Morgunblaðið - 15.10.1966, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 15.10.1966, Qupperneq 19
Laugardagur 15. okt. 1968 MORCU NBLAÐIÐ 19 Frú Ágústa Jónasson Kveðja Her Vilhjálms byst vistum og varningur er borinn a skip. Framhald af bls. 11 andi. Stríósaxir enska hersins urðu Normönnunum skeinu- hættar og þeir guldu alvarlegt afhroð þegar hermenn Harald- ar sveifluðu öxunum með báð- ium höndum og hjuggu allt er fyrir varð. Orrustan geysaði og margir féllu í liði beggja. Bræð ur Haraldar báðir, Gyrth og Leofwine féllu, Þá gat vinstri armur frönsku leiguhermannanna ekki meira. Normönnunum tókst ekki að brjótast í gegn og riddararnir létu undan siga ofan í dalinn og komust þar í vanda í forar- mýrum. En nú skeði það augna blik, er sneri orrustunni við. Hesturinn var felldur undir Vilhjálmi bastarði og sá orð- rómur fór eins og eldur um sinu gegnum herinn að Vil- Ihjálmur væri fallinn. Sóknin lináðist og nú var tækifæri Har aldar að reka hann á flótta. En hann hélt varnarstöðu sinni á hæðinni og nýtti ekki tæki- færið. Vilhjálmur náði sér í annan hest og safnaði liði sínu á ný. Nú var liðið á daginn og Iherirnir urðu að taka sér hvíld og þá varð að endurskipuleggja. Það hafði komið í ljós að sóknarhermenn Vilhjálms gátu ekki brotizt í gegnum varnar- múr enska hersins. Þar kom ' að Haraldarmenn héldu að sigur inn væri skammt undan, en þá neytti Vilhjálmur herkænsku sinnar. Hann gerði skyndiá- hlaup með riddaraliðinu, en lét það síðan hörfa, sem það færi á flótta, og í ákafanum að reka flóttann hlupu Haraldarmenn á eftir þeim. En þá snarsneru ridd ararnir við og réðust á óskipu- lega fylkingu fótgönguliðsins og stráfelldu hvern einasta mann. Nú lét Vilhjálmur bog- menn sína taka til og skjóta hátt svo Haraldarmenn urðu að halda skjöldum yfir höfði sér og voru því litt varðir fyrir lögum fótgönguliðs og riddara. Staða enska hersins var orðin mun verri aftur og þá skeði slysið. Haraldur fékk ör í aug- að, en hann barðist áfram nær blindaður en féll skömmu síðar fyrir sverðum og lensum Nor- mannanna. Þar með lauk raun- ar orrustunni, flótti brast í lið Haraldar og dagur var kominn að kvöldi. Hér verður staðar numið í þessari frásögn. Örlagaríkur dagur er á enda. Vilhjálmur tekur við ríki á Englandi og hrekur alla valdamenn þar- lenda frá völdum og setur sína í staðinn. Gildir þetta bæði um kirkjuleg og veraldleg völd. Franska og latína eru tungur þær, sem ríkja á hinum hærri stöðum, en í eldhúsunm og úti á landsbyggðinni lifir enskan. Svo fór að lokum að hún sigraði tungu innrásarmann- anna, þótt þeir flyttu með sér mikla latneska menningu og leggðu grundvöllinn að vold- ugasta ríki Vestur-Evrópu. — Enn lifði England. — vig. Heimilid að greinum þessum eru: Cassels illustrated Hitsory of England. National Geogrophic, ágúst 1966. Fyrir 100 kr. HVER VIIX setjast undir stvri á eigin Plymouth Valiant 1961 fyrir aðeins 100 krónur? Sennilega allir. Þetta gæti hins- vegar auðveldlega gerzt, ef menn tryggja sér miða í hinu stórglæsilega Landshappdrælti Sjálfstæðisflokksins. Dregið verður 8. nóvember um þrj.ir lúxusbifreiðir, Rambler Anie- rican, Dodge Dart og Plyniouth Valiant, samtals að verðinæti yfir eina milljón króna. Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei áður hleypt af stokkun- tun svo glæsilegu happdrætti. Verð miða er engu að síður óbreytt, aðeins 100 krónur. Miðar hafa verið sendir vel- unnurum og stuðningsmönnum flokksins um land allt, og er þeim vinsamlegu tilmælum reint til þeirra, sem þegar hafa fengið þá í hendur, að gera skil sem allra fyrst. Miðar eru einnig se'.dir í skrif stofu Sjálfstæðisílokksins í Sjélf stæðishúsinu við Austurvóll, sími 17100. Skrifstofan er opin til kl. 19 daglega. Kaupið miða strax í dag — og þar með moguleika á vinn- iogi í glæsilegasta bílahapp- drætti ársins. UngKngavInna Óskum eftir að ráða ungling (pilt eða stulku) til starfa við innheimtu og sendiferðir, haií'an eða allan daginn. Vinnuveitendasamhand íslands. Síini 18592. Heimskringla Snorra Sturlu- sonar, Reykjavík 1946. Kongesagaer, Snorre Sturla- son, Ósló 1900. Brotasilfur, Björn Th. Björns son, Reykjavík 1955. Aschehougs Verdenshistorie, Middelalderen, Ósló 1953. Encyclopædia Britannica ’64. King ^larald's Saga, Penguin Books, 1966. Fædd 24. júlí 1887 Dáinn 6. okt. 1966. Hún var dóttir hjónanna Sina og Edward Andersen, kaup- manns í Stavanger og þar fædd. Foreldrarnir nutu virðingar bæjarbúa bæði fyrir margháttuð afskipti föðursins af bæjarmál- um, ritstörf hans og mannkosta beggja. Með foreldrum sínum dvaldist hún þar til hún fór 1911 í sumarleyfi til systur sinn ar, sem búsett var á Eskifirði en þaðan hvarf hún ekki aftur. Arið 1911 var dauflegt yfir atvinnulífi á Eskifirði, almenn fátækt í þessu fámenna þorpi, en fólkið var dugmikið og gott, staðurinn fagur með sérkenni- legum töfrum. Ef til vill hefir þetta ásamt öðru laðað hina glæsilegu ungu stúlku til að flýtjast frá ættlandi sínu og foreldrum. Þann 31. maí 1914 giftist hún Karli Jónassyni, útgerðarmanni á Eskifirði, en hann lézt 6. des. 1956. Þau hjón eignuðust þrjár dætur og tvo syni, yngsta dótt- irin lézt á barnaldri. Af börn- unum á lífi eru: Nenna, gift Garðari Helgasyni, bifr.stjóra, Lárus, afgr,maður kvæntur Björgu Andrésdóttur, Egill fisk- iðjueig. kvæntur Arnheiði Hall- Guölaugur Br. Jónsson - KveÖja í DAG verður til moldar borinn, frá Víkurkirkju í Mýrdal, góð- vinur minn Guðlaugur Br. Jóns- son, stórkaupmaður hér í borg. Hanri lézt í Borgarspítalanum árla morguns sunnudaginn 2. október síðastliðinn, eftir stutta legu þar. Hins vegar var hann búinn að eiga við vanheilsu að stríða mörg undanfarin ár, en þó mest þau síðast liðnu, að mestu við rúmið. En Guðlaugur kvart- aði ekki þó oft væri hann þjáð- ur, starfið var honum allt. Guð- laugur var einn af aldamóta- kynslóðinni svonefndu, og vanur öllu fremur, en að hlífa sjálfum sér, þótt líkamskraftar hans væru oft og tíðum lamaðir. Ég átti því láni að fagna að kynnast Guðlaugi fyrir 28 árum, er hann fluttist hingað til Reykja víkur, og höfum við haldið nán- um kunningsskap öll árin, fram til þess, er hann nú var frá okk- ur kallaður, þá leið, er fyrir okkur öllum liggur að lokum. Mér hnykkti við, er ég frétti lát hans og mér kom í hug: Já, vin- ur minn er fallinn frá, ísland hefur misst einn af sínum góðu sonum. Guðlaugur er fæddur 31/1 1895 í Reynisdal í Mýrdal. Þar bjuggu foreldrar hans, Jón Þor- steinsson og kona hans, Guðríður Brynjólfsdóttir. Guðlaugur ólst upp með foreldrum sínum og systkinum unz hann var nær tvít- ugur. Á æskuheimili sínu stund- aði hann öll algeng störf með föður sínum. Jafnhliða búskaþn- um sótti faðir hans sjó sem for- maður í Mýrdal við þau erfiðu skilyrði, sem þar voru. Snemma hneigðist hugur Guð- laugs til verzlunarstarfa. 17 ára stofnaði hann verzlun í Vík í Mýrdal, og hefur þurft til þess mikinn kjark á þeim árum í öllu því allsleysi, sem þá var hjá fjöldanum. Verzlun sína rak hann um árabil með myndarbrag. Um 1920 kvæntist Guðlaugur Sigríði Skaftadóttur frá Fossi í Mýrdal, ágætis konu, eins og hún átti kyn til. Áttu þau hjónin einn son, sem nú sér á eftir föður sín- um, en hann hefur í mörg ár ver- ið hans hægri hönd við atvinnu- reksturinn. Við vottum honum samúð okkar við fráfall föður hans. Konu sína missti Guðlaug- ur eftir 19 ára ástríka sambúð, og varð honum það mikið áfall. Guðlaugur lagði gjörva hönd á fleira en verzlun. 1921 fluttist hann til Vestmannaeyja, hefur sjálfsagt fundizt of litlir athafna- möguleikar heima í Vík, við hafnlausa strönd. í Vestmanna- eyjum var hann um 18 ára skeið og fékkst við iðnað, verzlun og landbúnað, einnig nokkuð við útgerð, og opinber störf fyrir sitt bæjarfélag þar. Hingað til Reykjavíkur fluttist Guðlaugur ásamt konu sinni og syni árið 1937, og hefur búið hér síðan. Aðalstarf Guðlaugs hér í Reykjavík, eins og alltaf áður, var verzlunar- störf. 1942 setti hann á stofn verzlun, innflutnings- og heild- verzlun 1950, og var það honum ómetanlegt að hafa son sinn sér við hlið í þessum atvinnurekstri. Guðlaugur var mér hollvinur í minni lífsbaráttu, oft leitaði ég til hans og ræddi við hann um vandamál, sem ég án hans ráða gat ekki leyst, svo vel ráðlagði hann. Hans aðalsmerki var: Komdu fram við samborgarann eins og þú vilt að hann komi fram við þig, og það gerði hann, að mínu viti. Hann var svo áreið- anlegur í orðum og gerðum, að betra verður ekki á kosið. Guðlaugur, ég á þér svo mikið að þakka, þín góðvild var mér ómetanleg. (Þessi orð vilja allir, er þig þekktu, taka undir). Blessuð sé minning þín. Guðmundur Magnússon. dórsdóttur og Aðalbjörg gift Lúðvík Ingvarssyni, fyrrv. sýslu manni: Öil eru þau búsett á Eskifirði, nema Aðalbjörg og Lúðvík sem búsett eru í Egils- staðaþorpi. En tryggð hennar við Eskifjörð var svo rík, að hún óskaði þess eindregið, að börn hennar byggju þar. Augústa var fríð kona sýn- um, vel á sig komin andlega og líkamlega, glaðvær og bráð- skemmtileg, þegar hún vildi það við hafa í hópi tryggra vina. Segja má að hún hafi á yngri áruiri verið hrókur alls fngnað- ar og enda lengi fram eftir ár- um, þótt dótturmissir og erfiður vinnudagur á fimm barna heim- ili brygði stundum skugga á glaðværðina. En störf heimilis- ins rækti hún af fullkominni alúð og hélt ávallt fulri rausn, enda var gott þar að koma. Þrátt fyrir glaðværð Augustu var lund hennar svo viðkvæm, að hún mátti ekkert aumt sjá, án þess að reyna að bæta þar úr. Ekki er ósennilegt að glað- værasta tímabil hennar hafi verið mánuðurinn, sem þær hittust systurnar þrjár og mág- kona í Reykjavík árið 1950. Systirin frú Frida og mágkona frú Magda komnar í heimsókn frá Noregi. En þá voru rifjaðar upp sæka minningar og margt rætt. Ég minnist margs frá ánægju- legum samverustundum, en efst í huga þessa stundina er, að engan hefi ég ■ heyrt segja með jafn fjölbreytilegum og listræn- um tilbrigðum: Úff, eins og þig, kæra tante Gústa og jafnt og ég sakna þín, mun ég sakna þessa áherzluorðs, eins og þú myndaðir það og lézt frá þér fara, hvort sem það tjáði fyrir- litningu, hrifningu eða sáran söknuð. Aðstandendum sendi ég og fjölskylda mín einlægar samúð- arkveðjur. Eirikur Bjarnason. í STUTTU MÁLI Moskvu, 13. okt. — AP-NTB TVEIR Bandaríkjamenn verið handteknir í Sovétríkj- unum, skammt frá finnsku landamærunum, og eru sak- aðir um að hafa stolið fornrl bjarndýrsstyttu í Ilotel Eu- ropa í Leningrad. Mennirnir sem báðir eru fyrverandi liðs foringjar úr bandaríska hern urn, eru nú í haldi í Lenin- grad þar sem réttarhöldin munu fara fram. Verði þeir fundnir sekir, geta þeir vænzt allt að sex ára fangelsis. Hinir ákærðu, Buel Worth- am og Craddock Gilmour, höfðu verið á ferðalagi í bif- reið um Sovétríkin og voru handteknir hinn 1. október i landamæraþorpinu Vainikk- ala. V7ið tollskoðun þar fannst bjarnarstyttan í ferðatösku annars þeirra, og voru þeir þá fluttir til Leningrad. Þar fékk starfsmaður við banda- ríska sendiráðið i Moskvu að heimsækja þá fyrir nokkru.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.