Morgunblaðið - 04.11.1966, Síða 17
FBstudfagur 4L nflv. Í999
MORGUNBLAÐIÐ
17
vini og nágranna. En lán er ekki
lengur en léð er. Guðni dó í
nóvember 1964, og þá var dimmt
yfir heimili Helgu, en áfram var
haldið að rækja skyldurnar við
lifið og starfið meðan dagur var.
Helga var fjarska vel vinnandi
kona og kom ótrúlega miklu í
verk. Á unga aldri átti hún ynd-
islega dvöl í Varmahlíð undir
Eyjafjöllum við að læra fata-
saum hjá vinkonu sinni, önnu
Einarsdóttur, síðar húsfreyju á
Yzta-Skála. Vefari var Helga
mikill og góður, og prjónles henn
ar hlýjaði ótrúlega mörgum
höndum og fótum. Það vita þeir
bezt, sem kynntust Helgu síð-
ustu ár hennar í Skógum og
sáu sokka- og vettlingaplöggin,
sem felld voru af prjónum henn-
ar daglangt — ög mér liggur við
að segja: náttlangt — árið um
kring. Fyrir mörgum var hugs-
að, skyldum og vandalausum,
með þeim hætti. Svo ágætt sem
þetta allt var, er þó miklu meira
vert um það, sem bar önnina
uppi, „kóngborna sál“. Það varð
öllum gott í geði, sem komu
inn í herbergið hennar Helgu
austur í Skógum. Öllum var
fagnað með innilegri hlýju og
með frjálsum, glöðum samræð-
um um líðandi stund og liðna
daga. Skólabörnin og börnin í
Skógum rötuðu að rúmi Helgu
og áttu í henni ömmu og móð-
ur.
Helga var vitur kona og við-
sýn .Hún varð fyrir miklum S- '
föllum með heilsu sína á efri
árum, en andinn stóðst allur
raunir, og á honum var aldrei
nein ellimörk að finna.
Helga og Guðni áttu miklu
barnláni að fagna. Börn þeirra
eru: Þórarinn læknir, giftur Sig-
ríði Theódórsdóttur, Bergþóra,
gift Sigurði Guðmundssyni skóla
stjóra, Þórhalla, gift Óskari Lár-
ussyni bifreiðarstjóra, og Guð-
rún hjúkrunarkona, gift Kára
Sigfússyni viðskiptafræðingú
Elztu börn þeirra hjóna, tví-
burar, dóu kornung.
Helga frá Krossi dó í Lands-
spítalanum þann 25. októberi
Með virðingu og þökk er nún
kvödd af öllum samferðamönn-
um, sem hún auðgaði með lífi
sínu. Hún var sannur vinur vina
sinna og bað þeim blessunar i
bænum sínum. Blessuð er og
verður minning hennar.
Þórður Tómasson.
%/vaaopea
TRÆT0FLER "
Til trætte fodder
Stotter foden anatomisk korrekt
Det hvide perforerede skind
giver behagelig ventilation
Hvid gunimisál
BUXNADRAGTIR
PILS og JAKKAR
NÝTT FRÁ LONDON.
LAUGAVEGI 116.
ENSKAR
KÁPUR
OG PELSAR
POPLÍN-
KÁPUR
KÁPUR
LAUGAVEGI 116
Helgo María Þor-
bergsdóttir - Minning
HEIjGA MARIA Þorbergsdóttir
er horfin úr hópnum, og skarðið
er stórt eftir þá blessuðu heiðurs
konu. Ævi hennar byrjaði aust-
ur í Skógum í Mjóafirði. Þar
fæddist hún 23. júní 1885, dóttir
Þorbergs Jónssonar, ættaðs úr
Þingeyjarsýslu, og Jórunnar
ICetilsdóttur frá Ásólfsskála und-
ir Eyjafjöllum. Hátt á þriðja ári
fluttist hún með mömmu sinni
sjóveg austan frá Mjóafirði til
Vestmannaeyja, á leið til Eyja-
fjalla. Lenti skipið þá í háska-
veðrinu, sem Eyfellingar nefndu
pálmaveður, en það svipti hefð-
arsetrið Holt undir Eyjafjöllum
kirkju sinni og gaf hana bæ Ás-
ólfs alskiks á Austasta-Ásólfs-
skála.
Jórunn, móðir Helgu, dvaldi
með hana á ýmsum stöðum und-
ir Eyjafjöllum og í Austur-Land
eyjum, lengst á Seljalandi, Búð-
arhóli og á Seli. Þau þrjú heim-
ili urðu henni skóli. Á Seljalandi
hjá Sigurði frá Barkarstöðum
var hún í þjóðbraut á glaðværu
menningarheimili, sem gaf henni
gott veganesi. Þar lærði hún
m.a. kvæði, sálma og söngva, er
var óþrotlegur fjársjóður. Á
Búðarhóli batzt hún vinakynn-
um við leikfélaga, er hún unni
til hinztu stundar, Bjarna á
ILaugarvatni, Oddnýju læknis-
frú á Stórólfshvoli, Jórunni móð
ursystur mína og fleiri. Hjá
Valtý Brandssyni og Guðbjörgu
Guðmundsdóttur á Seli óx hún
upp til þess að verða álit.leg
stúlka, vel verki farin og hvers
manns hugljúfi. Augu margra
ungra manna horfðu þá að Seli,
en ungur Vestur-Landeyingur,
Guðni Gíslason í Gerðum (f. 26.
10. 1879), bar sigur úr býtum.
Guðni í Gerðum var ákaflega
aðlaðandi maður í kynnum og
að sama skapi prýðilega gefinn,
trúmaður og trúrækinn svo að af
bar. Hann byggði sér bæi í
æsku líkt og önnur börn, en bær
hans var aldrei kirkjulaus. Hon-
um bar því vel í veiði, er Kross
í Landeyjum, hálflendan, losnaði
1925 við fráfall séra Þorsteins
Benediktssonar. Sótti hann um
jörðina og fékk sér byggða.
Fluttu þau Guðni og Helga með
börn sín og bú sitt að Krossi í
fardögum 1925 og settust að í
íbúðarhúsi séra Þorsteins, á
Lundi, þar sem þau bjuggu til
3901, er búi var brugðið. Minnt-
ust þau jafnan landsdrottna
sinna með miklum hlýhug,
mæðgnanna Höllu Bjarnadóttur
frá Fitjamýri og Sigríðar Sveins-
dóttur á Nönnugötu 1A í Reykja
vík. Séra Þorsteinn átti sjálfur
góðan hlut að því, að þau kom-
ust að Krossi. Var það þakkar-
efni, sem ekki gleymdist.
Jórunn móðir Helgu flutti með
þeim hjónum að Krossi. Studdi
hún þau af frábærri dyggð, með-
an kraftar entust. Hún dó 1934.
Guðni og Helga á Krossi voru
víðkunn fyrir gestrisni. Þau voru
víst aldrei rík á veraldarvísu en
þeim mun auðugri að manngæð-
um. Mannkvæmt var á Krossi á
messudögum.
Samkomuhús sveitarinnar var
líka á Krossi. Þar var þá mið-
depill sveitarinnar, og öllum var
opið hús hjá Helgu og Guðna og
þar hlýnaði áreiðanlega öllum
fyrir brjósti af veitingum og við
móti húsráðenda. Minnist ég þá
orða hins vitra manns, Sæmund-
ar Ólafssonar á Lágafelli, er
hann sagði við Helgu. Hún hafði
annazt venzlamann hans í dauða
stríði. Hafði hann átt gullpen-
ing í fórum sínum. Sæmundur
gaf Helgu hann með þessum
orðum: „Þú átt að eiga þetta,
Helga mín, þú ert gull sjálf“.
Á hlaðinu á Krossi stendur
hin fornhelga kirkja og þar
gleymdist þeim hjónum ekki að
lofa guð og tilbiðja, og hann
var einnig lofaður og tilbeðinn
i daganna önn allt til æviloka.
Oft minntist Guðni háleitra helgi
stunda, sem hann átti í kirkju
sinni, einn með guði sínum og
Frelsara.
Svo tók að halla undan fæti
og heilsan að bila. Gömlu hjón-
in voru ein eftir á Lundi. Þá
lá leiðin austur að Skógafossi, í
barnaskólann í Skógum til góðr-
ar dóttur, Bergþóru, manns
hennar, Sigurðar Guðmundsson-
ar skólastjóra og barna þeirra,
sem öll gerðu þeim ævikvöldið
bjart. Ég man, að Guðni sendi
þaðan kunningja sinum, Krist-
jáni Eldjárn þjóðminjaverði,
þessa stöku:
Ef þú, Eldjárn, átt hér leið
með Eyjafjöllum,
heilsaðu upp á karl frá Krossi,
sem kominn er austur að
Skógafossi.
Þar undu þau hjónin vel sam-
veru og sambúð við vandamenn,
KULDASKÓR
r _ __r___ ' r
GUMMISTIGVEL
OG HOSUR
LAUGAVEGI 116
AUSTURSTRÆTI 10
KARLMANNASKÖR
AUSTURSTRÆTI 6.
AU STURSTRÆTI 10