Morgunblaðið - 27.11.1966, Qupperneq 2
2
MORGU N ELAÐIÐ
Sunnudagur 27. nóv. 1966
Steinsteypustöplar undir bræðsluofnunum á Húsnesi.
— Albræðsla
Framhald af bls. 1
ferm. En gólfflötur bygging-
anna er samtals 50.000 fermetr
ar.
Til 'þess að framleiða 60.000
lestir af áli þarf 120.000 lest-
ir af ál-oxydi og 900 GWh raf-
magns, auk 30.000 lesta af
„anóðum“ og 3.00 lestum af
„elektrolyt". Og svo þarf 700
lítra af vatni (eða sjó) á hverri
sekúndu, en það er álíka mik-
ið og Bergensbúar nota. Yatn-
ið er leitt úr Onarheimsá, sem
er skammt frá verksmiðjunni,
en í viðlögum má dæia því úr
stöðuvatni sem er alveg hiá.
Til „reykþvottar“ (þ.e. hreins-
unar á reyknum frá bræðsi-
unni) er notaður sjór. Fjórar
dælur geta dælt upp 520 lítr-
um af sjó á sekúndu, til þess
að „binda reykinn“.
Bryggjan er 240 metra long
og dýpi við hana minnst 12
metrar, enda er gert ráð fyrir
að skipin, sem flytja efnið til
og frá bræðslunni séu minnst
1)5.000 brúttólestir. Geymslu-
skáli með 9000 fermetra gólf-
fleti er við höfnina og frá hon-
um er strengbraut á stólpum
að ál-oxyd-geymi við bræðslu
VTÐR.’EÐUR í BONN
Bonn, 24. nóv. — NTB —
Viðræðum um hugsanlega
stjórnarmyndun í Vestur-
Þýzkalandá var haldið áfram
l Bonn í dag. Ræddu fulltrú-
ar kristilegra demókrata við
fnjálsa demókrata um nýja
skálana: hann er 34 m. í þver-
mál og 54 m. hár og tekur
30.000 rúmmetra. Færibandið
milli hafnarinnar og geymisins
flytur 450 lestir á klukkustund.
Nú skal vikið að verksmiðj-
unni sjálfrL Þar rekur maður
fyrst og fremst augun í hina
stjórnarsamvinnu, en ekki
virðist hafa miðað neitt í sam
komulagsátt. Einnig ræddi
Kurt Kiesinger, kanzlaraefni
kristilegra demókrata, við
Willy Brandt, borgarstjóra
Vestur-Berlínar og leiðtoga
jafnaðarmanna.
löngu og mjóu bræðsluskála.
Annar er 630 metra langur,
með 120 ofnum en hinn 480
metrar og þar eru 90 ofnar.
Þeir eru 28 melra breiðir og
tvær hæðir og eru ofnarnir á
efri hæðinni og standa á ramm
byggilegum steinsteypustöpl-
um, sem ganga gegnum neðri
hæðina.
Til hliðar við bræðsluskál-
ana eru um tíu byggingar til
ýmsra nota, svo sem verkstæði
til þess að búa til „anódur“,
en af þeim þarf 300 á dag.
Þarna er efnarannsóknastofa
og verkstæði til allra viðgerða,
birgðaskáli og loks skrifstofu-
bygging og bygging fyrir mötu
neyti handa 400 manns. En ál-
oxyd-geymirinn, sem áður var
nefndur, gnæfir yfir allar þess-
ar byggingar.
Byrjað var á byggingu þess-
ara mannvirkja undir árslok
1963 en ári síðar var hafnar
bryggjan fullgerð og grunn-
vinnu lokið á byggingalóðinnL
Fyrri bræðsluskálabyggingin
var tilbúin L nóv. í fyrra,
tveim mánuðum á undan áætl
un. Var þá tekið til við síðari
skálann og hann tekinn í notk
un í haust, og 12. okt. tók
bræðslan að fullu til starfa.
Meðan verksmiðjan var í
byggingu störfuðu þar frá 450
til 1300 manns. En við dagleg-
an rekstur ál-bræðslunnar
starfa 485 manns, 380 verka-
menn og 105 aðrir starfsmenn.
Fyrirtækið byggði 30 hús
handa starfsmönnum, sem ekki
hafa ráðið við sig hvort þeir
ætla að starfa til lengdar á
Húsnesi. En að öðru leyti hef-
ur, það gengist fyrir stofnun
byggingafélags til þess að
koma upp 100 raðhúsum
skammt frá verksmiðjunni,
sem starfsmenn eignist sjálfir.
32 af þessum húsum eru kom-
in upp, en 3 bætast við á hverj
um mánuði.
Byggingarnar og tæki í verk
smiðjunni kostuðu 360 milljón
n-kr. eða 250 milljónir um-
; fram hlutáféð. Sú upphæð hef
rrr verið fengin með stuttum
byggingalánum — 75 milljónir,
lánsfresti á efni og tækjum í
Noregi og erlendis — 125 milij
ónir og 60 milljóna erlendu
lánL
GJAX.DEYRISTEKJURNAR
AUKAST UM 100 MDLAJ.
N. KR.
Með tilkomu Húsnes-bræðsl
unnar bætast 60.000 lestir við
ál-framleiðslu Noregs, eða yfir
20%, og þessi viðauki eykur
g j aldeyristekjur þjóðarinnar
um 100 milljón n-krónur. Þess
ar 100 milljónir eru munurinn
á verði 'hins fullunna áls og
verði ál-oxydsins og öðrum er-
lendum kostnaðL
Á þessu ári mun álframleiðsl
an í Noregi nema kringum
340.000 lestum og hefur þann-
ið 2,5 faldast á 6—7 árum. En
hér er ekki neinnar kyrrstöðu
að vænta, því að nú eru tvö
ný stórfyrirtæki í uppsiglingu,
og þau sem fyrir eru ætla að
færa út kvíarnar, eins og s.'á
má af ráðstöfunum þeim sem
þau hafa gert til þess að fá
aukið orkumagn innan
skamms.
Nýju félögin heita A/S ATj-
NOR og Lista Verk. í>að fyrra
byggir ál-bræðslu á Körmt
(Karmöy) við Haugasund cg
tekur til starfa 1968. Aðaleig-
andi ALíNOR er Norsk Hydro,
sem sjálft á rafstöðvar, sem
nú hafa rafmagn afganga
vegna breyttra framleiðsluað-
ferða við köfnunarefnisvinnnsl
una. ALNOR gorir ráð fyrir að
nota 887 MWh raforku árlega
fyrstu tvö árin, en auka síðan
ál-vinnsluna í þrem áföngum,
þannig að orkunotkunin verði
komin upp í 1946 MWh í byrj-
un 1973. En það svarar til rúm-
lega 100.000 lesta ál-fram-
leiðslu. — Hitt nýja fyrirtækið,
Lista Verk, tekur til starfa
1970, en álbræðsla þess verður
skammt frá Farsund í S.-Nor-
egi. Þar verður byrjað með
500 MWh raforku en það stend
tir til að þrefalda orkuþörfina.
.Norska fyrirtækið „Elektro-
kemisk Industri“ er aðaleig-
andi þessa fyrirtækis. (Það er
; eigandi að % í MOSAL),
En hin fyrirtækin færa út
kvíarnar. Ekki sízt „Árdal og
Sunndal Verk“, hið opinbera
fyrirtæki, sem í dag eyðir 3410
GWh í ál-bræðslu. Árið 1970
ætlar það sér að eyða 5260
GWh — eða auka framleiðsi-
una sem svarar yfir 50% auk-
innar orkunotkunar. —
Samtals nota þau ál-iðjuver,
sem nú starfa í Noregi, 6700
GWh af rafmagni, en áætlun
þeirra næstu fimm árin hljóð-
ar á þá leið, að þau verði að
auka rafmagnseyðsluna upp 1
10400 GWh, eða um rúmlega
50% frá því sem nú er. Fram-
sóknin hjá éinkafyrirtækjun-
um er því viðlíka mikil og hjá
hinu opinbera ál-fyrirtæki Ár-
dal og Sunndal Verk.
Þetta fyrirtæki, sem er hið
stærsta í Noregi, notar orku
frá NVE (Norges Vassdrags-
og Elebtrisitetsvesen — Raf-
orkumálastofnun ríkisins) og
frá eigin stöð, sem er eign fé-
lagsins og því er sú stöð raun
verulega ríkiseign líka. En rík
isstöðvarnar sjá líka hinum
stærstu ál-bræðslunum fyrir
orku, bæði MOSAL, SÖRAL
(Húsnesi), LISTA Verk, og
þessvegna kemur meiri hluti
álorkunnar frá norska ríkinu.
ALNOR er þar undantekning,
sem stafar af því að Norsls
Hydro átti raforku fyrir.
★
Raforkuframleiðsla Noregs
hefur fjórfaldast síðan 1939
og var síðasta áæ 46697 GWh,
en af því fóru 18740 til „orku-
freks iðnaðar“, þ.e.a.s. „elektro
kemisk og metallurgisk indust
ri“. Það sýnir aðstöðu ál-vinnsl
unnar að hún notar meira en
þriðjung þessarar orku og vill
á næstunni fá 50% í viðbót.
Þegar Titan-ráðgerðir Einars
Benediktssonar voru á dagskrá
fyrir fimmtíu árum, var ávallt
talað um að nota orkuna úr
Þjórsá til ál-vinnslu. Þar kom
fram spádómsgáfa skáldsins.
Ál-iðjan í Noregi var á svo
miklu frumstigi 1 þá daga, að
um aðrar leiðir var að ræða
til þess að mala gull úr fall-
andi vatni. En í þessu efni varð
Einar spámaður í sínu föður-
landi, eftir dauðann. Hann var
orðinn það á öðrum vettvangi
áður en hann dó.
Skúli Skúlason.
Sjálfvirk þvottavél. — Tekur 3—4 kg.
Electrolux
10,2 cbf. (285 lítra).
Frystihólf: 45 litra.
Kælir: 240 lítra.
Verð kr. 17.698,00.
7,5 cbf. (215 lítra).
Verð kr. 11.712,00.
HllalHHHBff
Uppþvottavél.
Kr. 12.906,00.
Frystikistur með
hraðfrystihólfi.
255, 355 og 510 lítra.
Mjög hagkvæmt verð.
Hansabúðin
Laugavegi 69. — Símar 21-800 og 11-616.