Morgunblaðið - 15.10.1966, Side 14
14
MORCUNBLAÐIÐ
Laugardagur 15. okt. 1966
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Frarnkvaemdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjariiason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Knstinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6
Auglysingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. S:mi 22480.
Askriftargjald kr. 105.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 7.00 eintakið.
YFIRL ÝSING, SEM
BER AÐ FAGNA *
Er Nigerío að
leysast upp?
/\hætt er að fullyrða að yfir
^ gnæfandi meirihluti þjóð
arinnar muni fagna þeirri
yfirlýsingu ríkisstjórnarinn-
ar, að hún muni leggja megin
áherzlu á stöðvun verðhækk-
ana innanlands, svo að ekki
verði hækkun á innlendu
verðlagi frá því sem var 1.
ágúst sl. Almenningur í land
inu er nú að gera sér ljóst,
að ekki er hægt að láta verð-
lag og kaupgjald hækka á
víxl eftir það verðfall, sem
orðið hefur á ýmsum helztu
útflutningsvörum okkar und
anfarna mánuði. Um forsend-
urnar fyrir því að stöðvun
verðhækkana takizt, komst
Bjarni Benediktsson, forsæt-
isráðherra, m. a. að orði á
þessa leið í yfirlýsingu ríkis
stjórnarinnar:
„Skilyrði fyrir stöðvun
verðlagS fyrir atbeina ríkis-
valdsins er, að ekki séu gerð
ar aðrar ráðstafanir, sem
leiða hljóta til verðhækkana
og veltur þá á miklu að í
þeim efnum takizt samvinna
milli ríkisstjórnar og Alþing-
is annars vegar og stéttarfél
aga, verkalýðs og annarra
launþega og atvinnurekenda
hinsvegar“.
Ríkisstjórnin hefur fyrir
skömmu ákveðið að auka nið
urgreiðslur á búvörum, og
hefur nú til athugunar fleiri
ráðstafanir í þá átt að draga
úr áhrifum verðhækkana.
Segja má að auknar niður-
greiðsl’ur séu út af fyrir sig
ekkert fagnaðarúrræði. En
um aðrar leiðir er ekki að
ræða til þess að halda verð-
laginu í skefjum. Útflutnings
framleiðslan getur ekki tek-
ið á sig þá hækkun tilkostn-
aðar, sem leiða mundi af því
að verðhækkanir héldu á-
fram. Það er sú staðreynd,
sem nú blasir við og enginn
getur sniðgengið.
Forsætisráðherra gerði jafn
framt grein fyrir fjölmörgum
umbótamálum, sem ríkis-
stjórnin mun leggja fyrir Al-
þingi það, sem nú hefur haf-
ið störf. Er þar um að ræða
víðtæka lagasetningu, sem
miðar að margvíslegum stuðn
ingi á sviði athafnalífs, menn
'ingarmála, félags, og sam-
göngumála. Þá mun haldið á-
fram að vinna að áætlunum
um framkvæmdir og atvinnu
mál í einstökum landshlut-
um. Má í þessu sambandi
minna á að um næstu ára-
mót kemur til framkvæmda
löggjöf sú, sem síðasta Al-
þingi samþykkti um fram-
kvæmdasjóð íslands, sem ætl
að er að auðvelda samræmda
heildarstjórn á opinberri fjár
festingu.
Mestu máli skiptir nú að
íslenzka þjóðinn líti raun-
sætt á hag sirin og hafi sem
víðtækasta samstöðu um að
tryggja hin góðu lífskjör og
stórfélldar framfarir, sem orð
ið hafa í þjóðfélagi hennar
undir forustu núverandi rík-
isstjórnar. Ríkisstjórnin hef-
ur markað stefnuna. Allir
þjóðhollir menn verða að
taka höndum saman um að
tryggja framkvæmd þeirrar
stefnu.
STEFNULAUS
STJÓRNAR-
ANDSTAÐA
T ræðum leiðtoga stjórnar-
andstöðunnar, þeirra Ey-
steins Jónssonar og Einars
Olgeirssonar á Alþingi í fyrra
dag um yfirlýsingu ríkis
stjórnarinnar örlaði hvergi á
nokkurri sjálfstæðri stefnu
eða minnsta úrræði til þess
að mæta þeim vanda, sem
þjóðin stendur frammi fyrir.
Eysteinn Jónsson lét við það
eitt sitja, að ráðast á hækk-
un fjárlaganna og lýsa erfið-
leikum atvinnuveganna. En
allir íslendingar vita að Fram
sóknarmenn hafa á undan-
förnum þingum flutt tillögur
um stórfellda útgjaldaauka
og jafnan verið þess hvetj-
andi að auka tilkostnað at-
vinnutækjanna frá ári til
árs.
En hvaða úrræði benda
þeir svo á gagnvart þeim
vanda, sem fyrst og fremst
sprettur af verðfalli afurða,
hráefnisskorti hraðfrystihúsa
og hinum háa tilkostnaði,
sem er að sliga rekstur tog-
ara og ýmsra annarra at-
vinnutækja?
Ekki eitt einasta. Engin
skýring fæst hjá Framsókn-
armönnum á „hínni leiðinni“.
Hvergi örlar á sjálfstæðri við
leitni til þess að líta raun-
sætt á nokkurt vandamál.
Einar Olgeirsson hélt sína
þrjátíu ára gömlu ræðu um
„verzlunarauðvaldið“ og þátt
þess í sköpun dýrtíðarinnar.
En hvorki hann né Eysteinn
Jónsson treysta sér til þess
að svara þeirri fyrirspurn
Bjarna Benediktssonar hvort
Samband ísl. samvinnufélaga,
sem er stærsti heildsali lands
ins eða KRON hefðu rakað
Sex árum eftir að landið fékk sjálfstæði,
rikir þar mikil sundrung
ENN hefur komið til mik-
illa blóðsúthellinga í landi
því, sem eitt sinn var talið
það Afríkuríki, sem mesta
framfaramöguleika hefði
— Nígeríu.
Því virðist nú eins farið
með Nígeríu og mörg önn-
ur ríki í þessari heimsálfu,
að þjóðin virðist aðeins til
á pappír, ekki í reynd.
Enn á ný hefur komið
v til kynþáttaóeirða í Níg-
eríu, og allt .virðist nú
benda til þess, að við land-
inu blasi hrein upplausn.
Herinn er klofinn. Efna-
hagsframfarir eru engar.
Við sjálft liggur, að þær 56
milljónir manna, sem land-
ið byggja, eigi nú í algerri
borgarastyrjöld. — Mestar
eru óeirðirnar í norður-
hlutanum.
Þar berst nú meirihlutinn,
borgarar og hermenn Hausa-
kynþáttarins, gegn minni-
hluta Ibo-manna. Talið er
víst, að milli 1000 og 2000
Ibo-menn hafi týnt lífi, en
þúsundir þeirra særzt. Tugþús
undir Ibo-manna hafa nú ver
ið fluttir, með vörubifreiðum
og flugvélum, til fyrri heim-
kynna í austurhluta landsins.
Bein afleiðing baráttu þess
arar er sú, að um 10.000 mönn
um af Hausa-kynþætti hefur
nú verið vísað á brott úr
austurhlutanum, til norður-
hlutans.
Frá því, að Nígería hlaut
sjálfstæði, hata Bandaríkin
veitt landinu 18 milljómr
dala í efnahagsaðstoð. Gert
er ráð fyrir aukaaðstoð, að
upphæð 75 miljónum dala, á
miðju ári 1968, hafi Níegría
þá ekki leystst upp.
Vandræði hafa steðjað að
Nígeríu, allt frá því, að land-
ið fékk sjálfstæði frá Bret-
um, 1960. Ríkisstjórnin, en
menn af Hausa-kynþætti,
réðu mestu innan hennar,
ráku sig þá fljótloga á alls
konar spillingu, og verðbólga
magnaðist. Þetta ástand
hélzt að mestu óbreytt fyrsiu
árin. í janúar á þessu óri
gerðu Ibo-hermenn byltingu,
og styttu forsætisráðherran-
um aldur. Einn byltingar-
manna, Aguiyi-Ironsi, hers-
höfðingi, sem hlaut þjálfun
sína hjá Bretum á sínum
tíma, gerðist einræðisherra.
í maí réðust hins vegar
menn af Hausa-kynþætti á
Ibo-menn, í norðurhluta lands
ins.
1 júlí var gerð önnur byJt-
ing. Að henni stóðu Hausar.
Þeir steyptu Ironsi, sem var
drepinn. Við af honum tók
Yakubu Gowoní kristinn
maður, af litlum kynþætti í
norðurhluta landsins.
Nígería skiptist í fjögur
héruð, sem hvert um sig nýt
ur nokkurrar sjálfstjórnar
Þar er að finna fleiri mennt
aða menn í nokkru öðru
Afríkuríki — lækna, lögfræð
inga, tæknifræðinga og aðra
sérmenntaða menn.
Landið er einnig ríkt að
náttúruauðæfum. Miklar gúm
kókó- og baðmularekrur eru
þar. Þar að auki finnast þar
margvíslegir dýrir málmar,
s.s. tin og járn, auk olíu.
Þrátt fyrir þessar . aðstæð-
ur kemur vestrænum mönn-
um saman um, að ástandið
í Nígeríu sé líkast því, sem
var meðal Indíána í Ame-
ríku, er fyrstu hvítu menn- :
irnir komu þangað. Stór hluti ;
þjóðarinnar, meginhlutinn, er ;
ólæs og óskrifandi, og verzl- ;
un er að mestu leyti enn á Z
vöruskiptastiginu. Tryggð ;
manna er fyrst og fremst ;
rikisstjórn eða þau ófl, sem ;
reyna að halda ríkinu sam- Z
an. ;
Enginn hefur lengur þá trú ;
að herinn sé það afl, sem :
möguleika hefur umfram aðra ;l
til að koma á eða viðhalda ;
einingu. Allt frá því í júlí ;
hefur austurhéraðið verið að ;
mestu sjálfstætt, og þar fer I
her Ibo-manna sínu fram, án ;
minnsta tillits til þess, sem I
gerist annars staðar í iand- ;
inu. :
í norðurhéraðinu hafa her- ;
menn Hausa gert uppreisn Z
gegn þeim , liðsforingjum, ;i
sem reyndu að koma í veg ;j
fyrir bein átök við Ibo- Ij
menn. ;j
Ein síðasta tilraunin, sem z\
gerð hefur verið til að koma ;|
á viðhlítanlegri stjórn, var ’
gerð 12. september sl. Þá *
komu ráðamenn í fjórum að- ;j
allandshlutum saman í Lagos. S
Það var Gowon, sem til rsð- 3
stefnunnar efndi. Efti - mikl- Z
arumræður var nenni sbtið ;l
3. október, án þess, að nokk- :
urt samkomulag næðist. ;
Þeir, sem bezt hafa fyJgzt :
með þróuninni í Nígeríu, eru ;
nú sammála um, að alit bendi ;!
til þess, að landið muni Jevs ;
ast upp, 6 árum eftir að það ;j
fékk sjálfstæði. í hæsta lagi •
er gert ráð fyrir, að takast ;
megi að halda uppi lausu sam Z
bandi meginríkjanna fjög- ;
urra — þótt á því leiki einn- :
ig vafi. ;
Það kom í Ijós, rúmum :
hálfum áratug eftir að Ni- ;
geríu var veitt sjáifstæði, að Z
það ríki — eins og svo mörg ;
önnur Afríkuríki var ekki ;
undir sjálfstæði búið. Z
saman fé á síðustu árum, og
hvort hagur þeirra henti til
þess að hlutur verzlunarinn-
ar vaeri í dag óhóflegá mikill.
Sannleikurinn er sá að leið
togar stjórnarandstöðunnar
stóðu uppi í þessum umræð-
um gersamlega úrræðalaus-
ir og stefnulausir.