Morgunblaðið - 30.05.1967, Síða 32
9 V-A
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1967
Drœtti frestað til 6. júní
Landshappdrœtti
Sjálfstœðisflokksins
Hvalveiðarnar
eru hafnar
Tvœr langreyðar höfðu veiðzt í gœrdag
HVALVEIÐARNAR eru hafnar.
Hvalbátarnir fjórir héldu á mið-
in frá Reykjavík sl. sunnudag og
um 3 ieytið í gærdag höfðu
veiðzt tvær iangreyðar, að því er
Loftur Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Hvals hf., tjáði blaðinu.
Loftur sagði, að hvalbátarnir
hefðu nú farið á veiðar nakkru
seinna en í fyrra, en þá héldu
þeir á miðin 22. maí.
Hann kvaðst ánægður með
byrjunina.
XJm verð á hvallýsi sagði Loft-
ur, að það fylgdi hlutfallslega
verði á síldarlýsi.
Verð á hvalkjöti kvað Loftur
Bjarnason hins vegar vera srvip-
að og í fyrra.
Þyrla flytur vara-
hluti um borð í togara
Hvalbátarnir fjórir í Reykjaví kurhöfn skömmu áður en þeir héldu á miðin (Ljósm.: Ól. K. M.)
LANDHELGISGÆZLUNNI harst I
í gærmorgun beiðni um aðstcti
6 skip hofa
nú stöðvazt
SEX kaupskip hafa nú stöðvazt
í Reykjavíkurhöfn vegna verk-
falls stýrimanna, vélstjóra og
loftskeytamanna.
Skipin eru Esja, Dettifoss,
Goðafoss, Litlafell, Reykjafoss
og Tungufoss.
K'l. 20.30 sl. laugardagskvöld
hófst sáttafundur með aðiium og
stóð hann til kl. 23, en ekkert
samkomulag náðist.
Annar sáttafundur hefur ekki
verið boðaður.
frá togaranum Sigurði, sem vant
aði nauðsynlega varahlut í gyra-
áttavitann. Var óskað eftir því,
að þyrla Landhelgisgæzlunnar
kæmi til móts við togarann með
þennan varahlut.
Um eitt leytið í gærdag fór
þyrlan TF-EIR af stað frá
Reykjavík og flaug suður fyrir
Reykjanes, en þangað var Siig-
urður þá kominn.
Varahluturinn, sem er mjög
brothættur, var látinn síga niður
til togarans í taug frá þyrlunni.
Einn skipverja tók á móti hlutn-
um og gekk það ágætlega.
Að því búnu hélt Sigurður aft
ur til veiða.
Vorverkin
hefjast í
Heiðmörk
HEIÐMÖRK hefui verið
opnuð almenningi tn umferð-
ar, og skógræktarstarfið mun
nú hefjast þar af fullum
krafti í þessari viku, að því
er Einar E. Sæmundsen, hjá
Skógræktarfélagi Reykjavík-
ur, tjáði blaðinu í gær.
Hann bað Morguntolaðið
um skilaboð til landnemafé-
laganna í Heiðmörik, að fara
að undirbúa starfið, og láta
vita um komudag sinn í Heið-
mörkina með því að hringja
í síma 40313 eða 40300, sem
alira fyrst, því að nú er dag-
lega gott gróðursetningaveð-
ur. —
Fulltrúar
Reykjavíkur á
afmæli
Kaupmanna-
hafnar
í JÚNÍMÁNUÐI verða mikil
hátíðahöld í Kaupmannahöfn til
að minnast 800 ára afmælis borg
arinnar. Fjöldi erlendra gesta
verða viðstaddir hátíðahöldin dag
ana 14. — 18. júní.
Fulltrúar Reykjavíkur verða
Geir Hallgrímsson, borgarstjóri
Kristján Benediktsson, Guðmund
ur Vigfússon og frú Auður Auð-
uns.
Islenzkar skipasmíðastöðvar
geta smíðað skuttogarana fjóra
— segja framkvœmdastjórar Stálvíkur hf.
og Slippstöðvarinnar ht. á Akureyri
S E M kunnugt er hefur rikis-
stjórnin tilkynnt, aS hún muni
greiða fyrir kaupum og smíði á
fjórum nýtízku skuttogurum fyr
ir íslendinga.
í þessu sambandi hefur Morg-
unblaðið rætt við Jón Sveinsson,
framkvæmdastjóra Stíálvikur hf.
í Garðahreppi, og spurzt fyrir
um, hvort íslenzkar sfcipasmiða-
stöðvar myndu geta smíðað skut-
togarana.
Jón sagði, að Stálvíik hf. gæti
byggt allt að 2000 rúmlesta skip,
jafnt fiskiskip sem farskip. Hefði
fyrirtækið hug á að byggja skut-
togarana fjóra, ef úr smíði
þeirra yrði.
Jón Sveinsson sagði, að stór-
stígar framfarir hefðu orðið síð-
ustu árin í íslenzkum skipasmíð-
um og gætu íslenzkar skipasmíða
stöðvar smíðað flestar þær gerð-
ir skipa, sem landsmenn þörfnuð
ust. Undanfarin ár hefðu skipa-
smíðastöðvarnar fengið dýrmæta
reynslu, sem hagnýtrt yrði I aukn
am mæli á komandi árum.
Hann sagði, að Stálvík myndi
að sjálfsögðu sækja um smíði
skuttogaranna allra, en hann
teldi lágmarkið vera smiði
tveggja þeirra til þess að verkið
yrði hagkvæmt. Eðlilegt væri,
Mikil aurbleyta á vegum
— fyrir norðan, austan og vestan
Vegir á Suður- og Suðvesturlandi eru
flestir orðnir fœrir
VEGIR á Suðurlandi og Suð-
vesturlandi eru nú flestir orðnir
færir, nema Uxahryggjaleið, og
hafa hlýindin undanfarið ráðið
þar miklu um. Vegir eru víðast
hvar færir á Vestfjörðum, Norð-
urJandi og Austfjörðum. en aur-
blcyta er þar mikil í vegum
ennþá.
Fært er orðið í Barðastrandar-
sýslu vestur í Skálmardal, en
Þorskafj arðarheiði er lokuð og
ennþá er ekki búið að opna
Þingmannaheiði. Aðrai ðar
á Vestfjörðum eru orðnar færar
fyrir jeppa og létta, stærri bíla.
Á Norðurlandi eru flestir veg-
ir færir. Siglufjarðarskarð er þó
lokað og er unnið að snjómokstri
þar. Vegurinn um Lágheiði er
einnig lokaður vegna snjóa, svo
og á Axarfjarðarheiði.
Um Vaðlaheiði og Fljótsheiði
er aðeins leyfð umferð á jepp-
um vegna aurbleytu. Unnið er
að snjómokstri á Möðrudalsör-
æfum og var það verk hafið
fyrir helgina. Gangi allt að ósk-
að togararnir fjórir yrðu allir
smíðaðir innanlands og meðlimir
Landssambands skipasmíðastöðva
annast tæknilegan undirbúning í
sameiningu.
Jón sagði, að Stálvík væri ekki
eina sikipasmíðastöðin hér á
landi, sem gærti tekið smíði skut-
togaranna að sér. Það gætu
einnig s'kipasmíðastöðvarnar á
A'kranesi og Akureyri, sem væru
vel úittoúnar til slíkra smíða, auk
fyrirtækis Marselíusar Bern-
'harðssonar á ísafirði.
Jón Sveinsson sagði, að Jó-
hann Hafstein, iðnaðarmálaráð-
herra, hefði sýnt íslenzkum skipa
smíðum mikinn stuðning eins og
Bjarni Benediktsson, sem gegnt
hefði embætti iðnaðarmálaráð-
herra á undan Jóhanni.
Hann kvaðst vera þess fullviss,
að gegndi Jóhann Hafstein emb-
ættinu áfram myndi hann vinna
að því á næstu árum, að hér risi
upp öflugur skipasmíðaiðnaður,
sem sparað gæti þjóðinni hundr-
uð milljóna króna í gjaldeyri á
tilitölulega skömmum tíma.
Morguniblaðið átti einnig tál
við Skapta Áskelsson, fram-
kvæmdastjóra Slippstöðvarinnar
hi. á AkureyrL
Skapti sagði, að hann teldi
ekki aðeins að innlendar skipa-
smíðastöðvar gætu byggt þessa
togara, heldur væri það þjóðinni
til vansæmdar ef þeim yrði ekjci
gefinn kostur á því.
Sköpuð hefði verið aðstaða
undanfarin ár til smíði stálskipa
innanlands og m.a. gæti Slipp-
stöðin hf. byggt allt að 2500 rúm
lesa skip innanhúss.
Skapti kvaðst telja smíði skut-
togara tiltölulega auðveldari en
smíði minni fiskiskipa.
Hann kvað Slippstöðina myndu
sækja það fast að fá að smiða
einhverja af skuittogurunum fjór
um og að það verkefni yrði yfir-
leitt falið innlendum skipasmíða-
stöðvum.
um verður væntanlega búið að
ryðja véginn um miðja þessa
viku, en hætt er við því, að
vegurinn verði ekki opnaður
strax fyrir umferð vegna aur-
bleytu.
Tækin, sem notuð eru við
moksturinn á Möðrudalsöræfum,
munu svo verða notuð til að
ryðja veginn frá Hólsfjöllum
niður í Vopnafjörð.
Á Austurlandi eru vegir yfir-
leitt færir, nema á Fjarðarheiði,
þar sem snjór er ennþá. Víða á
Austf jörðum er mikil aurbleyta
og fjallvegir eru víða aðeins
færir jeppum.
Á Suðausturlandi er færð
sæmileg umhverfis Hornafjörð
og áfram austur frá Horna-
firði.
Tvær bílveltur
SNEMMA sl. laugardagsmorg-
un valt Volkswagenbíll á vegin-
um við Tannastaði í Ölfusi. Bíll
inn stórskemmdist, en ökumað-
urinn, sem var drukkinn, slapp
ómeiddur, svo og farþegi.
Bíllinn var frá bílaleigu og
mennirnir, sem í honum voru,
voru báðir ungir.
Um kl. 21:15 í gærkvöldi var
lögreglunni á Selfossi tilkynnt
um bílveltu á þjóðveginum aust
ur í Skeiðum. Þar hafði oltið
Traíbant-bíll, sem skemmdíst
nokkuð. ökumaðurinn, sem var
einn, slapp með skrámur.
Hreindýr falla
úr harðrétti
Höfn, Hornafirði, 29. mai.
NÝLEGA kom saman við
heimafé í Hoffelli fullorðinn
sauður, sem hefur gengið úti
í Hoffellsfjöllum. Ari Árna-
son, bóndi á Setbergi, fór ný-
lega í Kollumúla og fann 3
hreindýr dauð, sem fallið
höfðu úr harðrétti.
Gróðri hefur loks farið nokk
uð fram nú síðustu dagana og
eru bændur byrjaðir að
sleppa einlembum til fjalla.
Gunnar.
8 dagar unz dregið verður
NÚ eru aðeins 8 dagar þar til dregið verður í hinu
glæsilega landshappdrætti Sjálfstæðisflokksins um 5
evrópskar bifreiðir að verðmæti 1.1 milljón kr. Hver
vill láta happ úr hendi sleppa? Hver vill ekki fá
glæsilega bifreið fyrir aðeins 100 kr. og geta ekið
hvert á land sem er í sumarleyfinu? Látið ekki drag-
ast að kaupa miða og gera skil. Skrifstofan er opin
til kl. 22.00 á hverju kvöldi.