Morgunblaðið - 27.05.1967, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 27.05.1967, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1967. 15, SUÐURLAMDSKJÖRDÆIVII c'- ■ •'* ' • ' •' ... ‘\ ’ t-;l í‘‘: • Steinþór Gestsson, bóndi Hœli: Sveitirnar og lan dbúnaöarlöggjöf in Allt frá því að land byggðist og fram á annan tug þessarar aJdar, má segja að litlar og óverulegar breytingar hafi orð- ið í atvinnuháttum landsmanna. Til landisins var framleitt kjöt og mjólkurvörur við frumstæð- ar aðistæður: Heyja var aflað með handverkfærum á óræktuðu landi, þar sem eftirtekja vildi jafnan verða æði rýr en erfiði heyskaparfólksins mikið og vinnudagur langur. Á síðustu áratugum hafa stórvirki verið unnin I þessum efnum. Þróun landbúnaðarins, sem með öðrum þjóðum hefur staðið í margar aldir, hefur hér verið hrint fram á fáum áratugum, svo að við stöndum nú ekki ýkjalangt að baki þeim þjóðum, er bezt hefur miðað áfram á liðnum öldum. kvæmdir með stórvirkum vélum Um leið og ræktunarfram- fóru að segja til sín og tækn- in var á öðrum sviðum tekin í þjónustu landbúnaðarins, urðu meiri breytíngar á aðstöðu bænda og búaliðs í þjóðfélaginu en flesta óraði fyrir. Atvinnu- grein. sem áður bjó mest að eig- inframleiðslu var nú komin í straumkast viðskiptabúskaparins. Flutningur fólks úr sveitum landsins og uppbygging borga og þéttbýlisbyggðarlaga orkaði mjög á framvindu allra athafna í landbúnaðarhéruðum landsins. Framleiðsluvörur bænda þurfti nú að selja út frá framleiðslu- stað til neytenda í bæum og þorpum, en heimaneyzlan varð Mutfallslega minni með hverju árinu sem leið. Vegna ört vaxandi fólksfjölda 1 landinu, eykst stöðugt þörfin fyrir aukna ræktun og f jölbreytt- ari framleiðsluvörur frá bænd- um, og þótt komið hafi til nokk- urrar umframframleiðslu á hag- stæðustu árunum, þá er það ljóst, eð ekki má hvika frá þeirri stefnu í landbúnaðarmálum um, 9em fylgt hefur verið hin síðari ár, um eflingu ræktunar og hagræðingu í rekstri, til þess að þjóðin fái framvegis, eins og hingað til, það sem hún þarf að nota sjálf. Jafnframt ber að huga að því, að selja úr landi vissar tegundir framleiðsiuvar- anna, fullvinna þær og vinna þeim markað. Á því siem nú hefur verið rak- ið, sést að það varður miklu fyrir þjóðfélagið í heild, að stjóm landbúnaðarmála sé í öruggum höndum. Urtölumenn mega ekki ná þar yfirtökum, þvi að litlu má enn muna að við stöndum við þá frumskyldu að sjá þjóð- inni fyrir helztu landbúnaðar- vörum. Enn er ekki lengra kom- ið en svo, að nærri liggur vöru- skorti þegar árferði er erfitt, og ef bændastéttin býr ekki við sambærileg kjör og aðrar stéttir þjóðarinnar, þá missum við úr höndum okkar þann ágóða, sem hefst af því að nýta gæði lands- ins sjálfum okkur til handa. Framsókniarmenn telja, að Framsóknarflokkurinn hafi verið bændaflokkur öðrum fremur. Satt er það, að lengi vel hömp- uðu þeir þvi mjög og höfðu í frammi áróður fyrir landbúnað- armálum og töldu það vænlegast til framdráttar flokki sinum að kalla aðrar atvinnustéttir and- stæðinga bænda. Fjölmargir bændur áttuðu sig ekki á því, að þesisi áróður var bændaistétt- mni hættulegur og ósannur. Því aðeins gat bændastétt, sem rek- ur viðskiptabúskap, vegnað vel, að öllum stéttum væru búin líf- vænleg atvinnuskilyrði og skiln- ingur ríkti með þjóðinni á hlut- verki landbúnaðarins. Af skamm- sýni og vegna áróðurs höfðu margir bændur þá trú, að þeir staðair en í Framsóknarflokkn- um. Sú trú hygg ég að muni verða okkur haldlaus, þegar mál- in eru krufin til mergjar og at- hugun gerð á því hversu til hef- ur tekizt, þegar aðrir en Fram- sóknarmenn hafa verið kvaddir til þess að stýra málum landbún- aðarins. F ramsóknarflokkurinn hefur, vegna ágalla á kjördæmaskipun- inni haft meiri völd og lengur aðistöðu til áhrifa í ríkisstjóm en eðlilegt væri eftir kjörfylgi hans. Hann hefur því getað fylgt fram stefnu sinni og komið því áfram sem hann hefur haft rík- astan áhuga á, þar sem aðild hans að ríkisstjórn hefur varað svo lengi. Landbúnaðarráðherra hefur hann átt 1927—1941 og 1947—1956. Því er það athyglis- vert, að þegar Ingólfur Jónsson var skipaður formaður kjötverð- lagsnefndar 1942, að þá skyldi hann þurfa að leiðrétta verð- lagningu á kjötvörum jafn mik- ið og hann gerði, þar sem „bændaflokkurinn" hafði faiið með stjóm þeirra mála áður en leiðréttingin var gerð. Þeim mönnum fer að sjálfsögðu fækk- andi, sem á þeim árum bjuggu við fjárpestir og verðlag á af- urðum fjárins, sem var langt undir framleiðslukostnaði, og því er þetta rifjað upp hér, en þeim fannst þá, eins og að lík- um lætur, ólíkt að farið en áður. f>á er ástæða til að geta um þau ár, sem Pétur Maignússon var landbúnaðarráðherra, árin 1944—1947. I>au ár valda tírna- mótum í íslenzkum landbúnaði, sérstaklega vegna setningu laga um jarðræktar- og húsagerðar- samþykkta í sveitum, sem mið- taka stórvirkar vinnuvélar til nota við landbrot og ræktun og var að því stefnt að heyöflun bænda skyldi öll tekin á rækt- uðu véltæku landi. I kjölfar þeirrar lagasetningar fór svo al- hliða vélvæðing landbúnaðarinis við heyöflun, ræktun og hey- verkun. Á þeim árum var og hafizt handa um undirbúning að stofnun áburðarverksmiðju, þótt hún kæmist ekki upp fyrr en síðar. Enn má minna á raforku- lögin, sem 9ett voru 1946. Þau lög ásamt lögum um raforku- sjóð, sem sett voru á sama ári, eru án efa þau lög, sem hvað mest hafa átt þátt í að hamla á móti fólkisflótta úr strjálbýl- inu og því haft hina mestu þýð- ingu fyrir bændur og búalið. Þegar viðreiðsnarstjómin tók við völdum seint á árinu 1959 var svo komið málum í lána- sjóðum landbúnaðarins, að þeir voru fjárvan.a og höfðu bændur safnað miklum lausaskuldum á undangengnum árum, þar sem framkvæmdalán til lengri tíma voru miklum mun minni en þörf krafði. Því var það, að Ingólfur Jónsson, sem nú var tekinn við embætti landbúnaðarráðherra, hafði forgöngu um að gefin voru út bráðabirgðalög 1961 um breytingu á lausaiskuldum bænda í föst lán. Með þessum lögum var Veðdeild Búnaðarbankans heimilað að gefa út bankavaxta- bréf í því skyni að breyta í föst lán þeim lausaskuldum, sem hlaðizt höfðu upp vegna fram- kvæmda, ®em bændur höfðu ráðizt í á árunum 1956—1960. Framsóknarmenn mæltu ekki í gegn þessari ráðstöfun, en eins og væmta mátti, gerðu þeir lítið úr gagnsemi þessara fyrirætlana og töldu, að bankavaxta.bréfin yrðu bændum gagrnslaus. Þeir töldu, að skuldheimtmenn bænda myndu ekki vilja taka við bréf- unum sem greiðslu. Svo sem fyrr, létu ýmsir bændur áróður Framsóknarmanna glepja sig, tóku hann fyrir góða og gilda vöru og sóttu því ekki um þessi lán. Þetta varð þeim bændum dýrt spaug og ættá að sannfæra menn um, að valt er að fara eft- ir ráðum Framsóknar, sem oft virðist meta flokkshagsmuni meir en hag bænda. Eins og kunnugt er, varð þessi ráðstöf- un til stórra hagsbóta, þeim er notuðu sér hana, þar sem nærri 66 mdljónum króna var nú kom- ið í lán tn 20 ára, sem áður voru ýmiist verzlunarskuldir eða víx- illán, Árið 1962 fékk landbúnaðax- ráðherra samþykkt lög um Stofn- lánadeild landbúnaðarins. Eins og fynr er sagt var hagur Ræktun- arsjóðs og Byggingarsjóðis svo bágur, að samanlagðar skuldir þeirra umfram eignir voru orðn- ar rúmlega 40 milljónir króna og að öllu ffðPeyttu myndi hagur þeirra fara síversnandi. Land- búnaðarráðherra fékk deildinni nýtt stofnfé og til þess að tryggja uppbyggingu hennar í nútíð og framtíð voru deildinni tryggðir fastir tekjustofnar. Þeir bændur, sem ekki eru rígbundnir á klafa Framsóknarflokkisins, sjá það og skilja, að hér var unnið mikið þarfa verk og óheillaþróun snú- ið við, svo að nú getur land- búnaðurinn mætt kröfum tímans og byggt sig upp. ÞeiS'sa mögu- leika hafa bændur notað mjög vel, sem sjá má af þvi að árið áður en lögin um Stofnlána- deildina voru sett, námu útlán úr sjóðunum um 52 milljónum króna en á árinu 1966 var sú upphæð nærri þrisvar sinnum hærri, eða um 150 milljóndr kr. Enda er svo komið, að fram- kvæmdaáætlun sú, er Stéttar- samband bænda lét gera fyrir áratuginn 1961—1970 hefur fylli- lega verið fylgt og í sumum tilfellum farið langt fram úr áætlun, svo sem í byggingu þurrheyshlaða, súgþurrkunar kerfa og í dráttarvélakaupum o. fl. Framsóknarmenn hafa lagst hart gegn þessum lögum og tal- ið þau óaðgengileg og mikla nauðsyn á að snúa hér við blaði. Hefur það gengið svo langt, að tilraun var gerð tíl þess að lama Stofnlánadeildina með því að skerða tekjustofna hennar með dómi. Sem betur fór, heppoað- ist þetta tilræði ekki. En komist Framsóknarflokkurmn til valda á ný, geta íslenzkir bændur ekki haldið óhikað áfram störfum sín- um til uppbyggingar atvinnu- vegi sínum. Þá eiga þeir á hættu að stofnlánasjóðimir verði lam- aðir og gerðir óvirkir. Haldi Sjálfstæðisflokkurinn völdum, munu þeir vaxa og verða bænd- um framtíðarinnar styrkur og stoð til þess að standast þau verkefni, sem þeim verða feng- in með vaxandi fólksfjölgun og vaxandi kröfum um vörugæði og vöruval. Verðlagning landbúnaðarvara er jafnan erfitt viðfangsefni og við þær aðstæður er fyrir hendi Steinþór Gestsson voru, gekk alla jafna illa að ná þvi verði til framleiiðenda, sem samningar höfðu verið gerðir um. Með margskonar endurbót- um á afurðasölulöggjöfinni, sem landbúnaðarráðherra hefur kom- ið fram, hefur tekizt að skila bændum því verði, sem um var samið að þeir fengju. Hefur það að sjálflsögðu haft hina mestu þýðingu fyrir bændaistéttina, enda er það meginforsenda þess að atvinnuvegurinn svari kalli síns tíma, að hann fái sinn hlut óskertan, en það bar sjaldan við meðan Framsóknarmenn fóru með framkvæmd landbúnaðar- málanna. Margskonar ráðstaðahir hafa verið gerðar og lagaisetniingar, sem renna stoðum undir öryggi landbúnaðarins. Má þar minna á endurskoðun jarðræktarlaga, búfjárræktairlaga, lækkun að- flutningsgjalda af dráttarvélum og innflutningsfrelsi á þeim, inn- flutningsfrelsi á fóðurbæti, stofn- un jarðeignasjóðs, lög um land- græðslu, fiskirækt og fleira mætti telja, sem Ingólfur Jóns- son hefur beitt sér fyrir að koma fram, landbúnaðinum og þjóðfélaginu í heild til hagsbóta, en ég mun ekki telja fleira að þessu sinni. En mér er kuxmugt um það, að margir bændur, sem fylgt hafa Framsóknarmönnum að málum, spyrja sjálfa sig þrá- faldlega þeirrar spurningar, hversvegna Ingólfi Jónssyni hafi tekizt að stýra málum landbún- aðarins betur en landbúnaðar- ráðherrum Framsóknarflokksirus tókst nokkru sinni. Þeim hafi jafnan verið sagt, að landbúnað- ur á fslandi mundi ekki stand- ast það til lengdar ef Framsókn- arflokkurinn missti áhrifavald sitt á málefnum hans. Þeim mönnum, sem þessari firru trúa enn, má benda á það, að þótt Ingólfur Jónsson sé flestum þing- mönnum dugmeiri og þekkir þarfir landbúnaðarins betur en aðrir, þá hefði horuim einum ekki tekizt að koma fram því sem gert hefur verið. Hitt er nær sanni, að vegna þess að Sjálf- stæðisflokknum er það ljóst, að atvinnuvegimir og atvinnustétt- irnar verða að hafa vaxtarmátt og vihlítandi afkomumöguleika og Sjálfstæðismenn telja, að landbúnaður sé atvinnuvegur, sem stóra þýðingu hefur fyrir íslenzkt þjóðfélag, þá hefur Ing- ólfi Jónssyni tekizt að vinna svo vel fyrir landbúnaðinn, sem almenningur vitnar til. Það er vegna þess, að hann er Sjálf- stæðismaður, að hann á samleið með mönnum með víðsýni, mönn um sem vita að ekkert vinnst, nema skilnmgur ríki milli stéttia og starfshópa, mönnum sem hafa yfirsýn sem nær lengra yfir lít- inn afmarkaðan baug. Framhald á bls. 10 Myndarlegt sveitabýli. Þórustaðir í Ölfusi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.