Morgunblaðið - 30.05.1967, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1967,
7
Hljómskálagarðurinn í Reykjavík
„Og inni í þessum garði
er sægur minnismerkja
um menn, sem fremstir stóðu
og eitt sinn þóttu beztir.
Um frægð þeirra mörg saga
var sögð í fyrri daga“,
UM leið og ég tók mér penn-
ann í hönd, til þess að skrifa
nokkrar línur um aðal
skemmtigarð Reykjavíkur-
borgar, komu mér í hug nokkr
ar ljóðlínur úr ,,Garðkvæði“,
Tómasar Guðmundssonar
skálds, enda finnst mér það
líka vel til fallið að bregða
þeim hér upp, því eins og
flestum er kunnugt, er Tóm-
as skáld höfuðborgarinnar, þó
að þetta kvæði sé ekki til-
einkað Reykjavík sérstaklega.
Hljómskálagarðurinn er
fyrir sunnan Reykja-
víkurtjörn, og er útsýni það-
an vítt og fagurt fyrir áhorf-
andann, sem gefur sér tíma
tii að nema þar staðar og
njóta þess yndisauka, er garð
urinn hefur upp á að bjóða,
en það er angandi ilmur blóm
anna og trjágróðursins, þegar
garðurinn hefur íklæðzt sum-
arskrúða sínum. í Hljómskála-
garðinum eru mörg minnis-
merki af horfnum brautryðj-
endum fyrri alda bæði í skáld
skap og listum, og má þar
nefna: myndastyttuna af lista-
Hljómskálagarðurinn. (Ljósmynd: Gunnar Rúnar).
skáldinu góða Jónasi Hall-
grímssyni, myndastyttu lista-
mannsins Alberts Thorvalds-
sens, sem Kaupmannahafnar-
íbúar gáfu Reykjavíkurborg
árið 1874 í tilefni þúsund ára
þjóðhátíðar íslands. Einnig
má hér ti lnefna myndastytt-
una af Þorfinni Karlsefni og
ekki má gleyma myndastyttu
Tove Kjarval, en hún heitir:
,Maður og kona“, og er tákn-
ræn fyrir þá, sem eru í ást-
arbrautar-hugleiðingum. Þá
er stytta Gunnfríðar Jónsdótt
ur af stúlku á heimleið.
„En hingað, einmitt hingað
leitar æskan yndisfögur
og nýjar sólskinssögur
hún semur við sitt hæfi.
Hún trúir einni svipstund
fyrir allri sinni ævi
og ótal draumar leita
út í vorið sólskinsheita".
I. G.
75 ára er í dag, þriðjudaginn
30. maí Jón G. Jónsson, Ránar-
götu 36, hann er nú sjúklingur
í Landakotsspítalanum.
Sunnud. 2. ágúst voru gefin
taman í Langholtskirkju af séra
Ólafi Skúlasyni ungfrú Jórunn
Jörundsdóttir og Geir Hauiksson.
Heimili þeirra er að Ljósheimum
11, Reykjavík.
(Ljósmyndastofa Þóris, Lauga-
veg 20B sími 15-6-0-2).
hjónaband af séra Árelíusi Níels
*yni ungfrú Sædis Guðrún Geir-
mundsdóttir og Snæþór Rúnar
Aðalsteinsson. Heimili þeirra er
«ð Mávahlíð 14. (Loftur h.f.)
Þann 29. apríl voru gefin sam
an í hjóna'band í Kópavogskirkju
af séra Gunnari Árnasyni ungfrú
Hildigunnur Þórðardóttir og
Finnbogi Höskuldsson. (Studio
Guðmundar Garðastræti 8).
LÆKNAR
FJARVERANDI
Alfreð Gíslason jfv. til 22. júni
Staðg. Bjarni Bjarnason.
Bergsveinn ólafsson fjv. um óákveð
inn tíma. Stg. augnlækniisstörf: Ragn-
heiður Guðmundsdóttir, tekur á móti
sjúklingum á lækningastofu hans sími
14984, heimilislæknir: Þorgeir Jónsson,
Domus Medica, sími 13774.
Bjami Snæbjörnsson fjarv. næstu
tvo mánuði. Staðg. Grímur Jónsson
héraðslæknir, sími 52344.
Guðmundur Björnsson fjv. frá 28.
maí til 15. júní.
Hulda Sveinsson frá 31/5—31/7 Stg.
Ólafur Jóhannsson.
Hannes Finnbogason, fjarverandi
1/5—15/6.
Jón R. Árnason fjv. frá 16/5. 1 6
mánuði. Stg. Ólafur Haukur Ólafsson,
Aðalstræti 18.
Jónas Sveinsson fjv. óákveðið Stg.
Þórhallur Ólafsson.
Karl S. Jónasson fjv. frá 23. maí
— 17. júlí Stg. Ólafur Helgason.
Kristinn Björnsson fjv .um óákveð-
inn tíma. Stg. Þorgeir Jónsson, Domus
Medica.
Krisján Sveinsson fjarv. frá 27.
maí til 4. júní. Staðgiengill ÚLfar
Þórðarson, læknir, Lældargötu 6B.
Pétur Traustason fjvj^rá 28. mad
til 7. júní. Staðgengill Ultfar Þórðar-
son.
Ragnar Karlsson, læknir, verður
fjarverandi til 5. júní n.k.
Ríkarður Pálsson tannlæknir fjv.
tU 3. júlí.
Sigmundur Magnússon fjv. til 6. júní
Skúli Thoroddsen fjv. frá 22/5. — 1/7.
Stg. Heimilislæknir Björn Önundar-
son, Domus Medica, augn-læknir, Hörð
ur Þorleifsson, Suðurgötu 3.
Úlfur Ragnarsson fjv. frá 29. april
til 1. júlí. Stg. Henrik Linnet.
Tómas Á. Jónasson fjv. um óákveð-
inn íma.
Blöð og tímarit
SAMTÍÐIN
Heimilisblaðilð Samtíðin er
komið út fjölbreytt, og flytur
m.a. þetta efni: Eru menningar-
þjóðirnar að verða tannlausar?
(forustugrein). Háskaleg tíma-
mót eftir Gísla Sigurbjörnsson.
Hefurðu heyrt þessar? (skopsög-
ur). Kvennaþættir eftir Freyju.
Leikið á lögregluna (saga).
Claudia Cardinale í giftingar-
hugleiðingum. Hnífurinn, sem
bjargaði 32 mannslífum. Karl í
krapinu (frásögn um mikinn
framkvæmdamann). Bílstjóri
Hitlers krefst skaðalbóta. Fisk-
ar ganga á land eftir Ingólf
Davíðsson. Skemm'tigetraunir.
Skáldskapur á skákborði eftir
Guðm-und Arnlaugsson. Bridge
eftir Árna M. Jónsson. Úr einu
í annað. Stjörnuspá fyrir júní.
Þeir vitru sögðu. Ritstjóri er
Sigurður Skúlason.
VÍSUKORN
Úti sláttur er nú minn
inn nú geng ég lotinn.
Nú ég hátta í síðsta sinn
Senn er máttur þrotinn.
Úti sláttur er um si-nn.
er nú máttur þrotinn.
Nú ég hátta í síðsta sinn
Sjóndapur og lotinn.
Nú ég hátta í síðsta sinn
senn er máttur þrotinn.
Út sláttur er nú minn
inn nú geng ég lotinn.
St. G.
íbúð til leigii 3ja her-b. íbúð til leigu fyrir barnlaust fólk í Mið- túni 82. Bílskúr Til leigu mjög vandaður bílskúr. L'eigist fyrir bál eða s-em la-gerpláss. Uppl. í síma 3779-9 etftir kl. 6 á kvöldin.
Mótatimbur og vinniusíkúr ósíkast. Upp- lýsingar í síma 35298 og 82813. Trésmiðir! Trésmiðatfkikkur óskast. Uppmæling. Sími 32352.
2ja herb. kjallaraíbúð til leigu frá 1. júní á góð- um stað í Kópavogi. Til-boð sendist Mbl. fyrir 31. maí, merkt „Góð umgengni — 710“. Hestur til sölu Þægilegur töltari 7 vetra til sölu. Upplýsingar að R-eynivöllum í Kjós (sími um Eyrarkot). Bjarni Kristjánsson.
Börn í sveit Get tekið nokkur börn til sumardvalar. Uppl. í síma 32426. Tvíburavagn til sölu. Sími 16409.
Ungur reglusamur maður óskast að Hótel Forna- hvam-mi. Bílpróf æskilegt. Upplýsingar í síima 41683. Trésmiður óskast i mótavinnu í stuttan tíma í sveit á Suðurlandi. Uppl. í sí-ma 36572.
Húsbyggjendur athugið Rífum og hreinsum steypu- mót. Vanir menn. Sími 37110. 13 ára telpa óskar eftir stanfi, helzt I sveit, hefur Verið 5 sumur í svei't. Sími 12672.
Eitt herbergi og eldhús óskaslt til leigu strax. Get- um litið eftir börnum eitt kvöld í viku. Tilboð send- ist afgr. Mbl. rnerkt „711“. Hafnarfjörður Lítil íbúð óskast fyrir ein- stakling. Uppl. í síma 51458.
Nýjung — Höll krep sængurfata- efni, hvítt m-eð röndum. Þarf ek-ki að strauja. Mikið af kvenblússum og barna- blússum. Húllsaumastofan Svalbarð 3. Sími 51075. Sparifjáreigendur Ávaxta sparifé á vinsælan og öruggan hátt. Uppl. kl. 11—12f.h. og 8—9e.h. Margeir J. Magnússon Miðstræti 3 A. Símar 22714 og 15385.
Til sölu Mercedes Benz 8% tonna vörubíll með veltisturtum, árg. ’66, ekinn 16 þús. km. Nánari upplýsingar gefur Hafsteinn Steindórsson, 1 síma 133 Seyðisfirði. Bondex Notið fúavarnarefnið Bond ex á allan við, fæst í átta litum. Málarabúðin Vestur götu 21, sími 21600. Póst- sendum. Birgir Guðnason málaram., Keflav., s. 1746.
Keflavík — Njarðvík Nýlegur barnavagn til sölu. Uppl. í síma 1443. Vinnuskúr óskast Upplýsingar í síma 15856.
Volvo ’55 station til sölu. Selst ódýrt. Uppl. í síma 51076. 1—2ja herb. íbúð óskast til leigu. Tvennt fullorðið. Tilboð merkt „Reglusemi 604“ sendist afgr. Morgun- blaðsins fyrir 5. júní.
Vélskóflan Hon-050 sem nota má með 10 mismunandi hjálpartækjum, verður að ósk margra viðskiptavina sýnd í ámokstri á nýbyggingasvæðinu í Breiðholtshverfi (nálægt Hlaðbæ h/f.) annað kvöld kl. 8. Þorsteinn Blandon heildverzlun.
Símavarzla Stúlka óskast til símavörzlu á opinbera skrifstofu. Laun skv. launakerfi ríkisstarfsmanna. Umsóknir er greini menntun, aldur og fyrri störf, sendist afgr. Morgunblaðsins merktar: „Reglusemi — 8614“.