Morgunblaðið - 14.07.1967, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. TCrUt 1567
>
BÍLALEICAN
-FER D-
Daggjald kt. 350,-
og pr km kr. 3,20.
SIMI 34406
SENDUM
BILA
LEIGA
IVIAGIMÚ3AR
SKIPHOLTI 21.SÍMAR 21190
eftirlókun slmi 40381 — '
SIM11-44-44
\miam
Dverfisgötu 103.
Sími eftir tokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingóifsstræti 1L
Hagstætt teigugjald.
Bensín innifalið • leigugjaldl
Sími 14970
BÍLALEIGAIM
- VAKUR -
Sundlaugaveg 12. Siml 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
J0/IAir/*AN
l5&ÍL/yj/3tf
RAUDARARSTÍG 31 SÍMI 22022
Flest til raflagna:
Rafmagnsvörur
Heimilstæki
Útvarps- og sjónvarpstæki
RafmagnsviirulHiiin sf
Suðurlandsbraut 12.
Sími 81670 (næg bílastæði).
KYLFUR
BOLTAR
og fleira.
P. Eyfeld
Laugavegi 65.
Húseigendafélag Reykjavíkur
Skrifstofa á Bergstaðastr. lla.
Sími 15659. Opið kL 5—7 alla
virka daga nema laugardaga.
k Sóðaleg snyrtiher-
bergi
„Ferðalangur" skrifar:
„f>að ætlar lengi að loða við
ýmsa þá sem veitingarekstur
hafa að atvinnu, að gleyma að-
búnaði á snyrtiherbergj.um. Ein
hver mesta umferðarmiðstöð
landsins er Selfoss. Ég fór ný-
lega þar um á austurleið og
staldraði við stundaxkorn.
Spurðist ég fyrir um það í
„sjoppu“ í Tryggvaskála hvurt
engin almenningssal'erni væru
á Selfossi. Stúlkan benti mér
þá á hurð við íhliðina á „sjopp-
unni“. Og þarna var skonsa
og í henni 3 salerni og biðröð
fram að dyrum. Ekki var íhægt
að skola niður vatni, því að
kassínn var í ólagi. Klósettrúll
an lá á gólfinu, því að „stativ"
undir 'hana var ekki á veggn-
um, en víðast hvar vantar þann
sjálfsagða smálhlut. Hálfblautt
iéreftshandklæði var þarna, —
sem sagt staðurinn_ óvistlegur
og alltof lítÖl. Á Selfossi
staldra við margir rútubílar
daglega, og 'býst ég við, að í og
með sé það gert til þess að far-
þegar geti gengt þörfum símun.
Á þessum fjölmenna stað
eiga að vera hreinleg og rúm-
góð kvenna- og karlasnyrtiher-
bengi með nokkrum salernum.
Þau eiga að vera undi-r stöðugu
eftirliti, og það lagfært jafn
óðum sem úr skorðum fer.
Mer hefur verið tjáð, að hér
séu vissir aðilar sem eiga að
hafa eftirlit með gisti- og veit-
ingahúsum, ásamt „sjoppum“,
í landinu. Nú ættu þeir að fara
herferð um landið og athuga
hvernig er háttað i þessum
málum. Ég man t.d. þegar ég
kom eitt sinn í Borgarfjörð, en
þar var numið staðar við
„sjoppu“. Er stúlkan sem þar
afgreiddi, tilkynnti hátt og skör
uglega, að salernið væri í ólagi,
þegar hún sá farþegana
streyma að staðnum, sem nauð
synlega þurftu að komast þang
að inn eftir marga klukkutíma
setu í bíl.
Þá veitingamenn, sem trassa
skap sýna í sambandi við þessi
mál, og láta sér ekki segjast við
alvarlegar áminningar, á að
svipta leyfi til þess að reka
þessa atvinnugrein. Miklar
umbætur ‘hafa víða orðið, en
ennþá eru margir kærulausir í
hópi þeirra.
En margir eru þeir líka, sem
ilia ganga um í hópi „gesta og
gangandi". Þeirra svipmót á að
þurrka út, og það er verk þess
sem staðinn rekur. Ég hefi
sanfærst um það, að þar sem
snyrtiherbergi eru snotur og
hrein, gengur fólk betur um.
Má t.d. nefna Valhöll á Þing-
völlum, síðan þar fór fram hin
prýðilega breyting, og Bifröst
í Borgarfirði. Þessi staðir eru
til fyrirmyndar, og þeir eru
áreiðanlega undir smásjá starfs
fólksins, sem þurrka jafnharð-
an út spor sóðanna, sem þar
ganga um. — Ferðalangur".
Bæjarfógetagarð-
urinn
Hér kemur bréf frá „Inn
fæddum Reykvíkingi":
„f vor var skýrt frá því í
blöðum, að bærinn hefði tekxð
að sér hirðingu og umsjá bæj-
. arfógeta garðsins, og ætti nú
að verða breyting á til batnað-
ar.
Þótti mér tími til kominn, eft
ir meira en tuttugu ára niður-
lægingu í garði þeim, sem
fallegasur hefur verið í Reykja
vík, bæði fyrr og síðar, og eft-
ir að búið var að útrýma nær
öllum þeim fjölmörgu jurtum,
sem þar uxu og, síðast en ekki
sízt, drepa langhæsta birkitréð
í Reykjavík, gróðursett af frú
Önnu Danielsson, sennilega
fyrir eða um aldamótin. Allir
Reykvíkingar, sem muna ein
25 ár aftur í tímann, vita þetta,
og er raunar furðulegt, að eng-
inn skuli hafa skrifað um það.
En þegar sá tími kom í vor,
að garðinn skyldi hreinsa, var
aðeins eytt í það nokkrum
klukkuftímum, og var hreinsun-
in eftir því. í kring um öll
yngri trén er kragi af sprotum
(margra ára gömlum), sem
þarf að fjarlægja. Einnig þarf
að fjarlægja dauðar greinar.
Fjölært illgresi þarf hvarvetna
að hreinsa úr jurtunum, sem
allar eru í heljargreipum snar-
rótar, fífils og sóleyjar, að ekki
sé minnst á kerfilinn, sem
leggur undir sig garðinn, án
þess að nokkuð sé að gert. Er
það víst einsdæmi, þó að leitað
væri víða um iiönd, og er til at-
hlægis. Er hann á góðum vegi
með að kæfa t.d. Aruncus
sylvester í vestanverðum garð-
inum.
Enn eru í garðinum leifar
af fáeinum fjÖlærum jurturn,
sem sennilega eru mæður allra
annarra, sömu tegunda, hér í
bæ, svo gróskumiklar er.u þær,
ef þær eru hirtar. Má þar til
nefna Trollius, Betonica, Iris
psendacorus og Ranunculus
aeonitifolius. En jurtir þessar
‘hafa ekki verið stun.gnar upp,
hreinsaðar og skift, eða „yngd-
ar upp“ í meira en 20 ár, og
eru smám saman að veslast
upp. T.d. eru blöðin á Betonica
ekki nema brot af eðlilegri
stærð og allar eru þær nær
hættar að blómstra
Allt, sem gert var í vor, var
að drita niður nokkrum aum-
ingjalegum sumarblómum, af
sama skorti á 'hugmyndaflugi,
sem virðist ríkjandi um allan
bæ. T.d. þrífast þær alls ekki
í norðvesturhorni garðsins.
Þar þyrfti að vera eitthvað,
sem þolir nokkurn skugga og
streng.
Hraunsteinar þeir, sem eitt
sinni voru stórir og fallegir,
eins og sjá má á kápu ársrits
Skógræktarfélags fslands 1935,
eru nú brot ein, og minna helzt
á skörðóttar tennur.
Sá litli grasblettur, sem eft-
ir er, er eitt fíflaberði, og
þyrfti að þekja hann að nýju.
Ekki ihefur hann verið kant-
skorinn. Gangstéttin er öll sig-
in og stórir pollar safnast bteði
þar og í norðvesturhorni garðs
ins. Afleiðingin er, að flag
myndast þar beggja vegna.
Aldrei hefur verið settur
áburður í garðinn í meira en
tvo áratugi.
Nú, þegar þetta er ritað, 10.
júlí, er garðurinn allur grænn
af arfa, sem meira að segja er
allur útsprunginn!!! og er I
alla staði hörmung að horfa á
það, sem áður var svo mikið
augnayndi, sokkið í svo djúpa
niðurlægingu.
Hvað snertir bílastœði i
kirkjugörðum, nýjum eða
gömlum, er það smekkleysi,
sem ekki þekkist með menn-
ingarþjóðum, og nægir að
nefna Pére Laehaise. Jafnvel
hundakirkjugarðar fá að vera
í friði. Mun hér algjöru skipu-
lagsleysi um að kenna, en það
er önnur saga.
Þyrftu nú þegar færir kunn-
áttumenn að setjast á rökstóla
um hvernig bjarga megi því,
sem bjargað verður og gera
um það nákvæma áætlun, en
ekki kasta til þess höndunum.
Æskilegast væri að setja ein-
hverskonar kantsteine um
garðinn og gróðursetja limgerði
úr birki eða rósarunnum.
Áður uxu þar margar tegundir
bæði rósarunna og annarra.
Að vori þyrfti svo að fá þá
vönduðustu og vandvirkustu
menn, sem völ er á, til þess að
vinna verkið. Það er ekki á
allra færi að taka við því, sem
hefur borið af öðru, og vist
er um það, að 1600 m2 garðxir
verður ekki ihreinsaður af ein-
um manni og barni á nokkrum
klukkutímum eða parti úr
degi, svo neinu lagi sé líkt.
Læt ég svo útrætt um þetta,
a.m.k. að sinni, en ráðlegg
þeim, sem þetta varðar, að
geyma greinina, svo ekki fari
eins næsta ár, og gerði nú í
vor.
Innfæddur Reyk víkingur".
Lóan tilkynnir:
Ódýr sumarföt fyrir telpur og drengi 2—12 ára.
Stakar buxur og sett, ennfremur náttföt frá 1—12
ára, regnkápur — úlpur — kjólar — ódýrar bleyjur.
og m. fl.
Bamafataverzlunin LÓAN
Laugavegi 20 B
(Gengið inn frá Klapparstíg móti Hamborg).
Bragðgott
og
ilmandi
kaffi
Uppboð
Þann 31. ágúst 1965 var boð þingl. eiganda í huta
eignarinnar nr. 78 við Laugarnesveg, hér í borg,
Svanlaugar Þorgeirsdóttur samþykkt. Þar sem ekki
hefir verið staðið við greiðslu eftirstöðva uppboðs-
verðsins, fer uppboð fram eftir ákvörðun skipta-
réttar Reykjavíkur á eigninni sjálfri, mánudaginn
17. júlí 1967, kl. 2 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Mikið úrval
af GOOD YEAR gólfflísum og NEODON og DLW
gólfteppum. — Gott verð.
LITAVER S.F., Símar 30280, 32262.