Morgunblaðið - 27.11.1966, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 27.11.1966, Blaðsíða 15
Sunrrtidagur 27. nAv. 1966 MORGUNBLAÐIÐ 13 — Veiðiloggjöf Framiiald aí bis. 12 ræktar, til athugunar. Slíkur sjóður, ef stofnaður yrði, þyrfti ekki endilega að vera bundinn í lögum um lax- og sliungsveiði, aðrar leiðir væru athugandi. Lét ég í ljós þá skoðun fyrir hönd okkar sambandsfélaga, að við hefð- um í mörg undanfarin ár, eins og ráðherra væri kunn- ugt um, barizt fyrir þessari sjóðsmyndun, og hver tilgsmg urinn með honum ætti að vera. Hefðum við talið það æskilegast, að kaflinn um hann stæði í laxveiðilöggjöf- inni, þótt við værum ekki á móti myndun hans í öðru formi; aðeins, að hann næði þeim tilgangi, sem honum væri ætlað samkv. tillögunni. Ræddi ég einnig um, hvernig slíkir sjóðir væru til komnir, m. a. í nágrannalöndum vor- um. Skal tekið fram, að ráð- herrann virtist hlynntur því, að mál þetta yrði leyst fyrr en seinna, enda kom hann inn á það í framsöguræðu sinni á Alþingi, þánn 14. marz s.l., er hann mælti fyrir breytingu á lögum um lax- og silungsveiði, en við vor- um áheyrendur að, bæði ég og ritari sambandsins. Frum- varpinu var vísað til landbún aðarnefndar neðri deildar. Formaður átti þá þegar við- ræður við formann nefndar- innar, Gunnair Gíslason, sem gerði þá ráð fyrir, að senni- lega mundi það dragast, að nefndin tæki frumvarpið fyrir, og vafasamt, þó að það yrði gert, að það myndi koma úr nefnd á því þingi. Stjórn L.Í.S. tók frumvarpið til athugunar í aprílmán., og lagði þegar breytingar við það fyrir formann nefndar- innar. Nú í byrjun nóv. mán. barst svo bréf landbúnaðar- nefndar neðri deildar, dags. 31. okt, þar sem nefndin ósk ar eftir umsögn stjórnar L.f.S. um frumvarpið, og óskar svars við fyrsta tækifæri. Eins og áður er sagt, var stjórnin þegar búin að leggja fram sínar athugasemdir við frumvarpið, og hefur þegar staðfest bréf það, er hún skrifaði nefndinni þann 20. apríl s.L, sem er á þessa leið: Fyrir háttvirtu Alþingi liggur nú frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 53, 5. júní 1957, um lax- og sil- ungsveiði, sem við höfum fengið að fylgjast með hjá Veiðimálanefnd. Frumvarp þetta teljum við ganga í rétta átt samkvæmt þeirri reynslu, sem fengizt hefur frá því, að lögin frá 1957 gengu í gildi, og von- umst við til þess, að það nái fram að ganga á Alþingi því, er nú situr, enda þótt við teljum það að mörgu leyti ná of skammt, en um það verður ekki rætt hér. Þó viljum við biðja hátt- virta landbúnaðarnefnd, sem hefur frumvarp þetta til um- sagnar, að taka til athugun- ar eftirfarandi orðalags- breytingar. 1. í 15. gr. frumvapsins I 4 línu, á eftir „skal Veiði- / málastjóri" komi, með sam- þykki Veiðimálanefndar" gefa út viðurkenningu á eldsstöð- um.“ 2. f 19. gr. frumvarpsins 1. línu á eftir „í Veiðimála- nefnd eiga sæti 5 menn. Ráð- herra skipar nefndina", hér komi til 4ra ára í senn. Þá hörmum við það, að til- lögur Veiðimálanefndar um stofnun fiskiræktarsjóðs eru ekki teknar upp í frumvarp- ið. Landssamband ísl. stanga- veiðimanna hefur um mörg undanfarin ár unnið að því, að slíkur sjóður yrði stofn- aður, og teljum við brýna nauðsyn á, að það verði gert. Við leggjum því eindregið til, að háttvirt landbúnaðar- nefnd taki tillögur Veiði- málanefndar upp í frumvarp það, sem nú liggur fyrir. Þar sem okkur er málið skylt í sambandi við framkomnar til- lögur Veiðimálanefndar hef- ur form. L.f.S. átt um þær lauslegar viðræður við form. landbúnaðarnefndar neðri deildar, og væri okkur það sönn ánægja að eiga viðræð- ur við háttvirta landbúnaðar- nefnd um þessi máL Virðingarfyllst, f.h. stjórnar Landssamb. ísl. stangveiðim. Með bréfi þessu fylgdu og tillögur L.Í.S. um stofnun fiskræktarsjóðs og urh tekju öflun sjóðsins, er lagðar voru fyrir landbúnaðarráðuneytið 1963, ásamt rökstuddri grein argerð. Félag áhugamanna um fiskrækt í sambandi við það, sem hér er að framan sagt, þyk- ir mér rétt að geta nýstofn- aðs félags, sem er Félag á- hugamanna um fiskrækt. Stofnfundi stýrði Bragi Ei ríksson, framkvæmdastjórL Fundinn sátu m.a. Steingrím- ur Henmannsson, fram- kvæmdastjóri Rannsóknar- ráðs ríkisins, svo og forráða- menn eftirtaldra klak- og eldistöðva: Keldur við Reykjavík, próf. Snorri Hallgrímsson; Laxalóni, við Reykjavík, Skúli Pálsson; Lárvík, Snæfelknesi, Ing- ólfur Bjarnason og Jón Sveins son. Einnig voru mættir al- þingismenn Vesturlandskjör- dæmis og Norðurlandskjör- dæmis eystra, en þeir fíuttu tillögu til þings um stofnun klak- og eldisstöðvar fyrir laxfiska á Norðurlandi. Fundurinn snerist um vænt anlegan undirbúning að auk- inni samvinnu eigenda klak- og eldisstöðva, meiri upplýs- ingar um varnir gegn sjúk- dómum, er kunna að koma I vatnafiskstofninn, svo og möguleika á rekstrarláni fyr ir eldisstöðvarnar til að kom ast yfir byrjunarörðugleika. Útbreiðslufund hélt félag þetta hér í Reykjavík fyrir nokkrum dögum. Fréttir af þeim fundi hafa birzt í blöð- um borgarinnar. Formaður þess er Bragi Eiríksson, fram kvæmdastjóri. Nordisk Sportfiskerunion Samkvæmt samþykkt aðal- fundar sótti stjórnin um upp töku í Norræna sportveiði- sambandið (Nordisk Sport- fiskerunion — N.S.U.). í janúarmánuði barst okkur bréf frá formanni ráðsins, Erik Christoffersen. Taldi hann engin vandkvæði á, að okkar samtök yrðu velkomin í sambandið. Nú fyrir nokkrum dögum barst okkur svo annað bréf, þar sem formaður tilkynnti, að á fundi í Stokkhólmi hefði L.f.S. verið formlega sam- þykkt sem meðlimur í N.S.U. Ferðamálaráðstefna Ferðamálaráðstefnan var haldin á Akureyri 6. og 7. maí sl. Þátttakendur voru mættir frá sömu aðilum, er sátu fyrstu ráðstefnuna, á Þingvöllum, í maí 1965. Stjórn L.Í.S. fól formanni að mæta á ráðstefnunni, en hún var sett að Hótel K.E.A., föstudaginn 6. maí af for- manni Ferðamálaráðs, Lúð- vík Hjálmtýssyni. Fundar- stjóri var kjörinn Sigurður Magnússon, fulltrúi hjá Loft leiðum. Því var beint til Ferðamála ráðs að athuga, sem hverju móti megi gefa almenningi kost á afnotum veiðivatna á afréttarlöndum, svo og, hvemig komið verði á eftir- liti með verðlagi veiðileyfa, og, að einstök vötn verði ekki eyðilögð með ofveiði Yeiðimálin, og verðlag á ám og vötnum, var mikið rætt. Lokaorð Stjórnin hefur unnið að fleiri verkefnum fyrir með- limafélögin, og jafnvel aðila utan samtakanna, m.a. með útvegun hrogna, svo og klak- og eldisseiða, og séð um fyr- irgreiðslu á gerla- og efna- rannsóknum á vatnsprufum úr ám og vötnum fyrir ýmsa aðila, svo að nokkuð sé nefnt. í Landssambandinu eru nú 21 stangaveiðifélag, auk eins einstaklings. Sambandið hef- ur starfað í 16 ár, og er þetta 15. aðalfundur þess. Samþykktar tillögur Eins og fyrr greinir, voru tvær tillögur samþykktar á fundinum, og fjalila þær báð- ar um fiskræktarmáL Fyrri tillagan, sem borin var fram af stjórn L.Í.S., &r á þessa leið: „Aðalfundur L.Í.S., hald- inn að Hótel Sögu, Reykja- vík, 20. dag nóvembermánað- ar 1966, lýsir óánægju sinni yfir þvf að tililögur sambands ins, svo og Veiðimáianefndar, um stofnun Fiiskræktarsjóðs, og styrkveitingar til fiskrækt- ar hafa verið dregnar út úr írumv. til laga um breytingu á lögum nr. 53., frá 5. jlúná 1957, um lax- og silungsveiðar, sem liggur fyrir Alþingi. Felur fundurinn stjórn sambandsins að vinna áfram að þtvá, að slák ur sjóður verði stofnaður til eflingar vatnafiskaMfinu 1 landinu“. Síðari tillagan var á þessa lei'ð: „Aðalfundur L.Í.S. haldinn að Hótel Sögu sunnudaginn 20. nóv. 1966, skorar á Al- þingi, sem nú situr, og fjár- veitingarnefnd Alþingis, að veita ríflega fjárupphæð til styrktar fiskræktarstöðvum I landinu, og jafnframt hl.ut- ast til um, að slikar stöðvar geti fengfð hagkvæm stofn- lán.“ Tillögumenn voru Jón Sveinsson, Ingólfur Bjarna- son og Bragi Eiríksson. KRAKKAR! Loksins er það komið til íslands. Vinsælasta leiktækið í Ameríku. „Hogo Pogo“ töfraprlkið Útsölustaður: Leikfangasalan Hafnarstræti 7 Kvennadeild Slysavarnafélagsins í Reykjavík HLUTAVELTA verður í LISTAMANNASKÁLANUM í DAG ... og hefst kl. 2. Ágætir munir — IVIálefnið gott ÍENGLISH ELECTRIC LIBERATOR Sjálfvirka - þvottavélin heitt eða kalt vatn til áfyllingar. ★ stillanleg fyrir 8 mismun- andi gerðir aí þvottL ★ hitar — þvær — 3-4 skol ar vindur. ★ Verð kr. 19.850.— Sjálfvirki þurrkarinn it sjálfvirk tímastilling allt að 90 mín. if aðeins tveir stillihnapp- ar og þó algerlega sjálf- virkur. ic fáanlegur með eða i útklástursslöngu. + Verð kr. 12.950,— ★ AFKÖST: 3J4 KG. AF MJRRUM ÞVOTTI í EINU. ★ INNBYGGÐUR HJÓLABÚNAÐUR. ★ EINS ÁRS ÁBYRGÐ — VARAHLUTA- OG VIB- GERÐAÞJÓNUSTA. ocpCBbzi lougavegi 178 Sfmi 38000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.