Morgunblaðið - 28.05.1967, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MAÍ 1967.
Úsannindi Framsóknar um
afstööuna til EFTA og EBE
j< Stefnuleysi og örvœnfing mótar nú
baráttuaðferÖir framsóknar-
málgagnsins
j< Þeim mun stœrri fyrirsagnir - sem
ósannindin eru meiri
EITT af þeim meiriháttar
málum, sem Framsóknar-
flokkurinn hefur gjörsam-
Iega vikið sér undan að
taka ábyrga afstöðu til,
eru markaðsmálin, þ. e.
hvernig íslendingar eigi að
bregðast við hækkandi toll
múrum og versnandi sam-
keppnisaðstöðu af völd-
um markaðsbandalaganna,
sem öll ríki Vestur-Evr-
ópu nema íslendingar, hafa
leitað eftir einhverskonar
tengslum við.
í stað ábyrgrar afstöðu,
hefur „Tíminn“ svo RÁÐ-
IST MEÐ DYLGJUM OG
STAÐLAUSUM FULL-
YRÐINGUM að stjórnar-
flokkunum og fullyrt, að
þeir ætluðu að „innlima ís
land I Efnahagsbandalag
Evrópu“ og aðild að EFTA
nú sé „fyrst og fremst
hugsuð sem fyrsti áfangi
inn í Efnahagsbandalag-
ið.“
— HÉR ER UM STAÐ-
LAUS ÓSANNINDI AÐ
RÆÐA.
Sú stefna, sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur
mótað andspænis þeim
erfiðleikum, sem um skeið
hafa gert vart við sig á
þessu sviði — og stöðugt
fara vaxandi, er eftirfar-
andi:
1) Kannaðir verði „end-
anlega möguleikar Islands
til þátttöku í Fríverzlun-
arbandalaginu (EFTA) og
leitað aðildar að því, FÁ-
IST HÚN MEÐ VIÐHLÍT-
ANDI KJÖRUM og þau
kynnt öllum þeim, sem
hagsmuna eiga að gæta“,
sbr. ályktun Landsfundar
Sjálfstæðisflokksins í sl.
mánuði.
2) „FULLKOMNIR AÐ-
ILAR EFNAHAGS-
BANDALAGSINS GET-
UM VIÐ EKKI ORÐIÐ,
vegna þeirra skilyrða, sem
þar eru sett“, sbr. ræðu for
manns Sjálfstæðisflokks-
ins, dr. Bjarna Benedikts-
sonar, á Landsfundinum.
Það er því alrangt, gjör-
samlega út í hött — og
gegn betri vitund, þegar
„Tíminn" blygðunarlaust
heldur því fram, að stjórn-
arflokkarnir ætli að beita
sér fyrir aðgerðum, sem
þýða muni „réttindi fyrir
alla þegna Efnahagsbanda-
lagsríkjanna til að reka
hér fyrirtæki, stunda hér
atvinnu, kaupa hér fast-
eignir o. s. frv.“, en þannig
kemst hið ósvífna málgagn
Framsóknarflokksins að
orði í gær.
Það er furðuleg óskamm
feilni og LÝSIR BEZT
ÞEIRRI ÖRVILNUN
SEM NÚ GRÍPUR UM SIG
HJÁ FORKÓLFUM
FRAMSÓKNARFLOKKS-
INS, að slíkum ósannind-
um skuli vera haldið fram.
Sjálfur hefur hann ekki
treyst sér til að taka neina
afstöðu í málinu, en ræðst
svo að öðrum með algjör-
um ósannindum.
ÞEIR SEM SLÍKT Á-
BYRGÐARLEYSI SÝNA,
ERU EINSKIS TRAUSTS
VERÐIR. Það munu kjós-
endur sýna í kjörklefan-
um.
— Um þetta efni er rætt í
„Reykjavíkurbréfi" á bls. 17.
IMorðurlandi vestra
FRAMBOÐSFUNDIR á Norður-
landi vestra verða sem hér seg-
ir: Hvammstanga 29. maí kl.
20.00. Húnveri 30. maí kl. 14.00.
Blönduósi 30. maí kl. 20.00.
Skagaströnd 31. maí kl. 20.00.
Steinstaðaskóla í Lýtingsstaða-
hr. 1. júní kl. 14.00. Hofsósi 1.
júní kl. 20.00. Siglufirði, 2. júní
kl. 20.00. Sauðárkróki 4. júní kl.
20.00.
Kappræðufundur
d ísafirði
TJNGIR Sjálfstæðismenn og ung
ir Framsóknarmenn í Vestfjarða
kjördæmi efna til kappræðufund
ar um landsmál og héraðsmál
í Alþýðuhúsinu ísafirði á morg-
un mánud. 29. maí kl. 20.30. Af
'hálfu ungra Sjálfstæðismanna
eru framsögumenn Guðmundur
Agnarsson, verzlunarmaður í
Bolungarvík, formaður FUS í N-
Isafjarðarsýslu og Þór Hagalín
’form aður FUS í V-ísafjarðar-
sýslu.
Framsögu af hálfu ungra Fram
sóknarmanna hafa Guðmundur
Hagailínsson, Ingjaldssandi og
Ólafur Þórðarson, Suðureyri.
Fundarstjórar verða Jens Krist
mannsson formaður Fylkis FUS
á ísafirði og Guðni Ásmundsson,
formaður FUS á ísafirði. Ungt
fólk á ísafirði og nágrannabyggð
um er hvatt til að fjölmenna
á þennan fund og kynna sér
málflutning og skoðanir hinna
ungu talsmanna tveggja stærstu
stjórnmálaflokkanná.
Ingólfur Jónsson
Steinþór Gestsson
Fundur í Hverugerði
unnað kvöld
Sjálfstæðisfélagið Ingólfur í
Hveragerði og fulltrúaráð Sjálf-
stæðisfélaganná í Árnessýslu
halda almennan stjórnmálafund
í Hótel Hveragerði á morg-
daginn 29. maí klukkan 21.
islenzkar mæðgur
slasast í Eþíðpíu
— Maður konunnar beið bana
Addis Abeba, 26. maí.
AP.
FRÚ F.I.ÍN Finborud, þrítug is-
lenzk kona norsks verkfræð-
ings slasaðist ásamt dóttur sinni
í bifreiðaárekstri í Eþíópíu síð-
astliðinn sunnudag. Maður henn
ar, Finn Trygve Finborud lézt
af völdum slyssins, og hefur lik
hans verið brennt. Öskunni
verður flogið til Osló, síðar í
vikunni. Fimm ára gömul dóttir
þeirra hjóna var í annari bif-
reið á eftir foreldrum sínum og
sá slysið.
Læknar við „Princess Tsehai“
sjúkrahúsið í Addis Abeba
sögðu í gærkvöldi, að frú Elín
og átta ára gömul dóttir hennar
væru úr lífshættu.
Slysið varð 138 km. austur af
Framboðsfundir á
J
Sjónvarp í
Sjálfstæðishús-
inu í Hafnar-
firði
ATHYGLI Hafnfirðinga og
þeirra sem búa í nágrenni
Hafnarfjarðar er vakin á því,
að sjónvarpi hefur verið
komið fyrir í Sjálfstæðishús-
inu Hafnarfirði og gefst
mönnum þar kostur á að
fylgjast með sjónvarpsdag-
skrám vegna kosninganna.
Addis Abeba,
þegar Finborud
hjónin ásamt
þremur öðrum
norskum fjöl-
skýldum voru
að koma frá As-
ela þar sem
Finn Trygve
hafði verið að
líta eftir fram-
kvæmdum. Á
leiðinni til baka höfðu þau við-
dvöl við Sodore, sem er sumar-
dvalarstaður. Á leiðinni út á að-
albrautina við sumardvalarstað-
inn lentu þau í árekstri við lang
ferðabifreið, á þröngum, ryk-
ugum hliðarvegi. Arna Aske-
land, norski konsúllinn í Addis
Abeba, sem ók á eftir þéim,
flutti hina slösuðu aftur til As-
ela, en Finn lézt, áður en hann
komst í sjúkrahúsið. Frú Elín,
sú dóttir þeirra sem slasaðist,
og lík Finns voru flutt með
þyrlu til Addis Aheþa. Frú Elín
hafði handleggsbrotnað og rif-
beinsbrotnað og dóttir þeirra
skarst í andliti og meiddist á
hendi.
Boigornes
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
í Borgarnesi hefur opnað kosn-
ingaskrifstofu að Skallagríms-
götu 3, sími 93-7398
Meira smygl
AUK þeifra 1200 „kartona" af
sigarettum sem fundust í ms.
Goðafossi sl. föstudag, hefur nú
'fundizt gólfteppi og ýmis smá-
Varningur. Morgunblaðið bafði
samband við Ólaf Jónason, full-
trúa tollstjóra, i gær, og sagði
'hann að enui væri verið að leita
og fylgjast með uppskipun.
Á fimmta hundrnð manns
d vormóti í Stnpn
SJALFSTÆÐISMENN efndu til
fjölmenns og glæsilegs vormóts
að Stapa í Njarðvíkum i fyrra-
kvöld. Hátt á fimmta hundrað
manns sóttu vormótið og var
sérstaklega áberandi hve margt
Framboðsfundir
á Vestfjörðum
ungt fólk var þar saman komið.
Bjarni Benediktsson, forsætis-
ráðherra flutti ræðu en stutt
ávörp fluttu alþingismennirnir
Sverrir Júlíusson, Axel Jónsson
og Matthías Á. Mathiesen.
Lúdó og Stefán léku fyrir
dansi og óperusöngvaramir Sig-
urveig Hjaltested og Guðmund-
ur Guðjónsson sungu eingsöng
og tvísöng. Loks flutti Karl Ein-
arsson gamanþátt. í gærkvöldi
efndu Sjálfstæðismenn í Reykj-
arneskjördæmi einnig til vor-
móts í Félagsgarði í Kjós.
SAMEIGINLEGIR framiboðs-
fundir stjórnimálaflokkanna í
Vestfjarðakjördæmi verða sem
hér segir.
í dag verða fundir í Króks-
fjarðarnesi kl. 3, 29. maí, að
Birkimel í Barðastrandahreppi
kl. 2 og á Patreksfirði og Tálkna
firði sama dag kl. 8.30. 30. maí
verða fundir á Bíldud-al og þing
eyri kl. 8.30, 31. maí á Flateyri
ag Suðureyri kl. 8.30, 1. júní i
Bolungarvík og Súðavík kl. 8.30
og 2. jiúní á ísafirði M. 8.30.
Frambjóðendiur allra flokka
tala á þessum fundum.
1064
FRÉTT Mbl. um fjölda þeirra landi eystra
kvenna, sem sottu siðasta ^
kaffikvöld kvenframbjóð-
enda Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík reyndist ekki fyVli
lega nákvæm. Sagt var að
yfir 950 konur hefðu sótt
þetta kvöld, þær reyndust
vera 1064.
(J tvarpsumræð-
ur á Norður-
ÁKVEHIÐ hefur verið að
útvarpsumræður fyrir Norð-
urlandskjördæmi eystra farl
fram í gegn um endurvarps-
stöðina að Skjaldarvik
þriðjudaginn 30. mai og föstu
daginn 2. júni og hefjast þær
kl. 20.00 báða dagana.
Ræðumenn verða Ingólfur
Jónsson landbúnaðarráðherra og
Steinþór Gestsson bóndi Hæli.
Að loknum framsöguræðum
verða svo frjálsar umræður.
Allir eru velkomnir á fundinn.
tír stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins
MEÐ samvinnu við sveitarfélög og einkaaðila verði unnið að sem víðtæk-
ustum framkvæmdaáætlunum í þeim tilgangi að stuðla að sem hag-
kvæmastri notkun framkvæmdafjár. Sýslu- og sveitarfélög verði jafn-
framt efld með því að fela þeim stjórn þeirra mála, sem þau geta betur
af hendi leyst en ríkisvaldið, enda sé þeim séð fyrir tekjustofnum til að
greiða kostnaðinn af aukinni starfsemi. Ennfremur verði áfram unnið að
samningu byggðaáætlana fyrir land $fjórðungana.