Morgunblaðið - 30.05.1967, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1907.
Erfitt að fóta sig á föstu
eftir 119 daga öldudans
Sir Frantis Chichester ákaft fagnað \
Plymouth eftir hnattsiglinguna
Plymouth, 29. maí
(AP—NTB).
SÆGARPURINN slr Francis
Chichester hvílir sig nú í
I
tekin úr flugvél þegar sægarp urinn átti um 400 milur ófarnar.
Astor House í Plymouth að
lokinni siglingu sinni um-
hverfis hnöttinn einn sins
liðs í seglskútunni ,Gipsy
Moth IV“. Kom sir Francis
til Plymouth skömmu eftir
sólsetur í gær, sunnudag, og
hafði þá verið 119 daga á leið-
inni frá Sydney í Ástralíu.
Chichester lagði af stað í
hnattferð sína frá Plymouth
hinn 28. ágúst í fyrra, og
sigldi þá suður fyrir Afríku
og til Sydney í Ástralíu á 107
dögum. Á þeirri leið hreppti
hann hið versta veður við
Tasmaníu og meiddist á hand
legg þegar fiskibátur sigldi á
skútuna undan Viktoríuströnd
í Ástralíu. >á má einnig geta
þess að sægarpurinn hélt
upp á 65 ára afmæli sitt um
borð hinn 17. september.
Til Sydney kom Ohichester
12. desember í fyrra, og tók
hvíldinni feginsamlega.
Dvaldi hann um kyrrt þar
til hinn 29. janúar s.l. er hann
lagði af stað í seinni áfanga
hnattsiglingarinnar. Tveimur
dögum áður hafði Chichester
fengið „sir“ fyrir framan
nafnið sitt þegar Elisabeth
Bretadrottning aðlaði hann
fyrir frábæra sjóanennsku.
Það þótti öruggara að styðja sir Francis þegar hann sté á
land í Plymouth eftir 119 daga siglingu frá Ástralíu.
FYRIR S-AMERÍKU
Við brottförina frá Ástra-
líu voru margir, sem spáðu
því að sir Francis kæmist
aldrei á leiðarenda. Sigling-
arleiðin fyrir Suður-Ame-
ríku er talin versta veðravíti,
sem fyrir finnst, og hefur
reynzt mörgum stærri og bet
ur búnum skipum erfið.
Strax eftir brottförina frá
Sydney lenti sir Francis í
óveðri og þvínæst í stillilogni,
Framhald á bls. 10
Suður um höfin...
Glæsilegasta ferð sumarsins er án efa 27 daga sjóferð til Lagt verður af stað frá Reykjavík 23. sept. og komið heim
Miðjarðarhafsins með Regina Maris, hinu stórglæsilega aftur 19. okt. Aðalviðkomustaðirnir eru La coruna — Tangier
vesturþýzka skemmtiferðaskipi. Allt kapp hefur verið lagt — Aþena —- Beirut — Napoli — Cadis — Lissabon —
á að gera þessa ferð sem ógleymanlegasta fyrir þátttak- Reykjavík. Lægsta fargjald er kr. 28.730, en hæsta 37.800
endur. Þótt lítið hafi verið gert af því að auglýsa ferðina, og er fullt fæði ínnifalið í verðinu. Allir ferðast á sama fár-
eru þegar komnir hátt á annað hundrað þátttakendur, en rými, 11. 2. eða 3. manna klefum.
skipið tekur 280 farþega. (slenzkur læknir og hjúkrunarkona verða um borð, og sex
reyndir fararstjórar.
Gefinn hefur verið út sérstakur, litprentaður bæklingur um
þessa ferð, en á næstu síðu verður rakið í stórum dráttum
hvernig dögunum um borð og í landi verður varið.
\\ Pantið far sem fyrst
\ .Tpjrf .............. ■ ’ ■ * “ " " " “ ....................."""
HPláUUi •••••••# • •• •• •• é_A
—— ----------- -------------------------------------------------------— "7—r". - ■ • &
Regina Maris kemur til Reykjavíkur 1. júní og býður Lönd & Leiðir almenningi að skoða skipið 1. og 2. júní, og verður nánar sagt frá því síðar.
LÖND & LEIÐIR, Aöalstræti 8,simi 2 4313