Morgunblaðið - 28.05.1967, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MAl 1967.
Borgarbókavörðurinn I
Gautaborg, Sigurd Möhlen-
brock, hefur að undanförnu
dvalizt hér á landi. Kom
[hann hingað á vegum Reykja
vílkurborgar til skrafs og
ráðagerða um framtíðar-
skipulag BorgaTbókasafns
Reykjavíkur. Blaðamaður
Mbl. átti þess kost að ræða
við Möhlenbrock fyrir
skömmu. Hittum við hann að
máli hjá Eiríki HTeini Finn-
bogasyni á skrifstofu hins
síðarnefnda í Borgarbóka-
safninu.
í upphafi samtalsins gat
Eiríkur Hreinn Finnbogason
þess, að Möhlenbrock borgar-
bókavörður hefði nú um
skeið verið i allmiklum
tengslum við Borgarbókasafn
Reykjavíkur og gert áætlun
um framtíðarverketfni og fram
tíðarskipulag safnsins. Sagði
Úr afgreiðslusal Borgarbóka safnsins i Gautaborg.
Utlán og bókasala eykst jafnt
og þétt þrátt fyrir tilkomu
nýrra fjölmiðlunartækja
Talað við borgarbókarvörðinn í
Cautaborg, Sigurd Möhlenbrock
Eiríkur Hreinn, að um þessar
mundir væri allmikil þróun
1 bókasafnsmálum, og hefðu
forráðamenn Borgarbókasafns
ins mikinn hug á að fylgjast
með þeirri þróun. M. a. þess
vegna hefði Möhlenbrock
verið fenginn hingað til
Reykjavíkur, en hann væri
kunnur skipulagsmáður bóka
satfna, ekki aðeins í heimalandi
sínu, því að hann hefði starf-
að að þessum málum víðar í
Evrópu. Síðust ellefu árin
hefði Möhlenbrock verið borg
arbókavörður í Gautáborg og
byggt þar upp mjög merki-
legt bókasafnskerfi.
Möhlenbrock borgarbóka-
vörður lét þess í upphafi get
ið að Gautaborg legði mikla
rækt við sín bókasötfn. Miklu
fé væri árlega varið til bóka
safna og á undanförnum ár-
um hefði verið gert átak til
að koma þessum málum í það
horf, sem nauðsynlegt væri.
f>á vék Möhlenbrock að nýja
Borgarbókasafninu 1 Gauta-
l borg, sem fyrir skömmu var
7 tekið til notkunar:
— Þessi nýja bókasafnsbygg
ing er 800 fermetrar á sex hæð
um og alls um 40.000 m3. Hús
ið stendur á góðum stað mjög
miðsvæðis í borginni, við
Götaplatsen, en þar er menn
ingarmiðstöð borgarinnar.
Borgarleikhúsið, Hljómlistar
húsið og Listasafnið eru þarna
líka. Þessi staðsetning Borgar
bókasafnsins er gerð að yfir-
lögðu ráði og með það í huga,
að safnið sé mikið starfrækt.
Við höfum safnið því opið leng
ur en almennt hefur tíðkazt á
bókasöfnum. Á hverjum virk
um degi er opið hjá okkur frá
því klukkan átta á morgnana
til klukkan tíu á kvöldin.
Þar að auki er svo opið
frá tíu til sex á sunnu-
dögum. Það er okkar álit, að
svo miklar fjárupphæðir hafi
verið lagðar í þessa stofnun,
að við höfum ekki efni á að
láta hana vera lokáða og ó-
notaða langtrmum saman. En
það hefur líka sýnt sig, að
fólk kann að meta þessa þjón
ustu. Á fjórum vikum hafa
yfir eitthundrað þúsund
manns heimsótt safnið
og um hundrað þús-
und bækur hafa verið lánaðar
út. Mun láta nærri, að um
þrjú þúsund manns heim-
sæki safnið dag hvern og útlán
nemi allt að 3.500 bókum.
— Hverjar eru helztu
nýjungar 1 teikningu og
skipulagningu þessa satfns?
— í sambandi við skipulagn
ingu og byggingu þessa bóka-
safns hef ég getað gert ýms-
ar af hugmyndum mínum á
þessu sviði að veruleika. Það
hefur t.d. alltaf verið mín
skoðun, að bókasafn eigi ekki
aðeins að vera fyrir bækur,
heldur einnig fyrir fólk. Það
á að vera staður, þar sem fólk
getur hitzt í menningarlegu
umhverfi og skipzt á hug-
myndum og skoðunum. Eru
þarna sérstakir salir fyrir
námshópa. Þarna er einnig
aðstaða til kvikmyndasýn-
inga og eru sýndar einhverj-
ar myndir á hverju kvöldi. Að
gangseyrir er ein króna. Að
undanförnu hefur verið sýnd
þarna mynd gerð eftir frægu
leikriti Strindbergs. Hugsun-
in, sem liggur að baki þess-
um sýningum er sú, að bóka-
safnið leitist við að koma
upp fjölmennum hópi kvik-
myndáhúsgesta og leikhús-
gesta og geti þannig orðið
þessum listgreinum lyftistöng
er frá lfður. Á sama hátt
stuðlar útlánastarfsemi bóka-
safnsins að því að auka bóka-
kaup því að það er eins með
bækur og leiksýningar, að
eftir að fólk hefur gerzt því
handgengið getur það ekki án
þess verið. Þá er lisbasafn til
húsa í bókasafnsbyggingunni
og einnig stórt hljómplötu-
safn sem hvorttveggja stuðlar
að því sama, að verða við-
komandi listgreinum hjálpar-
hella .
í bókasafnshúsinu er einnig
katffistotfa, þar sem menn geta
hresst sig á kaffisopa eftir að
hafa setið að lestri, hlustað
á hljómplötu eða hortft á
kvikmynd. Þykir mörgum
gott að eiga þess kost að ræða
saman yfir kaffibolla það sem
þeir sjá og heyra þarna. Atf
þessu leiðir svo að bókasafns-
húsið er alla daga fullt af
fólki og lífi frá því í býti á
morgnana og þar til seint á
kvöldin. Margt fólk kemur
þangað í hádegishléi dag
hvern, m.a. til að lesa blöð og
tímarit. Yfir eitbhundrað tíma
rit liggja þar frammi, og er
um helmingur þeirra erlend
tímarit, sum hver gefin út
austan járntjalds.
— Hvernig gezt fólki að
þeirri nýbreytni ykkar að
hafa bókasafnið opið á sunnu
dögum?
— Það virðist gefa mjög
góða raun. Er ánægjulegt að
sjá, hve vel safnið er að jafn-
aði sótt á sunnudögum. Er al-
gengt að heilar fjölskyldur
komi þangað eftir hádegið.
Þegar inn kemur skiptist
fjölskyldan, börnin fara í
barnadeildirnar, en foreldr-
arnir leita að því lestrarefni,
sem þau hafa sérstakan á-
huga á. Þegar fólkið hefur
dvalizt í safninu einn til tvo
tíma, hittist fjölskyldan aftur
í kaffistofunni og þar ræðist
hún við um áhugamálin með-
an hressingar er notið.
— Hvernig virðist ykkur
bókin standast samkeppni við
fjölmiðlunartæki nútímans,
kvikmyndir, útvarp og nú síð
ast sjónvarp? Hefur ekki á-
hugi manna á bókum minnk-
að hin síðari ár?
— Nei, það er öðru nær.
Það er rétt, að margir voru
nokkuð kvíðnir um framtíð
bókarinnar þegar sjónvarpið
kom til, en staðreyndin er
Framhald á bls. 22
Borgarbókaverðir: Eiríkur Hreinn Finnbogason og Sigurd
Möhlenbrock.
Rafver
Erum fluttir íSkeifu 3. Ekið inn frá Grensásvegi,
næst Suðurlandsbraut, sími 82415.
Sumarsýning opnuö
í Ásgrímssafni í dag
AðaJfundur Crensássóknar
verður haldinn í Breiðagerðisskóla, miðvikudaginn
31. maí kl. 8.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
HIN ÁRLEGA sumarsýning í
Ásgrímssafni verður opnuð í
dag, en hún er 21. sýning safns-
ins síðan það var opnað árið
1960.
Sýning þessi nær yfir hálfrar
aldar tímabil í listsköpun Ás-
grims Jónssonar, og hefur verið
leitast við að sýna sem marg-
þættust viðfangsefni. Með álíkri
til'högun eru m.a. hafðir í huga
erlendir gestir, sem jafnan
skoða safnið á sumrin.
í vinnustofu Ásgríms eru olíu-
málverk sýnd frá ýmsum Stöð-
um á landinu, og m-eðal þeirra
nokkrar myndir sem vöktu
mikla athygli á sýningunni hjá
Kunstforeningen í Kaupmanna-
höfn á síðastl. haustL
f heimili listamannsins eru
nær eingöngu sýndar vatnslita-
myndir, og meðal þeirra tvær
myndir málaðar í Mývatnssveit
í síðustu ferð Ásgríms til Norð-
urlands, árið 1951. Einnig mynd-
ir frá Þingvöllum og úr íslend-
ingasögum.
Ásgrímssafn hefur látið
prenta kynningarrit á ensku,
dönsku, og þýzku um Ásgrím
Jónsson og safn hans. Einnig
kort í litum af nokkrum lands-
lagsmyndum í eigu safnsins, og
þjóðsagnateikningum.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti
74, er opið sunnudaga, þriðju-
daga og fimmtudaga frá kL
1.30—4. Aðgangur ókeypis.
í júlí og ágúst verður safnið
opið alla daga á sama tíma nema
laugardaga.
Handtökur
4 herbcrgja íbúð
Vill selja 4ra herb. íbúð í nýlegri blokk við Álfta-
mýri á 4. hæð. Endaíbúð. Allar innréttingar úr
vönduðum harðvið. Teppalögð. Vill jafnvel skipta
á 2ja herbergja íbúð á hæð eða góðri risíbúð.
Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 38934.
ísvél tS sölu
Upplýsingar í síma 34555 eftir kl. 2 í dag og næstu
daga.
ÍSBÚÐIN, Laugalæk 8.
vegna
gullránsins
London, 27. maí NTB.
• LÖGREGLAN í London hef-
ur handtekið bvo karlmenn
og eina konu, sem grunuð eru
um aðild að ráninu 1. maí s.l,
er 800000 sterlingspunda virði 1
gullstöngum var stolið.