Morgunblaðið - 19.02.1967, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1967.
BÍLALEIGAN
FERÐ
SÍMI 34406
Daggjöld kr. 300,00
og kr. £,50 á ekinn km.
SENDUM
MAGMÚSAR
SKIPHOLTI 21 SÍMAR 21190
eflirlokunslmi 40381
sími 1-44-44
\mt\m
Bó&zéeúý-tZ'
Hve'rfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
bílnleigon
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt Ieigugjald.
Bensin innifaliS í leigugjaidi.
Sími14970
BÍLALEIGAIM
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
C-f==*BnAlMSÍAM
l£&/L/y/3P
RAUDARARSTÍG 31 SlMI 22022
BÍLADEIGAN
EKILL sf.
Kópavogi.
Sími 40145
V'ÞRBSTUITÍ
22-1-75
BíLALEIGAN
GREIÐI
Lækjarkinn 6 — HafnarfirBi.
Sími 51056.
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu
Trúmáladeilur
Velvakanda hefur borizt
slikur sægur af bréfum um trú-
mál að undanfömu, að ekki er
viðlit að birta þau öll í fljót-
heitum. Segið svo, að fólk sé
orðið andvaralaust um eilífðar-
málin! Nokkur þessara bréfa
hafa verið að birtast að undan-
förnu smátt og smátt, og hér
birtast nokkur til viðbótar.
Fyrst skrifar „Roskin kona“,
sem fékk birt hér bréf fyrir
nokkru, og hafa ýmsir orðið til
þess að svara henni. Bréf sitt
nefnir hún:
Friðþægingar- og
helvítiskenningar
„Velvakandi góður.
„Ung kona í Vestmanna-
eyjum" svarar grein minni um
friðþægingar- og helvítiskenn-
ingar.
Ég þakka henni fyrir, að
svara mér og gera athugasemd-
ir við grein mína, því það er
einmitt unga fólkið sem ég vil
að taki eftir og ræði þessi mál,
sakir þess, að það á mest á hætt
unni hvað villukenningum við-
víkur.
„Unga konan" spyr nokkra
spuminga, sem ég vil leitast
við að svara eftir mætti.
1. sp.: Til hvers dó Kristur
á krossi? Spurningu, sem þess-
ari, er ekki auðvelt að svara,
en frá mínu sjónarmiði, gat
hann ekki dáið til friðþæging-
ar ófæddu mannkyni og ó-
fæddum syndum þess. Slíkt
mælir á móti allri heilbrigðri
hugsun, enda ekki sjáanlegt að
slíkur krossdauði hafi komið
mannkyninu að miklu haldi,
um það ber nútíminn Ijósast
vitni. Það verður tæpast merkt,
að mannkynið hafi þokast
nokkuð fram á við siðferðilega
síðan Kristur leið. Persónulega
hygg ég, að Kristur hafi látið
lifið fyrir trú sína. Tel mjög
vafasamt, að hin svokallaða
kristni hefði lífi haldið, ef
Kristur hefði ekki hennar
vegna friðþægt á kroesinum.
Þess vegna er hann einn dá-
samlegasti pfelavottur sögunn-
ar. Hvað syndafyrirgefningu
friðþægingar-kenningarinnar
viðvíkur, vil ég segja þetta: Er
það ekki lítilmannlegt af okk-
ur mannverum, sem kennt er,
að sköpuð séum í „Guðsmynd",
séum þær „lyddur, að við get-
um ekki sjálf, staðið reiknings-
skil af gjörðum okkar og lífi
hér á jörð? Stundum hefir mér
komið í hug sú spurning:
Skyldi ekki friðþægingar-
kenning (sem alls ekki er
kenning Krfets sjálfs) eiga
sinn þátt í aukinni glæpastarf-
semi og allskyns ábyrgðarleysi
nútímans. Það liggur svo beint
við, að álrta að fólk, sem legg-
ur trúnað á slíkt, láti einu
gilda hvemig það ver lífi sínu.
Þvi Krfetur hefir friðþægt fyr-
ir allar þess syndir fyrir nær
tuttugu öldum! Væri ekki holl-
ara, sérstaklega eins og nú er
komið þjóðlífi voru, að fólki
skildist að hver og einn sé
algjörlega ábyrgur allra orða
sinna og gjörða, hjá því dugi
engin undanbrögð, svo sem
kirkjan boðar með friðþæging-
arkenningu sinni?
2. sp.: Sagan um Jesú og
Satan á fjallinu forðum, álít
ég, að eigi ekki að skiljast bók-
staflega, frekar en svo margt
annað í biblíunni. Ég tel lík-
legast, að þar hafi Kristur
meint (viljað kynna oss), að
okkur allra biðu freistingar,
sem við yrðum að yfirstíga
eða sigrast á. Hver og einn
mun geta fundið þessu stað í
sínu eigin lífi. Og svo er sjálf
Satans-kenningin. Hvernig get-
ur Satan átt sér stað ef „Guð“
er almáttugur? Jafnvel sem
barni var mér þetta óskiljan-
legt og nú finnst mér líklegast,
að einhverjir gárungar hafi
búið til þessa „Grýlu“, sem svo
er voldug að það liggur við,
að hún leiki á sjálft Almættið.
Þetta og annað eins á ef til vill
að vera grín, eða til þess að
hræða saklausar, hrekklausar,
fákænar sálir, en mér fínnst
það guðlast og réttast eins og
gamall maður ráðlagði kirkju-
fundi hér um árið, að „sleppa
Djöflinum" og vil ég bæta við
öllum Helvítiskenningum.
3. sp.: Er ekki umhugsunar-
vert að deila á prestana okkar
fyrir að fara með Guðlast? Jú,
víst er það umhugsunarvert, að
slíkt skuli vera hægt og tíma-
bært, eigi fullan rétt á sér, að
svo sé gert.
Og hér með leyfi ég mér sem
felenzkur borgari og meðlimur
þjóðkirkjunnar, að skora á þá
presta og guðfræðiprófessora
Háskólans, sem aðhyllast og
boða slíkar kenningar, sem
þær, er hér hafa verið gerðar
að umtalsefni, að koma fram
fyrir þjóð, útskýra og sanna,
að þeir fari með sannleika,
eins og „Unga konan“ virðist
trúa þeim svo vel til og hún
gerir sig ánægða með að trúa.
Já, „Unga kona“, þú kveðst
engan tilgang sjá með „kross-
dauðanum“ ef þessar tvær um-
ræddu kenningar eiga að
„þurrkast út“. Því miður munt
þú ekki ein um slíkan átrúnað,
og mikið var gott, að fá þetta
hreint út, en sorglegt ef satt
reynist, að slík trú sé þunga-
miðja kristninnar hjá mörgum.
Ég tel, að slíkt sem hér um
ræðir verði að þurkast út,
vegna þess, að það skyggir svo
mjög á sjálfan Krist og Al-
mættið, þó ekki sé minnzt á
hversu spillandi það sé mann-
legtim sálum.
Svo þakka ég þér „Unga
kona“ að þú talaðir til min í
fullri einlægni, slikt er alltaf
þakkarvert, hversu skiptar,
sem skoðanir kunna að vera.
Að endingu vil ég taka það
fram, að ég ætla þér ekki að
svara þessu skrifi mínu, því
það er ekki okkar að deila um
þessi mál opinberlega. Heldur
er það prestanna með herra
biskupinn í broddi fylkingar,
að leiða okkur í allan sann-
leika. En, hvað er sannleikur?
V irðingarfyllst,
„Roskin kona“.
Guðstrú og biblían
„Undanfarið hafa birzt I
dálkum Velvakanda greinar
nokkrar um helvítiskenning-
una og biblíuna. Mig langar til
að vekja athygli á eftirfarandi
atriðum:
Sumir trúa því, að biblían sé
rituð af guði, en ekki af mönn-
um. Helvítiskenningin virðist
aftur vera að fá byr undir báða
vængi. Er eitthvert trúarof-
stæki í uppsiglingu hér á
landi? Má ekki hver hafa þá
trú, sem hann vill? Sumt trúað
fólk getur ekki trúað biblíunni,
þótt það reyni mikið. Ber að
refsa því? Áður fyrr voru rök-
semdir presta m.a. svo: Fyrst
guð refsar mönnunum með eilíf
um kvölum, því skyldu þjónar
guðs þá ekki reyna að feta í
fórspor hans? Á þennan hátt
leiddi helvítiskenningin til
þess, að galdrabrennur og aðr-
ar hroðalegar pyntingar á sak-
lausu fólki hófust. Með helvítfe
kenningunni erum við að
stuðla að meiri grimmd gegn
mönnum og dýrum. Er þó nóg
af slíku fyrir. Samkvæmt hel-
vítiskenningunni er sáluhjálp
bezt tryggð með því að deyja
sem nýskírt, syndlaust ung-
bam. En verði presturinn of
seinn að skíra, t.d. í strjálbýl-
inu, þá bíða saklauss barnsins
eilífar kvalir. Algóði Faðir.
Hugleiðum nokkur atriði úr
biblíunni. í 2. Konungsbók 2,
23—25 er saga um hroðaleg
barnamorð, sem maður á víst
að skilja að guð hafi framið á
óvita bömum fyrir nær engar
sakir. Algóði Faðir. f 5. Móse-
bók 22, 13—24 og á ótal fleiri
stöðum í biblíunni má sjá, að
ekki er furða, þótt nútímafólk
sé taugaveiklað eða geðveikt,
ef það trúir biblíunni og hel-
vítiskenningunni. Þrátt fyrir 5.
Mósebók 18, 11—12 styðja sum-
ir prestar andatrú.
Mörg hundruð milljónir
manna víðsvegar um heiminn
líta á kristna menn sem heið-
ingja. Við skulum öll reyna að
hafa smá-vitglóru. Af hverju
ætti kristnin að vera hin eina
sanna trú, þótt svo vilji til, að
viS séum fædd í landi þar sem
kristin trú er yfirgnæfandi?
Er ekki rétt að virð hið bezta
í öllum trúarbrögðum? Rétt-
lætistilfinning vor, samvixka
vor, og það að setja okkur sjálf
í spor náungans ætti að vera
leiðarsteinninn, en ekki of-
stæki og vitleysa.
Vonandi birtast ekki fleiri
greinar, sem styðja helvítfe-
kenninguna og styðja jafn-
framt trúna á algóðan guð.
Slíkt á ekki samleið. —
Heimilisfaðir".
^ Hvað er guðlast?
E. H. skrifar:
„Roskin kona skrifar 29.
janúar sl. með fyrirsögninni
„Friðþægingar- og helvítis-
kenningar". Jafnar hún frið-
þægingarkenningu Krists við
guðlast. Mig undrar stórlega að
nokkur manneskja í krfetnu
þjóðfélagi skuli leyfa sér að
hugsa svona, hvað þá skrifa.
þetta og senda frá sér til lest-
urs fyrir marga.
Ef þessi túlkun á friðþæg-
ingu Jesú Krists er ekki guð-
last, hvað er þá guðlast? Er
það ekki hrein .og ómenguð
boðun á fagnaðarerindinu, að
Krfetur kom £ heiminn til að
frelsa okkur synduga menn frá
helvíti? Þetta er það, sem
kristin trú byggist á, og er
rauði þráðurinn gegnum alla
biblíuna. Þessu verður ekki
breytt, þetta eru sannindi krist
innar trúar á því bjargi byggð,
sem hefur staðið um ár og ald-
ir og munu standa, því að
sannleikurinn fellur aldrei úr
gildi.
Eftir þessa útþurrkun leyfir
„Roskin kona“ sér að benda á
að halda vörð um og boða kenn
ingar Jesú Krists. Vill hún
ekki kynna sér betur kenning-
ar hans? Hvílík mótsögn! Það
eru einnntt hans kenningar,
sem hún er að reyna að þurrka
út, og hún heldur áfram og
segir:
„... .útiloka allar slíkar kenn
ingar, en vekja i þeirra stað
allsherjar bræðralags hugsjón-
ir, kenningar um einingu alls
lífs“. Síðan virðfet hún ætla að
taka að sér að breiða yfir víxl-
sporin hjá sjálfri sér og öðrum
með elsku Guðs. Hún segir:
„Og einnig það, að þrátt fyrir
öll víxlsporin, sem við öll stíg-
um meira eða minna, elski Guð
öll börn sín jafnt og að lokum
bíði Krfetfyllingin vor allra“.
í hverju birti Guð okkur
elsku sína? í friðþægingar-
dauða Jesú Krfets. Kristsfyll-
ingin, hver er hún? Hún er
friðþægingin. Hver er svo full-
kominn, að ekki þurfi á þessari
gjöf Guðs að halda? Hver
treystir sér til að klæðast sínu
eigin réttlæti? Krfetur segir:
„Ég er dyrnar".
Bréfritari beinir orðum sín-
um til nokkurra presta á þessa
leið: „... .virðist þar verið að
reyna að vekja upp tvo gamla
drauga krfetninnar: friðþæg-
ingar- og helvítiskenningar.
Þær hefi ég álltaf talið og mun
alltaf telja „guðlast". Þannig
farast henni orð, orð, sem
varla eru svara verð. Vil ég þó
svara því til, að þar sem tekið
hefur verið við friðþægingar-
gjöf Guðs í Jesú Krfeti, þar er
helvíti ekki, hvorki í uppvak-
inni draugsmynd eða í öðrum
skelfingum þessa heims eða
annars.
Með kveðju til Velvakanda.
E. H.“.
Postulínsveggflísar
Ensku postulínsflísarnar komnar aftur.
Stserð: 7%xl5 og 15x15 cm. — Gott verð.
LITAVER
Grensásvegi 22 og 14.
Neodon og DLW gólfteppi
Verð pr. ferm. 298 á Neodon,
Ver8 pr. ferm. 345 á DLW.
LITAVER, Grensásvegi 22
Súnar 30280 og 32262.