Morgunblaðið - 12.01.1967, Síða 17

Morgunblaðið - 12.01.1967, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1967. 17 Ung stúlka leggur stund á nýja námsgrein — um karlmenn Gamla aðferðin að læra — sitja allar stundir með nefið ofan í bókunum — freistaði ekki ungrar og fallegrar enskrar stúlku, Jean Lister, þegar að því kom, að hana langaði til að læra eitthvað. Hún ákvað því að leggja stund á námsgrein, sem allra mest hreif hana — hún vildi kynna sér karlmenn. Sem nemandi í þeirri grein heimsótti hún 7 lönd og kynnt- ist hundruðum ungra manna. Bráðlega kemur á markaðinn bók, þar sem Jean Lister 24 ára gömul stúlka, segir frá reynslu sinni af karlmönnum og vel kann að vera .að einhverjir af naörgum fyrrv. „elskhugum“ hennar komist við er þeir lesa og heyra að þeir hafi verið nokkurs konar tilraunadýr ungu stúlkunnar. Námi sínu hagaði Jean þannig að hún var ráðin hjá ferðaskrif- stofu einni, sem flutti hana úr landi hverju eftir 6 mánaða dvöl i nýja kynningarferð. Seinna snéri hún aftur heim og hóf undirbúníng að bók um karl- menn. Við birtum nú nokkrar af at- hugasemdum þessarar 24 ára gömlu stúlku um karlmenn: — Óskadís Þjóðverjanna er hús- móðurleg en um leið vilja þeir eiga hana að góðum félaga, sem getur farið með þeim í langar gönguferðir og í erfiðar fjall- göngur. Þjóðverji hefur ekki kímnigáfu, þess vegna er það að oft er hann mjög hlægilegur, en tekur sjálfan sig þó alvarlega. Þegar Bandaríkjamaður fær ást á stúlku sálgreinir hann hana eftir ákveðnum reglum, sjálfan sig og gerir sér grein fyrir tækifærunum. Heili hans sem stöðugt gerir ný áform hefur ekki alltaf samráð við hjartað og vekji greind stúlka athygli hans á nýjan og fíngerðan hátt hefur hann, að eigin mati, leyfi til að vera ótrúr — konur ekki. Hann vill hafa stúlkur mjög snyrtilegar, en sjálfur nennir hann ekki að raka sig daglega. ítalinn elskar konur og ást, og er hann síður en svo mótfallinn feitlögnum konum. Hann vill hverju sinni vera sigurvegarinn — og hverfur á braut, jafnskjótt og honum finnst hann vera eltur af konu. Enginn ber sama skyn á ástina og hann, en yfirleitt er hann orðinn að fituklump um fertugt af spaghettiáti, sem hann á í erfiðleikum með að standast eins og konur. Spánverjinn er ástleitinn, en mjög rólegur. Góðkunna mynd- in af Spánverjanum rómantíska leikandi á gítar — er röng. Mamma hans hefur dekrað svo við hann og samskonar dekurs væntir hann sér af konunni sinni. Þrátt fyrir allt virðast spánskar konur vera ánægðar með þessa fallegu menn sína, sem á yfirborðinu virðast mjög tillitssamir. Finninn er maður sem talar hratt, hugsar hratt. Hann er alvar legur og vill vera nokkurs kon- ar Rómeó. Hann drekkur yfir- leitt of mikið og er oft hóflaus í gjörðum sínum. Af einni konu krefst hann alls eða einskis, en í staðinn getur hann líka verið góður eiginmaður og faðir. Svíinn er hin sanna gáta hvað Rómeóa Evrópu snertir. Hann veit að sagt er að hann vilji njóta ástar sérhverrar stúlku er hann kynnist — en innst inni hefur hann ekki löngun til þess. Han veit að hann hlyti engan álitshnekki við að eiga barn með stúlku án þess að vilja kvænast henni, en ef hann sæist ölvaður á almannafæri yrði litið niður á hann. Honum er tíðrætt um frjálsræðið í ástamálum í heima landinu, en sjálfur lítur hann á það sem ferðamannabrellu, sem ekki kemur honum við. Hann er reiðubúinn til að vinna vel fimm daga vikunnar, til að geta átt ánægjulega helgi. í Svíþjóð eru margir piparsvein- ar og stúlka sem vill ná í einn þeirra getur eins reynt að út- vega sér farmiða til tunglsins. Svíinn er til með að dást að henni og gera hvað sem er fyrir hana en svifta hann piparsveina- frjálsræðinu — það reynist henni erfitt. Sjálf hefur Jean ekki hugsað út í hjónaband enn. Hún hyggst Faðir óskast handa Milko. Kvikmyndaleikkonan, Gina Lollobrigida hefur nú verið grip in í ítölsku hjónabandsgildruna. Skilnaðarréttur hefur að vísu skilið þau, hana og dr. Milko Skofic, en vilji Gina eignast ann an mann handa sér og föður handa barninu, verður hún að útvega sjálfri sér opinbert plagg upp á að þau hjónin séu lög- lega skilin. Að þessu leyti er h'kt farið með henni og hundruð um annarra ítala. Katólska kh-kj an viðurkennir ekki skilnað og enn hefur sérhver tilraun til að fá þeim óvinsælu reglum breytt, mistekist. Kvikmyndaleikkonan hefur ekki farið í launkofa með að hún er á hnotskógi eftir nýjum manni. Orð hefur leikið á að hún hafi litið arabíska prinsinn Khlil Ben Saud hýru auga — en Gina segir að enginn fótur sé fyrir því. Hún segir allt fallegt um rússneska málarann, Ilya Glazunow og spánskan dansara að nafni Antonio Gades (ein- hverntíman hefðu þeir sjálfsagt komið til greina, en nú virðist Kvikmyndaleikkonan heimsfræga, Sophia Loren ásamt manni sínum, Carlo Ponti. sínu í höll þeirra hjóna í Róm og segja læknarnir, sem hafa stundað hana, að hún sé mjög veik. Reiknað var með fæðing- unni 'í apríllok. Fyrir þrem árum átti Sophia einnig von á barni, en þá missti hún fóstrið. Gina og einkabarn hennar — sonurinn Milko. öll von úti um að þeir hreppi hnossið). Þegar hún hefur fundið þann rétta, getur hún fyrir alvöru farið að velta því fyrir sér, hvernig hún losni úr hjónabands gilrunni. — Hún hefur sagt: — Hvernig getur kirkjan verið svona ómannúðleg. Þegar hjón finna, að þau geta ekki lengur búið saman, hvernig getur þá guð sem á að vera svo góður, neitt þau til þess? Skoðanir Biblíunnar standast engin veg- inn kennigar nútímans. Sophia Loren missir fóstur á ný Nú er uppi orðrómur um það að Sophia Loren sé enn einu sinni að því komin að missa fóstur. Kvikmyndaleikkonan, sem nú er 32 ára, liggur í rúmi Ódýrt! Ódýrt! HOLLEiZKIR KVEIVSKÓR Verð frá kr. 295.— SKÓSALAN LAUGAVEGI I halda áfram með nám sitt i nokkur ár, og vonandi tekst henni að því loknu að ná sér í þann „rétta“ og lifa í hamingju- sömu hjónabandi það sem eftir er ævinnar. Jean Llster, — hefur gaman af karlmönnum. Það heyrist skothvellur.... Það er skot- ið úr vélbyssum frá flugvélinni og skip- stjórinn hrósar happi yfir að vera í skjóli undir bilnum þegar skothríðin fellur á bilinn. „Leyfið mér að komast i burt“, öskrar hann og patar örvæntingafullur í áttina að klettaveggnum, því miður gleymir hann að dýrshauskúpan, sem notuð var sem lyftistöng, liggur í miðjum veginum. „Hann komst ekki langt“, segir Chien- Fu með ánægjuhreim. „Nei,“ segja félag- ar hans glottandi, ,,og vinir hans munu heldur ekki komast undan okkur, þegar ég hleypi næst af.“ J Ú M B Ó — >f — —>f— — >f — — >f — — >f — Teiknari: J. M O R A ©PIRS CtniMMMI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.