Morgunblaðið - 04.11.1966, Side 7
7
Fðstudagur 9. Tídv. 1968
MORGU NBLADIO
Baneifraðar slöngur á sýningu
„JÁ, það virðist svo sem ís-
lendingar hafi eignast 47 nýja
ríkisborgara, siðan við byrjuð
um með þessa slöngusýningu,
því að skröltormarnir hafa
eignast 45 afkvæmi, að vísu
deilist það niður á tvær mæð-
ur, en Svipóslangan frá Mala-
ya hefur eignast 2 unga, sem
báðir eru fæddir á íslandi“.
Það er frú Rudin frá Sví-
þjóð, sem flutti blm. Mbl.
þessi tíðindi, þegar hann
skrapp á slöngusýninguna í
Templarahöilinni við Eiríks-
götu á dögunum. Sýningin
hefur nú staðið í 5 vikur og
fer senn að ljúka. Frú Rudin
og aðstoðarstúlka hennar,
Blanca Olexova, sem er tékk-
nesk, sögðu aðsókn hafa verið
góða, en þó söknuðu þær þess,
að ekki hefðu komið fleiri
skólabörn. Enginn dýragarð-
ur væri hérlendis, og því
skildu þær ekki, hvesvegna
kennarar kæmu ekki með nem
endur sína til þess að leyfa
þeim að sjá þennan þátt úr
ríki náttúrunnar, sem þeir
væru að kenna um. Frú Rudin
gekk með okkur um salinn,
og þar eru slöngur á allar
hendur, sumar baneitraðar,
aðrar hættuminni. Frúin barði
undir búrið hjá skröltormun-
um, sem þegar brugðust reið-
ir við, hristu halann, svo að
skrölti í, og kvendýrin og
eina stóra karldýrið reyndu
að verja afkvæmi sin gegn
yfirvofandi árás.
„Og á hverju nærast svo
þessar skepnur?“, spyrjum við
„Eingöngu á hráu kjöti, t.d.
kindakjöti, Úti í náttúrunni
lifa þær á villibráð, en svona
í búrum er þeim gefin ákveð-
inn skammtur einu sinni I
viku. Ungarnir nærast ekki
á kjöti fyrsta hálfa mánuðin,
en svo gerast þeir gráðugir.
Hér eru svo eðlur frá Arg-
entínu, og þær eru nýbúnar
að eignast unga, en það skal
tekið fram, að þeir eru ekki
fæddir hér á landi“, segir frú
in brosandi. „Þarna er svo
Mangroveslangan, sem lifir í
mangrovetr j ánum, og hér
Frú Rudin og Olexova halda á Indigóslöngunni á milli sín,
slöngunni, sem notuð er sem húsdýr í Ameriku.
næst Hvellslangan, sem er
alveg baneitruð og drepur
fljótt. Gular og gráar kjúkl-
ingaslöngur, en ekki veit ég
hvaðan nafnið er dregið. Og
hér er svo hin nafntogaða
gleraugnaslanga, sem sömu-
leiðis er baneitruð".
„Það væri ekki gott að vera
í sólbaði, þar sem maður gæti
átt von á heimsókn svona kvik
indis“, varð einum sýningar-
gestinum að orði.
„Og hérna næst er svo
Skyrpislangan. Hún spýtir
eitrinu allt að 3 metrum, og
miðar í augu fórnardýrsins,
sem samstundis verður blint,
og á hún þá öllum höndum
við það. Pythonsslöngurnar
eru með þeim stærstu hér
inni en þær eru ekki eitraðar
og svo eru hér Tígrisslöngur,
Vatnahöggormar og Kon-
ungsslöngur.
Þetta er svo Svarta Mamb-
an og hún er talin alhættu-
legust allra eiturslanga. Eitur
hennar verkar á 2 mínútum,
og það brýtur á svipstundu
niður alla frumustarfsemi lík-
amans. Að vísu mun vera til
eitthvert móteitur við þessu,
en því verður að dæla strax
inn í líkamann og þess er
eiginlega aldrei kostur. Svart.a
Mamban skríður ekki, heldur
hðppar, og rétt eins og hjól,
og sagt er að hún geti fanð
eins hart og hestur.
Þá er epypska Kóbraslang-
an líka baneitruð. Kyrki-
slöngurnar eru ekki eitraðar,
en þær vefja sig utanum ein-
staka líkamshluta, eru þræl-
sterkar, og sá þarf ekki að
spyrja um endalokin, sem í
klóm þeirra lendir.
Og þetta er Idigóslangan
ameríska, sem þar í landi er
nánast notuð sem húsdýr, því
að hún drepur aðrar slöngur.
Hún finnur ekki lykt, en hef-
ur eins konar radar í höfð-
inu“.
Blanca Alexova sleppir nú
einni Indigósslöngu á gólfið.
Hún vefur sig upp um hand-
legg hennar, og líkist mest
merki apótekara sem sjá má
í lyfjabúðum. Auðvitað get-
ur hún bitið, en er ekki eitr-
uð.
Við kveðjum nú frú Rudin
og Alexovu með þakklæti
fyrir sýninguna. Sýningin
stendur fram yfir næstu
helgi, svo að það eru síðustu
forvöð fyrir fólk að sjá þessa
fróðlegu sýningu. Sérstök á-
stæða er fyir skólafólk að
sjá hana. — Fr. S.
Til sölu 3 gluggastangir fyrir am- eríska uppsetningu. Gaffl- ar fylgja. Uppl. í sima 35612. Notuð píanó og flyglar til sölu. Pálmar tsólfsson Þingholtsstræti 27. Sími 13214 kl. 12—1.30 og eítir kl. 7.
Chevrolet ’57 til sölu. Upplýsingar í síma 10993. íbúð til leigu Óska eftir að leigja 2ja herb. íbúð erlendu sendi- ráðL Hitaveita, sími. Tilb. sendist blaðinu fyrir 8. þ. m., merkt: „8045“.
12 lesta frambyggður vélbátur, smíðaður 1962, til sölu. Kristján Eiríksson, hrl. Laugaveg 27. Sími 14226. íbúð óskast Hjón með 2 börn, 10 og 14 ára, óska eftir að taka 2—3 herb. íbúð á leigu. Fyrir- framgr. Uppl. í s. 33026 í dag, föstud., milli kl. 6—9. e. h.
Atvinna Stúlka eða fullorðin kona óskast til heimilisstarfa í nágrenni Reykjavíkur. Til- boð ásamt kaupkröfu send- ist afgr. Mbl. fyrir 8. nóv. merkt: „Ráðskona 8040“.
Húseignin Ásbúð hf Egilsstaðakauptúni er til sölu. Uppl. gefur Svavar Stefánss., mjólkurbústjóri, EgilsstaðakauptúnL
Utboð
Tilboð óskast í sölu á 2000 rafmagnsmaelum fyrir
Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Útboðsskilmálar eru afhentir í skrifstofu vorri,
Vonarstræti 8.
INNKAUFASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR.
Utboð
Tilboð óskast í smíði á 2000 galvanhúðuðum sorp-
ílátum. Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri,
Vonarstræti 8.
INNKAUPASTOFN UN REYK JAVíKURBORGAR.
Lögtök
Samkvæmt kröfu borgarstjórans í Reykjavík f. h.
borgarsjóðs, og að undangengnum úrskurði, verða
vangoldin verzlunar- og iðnaðarlóðagjöld til borg-
Akranesferðir með áætlunarbílum
*»ÞÞ frá Akranesi kl. 12. alla ðaga
nema laugardaga kl. 8 að morgni og
cunnudaga kl. 17:30. Frá Rvík (Um-
ferðamiðstöðin) kl. 6 alla daga nema
laugardaga kl. 2 og sunnudaga kl.
21 og 23:30.
Skipaútgerð rikisins: Hekla er i
Rvík. Herjólfur fer frá Rvik kl. 21:00
i kvöld til Vestmannaeyja. Blikur fró
frá safirði í gær á norðurleið. Bald-
ur fór til Snæfellsness- og Breiða-
íjarðarhafna í gærkvöld.
Hafskip h.f.: Langá er á leið til
Gdynia. Laxá er í London. Rangá
íer frá Dublial í dag tij Arctwerpen,
Rotteixiam, Hamborgar og Hull. Selá
kom til Rvíkur 28. frá HuU. Brittann
iró frá Reykjavík 2. til Akureyrar,
Biglufjarðar, Raufarhafnar, Norðfjarð
ur. Breiðdalsvíkur og Reyðarfjarðar.
Jörgeiwesta er væntaniegrt til Rvikur
í dag. Gevabulk fór frá Seyðisfiröi 2.
til Hamborgar og Cuxhaven.
Flugfélag íslands b.f. MUlilandaflug:
Gullfaxi fer til London kt. 08:00 1
dag. Vélin er væntanleg aftur tU
Rvíkur kl. 19:25 i dag. Fiugvélin fer
til Glasgow og Kaupmannahafnar kl.
08:00 á morguin. Sólfaxi fer til Osió
og Kaupmantcahafnar kl. 06:30 í dag.
Vélin er væntanleg aftiur til Rvíkur
IlJ. 15:20 á morgun.
lnnanlandsflug: í dag er áætlað að
fijúga tií Akureyrar (2 ferðir), Vest-
mannæyja (2 ferðir), Homafjarðar,
ísafjarðar og Egilætaða.
H.f. Eimskipafélag íslands: Bakka-
íoss fór frá Norðfirði 31. til Hauge-
bund og LysekU. Brúarfoss fer frá
ÍÍY 10. þm. tU Rvíkur. Dettifoss fór
#rá Gautaborg 2. þm. tid Tönsberg,
Beyðisfjarðar og Rvíkur. Fjailfoss fer
írá Norðfirði 1 dag 3 þm. tU Seyðis-
íjarðar og Reykjavikur. Goðafoss fór
árá Rvtk 31. fm. til Grimsby, Ro-
otock og Hamborgar. Gullfoss fór frá
Kaupmannaböfn 2. þm. feii Leitb og
itvikAir. Lagarfoss fer frá Kotka 4.
þm. ta Gdynia og Rvikiur. Mána-
toss fer fná Rvfk 3. þm. tál þingeyr-
*U. fUatieyrar ag isafjarðar. Reykjafoss
fór frá Mjóafirði I dag 3. þm. til
Stöðvarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar og
Seyðisfjarðar. Selfoss fór frá Vest-
mamnaeyjum 1. þm. tU Gloucester,
Baitimore og NY. Skógafoss fór frá
Hamborg 2. þm. tU Rvikur. Tungu-
foss fer frá Hamborg í dag 3. þm.
tU Antwerpen. Askja fer frá Akur-
eyri 4. þm. tU Siglufjarðar og Aust-
fjarðarhafna. Rannö fer frá Kotka í
dag 3. þm. til Kaupmannahafnar.
Agrotai fer frá London í dag 3. þm.
til Hull. Dux fór frá Seyðisfirði 2.
þm. til HuH. Irish Rose fer frá Húsa
vík 3 þm. tU Akureyrar. Keppo fer
frá Vestmannaeyjum í dag 3. þm.
til Riga. Gunvör Strömer er í Rvík.
Tantzen fer frá NY 9. þm. til Rvikur.
NÝTT fræðslurit er komið út á
vegum Krabbameinsfélags Rvík.
Nefnist það „Tóbak og áhrif
þess“ og er eftir Níels heit. Dun-
gal prófessor. Skólar og aðrar
stofnanir eiga kost á að fá ritið
ókeypis.
Barnablaðið „Æskan" hefir
fengið heimild til þess að birta
kafla og myndir úr ritinu Og
var hinn fyrsti þeirra endur-
prentaður hér í blaðinu í gær.
VÍSUKORN
Hólt er fyrir höfðingslund
hennar mátt ei njóta,
en ef að þú sérð auman hund,
á hann máttu þjóta.
SkallL
Gengið X-
Reykjavík 27. október 1966. Kaup Sala
1 Sterlingspund 119,88 120,18
1 Bandar. dollar 42.95 43.06
1 KanadadoLlar 39,80 39,91
100 Danskajr krónur 622,30 623,90
100 Norskar krónur 601,32 602,86
100 Sænskai* krónur 830,45 832,60
100 Finsk mörk 1.335.30 1.338.72
100 FT. frankar 868,95 871,19
100 Belg. frankar 85,93 86,15
100 Svissn. frankar 990,50 993,06
100 Gyllini 1.186,44 1.186,50
100 Tékkn. kr. 596.40 598,00
1()0 V.-þýzk mörk 1.080,15 1.082,91
100 Austurr. sch. 166,18 166,60
100 Pesetar 71,60 71,80
Skammdegið fer í hönd. Börn
eiga ekki heima á götunni.
Verndið börnin gegn hættum og
freistingum götunar og stuðlið
með því að bættum siðum og
betra heimilislífi.
arsjóðs fyrir árið 1966, er féllu í gjalddaga 1. júlí
s.l., tekin lögtaki, ef þau verða eigi að fullu greidd
að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar aug-
lýsingar.
Reykjavík, 1. nóvember 1966.
Kr. Kristjánsson, yfirborgarfógeti.
Byggingar-
tæknifræðingur
óskast til að gegna starfi byggingafulltrúa í
Keflavík. Laun samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna. Umsóknir sendist skrifstofu minni
Bæjarstjórinn í Keflavík.
Vörumarkaður
Munið vörumarkaðinn í Breiðfirðingabúð.
Kápur, kjólar og annar kven- og barnafatnaður.
MJÖG ÓDVRT. — SÍÐASTI DAGUR.
VÖRUMARKAÐURINN.
Hafnarfjörður
Trésmiður eða laghentur maður óskast.
Timburverzlunifli Dvergur sf.