Morgunblaðið - 28.05.1967, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MAÍ 1967.
7
Blómavíkingarnir eru komnir heim
„SATX bezt að segja urðum
við öll fyrir vonbrigðum með
íslenzku sýningardeildina á
Heimssýningunni í Montreal,
ekki vegna þess, að allt hafi
ekki verið í lagi, þetta var
máski allt rétt tæknilega séð
og allt það, en samt sem r'l'ur
fannst okkur að betur hefði
mátt gera“.
Það er blómavíkingurinn,
Þórður á Sæbóli, sem kom
heim frá Heimssýningunni á
fimmtudag, sem þessi orð
mælti, þegar við heimsóttum
hann og konu hans, Helgu, í
Blómaskálann á áliðnum þeim
degi.
„Hvað myndir þú sjálfur
segja, ef þú sæir efckert annað
en glærar glerplötur með ein-
hverjum abstrakt myndum á,
sem enginn skilur, en ættu að
minna á ísland? Ég afhenti þér
þessar myndir í kynningar-
pésa, svo að fólk getá séð, að
ég fer ekki með fleipur. Okk-
ur fannst vanta einhverjar
myndir um þjóðlíf íslendinga,
en þetta voru bara strik og
punktar, sem fáir skildu, en
ef eitthvert hross hefði verið
staðsett þar nærri, mætti í-
mynda sér, að einhverjir hefðu
máski getað hugsað sér hrossa
tað, en því var nú barasta
ekki að heilsa.
Mynd af Surtsey gleymd-
ist, ekki einu sinni eins og
það var auðvelt að hafa hana
í litum engar vörusýningar
að marki og m.a.s. nafnið fs-
land var skrifað með ein-
hverju fleygaletri og varla
sást.
Ég myndi segja, að þarna
hefði átt að hafa á boðstólum
fyrir gesti hákarl og brenni-
vin, en í þess stað var mönn-
um boðið upp á kanadiskt
■Whisky, og fer þá iítið fyrir
þjóðerninu. Eða t.d. eitthvert
gotterí frá Lindu, Freyju eða
Víking, nei, þarna var lítið,
sem minnti á ísland. Af hverju
ekki að sýna bækur frá ís-
landi? Til dæmis fslendinga-
sögurnar og Heimskringlu.
Nei, þetta var tóm búð, og búð
ar í loftið myndi Gunna ekki
hafa gengið á þessari heims-
sýningu.
Eins og þú ert þegar búinn
að segja alþjóð, mœttum við
Helga til þessa leiks í þjóð-
búningum, og skrumlaust voru
það þessir búningar sem mesta
athygli vöktu. Allir voru að
spyrja, hvaðan þessir bún-
ingar væru. Við gátum svarað
þeim með því, að þessa bún-
inga hefðu höfðingjar á ís-
landi borið fyrir meira en
1000 árum. Fólkið snéri sér
við, hvar sem við komum,
það elti okkur á röndum, heill
kirkjusöfnuður var jafnan á
hælum okkar, við vorum
beðin að skrifa nafnið okkar
í ýmsar bækur áhugamanna,
og munum við hafa skrifað
nöfnin okkar yfir 1000 sinn-
um, áður en lauk.
f skála Persíu urðum við
að ferðast í lögregluvernd, og
er það til dæmis um þá at-
hygli, sem búningar okkar
vöktu. í skála Ghana hitt-
um við mann að máli, sem
sagði upp úr eins manns
Þetta er sýnishorn af íslenzku landkynningunni á Heimssýn-
ingunni. Tómir punktar og strik, og Sæbólshjónin urSu fyrir
vonbrigðum.
hljóðij, að íslenzkur fiskur
væri sá bezti í heimi, og þó
fá þeir aðeins skreið, vesa-
lingarnir.
Ghanamaðurinn tók af okk
ur mynd, og hann sagði að
það gleddi sig að geta sýnt
löndum sínurn þjóðbúninginn
hjá þeirri þjóð, sem sendi
þeim góða fiskinn.
í Montreal eru íbúarnir 80%
katþólskir, og þegar ég kom
með rauðu húfuna og í skikkj-
unni, átti ég í hreinustu vand-
ræðum að stugga frá mér
nokkrum mjög fallegum nunn
um, sem þótti hér heldur bet-
ur bera í veiði, að fá ekki
aðeins ábóta heldur og einn
vígðan kardinála auk heldur.
Þær voru mjög fallegar og
girnilegar, blassaðar dúfurn-
ar, og myndi ég segja, að
Kirkjubæjarklaustur hefði
verið vel sæmt af slíkum
kvennablóma, hér áður og
fyrr meir. Við komum til
Rússanna, sem gáfu okkur
hamar og sigð úr silfri.
Á sýningu Kanada voru
sýndar fallegar myndir, en
það fór eins þar og annars-
staðar, fólkið hætti að horfa
á þær, en glápti þess í stað
á okkur. Að koma á íslenzk-
um búningi á sýningu sem
þessa, er án efa einhver bezta
landkynning, sem um getur.
Svo komum við til Mao,
þær voru voða huggulegar
litlu hnáturnar en skelfingar
ósköp voru litlar á þeim lapp-
irnar, máski hafa þær verið
reyrðar fast í bernsku.
Þar vorum við spurð, hvort
þetta væri ekki kóngurinn
og drottningin á fslandi?
Hvort við værum ekki aðals-
fólk frá íslandi? Við svöruð-
um því játandi.
Ferðalagið á heimssýning-
una gat ekki verið dásamiegra.
Við ferðafélagarnir vorum
einn samstilltur hópur á veg-
um Guðna Þórðarsonar í
Sunnu, og ég held, að við
höfum verið fslandi til sóma,
hvar sem við komum. Landið
og þjóðin er dæmd eftir því
hvernig svona hópar koma
fram. Á leiðinni frá Washing-
ton tii New York var sungið
mikið, og Ijóð lesin. Hugrún
skáldkona las upp frumsamið
ljóð, en hún Helga konan mín,
fór með ævagamalt kvæði, um
Indjánadrottningu, en við
vorum einmitt að fara um
svæðið, sem Indíánar seldu á
sínum tíma fyrir 24 dollara,
þar sem nú er Manhattan.
Þetta var kvæðið um Vöndu
Indíánadrottningu, sem hún
lærði í barnæsku, og fyrsta
erindið er á þessa leið:
„Það var í fyrndinni frægur,
er frjáls var hin eirrjóða þjóð
og eldvatnið enn ekki þekktist
né árnar né kristmunkaljóð".
Og með það kvöddum við
Sveinn Þormóðsson þessa
Blómavíkinga, en Sveinn
smellti af þeim mynd í Blóma-
skálanum, — og buðum þá
velkomna aftur í Kópavog-
inn. — Fr S.
1
Þarna eru Blómavíkingar Heimssýningarinnar með mynd Sigmunds á milli sín, en hún
gladdi þau geysilega.
Mótatimbur Til sölu er mótatimbur. Uppl. í síma 52158. Henry J — Ódýrt Til sölu nú þegar, mjög ódýr Henry J. fólksbif- reið, model 1953. Ný dekk, útvarp og miðstöð. UppL í síma 30515.
14 ára dreng vantar vinnu í sumar. UppL í síma 41882. Atvinna óskast Reglusöm stúlka í 5. bekk Menntaskólans óskar eftír vinnu. Margt kemur til greina. Er vön afgreiðslu. Uppl. í síma 60338.
12—13 ára telpa ósikagt til að gœta 2ja ára barns í sumar hálfan eða allan daginn. Uppl. í síma 13741. Hestamenn Stór og fallegur 6 vetra hestur til sölu. Verður til sýnis á skeiðvellinum frá kl. 2 í dag. Uppl. í sima 30897.
Stýrishús á 5 tonna Volvo vörubif- reið, árgerð 1960, óskast til kaups. Uppl. í sima 32175 í Reykjavík og 12156 á Aku'reyri. Kranastjóri Vanur og áreiðanlegur kranastjóri óskast. Uppl í símum 20930 og 14780.
Tek að mér að sauma kjóla og kjól- dragtir. Sími 36841. Trésmiður óskar eftir 4—5 herb. íbúð. Uppl. í síma 15200 í há- deginu og milli 7—8 á kvöldin.
Keflavík — Suðurnes Veiðiútbúnaður, tjöld, svefnpokar, vindsængur, piknik sett, pifcnik setit, prímusgastæki. Stapafell, sími 1730. Til sölu Mercedes Benz 814 tonna vörubíll með veltisturtum, árg. ’66, ekinn 16 þús. km. Nánari upplýsingar gefur Hafsteinn Steindórsson, 1 sima 133 Seyðisfirði.
Sendiferðabíll til sölu, meðfylgjandi hlutaíbréf í sendibílastöð. Til sýnis mánudagskvöld eftiir kL 7 að Nöfckvavog 54. Uppl. ekki gefnar í síma. Til sölu nýtt viðtæki Philips (Siera). Hljómifagurt og hægt að tengja við það plötuspilara og segulband-s tœki. Sími 24531 milli kl. 7 10.
Herbergi og eldhús eða líitil fbúð óskast tíl leigu sem fyrst fyrir reglu saman einhleypan Banda- ríikjamann. Uppl. í sdma 10860 frá 1—6 mánud. tíl föstud. Sparifjáreigendur Ávaxta sparifé á vinsælan og öruggan hátt. Uppl. kl. 11—12f.h. og 8—9e.h. Margeir J. Magnússon Miðstræti 3 A. Símar 22714 og 15385.
Ökukennsla Kenni á Volkswagen ’67, 1300. Sími 21139. Innréttingar Tek að mér smáði innrétt- inga, geri verðtilboð. — Vönduð vinna. Uppl. í síma 31307.
3 tonna trillubátur til sölu, með dýptanmæli, lúkar og stýrishúsi. Uppl. gefur Bjarni Haraldsson í síma 24 Sauðárkróki. Tækifæriskaup Sumar'kápur á kr. 1500 til 2000. Sumar- og heilsárs- dragtir 1800. Kjólar á hálf- virði frá kr. 400. LAUFIÐ Laugaveg 2.
Eignarlóð
Til sölu er falleg útsýnislóð í Mýrarhúslandi á Sel-
tjarnarnesi. Samþykkt teikning. Til greina kemur
að gera fokhelt hús á lóðinni í samráði við kaup-
anda. Uppl. í símum 13850 og 22607.
Arnarnes - sjávarlóð
Rúmlega 1500 fermetra sjávarlóð á Arnarnesi til
sölu. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 15. júní merkt:
„8613“.
Sigrún Pétursdóttir
tekur við rekstri Hótel Fells í Grundarfirði
1. júni næstkomandi.