Morgunblaðið - 04.11.1966, Síða 5
Föstudagur 4. nóv. 1966
MORGUNBLAÐIÐ
5
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
ÞAÐ VAR í þessari fyrstu
vetrarviku. að ég var staddur
á Patreksfirði, og fékk þá frétt
frá Ásgeiri á Látrum, að einn
af kunningjum okkar frá
Dhoon strandinu væri á
sjúkrahúsi Patreksfjarðar, og
hafði Ásgeir hitt hann, en sá
Endurfundir í sjúkrahdsi
Patreksfjaröar ef tir 19 ár
Skipverji aff Dhoon hiftir
þar gamla kunningja
sami maður var einmitt hjá
Ásgeiri meðan þeir strand-
menn dvöldu hér á Látrum
fyrir 19 árum.
Ég lagði því leið mína á
sjúkrahúsið í fylgd með um
boðsmanni Breta hér á Pat-
reksfirði, Jakobi Helgasyni
kaupfélagsstjóra, en hann lít-
ur vel til þeirra Breta, sem á
þá stofnun koma.
Og það stóð heima, þarna á
sjúkrahúsinu var sjúklingur,
einn af síðustu áhöfn Fleet-
wood togarans Dhoon, Albert
Wallban. Sem betur fer, ekki
illa haldinn, en hafði tognað í
baki, og var á góðum bata-
vegi.
Ég þekkti Albert um leið og
ég leit hann, með sitt hrafn-
svarta hár, en hann áttaði sig
ekki eins fljótt á mínum gráu
hárum, sem voru dekkri fyrir
19 árum.
Við tókum okkur sæti í
stofu Alberts, ásamt áhugaljós
myndara, Eggerti Haraldssyni
símstöðvarstjóra, sem byrjaði
strax að skjóta á okkur alsak-
Jausa, biindandi blossum.
En við létum það ekki
trufla samtal okkar, sem gekk
vel með aðstoð Jakobs. Fyrst
spyr ég Albert hvað á daga
hans hafi drifið síðan við
kvöddumst á þessari sömu
stofu sjúkrahússins fyrir tæp
um 19 árum. En þeir skipbrots
mennirnir af Dhoon gistu á
sjúkrahúsinu eina nótt á leið
sinni til Reykjavíkur.
Albert taldi það merkast
sinnar sögu, að hann ætti nú
konu og sjö krakka, þrjá syni
og fjórar dætur, væri elzti son
ur hans á sama togara og
hann, Imperialist, en sá tog-
ari lagði Albert á land á Pat-
reksfirði.
Eftir komuna til Fleetwood,
að afstöðnu því eftirminnilega
strandi undir Látrabjargi, fór
Albert aftur á sjóinn, eins og
festir féagar hans, og hefir
haldið sjómennskunni áfram
síðan, nema tíma, sem hann
var í landi vegna þess að dótt
ir hans varð fyrir slysi,
brenndist, og svo var hann um
tíma við köfun.
Þá spurði ég Albert hvað
hann vissi um aðra félaga sína
af Dhoon. Hann varð fár við,
en sagði, að svo illa hefði
tekizt til að í desember árið
eftir hefðu nokkrir þeirra far
izt með togara, sem talið var
að hefði farizt á Halamiðum
hér við land, þar á meðal bezti
vinur hans og félagi úr þeim
hóp, á svipuðum aldri og
hann, einnig meistarinn af
Dhoon, sem var eldri maður.
Tveir þeir elztu hefðu látizt
í landi, þar á meðal kokkur-
inn og einn væri á elliheim-
ili, hinir væru enn á sjónum,
að þeim yngsta þó fráteknum,
hann hefði ekki gerzt sjómað
ur öðru sinni og væri bílstjóri.
Þessi drengur var 15 ára,
þegar strandið varð, og var
hans fyrsti túr. Hann hafði
misst föður sinn í stríðinu, og
móðir hans bað bátsmann tog
arans fyrir hann þennan eftir
minnilega jólatúr, svo hún
hefði meiri auraráð fyrir fjöl
skylduna um jólin. Er mér
enn í fersku minni hvað báts-
manninum var umhugað um
þennan dreng, áður en þeir
skyldu í fjörunni undir
Flauganefi, og hvað honum
létti er hann frétti sólarhring
síðar, að hann mundi kominn
heill á húfi til byggða ásamt
félögum sínum, sem upp voru
komnir, en þá var bátsmaður-
inn ásamt fjórum öðrum fé-
lögum sínum enn niðri í
bjargi.
Næst spurði ég Albert,
Jukuu Hclgason, umboðsmaour, Þóra Magnúsdóttir, yfirhjúkru narkona, Albert og Þórður Jons-
son á Látrum.
hvort brezkir sjómenn yfir-
leitt, vissu um Slysavarnafé-
lag fslands og starfsemi þess.
Hann taldi það öruggt, því ef
fréttist um strand við ísland,
þá væri í sömu frétt að björg
unarsveitir Slysavarnafélags-
ins væru komnar á staðinn.
Þá spurði ég þennan fyrr-
verandi skipbrotsmann, hvort
hann og félagar hans vissu
um, að þetta strand hefði ver
ið kvikmyndað.
Albert sagði að þeir hefðu
heyrt það, en hann vissi ekki
til að neinn þeirra hefði séð
þá mynd, en hann hefði mik-
inn áhuga á að sjá myndina ef
hægt væri.
Að lokum spurði ég þennan
brezka sjómann, á hVern hátt
honum verði nú hugsað til
þessa dapurlega atburðar, sem
gerðist undir Látrabjargi fyrir
tæpum 19 árum.
Hann svaraði ekki alveg
strax, en sagði svo: Okkur
verður víst alltaf hugsað til
þessa atburðar á sama hátt,
við teljum okkur heppnustu
menn í heimi að hafa sloppið
lifandi frá þeim hóska.
Að endingu bað Albert mig
að bera kveðju og þökk, sína
og félaga sinna af Dhoon, til
Siysavarnafélags íslands, og
til fólksins, sem stóð að björg-
uninni. Kem ég þeim kveðjum
hér með á framfæri.
Áður en ég kvaddi Albert,
fékk ég honum smá hlut til
minja um komu hans aftur á
þessar slóðir, hann horfði á
hlutinn um stund, en sagði
svo: Nú verður fólkið heima,
að trúa því, að þessi atburður
undir Látrabjargi hafi í raun
og veru gerzt, eins og ég hefi
sagt því frá.
Látrum, 28. október 1966.
Þórður Jónsson.
Robin Hood hveiti
50 kg kr. 483,40 10 lbs.
50 lbs. — 229,20 5 lbs.
2 lbs.
kr. 49,80
— 25,55
— 10,95
Gerið göð kaup Verzlið ■ Kron
H. BRIDDE
Háaleitisbraut 58—60.
Sími 35280.
Hópferdabilar
10—22 farþega, til leigu, í
iengri og skemmri ferðir. —
Sími 15637 og 31391.
ALLTMEÐ
EIMSKIP
Á NÆSTUNNI ferma skip
vor til íslands, sem hér segir:
Brottfarardagar:
ANTWERPEN:
Tungufoss 5. nóv.
Mánafoss 15. nóv.**
Skógafoss 24. nóv.
Seeadler 3. des.
Mánafoss 13. des.**
HAMBORG:
Goðafoss 10. nóv.
Askja 16. nóv.**
Dux 19. nóv.
Skógafoss 29. nóv.
Goðafoss 8. des.
Skip 16. des.
ROTTERD AM:
Tungufoss 7. nóv.
Dux 15. nóv.
Askja 18. nóv.**
Skógafoss 25. nóv.
Goðafoss 5. des.
Skip 13. des.
LEITH
Gullfoss 4. nóv.
Gullfoss 25. nóv.
Gullfoss 16. des.
LONDON:
Tungufoss 8. nóv.
Mánafoss 18. nóv.**
Agrotai 28. nóv.
Seeadler 6. des.
Mánafoss 16. des.**
HULL:
Agrotai 7. nóv.
Tungufoss 11. nóv.
Askja 21. nóv.**
Agrotai 1. des.
Seeadler 9. des.
GAUTABORG:
Bakkafoss 14. nóv.**
Skip um 18. nóv.
Lagarfoss 10. des.
KAUPMANNAHoFN:
Bakkafoss 11. nóv.**
Skip um 16. nóv.
Gullfoss 23. nóv.
Lagarfoss um 8. des.
Gullfoss 14. des.
NEW YORK:
Brúarfoss 9. nóv.
Tantzen 9. nóv.
Selfoss 22. nóv.
Fjallfoss 25. nóv.*
Tungufoss 8. des.*
KRISTIANSAND:
Bakkafoss 15. nóv.**
Gullfoss 24. nóv.
Lagarfoss 12. des.
KOTKA:
Lagarfoss 4. nóv.
Rannö 4. nóv.
Dettifoss 28. nóv.
VENTSPILS:
Dettifoss 25. nóv.
GDYNIA:
Lagarfoss 7. nóv.
Dettifoss 30. nóv.
* Skipið losar á öllum aðal-
höfnum, Reykjavík, ísa-
firði, Akureyri og Reyðar-
firði.
** Skipið losar á öllum aðal-
höfnum og auk þess í
Vestmannaeyjum, Siglu-
firði, Húsavík, Seyðisfirði
og Norðfirði.
Skip, sem ekki eru merkt
með stjörnu, losa í Reykja-
vík.
HE EIMSKIPAFÉLAG
ÍSLANDS