Morgunblaðið - 12.01.1967, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1967.
Skrifstofufólk
Starfsfólk vantar til bankastarfa nú
þegar. Bæði karlmenn til ritara- og af-
greiðslustarfa.
greiðslustarfa og kvenfólk til vélritunar-
og afgreiðslustarfa.
Þægilegur vinnutími og góð kjör. Um-
sóknir, sem greini aldur, nám og fyrri
störf, sendist í pósthólf 903, merktar:
„Bankastörf — 8717“.
Bolt-Jörgensen
fyrrum sendiherra
Aðalsafnaöarfundur
Aðalsafnaðarfundur Kópavogssóknar
verður haldinn eftir messu kl. 2 sunnu-
daginn 15. janúar.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Safnaðarnefndin.
L. B. Bolt-Jörgensen fyrrverandi
sendiherra dvaldi hér á landi
lengst af á tím'abilinu frá
1949—'1965 með eiginkonu sinni
frú Bodil Begtrup, seim þá var
sendiherra Danmerkur á íslandi.
Þegar Bolt-Jörgensen kom
hingað til lands var hann orðinn
aldraður maður, hátt á sjötugs
aldri, fæddur 6. mara 1602, og
hafði sjálfur iátið af störfum í
dönsku utanríkisþjónustunni. í
æsku hafði hann lært til her-
mennsku og hlotið verðlaun fyr-
ir vísindalegar ritgerðir um þau
fræði. Hann hvarf þó að eigin
ósk af þeirri braut á árinu 1910
og stundaði þá um hríð við-
skiptastörf. í utanríkisþjónust-
una gekk hann 1921 og gegndi
þar ýmsum trúnaðarstörfum þar
til hann baðst lausnar á árinu
1949. Hafði hann þá m. a. árum
samán verið sendiherra í Rúss-
landi og síðar í UngverjalandL
Þá hafði hann bæði fyrr og síð-
ar verið deildar- eða skrifstofu-
stjóri yfir mismunandi mála-
flokkum í danska utanríkisráðu-
neytinu. Kom þá stundum á
fyrri árum í hans hlut að fjalla
um málefni íslands, því að Dan-
mörk fór þá með íslenzk utan-
ríkismál. Ekki mun hann þó
fremur en flestir starfshræður
UTGERÐARMENN
Vfð höfum nú fyrirliggjandi
hið vinsæla portúgalska
„CORFI" tóg:
ÞORSKANETATEINAR úr polypropylene
BÓLFÆRAEFNI úr polyethylene
LÍNUEFNI með glassfíber kjarna úr polypropylene
LANDFESTAR úr polypropylene.
Stórlœkkað verð - Frábœr gœði
Þcir útgerðarmenn sem eiga tóg í pöntun hjá okkur, eru beðnir
að vitja þess sem fyrst.
MARCO HF.
Aðalstræti 6, Símar 15953 og 13480.
hans á þeim árum hafa lagt
mikla rækt við málefni íslands
né talið þau Danmörku miklu
varða.
Eftir að Bolt-Jörgensen kom
til íslands kynnti hann sér hins-
vegar rækilega aðstæður hér og
kunni góð skil á flestu því, sem
þýðingu hafði. Enginn efi er á,
að hann veitti konu sinni veru-
legan stuðning í starfi hennar.
Frú Bodil Begtrup er fyrsta
konan, sem varð sendiherra Dan-
merkur. Hún er kona bráðgáfuð
og geðfelld, en hafði á fyrri ár-
um vanizt öðrum störfum en
'henni voru nú fengin. Hún hafði
nægan þroska til þess að nýta
góð ráð eiginmanns sins. Árang-
urinn varð sá, að þau hjón öfl-
uðu sér mikilla vinsælda á með-
al íslendinga.
Bæði voru hjónin mjög gestris-
in. Bolt-Jörgensen varð öllum
vinum sínum og kunningjum
eftirminnilegur sökum yfirlætis-
leysis og hógværrar alúðar. Hann
var maður fámáll og talaði aldrei
af sér, en af honum mátti margt
læra og einstök tilsvör hans og
frásagnir eru mér enn í huga.
Þau hjón slitu ekki tengslum
við vini sína hér, þótt þau flyttu
á braut. Þau hvöttu sem allra
flesta til að heimsækja sig suður
í Bern eftir að frú Bodil varð
sendiherra í Svisslandi. Síðast
hitti ég Bolt-Jörgensen þar, þeg-
ar ég var á Genfarráðstefnunni
1960. Var hann þá töluvert far-
inn að eldast en móttökur hans
voru jafn hlýjar og fyrr, svo að
ekki var um að villast, að hann
fagnaði fundi okkar. Sömu sögu
hafa að segja aðrir fslendingar,
sem heimsóttu þau hjón. Eftir
það fóru kveðjur á milli okkar
en af samfundum við hinn aldna
heiðursmann varð ekki. En
margir fslendingar munu hugsa
hlýlega um hann nú í dag, þegar
hann er jarðsettur í heimalandi
sínu og senda frú Bodil innilegar
samúðar-kveðjur.
Bjarni Benediktsson.
FREDRIKSSTAD — NTB.
Mikill samdráttur varð 1
rækjuveiðum í Oslófirði sl. ár.
Varð heildaraflamagnið aðeins
400 lestir, sem er þrisvar sinn-
um minna en metárið Ii962. Aft-
ur á móti hefur aflinn nú í árs-
byrjun verið mjög góður.
FASTEIGNAVAL
Hta o« MMr vM <a? bafl
m IÞ*— j»M IMI kinn biiiin Iiii n n ÍJ
Skólavörðustíg 3 A, H. hæð.
Símar 22911 og 19255.
7/7 sölu m.a.
í smíðum
Fokhelt raðhús á tveimur
hæðum, við Álftamýri, á-
samt bílskúr.
Stórt einbýlishús, tillbúið und
ir tréverk og málningu í
Hlíðunum, með innibyggðum
bílskúr.
Fokhelt parhús, ásamt bíl-
skúr, á góðum stað í borg-
inni. Selst pússað og málað
að utan. Tilbúið til afhend
ingar nú þegar.
6 herb. íbúð, tilbúin undir tré
verk og málningu, í Ár-
bæj arhverf inu.
A Seltjarnarnesi
Fokhelt raðhús á góðum stað
á nesinu. Seljast múrhúðuð
og máluð að utan með inn
byggðum bílskúr.
/ Kópavogi
Tvíbýlishús, ásamt bílskúrum
í fokheldu byggingarstigi.
Einangrun á þaki fullfrá-
gengin. Allt sér.
5 og 6 herb. íbúðir í sama
tvíbýlirihúsi, ásamt bílskúr-
um. Selst i fokheldu ásig-
komulagi.
Fokhelt raðhús á einni hæð í
Kópavogi. BílSkúrsréttur.
í Garðahreppnum
Fokhelt einbýlishús, upp-
steyptur bílskúr fylgir. —
Mjög skemmtileg teikning.
Við Hvaleyrarholt
Hafnarfirði
Um 242 ferm. hús á góðum
stað á Hvaleyrarholti. Hús-
ið er þegar fokhelt og er
hentugt undir hverskonar
iðnað eða sem fiskverkun-
arhús. Möguleikar á að hag
stæð lán geti fylgt eign-
inni.
HÖFUM EINNIG ÚRVAL
eigna af öllum stærðum og
gerðum, á ýmsum bygginga
stigum, í borginni og ná-
grenni. — Teikningar liggja
ávallt frammi á skrifstofu
vorri, sem gefur allar nán
ari upplýsingar.
Jón Arason hdl.
Sölumaður fasteigna:
Torfi Ásgeirsson
Kvöldsími 20037
frá kl. 7 til 8.30.
Kjötverzlun
á góðum stað í Austurborginni til sölu.
Leiguhúsnæði, góðir greiðsluskilmálar.
Tilboð merkt: „Kjöt — 8386“ sendist Mbl.
fyrir 14. þ. m.