Morgunblaðið - 15.04.1967, Qupperneq 13
MORGÚNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1967.
13
SÍÐAN
1 VMSJÁ BALDVINS JÖNSSONAR
ÚRSLITIN
ÚRSLIT hljómsveitakeppninnar í Austurbæjarbíói:
Hljómar hlufu 583 atkvæði
Toxic hlutu 581 atkvæði
ógreidu afkvæði voru engin. I mun. Nánar verður skýrt frá
I>að voru því Hljómar sem keppninni síðar.
■igruðu, með tveggja atkvæða >
„HORNAUGAD"
KVIKMYNDAGAGNRÝNI
UNGA FÓLKSINS
Björn Baldursron
ÞórSur Gunnorsson
Laugarásbió. Sigurður Fáfnis-
bani n. hluti. íslenzkur texti.
Hefnd Grímhildar.
Hefndin er sæt en vegir þeirra
hörmunga, er af henni geta hlotn
*zt eru órannsakanlegir og vætt
ir tárum grimmra örlaga. Grím-
hildur er okkar aðalsögupersóna,
ásamt bræðrum sínum og Atla
Húnakonungi. Sigurður Fáfnis-
bani er fallinn og með dauða
hans rís kvikmyndin úr lélegri
dægradvöl í stórbrotið verk,
þrungið spennu, vafið í hjún
mannlegra tilfinninga, bor fc
fram af úrvals leikurum. Fegurð
Maríu Marlow (Grímhildar) og
karlmannleiki Siegfried og ásamt
Atla Húnakonungi skapa þau ein
hverjar eftirminnilegustu per-
•ónur hvíta tjaldins hin síðari ár
Söguþráðurinn er margbrotinn
og efnismikill og þess ber að
geta, að litir eru góðir og mynda
verðugt aðhald efnismiklu inni-
haldi. Hornaugað veitir kvik-
myndinni, Hefnd Grímhildar,
■ín bestu meðmæli og mælir ein
dregið með góðri aBsókn.
Tónabíó. Að kála konu sinni.
íslenzkur texti.
Drengir, þið sem eruð enn
ékvæntir, þið eigið þó bjargar-
von. Sjáið voðann og varizt hann.
Eiginmenn, þið eruð kvæntir,
notið nú tækifærlð og sprengið
af ykkur hlekki kúgunar og kven
legrar yfirgangssemi. Eiginkonur
unnustur ókvæntar yngismeyjar,
þið eigið allt að verja það eru
ykkar hagsmunir, sem eru í
voða. Fylgið karlþjóðinni eftir.
Mætið í Tónabíó brosandi og al-
þaktar kvenlegum yndisleika. I»á
aðeins verðið þið þess megnugar,
aiö draga úr skaðvænlegum á-
hrifum myndarinnar á skegg-
þjóðina. Að kála konu sinni er
bráðskemmtileg hugmynd og
auk þess býsna fróðleg. Jack
Lemmon og Terry Thomas sanna
þar berlega, að þeir eru í röðum
fremstu gamanleikara okkar
tíma. Sagan segir frá Stanley
Ford, ungum og glæsilegum
piparsveini. Hann lifir vitaskuld
hamingjusömu lífi, þar til hann
dag einn, hittir frú Ford. f»á er
draumurinn úti en alls ekki
kvikmyndin. Að sýningu lokinni
áttum við orðaskipti við tvo ó-
kvænta sveina. Hallur Skúlason
sagði, að myndin væri góð af
léttri gamanmynd atð vera. Sömu
leiðis væri hún gagnleg tilvon-
andi eiginmönnum. Gústaf Adolf
Skúlason var sammála um ágæti
sýningarinnar, sem væri æskileg
fýrir konur og kúgaða eiginmenn
(alla eiginmenn)...........
ENGLAND
1. (-) Something Stupid .... Frank og Nancy Sinatra
*. (10) Fyppet On a String...........Sandy Saw
3- (-) A Little Bit Me, A Little Bit Tou . . Monkees
4. (-) Hap Hap Said The Clown . . ... Manfred Mann
5. (1) Release Me ....... Englebert Humperdinck
4. (2) This is My Song .......... Harry Scrombe
1. (-) It’s AU Over ............... Cliff Richard
5. (4) Simon Smith And His Amazing Dancing Beer ...
Allan Price Set
#. (6) I Was Kaiser Bill’s Batman Whisling Jack Smith
14. (-) Purple Haxe ................ Jimi Hendrix
fSLAND
1. (1) Oh What a Kiss........ The Rocking GhosU
t. (2) Penny Lane/Strawberry Fields .... The Beatles
S. (3) rm a Believer .................. Monkees
4. (4) On a Carousel ............... The Hollies
5. (5) Mellow Yellow ............ ..... Donovan
4. (6) Let’s Spend The Night Together . Rolling Stones
7. (7) I’m a Man ..... .......... Spencer Davis
t. (8) There’s a Kind of Hush .. Herman Hermits
#. (9) Rugby Tuesday ............. Rolling Stones
14. (10) Release Me .......... Englebert Humperdinck
Dvöl þeirra í Englandi
F Y RI R skömmu voru The
Monkees staddir í Englandi, og
fjórum dögum eftir að sá siðasti
af þeim flaug til Bandaríkjanna
biðu stúlkumar ennþá á flug-
vellinum. Hvort það var í von
að þeir kæmu aftur eða vantrú
á að þeir væru farnir, er óvíst.
Monkee-aðdáendur skortir
ekki þolgæði. Þeir sýndu einnig
frábæra hugvitssemi til þess að
hitta átrúnaðargoð sín.
Ein stúlkan náði sambandi við
Davy með því að þykjast vera
símastúlka.
Ein þóttist vera fréttaritari
fyrir táningablað. önnur þóttist
vera frá Daily Mail.
Ungur maður hringdi i her-
bergi Davys og sagðist vera Paul
McCartney. Honum til ógæfu
svaraði Marion Rainford i sim-
ann, en hún vann áður hjá Bítl-
unum.
Stúlka tókst einhvern veginn
að komast gegnum öryggistjald-
ið og barði að dyrum hjá Davy.
Þegar hann kom til dyra brast
hún í grát og hljóp í burtu.
Tvær stúlkur komust inn í
ganginn að herbergi Davys með
því að látast vera þjónustustúlk-
ur.
Einn þolinmóðasti aðdáandinn
stóð úti í rigningunni í 13 tíma
þar til aðstoðarmenn Davys sóu
aumur á henni. Þeir buðu henni
upp í herbergi kl. 2 um nóttina.
„Hún sat bara og starði á Davy
í hálftíma”, sagði einn aðstoðar-
mannanna. „Ég bjóst við að hann
breytti um lögun á hverri
stundu”.
Aðdáendahópurinn hrópaði fyr
ir utan hótelið þangað til Davy
kom út í gluggann. Þá hrópuðu
þeir á Micky. Þegar hann sýndi
sig hrópuðu þeir aftur á Davy.
Til þess að leika á aðdáend-
urna var komið af stað orðrómi
um að Davy byggi á öðru hótelL
Til allrar óhamingju bjó maður
að nafni David Jones þar. Þegar
búið var að hringja til hans 100
sinnum, talaði hann um að fara
í máL
Fyrsta sunnudaginn í Bret-
landi fór Micky til Stratford-on-
Avon. Þegar hann kom til baka
náðu aðdáendurnir í hann. Hann
sat fastur í hverfihurð hótelsins
með tvær stúlkur hangandi utan
á sér.
Eínu sinni voru allar 36 út-
göngudyr Grosvenor House um-
setnar af aðdáendum. Til að
Micky kæmist út varð að nota
neðanjarðarleynigöng, sem ekki
hafa verið notuð í 25 ár. Vel-
heppnað bragð var notað á að-
dáendur, sem biðu eftir Davy
fyrir utan Wimbledon Palais.
Hann kom í gömlum Austin-bíL
en stúlkurnar eltu svartan Rolls-
Royce út um allt.
Þær hlupu 18 hringi i kringum
Palais. þar til þær voru að nið-
urlotum komnar. Þær vissu ekki
að Davy var kominn inn, og bú-
inn að skemmta og farinn aftur
i Austin-bílnum.
Einn daginn gaf Davy 70 éigin
handaráritanir fyrir utan hótel-
ið. En aðdóendurnir vildu ekki
I fara. „Þau vilja sjó hann eða
koma við hann“, sagði Marion
Rainford.
Micky fór í dýragarðinn á veg
um sjónvarpsins. Þrír krakkar
báru kennsl á hann og þegar
hann fór voru 300 krakkar á
hælum hans.
Eitt sinn bauð Micky aðdá-
endum upp í hótelherbergi siltL
„Ég fór upp og sá að Micky var
útL en 25 manns voru í herberg-
inu“, sagði Cardwell, einkaritari
hans. „Hann hafði augsýnilega
boðið þeim að panta það, sem
þau vildu. Þau höfðu pantað
kampavin og kjúklinga eftir að
hann fór. Reikningurinn hans
var ansi hár“. Mike Nesmith
gerði beztu öryggisráðstafanirn-
ar. Það þurfti lykilorð til að ná
tali af honum.
Hættulegasta atvikið var þeg-
ar Davy fór á æfingu fyrir Rolf
Harris-þáttinn. „Við náðum hon-
um hálfum inn í bílinn. Fæfurn-
ir drógust eftir jörðinni”, sagði
Cardwell.
„í ringulreiðinni hraut fótur
minn á benzíngjöfina. Við ókum
nærri því ýfir eina stúlku og
þutum í burtu með fjóra krakka
á vélarhlífinni".
Eitt versta augnablikið var
koma Davys á flugvöllinn. Hann
var langt kominn að tollgæzl-
unni, þegár hópur stúlkna braut
dyrnar niður. „Ég hef ekki séð
Ólympíuhlaupara hlaupa einj
hratt“, sagði' Cardwell. „Hann
þaut til baka eins og byssukúla.
Við fundum hann loksins undir
einní flugvélinni bak við flug-
vallarbygginguna".