Morgunblaðið - 22.07.1967, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 32. JÚLÍ 1967
17
Handavinna í sumarleyfinu
'EK'KI sakar að taka með sér
handavinnu í sumarfríið, ef ske
kynni að veðrið yrði ekki til úti-
veru alla dagana. Sjálfsagt er
líka fyrir ;þær, sem eru í sumar-
bústað að hafa eitthvað skemmti-
legt á milli .handanna til að grípa
í. Þessi fallegi kjóll á mynd-
inni er auðprjónaður og nokkuð
fljótlegur, og ætti að geta orðið
mjög klæðileg flík.
Litirnir geta verið eftir eigin
smekk, en hér er aðalliturinn
appelsínugulur, og svo tveir aðr-
ir litir í rendurnar.
Stærðir: 40 =— 4)2 — 44.
Efni: 15 — 16 — 17 50 gr. hesp-
ur af meðalgrófu ullargarni, og
ein 50 gr. hespa af tveimur öðr-
um litum í rendurnar. Prjónar
nr. 3 og einn 12 sm. langur renni-
lás á öxlina.
Pr.jónið það þétt, að 26 1.
sléttprjónaðar á prjóna nr. 3
mæli 10 cm.
Bakið.
Byrjið að neðan og fitjið upp
122-127-132 1. með aðallitnum og
prjónið 3 prjóna rétt. Prjónið
þar næst 4 prjóna rétt með 1.
aukalitnum, 2 prjó. rétt með að-
allitnum., 4 prjóna rétt með
2. aukalitnum og 2 prj. rétt
með aðallitnum. Prjónið
síðan vanalegt sléttprjón (1
prj. rétt og 1 prj. rangur)
með aðallitnum, þar til :bakið
mælir 79-80-81 cm., eða eins sítt
og hver vill hafa það upp að
handvegi. Fellið af 5-6-7 1. í
■byrjun tveggja næstu prjóna og
1 1. í byrjun næstu 6 prjóna. Þá
eru eftir 106-109-112 1. og eru
þær prjónaðar áfram, þar til
handvegir mæla 18-19-26 cm.
Fellið af 11 1. í byrjun næstu 6
prjóna (fyrir öxlum) og setjið
40-43-46 1. sem eftir eru á auka-
prjón.
Framslykkið.
Prjónið eins og bakið e* prjón
að, þar til handvegir eru orðnir
13-14-15 cm. Fellið af 16-17-18
1. í miðjunni, og prjónið hvora
öxi fyrir sig. Háismegin eru
felldar af 4, 3, 2, 1 I. og síðan 1 I.,
þar til 33 1. eru eftir á prjónin-
um. Þegar hándvegurinn er jafn-
hár handveginum á bakinu, er
fellt af 11 1. þrisvar sinnum.
Ermarnar.
Fitjið upp 80-84-88 1. með aðal-
litnum og prjónið rendur eins
og neðan á kjólnum. Síðan er
prjónað sléttprjón og aukið út 6
lykkjur á fyrsta prjóninum.
Prjónið áfram þar til ermin mæl-
ir 7-8-9 cm. Þá eru felldar af 2
1. í byrjun hvers prjóns þar til
eftir eru 40-40-44 i. á prjónin-
um. Þá eru felldar af 3 1. í byrj-
un næstu 6 prjóna. Síðustu
22-22-26 1. eru felldar af í einu.
Frágangur og hálsmál.
Pressið öll stykkin létt yfir á
röngunni. Hliðarsaumarnir
saumaðir saman og hægri axlar-
saumur. Nú eru teknar uþp
70-74-78 lykkjur í hálsmálinu á
framslykkinu og iykkjurnar á
bakstykkinu settar upp á sama
prjón. Prjónið 1 prj. rétt með
aðallitnum, 4 prj. rétt með 1.
aukalitnum, á þriðja prjóni
eru felldar af 10 1. jafnt yfir
prjóninn, síðan prjónaðir 2
prj. með aðallitnum ré'tt, 4 prj.
rétt með 2. aukalit, á þeim þriðja
prjóni aftur felldar af 10 I. jafnt
yfir prjóninn. Að lokum eru
prjónaðir 2 prj. rétt með aðal-
li'tnum. Fellið af. Saumið ermi-
arnar í og rennilásinn, og saum-
arnir pressaðir létt yfir á röng-
unni.
Pottaplöntur og sumarfrí
ÞAÐ VELDUR alltaf dálitlum
áhyggjum að-. fara frá pot'ta-
plöntunum í íbúðinni, þegar við
ætlum í sumarleyfið. Ekki erum
við allar jafn lagnar við blóma-
rækt, en tekst þó ef til vill með
erfiðismunum að halda lífi í
nokkrum fallegum plöntum, og
viljum því ógjarnan, að aftur-
Ikippur komi í þær á meðan við
erum í burtu.
Sé um lengri dvöl að ræða, er
ekki annað fært en að fá ná-
granna eða vini til að gæta blóm
anna á meðan. En þrátt fyrir
það, hefur nú stundum tekizt
svo illa til, að plönturnar hafa
Verið í slæmu ástandi við heim-
komu eiganda, og þá fyrst og
fremst vegna ofvökvunar. Hefur
sá, er gæta á'lti blómanna, ætlað
að leysa hlutverk sitt svo vel
af hendi, að þau hafa verið
vökvuð of mikið, og ekki þolað
það. Sé um styttri dvöl að ræðá,
er hægt að ú'tbúa blþmin þannig,
að ekki þurfi að líta eftir þeim.
Fyrst eru plönturnar gegnum
vættar, síðan er hver pottur fyr-
ir sig vafinn inn í gegnumblaut
dagblöð, þannig að helmingur
plöntunnar standi upp úr. Síðan
eru pottarnir lá'tnir standa þétt
saman í 'bala, með dálitlu vatni
í botninum. Bezt er að koma bal-
anum fyrir í björtu, sólarlausu
herbergi, þar sem mögulegt er að
hafa smárifu á glugga og því
gbtt loft. Ætti plöntunum að
vera óhætt í allt að viku þannig.
KEISARATOMATAR
Stórir tómatar eru gerðir holir að innan. Síðan fyiltir aftur
með grænum baunum í jafningi eða piparrótarsalati, (smátt
skorin epli, þeyttur rjómi og piparrót). Steinselju stráð yfir.
Tómathringur með
rækjum og aspas
ÞESSI réttur er búinn til úr nýj- j
um tómötum, sem eru soðnir, I
s'tappaðir og bragðbættir með
papriku. Það þarf 7 dl. af tómat-
leginum á móti 10 blöðum af
imatarlími. Matarlímið lagt í
bleyti í 16 mín., vatnið lá'tið
drjúpa vel af og síðan sett út í
volga tómatblönduna, sem síðan
er hellt í hringform. Stífnar á
nokkrum klukkustundum, ef það
stendur á köldum stað. Áður en
j hringurinn er borinn fram, er
j formið selt augnablik í volgt
vatn 'til þess að hann losni frá.
Innan í hringinn eru settar
rækjur og aspas og skreytt með
tómatsneiðum, harðsoðnum eggj-
um og agúrkum. Utan um hring
inn má gjarnan setja sveppi í
sneiðum.
Góð sósa með þessum rétti er:
Sambland af majonnaise, karry,
rjóma, salti og pipar, ediki og
svoliilu dilli.
Augnastrik
Upphafleg vernd
gegn skordýrum
KLEOPATRA Egyptalands-
drottning hefur orðið seinni
tíma konum óþrjótandi fyrir-
mynd um ýmislegt sem viðkem
ur snyrtingu, klæðnaði og hár-
greiðslu. Augnmálning hennar
er þó það, sem oftast hefur ver-
ið líkt eftir gegnuna aldirnar og
einna mesta eftirtekt hefur vak-
ið. En hin langa augnalína Kleo-
pötru var bara alls ekki gerð
til að prýða augun — heldur
var þetta neyðarráðstöfun.
Á dögum Kleopötru var það
algengt í Egyptalandi, að fólk
drægi hring með sótdufti um
augu sín til varnar skordýrum.
í þessu dufti voru ýmis efni,
sem skorkvikindi forðuðust, og
kom í veg fyrir að þau settust
á augnlokin eða flygu inn í aug-
un.
Enn þann dag í dag nota íbú-
ar Egyptalands, fran, Indlands
og fleiri Asíulanda, þessa að-
ferð við að verja augu sín.
Einnig eru dregnar útlínur
augna barna á öllum aldri í þess
um löndum. Er það kannski að
finna skýringuna á því, hversu
stóreygð, fullorðinsleg og alvar-
leg Austurlandabörn virðast
alltaf vera á myndum, að
minnsta Jcosti.