Morgunblaðið - 18.05.1967, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1967.
3
Kjörstaðir
MBL. hefur horizt fréttatil-
kynning frá utanríkisráðuneyt-
inu um kjörstaði erlendis vegna
utankjörfundaratkvæðagreiðslu
og fer listi yfir þá hér á eftir.
Utankjörfundarkosning getur
hafist á eftirtöldum stöðum er-
lendis frá og með 14. maí 1967:
BANDARÍKI AMERÍKU:
Washington D.C.
Sendiráð fslands
2022 Connecticut Avenue, N.W.,
Washington, D.C. 20008.
Chicago, Illinois:
Ræðismaður: Dr. Árni Helgason,
100 West Monroe Street,
Chicago 3, Illinois.
Grand Forks, Morth Dakota:
Ræðismaður: Dr. Riohard Beck
525 Oxford Street, Apt. 3,
Grand Forks, North Dakota.
Minneapolis, Minnesota:
Ræðismaður: Björn Björnsson,
524 Nicollet Avenue,
Minneapolis 55401, Minnesota.
New York, New York:
Aðalræðismannsskrifst. íslands,
420 Lexington Avenue,
erlendis
New York, N.Y. 10017.
San Francisco og Berkeley,
California:
Ræðismaður: Steingrímur O.
Thorlaksson,
1633 Eln Strnet,
San Carlos, California.
BRETLAND:
London:
Sendiráð fslands,
1, Eaton Terrace,
London S.W. 1.
Edinbur gh-Lei th:
Aðalræðismaður: Sigursteinn
Magnússon,
46 Constitution Street,
Edinlburgh 6.
DANMÖRK:
Kaupmannahöf n:
Sendiráð íslands
Dentes Plads 3,
Kaupmannahöfn.
FRAKKLAND:
París:
Sendiráð íslands,
124 Bd. Haussmann,
ÍTALfA:
Genova:
Aðalræðisma'ður: Hálfdán Bjarna
son.
Via C. Roccatagliata Ceccardi
No. 4-21, Genova.
KANADA:
Toronto, Ontario:
Ræðismaður: J. Ragnar Johnson,
Suite 2005, Victory Building,
80 Richmond Street West.
Toronto, Ontario.
Vancouver, British Columbia:
Ræðismaður: John F. Sigurdsson,
Suite No. 5, 6188 Willow Street,
Vancouver, 18, B.C.
Winnipeg, (Umdæmi Manitoba,
Saskatehewan og Alberta).
Aðalræðismaður: Grettir Leo
Jóhannsson,
76 Middle Gate,
Winnipeg 1, Manitoba.
NOREGUR:
Osló:
Sendiráð íslands,
Stortingsgate 30,
Osló.
Framhald á bls. 31
Kosningaskrifstofur
Kópavogur
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálf-
stæðisfiokksins er í Sjálfstæðis-
húsinu, Borgarholtsbraut 6,
Kópavogi. Símar 40708, 42576 og
42577. Skrifstofan er opin frá kl.
9—22. Sjálfstæðisfólk er hvatt
til þess að koma á skrifstofuna
og gefa upplýsingar varðandi
kosningarnar.
Hafnarfjörður
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálf-
stæðisflokksins er i Sjálfstæðis-
húsinu, Strandgötu 29. Skrifstof-
an verður opin frá kl. 9—22.
Sjálfstæðisfólk er hvatt til
þess að koma þangað og gefa
upplýsingar varðandi kosning-
arnar.
Sími skrifstofunnar er 50228.
Suðurnes
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálf-
stæðisfélaganna er að Hafnar-
götu 46, Keflavík, simi 2021.
Skrifstofan er opin kl. 2—6 og
8—10 síðdegis alla daga. Sjálf-
stæðisfólk vinsamlega gefið
skrifstofunni upplýsingar varð-
andi kosningarnar. Keflvikingar,
vinsamlega gerið skil í Lands-
happdrættinu.
Vestmannaeyjar
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálf-
stæðisflokksins í Vestmannaeyj-
um er í Samkomuhúsinu, sími
1344. Afgreiðsla Landshapp
drættisins er á sama stað.
Sjólislæðisfólk
FÉLAGAR í Heimdalli, Verði og
Óðni, sem fengið hafa senda
happdrættismiða f Landshapp-
drætti Sjálfstæðisflokksins, eru
vinsamlega beðnir að gera skil,
sem allra fyrst, því að óðum
styttist sá tími þar til dregið
verður.
VestfjarðarkjÖrdœmi
Aðalkosningaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins á Vest-
fjörðum er að Uppsölum, ísa-
firði, sími 695 og 232. Skrif-
stofan veitir allar upplýsing-
ar í sambandi við utankjör-
staðaatkvæðagreiðslu og ann
að er að kosningunum lýtur.
VESTFIRÐINGAR
Hafið samband við kosn-
ingaskrifstofuna. Þeir, sem
verða fjarstaddir á kjördegi,
eru beðnir að kjósa í tæka tíð,
strax og það er leyfilegt, og
senda atkvæði sín.
Sjálfstæðisfélögin
á Vestfjörðum.
'1
STAKSTEIIVAR
,.Nefndin“ við
Skólavörðustíg
Birgir ísleifur Gunnarsson rft- •
aði athyglisverða grein í fylgirtt
Morgunblaðsins „Með ungu
fólki" sl. fimmtudag, þar sem
hann lýsir á glöggan hátt hafta-
tímabilinu á stjórnartima vinstrl
stjómarinnar. Hann segir; „Sá
sem þetta ritar minnist þesa
ávallt, að honum sem ungum
stúdent við Háskóla íslands var
eitt sinn boðið að taka þátt i
stúdentamóti, sem haldið var f
Sviþjóð, og var það einmitt &
velmektarárum vinstri stjómar-
innar, sem Framsóknarflokkur-
inn hafði fomstu í. Þetta var
að sjálfsögðu freistandi boð, eu
einn var þó gallinn á gjöf Njarð-
ar, og hann var sá, að gjaldeyrir
lá ekki á lausu. Boðinu var nú
samt tekið í trausti þess, að
„nefndin“, sem hafði aðsetur
uppi á Skólavörðustig mundi sjá
aumur á einum stúdent, sem
langaði til að hitta jafnaldra sína
á NorðurIöndum.“
Yfirfull biðstofa
„Hófst nú mikið stríð. Fyrsta
morguninn, sem gengið var upp
á Skólavörðustíg í þessum er-
indagjörðum mátti taka sér sæti
á biðstofu, sem var yfirfull af
fólki. Þar gat að líta margskonar
fólk, væntanlega ferðalanga, inn-
flytjendur og aðra atvinnurek-
endur eða menn, sem vildu
byggja eða aðeins eigrnast bíL
Allt var leyfum háð. Allir þurftu
að sitja sinn tíma og bíða — og
þó. Sagt var, að forkólfar SIS,
eða annara sem væru innundir
hjá stjórninni þyrftu aldrei að
bíða. Þeim nægði að hringja. Við
og við komu valdsmannlegir
menn fram í dyr og sögðu
„næsti" og þá stóð einhver upp
og gekk inn. Þegar hann kom út
aftur reyndu menn að greina það
í svip viðkomandi, hvort hann
hefði fengið lausn. Þá var og
stungið saman nefjum um það,
hvort „sá í nefndinni“ væri í
góðu skapi í dag en einhverjir
viðstaddir höfðu það fyrir satt,
að það gæti skipt miklu máli.
Loksins var röðin komin að
greinarhöfundi. Hann gekk fam
og settist gegnt hinum mikilvæga
manni. Nú var byrjað að spyrja
nákvæmlega um tilgang ferða-
lagsins, hvert ætti að fara,
hversu lengi ætti að dveljast
o. s. frv. Að lokum sagðist mað-
urinn hafa samúð með stúdent-
um og gæti hann látið af mörk-
um í þessu skyni leyfi fyrir
ákveðinni upphæð, sem þvi mið-
ur gæti ekki orðið eins há og
um var beðið. Leyfið mættt
sækja eftir hádegi og borga leyf-
isgjald. Enginn vafi er á þvi, að
þeir, sem á biðstofunni sátu,
gátu glöggt séð málalok á and-
liti sögulietjunnar í þessu til-
fellL“
Glíma við bankann
„Leyfið var mikilvægt, en ekkl
var unnt að borga neins staðar
fyrir sig með leyfinu einu sam-
an og næst þurfti að glíma við
banka og þar var líka biöstofa
og á þeirri biðstofu voru margir
þeir sömu og sem setið höfðu
uppi á Skólavörðustíg. Það voru
hinir heppnu, þeir útvöldu, sem
höfðu fengið gjaldeyrisleyfið.
Það tók oft langan tíma, að fá
gjaldeyrir í hendurnar, það kost-
aði miklar yfirlegur og margar
setur. Þessi litla persónulega
endurminning er aðeins eitt
dæmið af ótalmörgum um hvern
ig umhorfs var í islenzku þjóð-
lífi, þegar vinstri stjórnin fór frá
seint á árinu 1958“.