Morgunblaðið - 01.07.1967, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1967.
5
FÍugbelgur og þota
Brottför fyrsta foftskipsins, sem kom i áætlunarflugi
til íslands og /. islenzku Jbotunnar ber upp á sama dag
í DAG er fyrsta flug islenzkr-
ar þotu með farþega og póst.
Sama dag árið 1931 kom
fyrsta loftskipið þeirra er-
inda hingað til lands. Það var
Zeppelin greifi, sem lagði af
stað frá Friedrichshaven í
Þýzkalandi árla morguns hinn
30. júni og kom til Reykja-
víkur um kl. 7:30 að morgni
1. júli. Koma Greifans vakti
að vonum mikla athygli al-
mennings. Morgunblaðið segir
þannig frá henni daginn
eftir:
Zeppelin vekur Reykvikinga.
„Kl. hállfisjö í gærmorg'un
vaknaði al'lur bærinn við hvin
milkimn. Var þá Zeppelin kom-
inn, mikliu fyrr en menn bjug'g
ust við. Hafði sézt til hans úr
Ves bma nn aeyjum kl. 6 og auk
þess hafði hann sent tvö loft-
skeyti áður en hann ktom, svo
að þeir, sem þyrfitu að vita,
vissu um fierðalag hans. Hann
filaug lágit yfir bæinn í hring
og heyrðist gllögglega dynur-
inn í hreyflunum. Kom nú
heldur en ekki kvik á bæjar-
búa. Þuistu þeir upp úr rúm-
unum og klæddust í snatri, en
er er þeir komu út, var
Zeppelin farinn og stefndi til
norðurs. Menn vissu þó, að
hann mundi ekiki allfarinn og
fór nú hver sem vettlingi gat
valdið suður á öskjuhlíð,
ganigandi, hjólandi og akandi.
Höfðu brátt safnazt þúsundir
manna umhverfiis svæði það
á há'hlíðinni, er rutt var 1874
áður en þjóðfhátíðin var hald-
in þar. — Á miðju svæðinu
var nú lagður niður stór kross
úr hvítum segldúk og skammt
frá var flaggstöng og á hana
dreginn íslenzki fáninn.
Skönumu eftir að Zeppelin
hafiði sveimað yfir bæinn
brunaði póstbíllinn suður efitir
með póstinn. Var hann í
tveimur pokum og voru þeir
bundnir saman. Austan í
ÖSkjuhlíðinni var bill við bíl,
svo að naumast var hægt að
fara um veginn“.
Pósti varpað niður.
„Veðri var þannig farið, að
loft var skýjað, en bjart hið
meðra og rigningarlaust. Hæg
golia var á austan og varð ekki
kosið á heppilegra veður, sér
staklega með tillitá til stað-
arins, þar sem loftfarið átti að
taka póstinn.
Zeppelin flaug lágt og hægt
suður yfir bæinn. Þegar hann
kom suður á móts við Öskju-
hMð sneri hann upp í vind-
inn og stöðvaði vélarnar. En
þá var hann enn of vestar-
lega. Varð því að setja hreyfl-
ana í gang aftur og jafnframit
var rennt niður línunni með
króknum á endanum, sem
hengja skyldi póstpokana á.
Póstmennirnir náðú í krók-
inn, en bæði var, að ekki
var gefiið nógu mikið út af
límunni og að loftskipið var á
talisverðri ferð, svo það mis-
tókst, að því sinni, að koma
póstpokiunum á krókinn.
Zeppelin sveitf nú ytfir mann
fjöldánn og rétt á etftiir filieygði
hann út þeim pósti, sem hanm
hafði meðfierðis. Var hann lét-
inn falla til jarðar mieð fall-
hlítf og kom niður á hæðina
skamimt frá veginum og var
þegar gripinn af póstmönnum.
Póstinum héðan náð.
Zeppelin beygði nú norður
á bóginn og flaug í hring aust
ur að vatnsgeymi, yfir bæ-
inn endilangan og frá Melun-
um til Ös'kjuihlíðar. Kom hann
þar beint á móti gollunnd að
auða svæðdnu og fiaug nú
enn lægra en áður. Fannst
mörgum manninum sem hann
væri rétt yfir höfði sér og
sumir voru hálfhræddir um,
að hann mundi síga niður á
hæðina og kremja allan mann
grúann undir sér. Er það
merkilegt hvað mönnum
tfinnst jafnan loftskipið vera
mitklu nær sér heldiur en það
er í raun og veru. Því var það
í gær að tveir menn ientu í
etælurn út af því hvar það
iheifiði flogið yflir bæinn fyrst.
Á annar þeirra heima vest-
ast í bænuim en hinn skammt
tfrá Skólaivörðunni. Báðir
stóðu á því fastara en fótun-
um að lotftfarið hefði filogið
rétt frarn hjá sínu húsi“.
★
Þetta voru katflar úr frá-
sögn Morgunblaðsins fyrir 36
árum. Zeppelin greifi flutti
héðan óhemjumikinn póst til
útlanda. Hann var ails 11.890
Gratf Zeppelin yfir Öskjuhlíð 1. júlí 1931.
brétf og kort og skiptiist þannig
1728 almenn bréf, 2322 almenn
kort, 4360 ábyrgðarbréí og
3480 ábyrgðarkort. Burðar-
gjaldið umdir þennan póst, að
undanteknu ábyrgðargjaldi
nam alls kr. 17.978,00. Af því
fókk Zeppelin greitfi fjóra
fimmtu hliuta eða kr. 14.382.40.
Þessi póstur var fyristi flug-
póst'ur frá íslandi og atf þvl
tiilefni voru frímerki með
mynd Kriistjáns toonungs tí-
unda yfirprentuð með orðinu
„Zeppelin". Pósstjómin vill
einnig nú minnast merkálegs
áfanga í flugmálum ag hefur
látið stimpla allan póst, sem
fier með þotunni, með sér-
stökum stiimpli.
TJÖLD OG HOSTJÖLD
Garðstólar, garðhúsgögn, sólbskkir.
IViikið úrval viðleguútbúnaðar
*
Sportvöruverzlun Kristins Benediktssonar Oði nsgötu 1
KAUPMENN - KAUPFELÖG - VERZLANIR - VERK-
SMIÐJUR - NÝJAR VÉLAR - NÝ T/EKNI - HAGRÆÐING
STÓRKOSTLEG VERÐLÆKKUN Á
i-votti á hvítum vinnusloppum |nU 12 KR. pr. stL
Akstur og smáviðgerðaþjónusta innfalið. Verð á handklæðum og þurrkum sem fylgja sloppum lækkar úr 11 í 7 kr. Athugið verðið. Sá sem
sendir 2 sloppa á viku sparar allt að 1456 krónur á ári, sá sem sendir 50 sloppa á viku sparar allt að 41.600 krónur á ári.
VERZLIÐ ÞAR SEM VERÐIÐ ER HAGKVÆMAST. — GÓÐ ÞJÓNUSTA. — LÖNG REYNSLA. — STÆRSTA
ÞVOTTAHÚS LANDSINS. — BEZT BÚIÐ VÉLUM. — FYRSTIR MEÐ NÝJUNGAR.
B0RGARÞV0TTAHÚSIÐ HF.
BORGARTÚNI 3. — SÍMI 10135.