Morgunblaðið - 27.11.1966, Page 9
Sunnudagur 27. nóv. 1966
MORGU N BLAÐIÐ
9
KANARÍEYJAR
>f
Glœsihg hópferð
l S' J...
Aramófin 1966-67
X~
16 DAGA SÓLSKIN SFERÐ
Notið tækifærið og farið ! skemmtilega baðstrandar og hvíldarferð í svart-
•sta skammdeginu. Aldrei er meira um að vera á Kanaríeyjum en einmitt
um jólaleytið, enda er það eftirsóttasti baðstaður Evrópu á þeim tíma árs.
Veðrið er hlýtt og hægt að synda í sjónum, þó hávetur sé hér heima.
Við dveljum á fyrsta flokks hóteli Belair í Puerto de la Cruz, sem er helzti bað
•taður á Tenerife. Öll herbergi eru með baði og svölum. í Kaupmannahöfn
verður dvalist á Hotel Imperial og einnig þar eru öll herbergi með baði.
Lagt verður af stað frá Reykjavík að morgni 28. des. og komið til London
um miðjan dag og verður gist þar um nóttina. Næsta dag verður flogið til
Kanaríeyja. Dvalist verður um kyrrt þar í ellefu nætur og síðan flogið til
Kaupmannahafnar, hinnar glaðværu og skemmtilegu borgar. Þar verður
dvalist í þrjár nætur og flogið heim til íslands á sextánda degi ferðarinnar,
þann 12. janúar.
Fararstjóri í ferðinni verður Guðmundur Steinsson. Verð ferðarinnar kr.
22.800,00. Þeir sem óska geta komið heim um London í stað Kaupmanna-
hafnar. — Hringið og fáið frekari upplýsingar.
LÖND OG LERÐIR Rfl.F.
AÐALSTRÆTI 8 — SÍMAR 24313 og 20800.
Málverk asýning
Sdlveigar
í Bogasal Þjóðminjasafnsins lýknr í kvöld.
BAHCO Iðnaðarviftan
sogar, loft, reyk, svarf,
agnir, duft, o.fl. frá
alls konar vélum og
tækjum.
Ótal auðveldir upp-
setningarmöguleikar.
Einnig faeranleg milli
véla eða vinnustaða.
— lan Fleming
Framih. af bls. 17.
sem hann skapaði. En James
Bond er ekki Ian Fleming í
neinni mynd. Hann er draum-
ur Flemings um, hvernig hann
hefði sjálfur getað verið, —
seigari, sterkari, áhrifameiri,
en miklu síður aðdáunarverð-
ur en hinn raunverulegi Flem-
ing. Þvi fleiri sameiginleg yfir-
borðseinkenni, sem hann gat
fundið með Bond og sjálfum
sér, peim mUn trúlegri var dag
draumur han; og af þessu leið-
ir sjálfsmyndin, sem víða skín
• út ur bókunum, sameinkenni í
klæóaburði, venjum og mál-
farL
Vnz hann skrifaði „Casino
Royale'*, hafði hugarheimur
hans verið mönnum hulinn, en
þessar fáu vikur að Goldeneye
skenxmti hann sér við að setja
nokkra af draumum sínum á
pappír. 1 þrá sinni eftir viður-
kenningu gaf hann út það, sem
hann hafði ritað, og í stað þess
að verða aðhlátursefni og sæta
ávítunum opinberlega fyrir af-
brotahneigð, var hann settur á
bekk með John Buchan og Eric
Ambler. Næstum allir virtust
hafa ánægju af uppfinningum
hans. Enginn gerði gys að hon
um. Enginn, sem máli skipti,
kvartaði. Með útgáfu „Casio
Royale" lagði almenningur
blessun sína yfir hinn leyni-
lega hugarheim Flemings.
Og þegar Bond hafði verið
fullmótaður, gat Fleming teflt
honum fram, eins og hann
hafði teflt fram fólki á stríðs-
árunum. Bond gat unnið allar
dáðir, sem hann sjálfan lang-
aði til að vinna, en einhvern
veginn höfðu farizt fyrir. Því
að Bond er maðurinn , sem
alltaf tekst það, sem Fleming
misheppnaðist.
BEZT AÐ AUGLÝSA í MORGUNBLAÐINU
Ómissandi við t.d. raf- og logsuðu, slípun, bíla-
viðgerðir (púst) og ótalmargt annað.
Fyigihlutir: Sog- og blástursbarkar, barkatengl, soghetta,
öryggisnet yfir sogop, sé viftan notuð án barka.
FYRSTA FLOKKS FRÁ
Sími 2-44-20
Suðurgata 10, Reykjavík.
F0NIX
' ' '.fí
-■ v| ■. . „ 4 -
- & : > 4 ■,
.
\\
* \
Henry .Thomas
Georg
Wasliinglon Carver.
Þetta er stutt ævisaga mikils
mannvinar. Hann fæddist í ánauð.
Þó átti fyrir honum að liggja að
verða einn af mestu vísindamönn-
um og velgerðarmönnum jarðar-
innar. Merkast var starf hans við
efnagreiningu jarðhnetanna. Áður
en haivn hóf tilraunir sínar með
jarðhnetuplöntuna var hún álitin
gagnslaus til annars en svínafóð-
urs, en að tilraunum hans loknum
hafði hann unnið úr jarðhnetunni
300 mismunandi efni. Og ræktun
jurtarinnar færði bændum Suður-
rikja Bandaríkjanna og raunar öll-
eftir M. Wilkins, Ari Amalds ís-
lenzkaSL — Sagan er falleg ástar-
saga frá Nýja Englandi í Banda-
rikjunum, en höfundurinn er kona
af enskum ættum. Lýsir höfundur
frábærlega vel fólkinu á Nýja
Englandi, skapferlí þess, viðhorfi
til lífsins og ævikjörum. — Sagan
er talin snilldarverk. — Þýðand-
inn, Ari Arnalds mun ávalt verða
talinn meðal hinna mikilhæfustu
manna sinnar tíðar, skarpgáfaður
og ritsnillingur, svo að af bar.
Verð kr. 193.50.
Bræ«Vurnir,
eftir Karen Plovgaard, ísl. þýðing:
Sigurður Þorsteinsson. — Þetta er
saga um landnám Eiríks rauða á
Grænlandi. Það er enginn smá-
flokkur, sem Eiríkur hefur safnað
að sér. Og hann saman stendur
ekki af útslitnum sjávarbændum,
sem aðeins hafa til hnífs og skeið-
ar. Þetta eru ríkir og stoltir bænd-
ur. — Þar er Eiríkur með konu
sinni Þórhildi, og börnum, Þor-
steini, LeifL Þorvaldi og Freydísi.
Og þar eru prestarnir Gunnar og
Patrekus. — Bókin er skemmtileg
og vel með efnið íarið.— Kr. 134.50.
til lífshamingju II.
Fyrra bindi þessarar bókar kom út
1954, og var sérstaklega vel tekið.
Siðan hefur látlaust verið spurt
um framhald hennar. Höfundurinn
á fjölda vina og aðdáenda um all-
an heim og þeim fjölgar ört með
ári hverju. — 1 þessari bók segir
hann m. a.: „Lífið er ekki I þvi
fólgið að flýja frá mönnum á náðir
einverunnar og hugsa aðeins um
Guð. Að flýja menn, er að flýja
þá reynslu og lífsfyllingu, er sam-
líf við aðra menn hlýtur óhjá-
kvæmilega að veita." — „Það er
ekki nóg að hugsa um hið góða.
Við verðum að framkvæma það,
ef það á að koma að fullum not-
um. — Lesið bókina — Gildi henn-
ar er varanlegt — Verð kr. 236.50.
wwwwwwwww
l«MR RMK luMnt wMR ^M^ ^MR
LEIFTUR
wwwwwwwww