Morgunblaðið - 04.11.1966, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Föstu&agur 4. nóv. 1966
BÍLALEIGAN
FERÐ
SÍMl 35735
OG 34406
SE N DU M
IV1AGIMÚSAR
SKIPHOLTI 21 SÍMAR 21190
eftirlokun simi 40381
siM' 1-4444
\mtim
Hverfisgötu 103.
Daggjald 300
og 3 kr. ekinn km.
Benzín innifaliS.
Sími eftir lokun 31100.
LITLA
bílaleigan
Ingólfsstræti 11.
Sólarhringsgjald kr. 300,M
Kr. 2,50 ekinn kílómeter.
Benzin innifalið í leigugjaldi
Sími 14970
BÍIALEIGAM
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Simi 35135.
BÍLAIEIGA S/A
CONSDL CORXINA
Sími 10586.
ét'
Kr. 2,50
á ekinn km.
300 kr. daggjald
RAUÐARÁRSTfG 31
SlMI 22022' .
B O S C H
Háspennukefli
6 volt.
12 voit.
Brœðurnir Ormsson
Lágmúla 9- — Sínn 38820.
Áfengislögin
S. M. skrifar:
„Kæri Velvakandi —
Fyrir nokkru síðan var lagt
fram á Alþingi stjórnarfrum-
varp um breytingu á Áfengis-
lögunum. Frumvarp þetta er
samið af nefnd 7 alþingis-
manna, og hefur hún unnið að
undirbúningi og samningu þess
í tvö ár. Hætt er við, að fleir-
um fari eins og mér, að þeim
finnist bezt eiga við frumvarp
þetta máltækið gamla „Fjöllin
tóku jóðsótt, fæddist lítil mús",
því það ber því miður um of
þann vott káks og hringlanda-
háttar, sem svo mjög hefur
einkennt aðgjörðir í áfengis-
málum, svo að segja alla tíð,
síðan áfengisbannið var afnum-
ið. En ég ætla að hafa sem
fæst orð um músina, sem
nefndin fæddi af sér, en
kannski þá þeim mun fleiri um
jóðsótt hennar. I>ar er nefni-
lega skemmst frá að segja, að
við undirbúning frumvarpsins
hefur nefndin unnið afburða
gott starf og safnað að sér
gögnum um áfengisvandamálið
slíkum, sem líklega hefur aldrei
áður verið safnað saman á einn
stað. Gögn þessi fylgja með
frumvarpinu sem fylgiskjöl.
Nefndin hefur leitað álits
fjölda einstaklinga og stofnana,
og verð ég að segja, að í álitum
þessum virðist mér fjallað um,
eða drepið á svo að segja hvert
það atriði, sem einhverju
skiptir í þessu sambandi.
Sem sagt, þessi gagnasöfnun
nefndarinnar er með miklum
ágætum, en úrvinnsla gagnanna
því sem næst engin. En það
væri hinn mesti skaði, ef það
grundvallarverk, sem þarna
hefur verið framkvæmt, væri
látið grafast í „Alþingistíðind-
um“ og ekki meira að hafzt.
Ég vildi því mega leyfa mér
að koma því á framfæri, hvort
ekki væri rétt að komið væri
á fót nýrri nefnd, sem héldi
áfram verkinu, þar sem starfi
nefndarinnar lauk. Þá vildi ég
einnig leyfa mér að bera fram
tillögur um, hvernig nefnd
þessi ætti að vera skipuð. Legg
ég til, að hún verði skipuð
þrem embættismönnum, en síð-
an leyft að ráða sér fastan
starfsmann.
Þegar síðast var framkvæmd
heildarendurskoðun á áfengis-
löggjöfinni var sú endurskoð-
un framkvæmd af nefnd, sem
í áttu sæti m. a. fulltrúi veit-
ingamanna og fulltrúi bindinis-
manna. Nú hefur verið fjallað
um þessi mál af þingmanna-
nefnd.
Ég held, að tími sé til kom-
inn, að um mál þessi sé fjallað
á vegum hins opinbera af
nefnd embættismanna, sem til
einskis taka tillit nema embætt
isheiður síns og hæfir eru til
að fjalla um þessi mál, án þess
að til komi hagsmunaviðhorf,
þröngsýnisviðhorf, eða önnur
þau viðhorf, sem óeðlileg eða
óheppileg mega teljast. En
nefndin ætti svo auðviað að
ganga á vit þeirra lærðra og
leikra, svo og félagasamtaka,
sem eitthvað hafa um þessi
mál að segja.
Sá, er þetta ritar er ekki
bindindismaður í venjulegri
merkingu þess orðs. En hann
er áhugamaður um það, að
menn umgangist áfengi, eins
og siðaðir menn og að allt
verði gert, sem mögulegt er til
að bægt sé frá þeim voða, sem
fylgir óhóflegri áfengisneyzlu.
Virðingarfyllst,
S. M. “.
■+T Dýr heiði?.
„Skytta skrifar okkur og
biður. viðkomandi aðila að
greina frá því hvort bóndinn
að Fornahvammi hafi leyfi til
þess að taka 150 króna gjald
af rjúpnaskyttum, sem ganga
á Holtavörðuheiði.
Annar bréfritari skrifar og
biður hafnarverkamann þann,
sem kom á Lögreglustöðina um
miðjan september og sýndi
þar gullúr, sem hann kvaðst
hafa fundið þann sama dag, að
gera vart við sig aftur. Segir
bréfritari, að auglýst hafi verið
eftir úrinu í Mbl. á sama tíma
og fundarlaunum heitið. Skor-
ar hann á finnanda að gefa
sig fram.
Hafnarfjarðarvegxtr
Við áttum von á því að
hafizt yrði handa við lagningu
nýs Hafnarfjarðarvegar á þessu
sumri, en af því varð ekki —
því miður. Stórfelld laót er hins
vegar að malbikun þeirri, sem
fram fór á vegum Vegagerðar-
innar á kaflanum frá Kópavogi
að Engidal. Umráðasvæði Vega
gerðarinnar er ekki stærra á
þessum vegi — því miður.
Annars hefðum við sennilega
fengið nýtt malbikslag á allan
veginn. Hafnfirðingar virðast
ekki hafa haft bolmagn til þess
að leggja malbik á spottann
frá Engidal og suður úr nema
þá að Bæjarútgerð þeirra taki
verkið að sér við tækifæri.
Mér er sagt, að það muni
taka fjögur ár að leggja nýja
veginn yfir Kópavogshálsinn
og ljúka honum. Þetta verður
mikið mannvirki með marg-
faldri akbraut og brúm — svo
að æskilegt hefði verið að
hefja framkvæmdirnar í sumar
eins og ráðgert var. Þeir
Kópavogsmenn munu eiga 10
milljónir af „benzínpeningum“
til þess að hefja verkið, en
ekkert bendir samt til þess að
fyrsta skóflustungan verði tek-
in í bráð. Hafnarfjarðarvegur-
inn er orðinn einn hættulegasti
akvegur hér um slóðir og á-
standið er því með öllu óvið-
unandi.
★ Grænir og gulir
Baltika-ferðalangarnir
létu vel af reisunni — og eng-
inn kvartaði yfir vínþurrð.
Hvort þetta þýðir, að lítið hafi
verið drukkið — eða óvenju-
miklar birgðir hafi verið í skip-
inu fylgdi ekki sögunni. En
þetta ferðalag hefur orðið
mönnum kærkomið umræðu-
efni í haustrigningunum —
enda ekki á hverjum degi að
Karlakórinn okkar syngur úti
um allan heim. Og aðrir kórar
eru væntanlega gulir og græn-
ir af öfund.
Slæmar hvatir
Á. G. skrifar:
„Kæri Velvakandi —
oft hefur mig langað til að
skrifa þér nokkrar línur en
aldrei orðið af því fyrr. Það
sem ég vil vekja athygli á er
„sadistaháttur" sem örlar alltaf
meira og meira á, sérstaklega
kemur þetta fram við dýrin því
þar eiga þessir aumingjar
minnst á hættu. Unglingur
suður með sjó vann það ódæði
að setja kött inn í bakarofn
og steikja hann lifandi, einnig
að hengja kött upp á aftur-
löppunum og reka í gegn með
glóandi járntein ásamt mörgu
öðru svo sem að skjóta örvum
með nöglum í dýr sem voru á
beit. Það bar til í Keflavík í
sumar að dúfa fannst ósjálf-
bjarga í götunni því búið var
að skera báðar lappir af og
maður heyrir svo til daglega
um misþyrmingar á dýrum. Og
nú spyr ég. Hverskonar lýð
erum við að ala hér upp? og
hvað verður langt þangað til
við friðsamir borgarar getum
ekki farið óhultir út á götu?
Eða dettur nokkrum í hug að
þessi sadistaháttur einskorðisfc
við dýrin? Og þó svo væri,
hvers eiga dýrin að gjalda?
Nei góðir borgarar við verðum
að taka fyrir þetta strax með
róttækum aðgerðum. Við vilj-
um áreiðanlega fæst okkar að
þetta friðsæla yndislega land
verði að glæpabæli. Nú skulum
við athuga hvaðan líklegt er að
fyrirmyndirnar komi. Ég er
þeirrar skoðunar að kvikmynd-
ir og sjónvarp eigi þarna stóran
hlut að. Við erum ekki búin
að sjá hvað allar þesséir glæpa-
myndir hafa á þjóðina. Við
förum að sjá það eftir 10—15
ár. Þá verða þeir sem nú eru
börn fullorðnir. En hvað veld-
ur því að helzt aldrei sjást
hér í kvikmyndahúsum hug-
Ijúfar og göfgandi myndir? Er
það vegna þess að fólkið vill
þessar glæpa- og lauslætis-
myndir eða er ekki lengur fá-
anlegar aðrar myndir frá þess-
um svokölluðu siðmenntuðu
þjóðum? Góðir lesendur tökum
höndum saman og reynum að
göfga hugi æskunnar.
Með þökk fyrir birtinguna. ‘
A. G.
Við Gnoðavog
Til sölu er glæsileg 5 herbergja efri hæð í 4ra fbúða
húsi við Gnoðarvog. íbúðin er í ágætu standi með
nýlegum teppum. Tvennar svalir. Sér hiti.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRU
Málflutningur — Fasteignasala.
Suðurgötu 4. — Sími 14314.
Verzlunarhúsnæði
við Suðurlandsbraut
Til leigu er ca. 100 ferm. verzlunarhúsnæði (jarð-
hæð) ásamt 50—100 ferm. lagerplássi ef vill. Einnig
100 ferm. skrifstofuhæð. Til greina kemur að leigu-
taki sjái um innréttingu.
Upplýsingar í síma 10898 eftir kl. 19.
Bílaval
Laugavegi 92. — Símar 18966 - 19168 - 19092.
Ford Fairlane ’66, keyrður 6 þús. km.
Volvo Amazon ’66 2ja dyra keyrður 6 þús. km
Moskvitch ’66 keyrður 8 þús. km.
Fiat station 1100 ’66 keyrður 8.500 km.
Renault R 10 ’66 keyrður 6.500 km.
★
Vörubifreiðir
Benz 1418 ’65 flutningabifreið.
Benz 1413 ’65 með krana ásamt stóru úrvali
annarra bifreiða.
Úrvalið er hjá okkur.
Bílaval
Laugavegi 92. — Símar 18966 - 19168 - 19092.