyrir Alþingi auk fjárlaga
frumvarps og þeirra frumvarpa,
sem eru í sambandi við það, og
frumvarpa um staðfestingu á
bráðabirgðalögum, er þessara að
vænta í upphafi þings:
Frv. til 1. um landhelgisgæzlu
íslands, frv. til 1. um breyt. é
1. um bann við botnvörpuveiði
í landhelgi, frv. til 1. um breyt.
á áfengislögunum; frv. til 1. um
fávitastofnanir; frv. til 1. um
breyt. á 1. um almannavarnir;
frv. til 1. um sk. prestakalla og
próf.d.; frv. til 1. um kristnisjóð;
frv. til 1. um verðjöfnunargjald
af veiðarfærum; frv. til 1. um
námslán og námstyrki; frv. til
skólakostnaðarlaga; frv. til 1. um
afnám Viðtækjaverzlunar rikis-
ins; frv. til höfundarlaga; frv. til
1. um greiðslur til höfunda vegna
útlána úr bókasöfnum; breytingu
á útvarpslögum, vegna ís-
lenzka sjónvarpsins; frv. til 1.
um útflutningsgjald af sjávaraf-
urðum. Það er samskonar hlut-
deild sjómannasamtakanna og
Landssambands ísl. útvegsmanna.
Frv. til laga um áframhald heim-
ildar fyrir landanir erlendra
veiðiskipa hér við land; frv. til
laga um aðild verzlunarfólks að
atvinnuleysistryggingum. Enn-
fremur verður endurflutt frv.
til laga um réttindi skipstjórnar-
manna, um samábyrgð Islands á
fiskiskipum og frv. um báta-
ábyrgðarfélög, svo og frv. til
breytinga á laxveiðilögum.
Síðar á þinginu er að vænta
frv. til nýrra heildarlaga um toll
heimtu og tolleftirlit, frv. um
staðgreiðslu opinberra gjalda og
frv. til laga um listamannalaun.
í athugun eru frv. um eftirlit
með opinberum framkvæmdum;
frv. um embættisbústaði og frv.
til nýrra bókhaldslaga, svo og
endurskipulagning félagsheimilis
sjóðs og íþróttasjóðs.
Unnið er að endurskoðun hafn-
arlaga og málefna Skipaútgerðar
ríkisins og raforkulaga, ennfrem
ur að tillögum um öflun nýrra
tekna fyrir vegasjóð, svo og
breytingu á lögum um almanna
tryggingar vegna fyrirhugaðs af-
náms ríkisframfærslu sjúkra
manna og örkumla, breytingu á
orlofslögum, á lögum um rétt
verkafólks til uppsagnarfrests
og um rétt þess og fastra starfs-
manna til launa vegna sjúk-
dóms- og slysaforfalla, og nýrri
heildarendurskoðun á lögum um
opinbera aðstoð við íbúðarbygg-
ingar.
Þá er unnið að samningu frv.
til laga um jarðakaupasjóð ríkis-
ins og hagræðingarsjóðs landbún-
aðarins.
Það er stefna ríkisstjórnarinn-
ar að halda áfram að styðjast við
sem ýtarlegasta áætlanagerð í
viðleitni sinni við að halda jafn-
vægi í efnahagslífi þjóðarinnar.
Eins og á undanförnum árum
mun verða samin áætlun um
opinberar framkvæmdir og starf-
semi fjárfestingarlánasjóða á ár-
inu 1967 og um fjáröflun í því
sambandi. Jafnframt er hafinn
undirbúningur að Þjóðhags- og
framkvæmdaáætlun fyrir árin
1967—1970. Þá mun haldið áfram
að vinna að áætlunum um fram-
kvæmdir og atvinnumál í ein-
stökum landshlutum. Hér er þess
og að minnast, að um næstu ára-
mót kemur til framkvæmda lög-
gjöf sú, sem siðasta Alþingi sam-
þykkti um Framkvæmdasjóð ís-
lands, sem ætlað er að auðvelda
samræmda heildarstjórn á opin-
berri fjárfestingu.
Um tillögur og ráðstafanir rík-
isstjórnarinnar mun sitt sýnast
hverjum nú eins og endranær.
Minni háttar ágreiningur skiptir
litlu máli miðað við það, að nú
megi takast að stöðva verðhækk-
anir innanlands. Ella er afkoma
helztu atvinnuvega og fram-
leiðslu þjóðarinnar stefnt í voða
og þar með því atvinnuöryggi,
sem verið hefur einn traustasti
hornsteinn góðrar afkomu al-
mennings um langt skeið.
JÚMBÖ —áí'— — ~Teiknari: J. MORA
Og Spori heldur áfram frásögn sinni:
■— Einbúinn gekk beint að fremstu
byggingunni sem á var stór reykháfur.
Mér fannst þessi bygging eins og hinar
byggingarnar vera mjög undarleg, hélt
Spori áfram. — Einbúinn lét rörið inn i
eina af holunum og byrjaði að blása og
blása .. .
. . . . ég var að því kominn að detta
aftur fyrir mig, þegar ég heyrði hátt
hljóð koma út úr reykháfnum.
— Þá lét hann rörið inn í annað gat og
aftur heyrðist hroðalegt hljóð . . . Núna
skyldist mér að reykháfar þessir voru í
raun og veru einskonar orgelpípur.
— Þessi hávaði hefði sennilega hraett
mig til dauða, ef ég hefði ekki vitað
hvernig hann var tilkominn.
JAMES BOND -X- ->e- Eítii IAN FLEMING
James Bond
BY IAN FLEMING
DRAWING BY JOHN McLUSKY
THE LOTLE GUV IS KIDD, TML I Ml UUL PUEW! I TLllNK IVE SEEN UIM E
WUO SLC<9 AT A WAE.T ON MlS TUUMB V ON TWE PLANE TUAT BCOUGUT V
WINT—’mmdy’ WINT. 7l'M beginning to tuink TUE SPANi
COS UE-S AFEAlD OF PLANES SUOULD BE TCEATED WITU SOME 1
UTTLE ICOULD TELL UIaTaBOUT TUE TWO MASKED MEN.FEUV
ipentifiep tuem as members of twe spangled mob . .
I WANT TO
SPEAK TO MC
SUADy TEEE
Uitli naungmn er Kidd, sá feiti, sem
sýgur vörtu á þumalfingrinum er kallaður
„Windy“ Wint, því hann er hræddur við
flugvélar.
Báðir mennirnir voru meðlimir glæpa-
flokksins, að sögn Felix Leiter.
Ég held að ég hafi séð hann áður — í
flugvélinni sem ég kom með til New York.
Eg fer að halda, að glæpaflokkurinn eigi
að umgangast mig með virðingu.
Engu aö siour . . .
Mig langar að ræða við Shady Tree.
Bond hér, hr. Tree. Hesturinn ykkar
vann ekki og ég vil ennþá fá peningana
mina.