Morgunblaðið - 27.05.1967, Síða 32
Helmingi utbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1967
Drœtti frestað til 6. júní
Landshappdrœtti
Sjálfstœðisflokksins
Miðlunartillaga í
farmannadeilunni
STÝRIMENN, vélstjórar og loft
skeytamenn á kaupskipaflotan-
um halda með sér fund kl. 10
fh. í dag og ræða meðal annars
þá tillögu sáttasemjara að mál-
ið verði lagt fyrir gerðardóm.
Sáttafundur er svo boð:Vður
klukkan fimm eftir hádegi. Svo
sem skýrt var frá í Morgun-
blaðinu í gær, stöðvuðust Detti-
foss og Goðafoss þegar vegna
verkfallsins, en Gullfoss slapp út
tveimur tímum áður en það skall
á. Strandferðaskip stöðvast einnig
fljótlega m.a. komst Herjólfur
ekki til Vestmannaeyja í gær.
Þeim skipum sem koma með
vörur erlendis frá er leyft afð
losa farm sinn áður en þau eru
stöðvuð.
Lokasóknin hafin
dregið eftir 10 daga
LOKASÓKNIN í hinu
glæsilega Landshappdrætti
Sjálfstæðisflokksins er nú
hafin. Sem kunnugt er
verður dregið um 5 ev-
rópskar bifreiðir 6. júní
n.k. að verðmæti 1 milljón
og eitt hundrað þúsund
kr. Mikið er í húfi að Sjálf
stæðisfólk um land allt
sýni samstöðu og einhug
um að gera árangurinn af
þessu happdrætti sem
glæsilegastan. Hver vill
ekki eignast bíl fyrir 100
kr.?
Siúkraflugvélar ■
flutningum í gær
BJÖRN Pálsson, flugmaður var
alls fjórum sinnum í gærdag
beðinn um að senda sjúkraflug-
vél út á land. Til Patreksfjarðar
að sækja þýzkan sjómann, sem
hafðí höfuðkúbubrotnað, til Vest
mannaeyja og til Króksfjarðar-
ness og Reykhóla, þar sem tvö
börn voru fjársjúk. Var annað
þeirra með sprunginn botnlanga.
Gat hann ekki sökum fárviðris
lent í Króksfjarðarnesi og Reyk-
hólum.
Blaðið náði í gærkveldi tali af
Birni og sagði hann að um
klukkan 2:30 hefði hann fyrst
verið beðinn um að sækja þýzk-
an sjómann til Patreksfjarðar.
Hafði þýzkur togari snemma
um daginn komið til Patreks-
fjarífer, þar sem einn af á-
höfninni hafði fengið blökk í
Siffeyglvarniaigur
í Goðafossi
TOLLVERÐIR fundu um 1200
„karton" af smygluðum síga-
rettum 1 Ms. Goðafossi í gær.
Skipið kom frá Hamborg síðast-
liðinn miðvikudag og hófu toll-
verðirnjr þá leit í því. Þeir
fundu varninginn í lest skipsins
í gærmorgun, í kössum sem
merktir voru Landsímanum.
Ekki hafði fundizt neitt áfengi
þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við Ólaf Jónsson, fulltrúa
tollstjóra i gærkvöldi.
Akureyrarskátar
50 ára
f DÁG eru liðin fimmtíu ár frá
því að fyrsta skátafélagið á Ak-
ureyri var stofnað. Frumkvöðull
að stofnun fyrsta félagsins var
Viggó Öfjörd og hafa skátar boð-
Ið honum og konu hans hingað
I tilefni afmælisins, en þau hjón
in búa í Danmörku.
Skátafélögin minnast þessara
tímamóta á margan hátt í dag
en aðalhátíðahöldin verða fjórða
júni nk.
STE.
höfuðið og hlotið við það mik-
ið högg. Álitið var að um höfuð
kúbubrot væri að ræða. Tókst
Birni greiðlega að lenda í Pat-
reksfirði og var hann kominn
aftur til Rvíkur liðlega 5. Var
sjómaðurinn fluttur á Landakots
spítala.
Seinna um daginn var Björn
beðinn um að senda flugvél til
Vestmannaeyja. Tjáði hann
blaðinu, að þar sem veðrið í
Eyjum var mjög gott, hafi hann
sent þangað litla flugvél og hafi
lendingin gengið vel.
Hann flaug sjálfur áleiðis til
Króksfjarðarness og Reykhóla,
þar sem tvö börn voru fársjúk.
Honum tókst ekki að lenda á
hvorugum staðnum sökum fár-
viðris. Um borð í vélinni var
sjúkrahússlæknirinn í Stykkis-
hólmi, sem Björn hafði sótt í
leiðinni. Varð Björn að skilja
við lækninn aftur í Stykkishólmi,
sem fór síðar í sjúkrabíl frá Búð
ardal til móts við börnin, sem
leggja átti í sjúkrahúsið á Stykk
ishólmi.
Þessi mynd er tekin úr lofti af Hrafnistu. Álman sem brátt verður tekin í notkun er hægra
megin á myndinni.
Sjómannadagurinn
Hátíðahöldin hefjast I dag
og halda áfram á morgun
HÁTÍÐAHÖLD Sjómanna-
dagsins í Reykjavík verða
nokkuð fjölbreyttari og á
annan veg en áður, þar sem
í dag, laugardag, verður
kappróður í Reykjavíkur-
höfn, en á morgun verða aðal
hátíðahöldin og fara þau að
mestu fram í Laugardal og
við Hrafnistu, Dvalarheimili
aldraðra sjómanna. Keppt
verður í tveimur íþrótta-
Tvö félög segja
upp samningum
Á FUNDI borgarráðs er haldinn
var sl. þriðjudag tiikynntu tvö
stéttarfélög er kjarasamninga
gera við Reykj avíkurborg upp-
sögn gildiandi samninga. Annað
þessara félaga er Lögreglufélag
Reykjavíkur en hitt er Hjúkr-
unarfélag íslands.
greinum, stakkasundi og
björgunarsundi, í nýju sund-
lauginni í Laugardal, en
hvorug þessara greina hafa
áður verið iðkaðar á sjó-
mannadaginn hér í borg, þótt
þær hafi lengi tíðkazt víða
annars staðar á landinu. í til-
efni dagsins kemur út sjó-
mannahlaðið Víkingur, veg-
legt og fjölbreytt að vanda.
Merki dagsins verða seld á
15 stöðum í borginni, m.a. í
öllum barnaskólum hennar.
Dagskráin er að öðru leyti
þannig, að kl. 8 á sunnudags-
morgun verða fánar dregnir að
hún á skipum í Reykjavíkur-
höfn. Kl'ukku'Stund S'íðar hefst
merkja- og blaðasalan. Sr. Grim-
ur Grímsson flytur hátíðamessu
í Laugarásbíó kl. 11 fyrir hád.
og Kristimn Hallsson syngur ein-
söng.
Eftir hádegi leikur Lúðrasveit
Reykjavíkur sjómanna- og ætt-
9,3 milljónir söfnuðust hérlendis
— til „Herferðar gegn hungri
44
A BLAÐAMANNAFUNDI hjá
framkvæmdanefnd „Herferðar
gegn hungri", sem haldinn var
síðdegis i gær, var upplýst, að
frá því að nefndin hóf að safna
í sjóð árið 1965 til aðstoðar van-
þróuðum löndum hafa safnaðzt
frá íslenzku þjóðinni 9 millj.
307 þús. 667,84 ísl. krónur. Þar
af hafa þegar verið veittar 2
millj. 197 þús. 510,10 isl. krónur
til framkvæmda og menntunar í
Madagaskar, Marokko og Nige-
ríu, svo sem áður hefur komið
fram í fréttum.
Sigurður Guðmundsson, for-
maður framkvæmdanefndar,
tjáði fréttamönnum m.a., að í
upphafi herferðarinnar hefði
nefndin gert sér vonir um að
nægilegt fjármagn myndi safn-
azt til að hægt yrði að standa
straum af kostnaði við verk-
efni, (í Nígeríu, Marokko og
Madagaskar) sem nefndin hafði
þá valið að upphæð rúmlega 2
millj. ísl. króna. Gat Sigurður
þess að þessar vonir hefðu rætzt
og meira en það, því alls hefði
safnazt rúmlega 4 sinnum sú upp
hæð, og engan hefði órað fyrir
því að söfnunin myndi standa
eins langan tíma og raun varð á.
Síðustu peningarnir komu inn
í febrúar sl., en endanlegt upp-
gjör lá fyTÍr um mánaðamót-
in marz-apríl. Er árangurinn af
söfnuninni sá alglæsilegasti sem
náðst hefur nokkurs staðar í
heiminum ca. 49 krónur á hvern
íslending. Upphæðinni, sem
enn á eftir að verja til vanþró-
uðu landanna, 7 millj. 110 þús.
166,74 ís'l. kr., verðuT varið til
Nígeríu, Burundi og Tanzaníu.
í Nígeríu til framleiðslu- og
þjálfunarstöðvar í fiskirækt í
saltmenguðu vatni, í Burundi til
eflingar á veiði í vötnum og
fiskisölu innanlands. og i Tanza-
níu tifl. lestrarkennslu.
Kostnaður við söfnunina, sem
nam um 800 þús. ísl. kr. var
ýmist gefinn eða greiddur af
ríkinu.
jlarðarlög fyrir framan Hrafn-
istu. Þá fer fram minningarat-
höfn. Séra IngólÆur Ásitmarsson
minniist druikknaðra sjómanna.
Þá flytja ávörp fulltrúar ríkis-
stjórnarinnar, sjómanna og út-
gerðarmanna. Milli ávarpa og
annarra atriða dagsins munu
Lúðrasveit Reykjavikur og
Karlakór Reykjavíkur flytja
sjómannasöngva, m.a. sjómanna-
lagið „Stjána bláa“, sem hefur
orðið einskonar titillag dagsins,
en höfundux lagsins, Sigfús Hall-
dórsson, hefur nýlega raddsett
það fyrir karliakór. Höfundur
ljóðsins er sem kunnugt er Örn
Arnarsom (Magnús Steflánsson).
Konur úr Kvennadeild Slysa-
V'arnafélagsins mumu selja sjó-
mannadagskaffi í aðalborðsal
Hrafnistu. Rennur ágóðinn ai
kaffiisölunni til sumardvalar-
skóla, sem Sjómannadagsráð fyr
irhugar að byggja í 600 hektara
jörð siinni í Grímsmesi. Sjómanna
dagsráð hetfur leigt sumardval-
arskóla fyrir börn frá bágstödd-
um sjómannaheimilum í Holtum
undanfarin ár, en það húsnæði
fékkst ekki leigt í ár. Sjómanna-
dagsráð telur, að skólinn verði
fullbúinn til íveru á næsta ári.
Kvöldskemmtanir Sjómanna-
dagsins verða á flestum skemmti
stöðum borgarinnar á vegum
Sjómannadagsráðs.
Kl. 13.30 um daginn verður
barnaskemmtun í Laugarásbíó
og unglingadansleikur í Lúdó frá
kl. 14—17.
Tekjur af Sjómannadeginum
renna til Hrafnistu og til bygg-
ingar fyrrgreinds sumardvalar-
heimilis í Grímsnesi.
Framh. á bls. 3
Höfuðkúpubrotnaði
skólaferðalagi
i
FJÓRTÁN ára gömul skóla-
stúlka úr Hlíðaskóla höfuðkúpu
brotnaði er steinn féll í höfuð
hennar austur við Skógafoss
síðastliðinn þriðjudag. Hún var
í skólaferðalagi með félögum
sínum og nokkrum kennurum,
að afloknum vorprófum.
Langferðabifreið sem þau
voru í ók upp að fossinum og
var umrædd stúlka ein hinna
fyrstu út, og hljóp upp að berg-
inu með vinstúlkum sínum. Þeg
ar steinninn lenti í höfði hennar
fél'l hún út í hylinn fyrir neðan
fossinn, en ein skólasystra henn
ar dró hana þaðan upp. Kenn-
ararnir hlúðu að henni og Vig-
fús Magnússon, héraðislæknirinn
í Vík var kallaður í vettvang.
Sjúkraflugvél flutti hana til
Reykjavíkur og var hún lögð
inn í Landakotsspítala.