Morgunblaðið - 15.04.1967, Page 22

Morgunblaðið - 15.04.1967, Page 22
22 MÖRGTJNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15 APRÍL Í967. Eiríkur Guðmundsson Minning F. 10. marz 1869. D. 8. des. 1966 ÞÓTT Magnús Finnbogason magister hafi ritað ágaeta minn- ingargrein í Morgunblaðið, þeg- ar Eiríkur Guðmundsson var jarðsettur, langar mig til að senda frá mér nokkrar línur um þennan starfsbróður, félaga og vin minn um nærfellt fjörutíu og þriggja ára skeið. Eiríkur heitinn var af góðum ætum kominn, eins og kemur fram í grein Magnúsar Finn- bogasonar, og tel ég ekki þörf á að rekja það nánar. Hins veg- ar langar mig til að greina nokk- uð frá samstarfi okkar Eiríks og langri vináttu. Eirík tel ég hafa verið einn af örfáum góðum vinum mínum, og þá ef til vill beztan þeirra allra. Ég kynntist Eiríki árið Sonur minn, Hjalti Þorvarðarson, Blönduósi, andaðist 12. þ. m. Jarðarförin fer fram frá Blönduósskirkju laugardag- inn 15. þ. m. kL 14. Magnea Björnsdóttir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Bragi Kristjánsson, Ártúni, lézt 13. þ. m. Fyrir hönd aðstandenda, Sólveig Árdis Bjarnadóttir. Móðir okkar og tengda- móðir, Guðmunda Guðjónsdóttir, Ljósvallagötn 20, andaðist á Elliheimilinu Grund aðfaranótt 14. apríl. Gnðrún Oddsdóttir, Signrðnr Þórarinsson, Hreinn Oddsson, Lára Sveinsdóttir, Björn Þórðarson, Doris Þórðarson. Móðir okkar, Kristín M. Pétursdóttir, Þórsgötu 16 A, er andaðist 8. þ. m. verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 17. april kl. 13.30. Sigurdrífa Jóhannsdóttr, Margrét Gísiadóttir, Ágúst Gíslason, Guðmundnr Gislason. 1917—1918, þegar ég var í Verzl- unarskóla íslands. Minnisit ég hans fyrst, er hann var að fara yfir prófverkefni okkar félaga, og var mér starsýnt á þennan granna og spengilega unga mann, sem augsýnilega var greindur mjög og virtist kunna góð skil á námsefni okkar, enda mun Eirikur hafa verið einna hæstur, þegar hann brautskráðist úr Verzlunarskólanum árið 1917. Við þetta hófst kunningsskapur okkar Eiríks. Ég var þá hjá föð- ur mínum og starfaði að reið- hjólaviðgerðum o.fl. Eiríkur kom oft til mín á verkstæðið, og mun ástæðan hafa verið sú, að Eirík- ur hafði mjög mikinn áhuga á hjólreiðum. En fáir munu vita, að Eiríkur stundaði hjólreiðar af miklu kappi í mörg ár og mun sennilega hafa ferðazt meira á reiðhjóli hér á landi en nokkur annar maður. Eiríkur tjáði mér síðar, og harmaði það, að þeir staðir á landinu, sem hann hefði ekki getað heimsótt á reiðhjóli, væru Fljótsdalshérað og Aust- firðir, einnig Austur-Skaftafells- sýsla, en þangað var vart hægt að komast á nokkru ökutæki í þá daga. Munnu Eiríkur og vin- ur hans einn, Einar Þorsteinsson, núverandi skrifsitofustjóri, hafa Eiginkona mín og móðir, Magnea Steíanía Magnúsdóttir, Gnoðarvogi 20, sem andaðist í Borgarsjúkra- húsinu 10. þ. m., verður jarð- sungin mánudaginn 17. apríl frá Fossvogskirkju. Athöfnin hefst kl. 3.15 e. h. Jens Guðíón Jensson. Gtmnar Páll Jensson. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför móður minnar, tengdamóður og ömmu, Guðnýjar Gísladóttur. . i Agnete Simson, Magnús Guðmundsson, og börn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför elskulegs eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, Gils Jónssonar, bakara, Hólmgarði 29. Sérstakar þakkir viljum við færa eigendum G. Ólafsson og Sandholt er heiðruðu minn- ingu hans með því að sjá um útför hans. Rannveig Lárusdóttir, börn, tengdabörn og bamabörn. verið einna fyrstir til að fara yf- ir Kaldadal á reiðhjóli, og var það löngu áður en vegur var ruddur þá leið. Einnig fóru þeir skömmu síðar á reiðhjólum til Akureyrar og voru meðal hinna fyrstu, er það gerðu. Eiríkur var því í raun og sannleika íþrótta- maður um langt árabil og kunni vel að meta þá líkamsæfingu, sem hjólreiðar veita, auk þess sem hann var áhugasamur nátt- úruskoðandL Þegar faðir minn, Ólafur Magnússon, keypti Fálkann ár- ið 1924, lagði ég áherzlu á, að Eiríkur, vinur minn, yrði ráðinn til okkar, en áður hafði hann unnið við verzlunina Vöggur við Laugaveg hjá Gunnari Þórðar- syni og seinna hjá Heildverzlun Gunnars Þórðarsonar. Eiríkur var bæði afgreiðslumaður og bók ari hjá okkur í Fálkanum 1 fjöldamörg ár. Fyrstu árin var sú venja viðhöfð, að Eiríkur af- greiddi í verzluninni á daginn og færði bækur fyrirtækisins á kvöldin. Eftir að Fálkinn var gerður að hlutafélagi árið 1948, varð Eiríkur aðalbókari fyrir- tækisins og jafnframt gjaldkerL en þeirri stöðu gegndi hann, þar til er hann lézt. Ég tel, að faðir okkar, Ólafur Magnússon, og við öll systkinin eigum Eiríki miklar þakkir að gjalda fyrir hið frábæra starf, sem hann innti af hendi í þágu Fálkans af óvenjulegri trú- mennsku og samvizkusemi í nær Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðar- för Þórunnar Kristinsdóttur. Anna Sveinsdóttlr, Elín Sveinsdóttir, Geir Sæmundsson, Jónína Sveinsdóttir, Bergur Pálsson, Marta Sveinsdóttir, Guðmundur Jörundsson. fellt 43 ár. Samt myndi ég telja, að Eiríkur hafi að nokkru leyti verið á rangri hillu í lífinu. Hefði Eiríkur fengið aðstöðu til að mennta sig meira, tel ég, að- hann hefði orðið mikill vísinda- maður í norrænum fræðum. Hann hafði frábært minnL var mikill ættfræðingur og hafði mikinn áhuga á öllum þjóðleg- um fræðum. Mun hann t.d. hafa aðstoðað Guðna Jónsson prófess- or mjög vel um gögn að niðja- tali Bergsættar, sem hann heyrði til sjálfur. En þótt ég telji hann hafa verið á rangri hillu, hafði hann samt mikið vit á verzl- unarmálum, vildi alltaf fara var- lega og vita fótum sínum forráð, enda bar ég oft undir hann til- lögur mínar og ráðagerðir og hafði þá einmitt í huga varfærni hans. Vil ég þakka Eiríki Gu9- mundssynL bezta vini mínum og samstarfsmannL fyrir öll þau góðu hollráð, sem hann gaf mér og föður mínum á hinmi löngu starfsævi sinni. Eiríkur var óvenjugóður heim- ilisfaðir og var hið trausta bjarg, sem hin ágæta eiginkona hans, Dagbjört Finnbogadóttir, studd- ist við. Þess vegna er mér vel ljóst, að frú Dagbjört varð fyrir þungum missL þegar Eiríkur féll svo skyndilega frá. Eins var um mig og aðra samstarfsmenn Eiríks í Fálkanum, að fyrst í stað áttum við mjög erfitt með að gera okkur grein fyrir því og sætta okkur við það, að hann væri horfinn úr okkar hópi fyrir fullt og allt. Haraldur V. Ólafsson. Eugenía Guðmunds- dóttir Bíldal - Minning í gær fór fram jarðarför frú Eugeniu Guðmundsdóttur Bíldal, sem andaðist þann 6. þ.m. í sjúkrahúsi í Reykjavík, eftir þunga sjúkdómslegu. Eugenía var fædd í Langhús- um í Fljótum 16. marz 1904, dóttir hjónanna Guðmundar Ás- mundssonar og Lovísu Grímsdótt ur, er þar bjuggu lengi. Af börn- um þeirra komust fjögur til full- orðinsára, þrír bræður og þessi eina dóttir. í Þessum fjölskyldu- hópi lifði hún sín uppvaxtarár við gott atlæti og glaða æsku. Lovísa móðir hennar var fíngerð kona og hæglát í framgöngu og líktist Eugenía henni um margt. Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarðar- för frænku minnar, Sigríðar Halldórsdóttur frá Norðfirði. Fyrir hönd aðstandenda, Ásta Rögnvaldsdóttir. t öllum þeim, sem au ðsýndu litla drengnum okkar, t ÞöVkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarðar- Halli Erlingssyni, för Lyngbrekku 16, Kópavogi, Sigríðar Bjarnadóttur. umhyggju og ástúð í veikind- um hans, og okkur samúð við fyrrv. húsvarðar. andlát hans og útför, vottum við innilegar þakkir. Vilhjálmur Guðjónsson, Ásta Albertsdóttir, Ásta Tryggvadóttir, Valborg Guðjónsdóttir, Erlingur HaUsson, Sigurður Ellertsson, Guðrún Jónasdóttir, Kjartan Guðjónsson, Tryggvi Pétursson, Sigríður Breiðf jörð Hallur Jónasson. og bamabörn. — 13. marz 1926 giftist Eugenía Gunnari Bíldal, verzlunarmanni á Siglufirði og voru þau búsett þar um tuttugu ára skeið. Á Sauðárkróki áttu þau síðan heima í tvö ár, en fluttust svo hingað suður. Þau Gunnar og Eugenía eign- uðust fimm dætur, sem upp kom ust, og allir hafa nú stofnað sín eigin heimili. Þær eru: Jóna Ríkey, búsett í Reykja- vík, gift Skarphéðni Veturliða- syni, bifreiðarstjóra. Valgerður Guðrún, búsett í Reykjavík, gift Hallgrími Hallgrímssyni. Siðríð- ur, búsett í Bandaríkjunum, gift Braga Freymóðssyni, verkfræð- ingi. Lovísa Birna, búsett 1 Bandaríkjunum, gift Robert K. Reusch, bandaríkjamanni. Katrín búsett í Grindavík, gift Jósef Sigurðssyni. Ennfremur hafa alizt upp hjá þeim að mestu leyti tvö dætrabörn þeirra, pilt ur og stúlka. Þessi stúlka, sem löngum var augasteinn ömmu sinnar, var fermd núna, meðan amma hennar hvíldi á líkbörun- um. Þau Gunnar og Eugenía höfðu því alltaf eittlhvað af sínum nánustu hjá sér, enda voru fjölskylduböndin jafnan sterk — eins þó að höf og lönd skildi. Ung að árum giftust þau Gunn ar og Eugenía, og því var sam- búð þeirra orðin yfir fjörutíu ár, enda þótt aldurinn væri ekki nema lítið eitt yfir sextugt hjá báðum. Ég skil vel sáran söknuð vinar míns Gunnars Bíldals, þvl hann átti góðri konu á bak að sjá, sem deilt hafði með honum kjörum lífsins af glöðum og gððum vilja. Hún jafnaðist ekki á við hann til athafna og út- sjónar. Hún vann sitt kyrrláta starf innan veggja heimilisins, þar var hún hinn góði engilL umhyggjusöm eiginkona og móð- ir. „Ljúflyndi yðar sé öllum kunnugt“, sagði ppostulinn. Það mátti heimfærast til hennar, þvl hún var ástvinum sínum hinn ljúfi og góði lífsförunautur alla tíð. Þvi varð fráfall hennar þeim þung raun, en það er sú saga, sem ávallt er einhvers stað ar að gerast. Frú Eugenía var kona fríð sýn- um, hæglát og kurteis í fasi, en tróð sér aldrei fram. Hún var vönduð kona til orðs og æðis og vildi hvarvetna koma fram til góðs. Þau hjónin kynntust mörg- um og þótti öllum gott að koma á heimili þeirra, því þar var bæði rausn og skemmtilegu við- móti að mæta hjá þeim báðum — og eins fyrir það, þó efni væru kannske ekki alltaí yfir- fljótanleg. Eugenía Bíldal hugsaði meira um eilífðarmálin en margur ger ir. Hún hafði lengi haft áhuga á „sálarrannsóknunum" og styrkst í trú sinni á framhald lífsins eftir líkamsdauðann. Það er án efa eitt það mikilvægasta sérhverjum manni, að eiga þá trú, og fátt dýrlegra en að geta kvatt og verið kvaddur t ljósi Framhald á bls. 24

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.