Morgunblaðið - 23.07.1967, Qupperneq 5
MORGUNBIjAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1967
5
Gott u'tlit með hey-
skap á Suðurlandi
MBL. HAFÐI samband við
Ingolf Þorsteinson, fulltrúa
hjá Búnaðarfélagi íslands og
spurði hann um heyskapinn
á Suðurlandi. Sagði Ingólfur
að nú væri heyjað af mikilli
atorku um allt Suðuriand og
væri sláttur allt að þvi hálfn
aður hjá þeim, sem lengst
væru komnir. Spretta væri
víðast hvar góð og útlit fyrir
sæmilegan slátt, ef tíðin héld
ist hagstæð. Miklu heyi hefði
verið bjargað undanfarna góð
viðrisdaga en háarsláttur yrði
lítill í ár. Kal kvað Ingólfur
sama og ekkert í lágsveitum
en dálítið hefði borið á því
í uppsveitunum og hefðu
bændur þar orðið almennt
seinni til vegna þess. Hey-
fyrningar væru litlar sem
engar á Suðurlandi.
— Að lokum sagði Ingólf-
ur, að heyskaparhorfur sunn
anlands styngju mjög í stúf
við fréttir af Norðurlandi, því
þar væru heyskaparhorfur
mjög slæmar, eins og sagði
í frétt í Mbl. í gær.
Islendingur ver dokt-
orsritgerð
ÞANN 19. júní varði Jónas
Bjarnason roktorsritgerð í eggja
hvítuefnafræði (Peptidchemie)
við tækniháskólann í Munchen
í Þýzkalandi með vitnisburðum
„magna cum laude“ og hét verk
efnið „Leicht abspaltbare Sehutz
gruppen fur Saureamidfunktion
en.“ Fjallar ritgerðin að mestu
leyti um vandamál í sambandi
við uppbyggingu (Synthese) á
eggj ahvítuhlutum (Peptide).
Dr. Jónas Bjarnason
í Miinchen
Lögð er nú á tímum mjög mik- j
il áherzla á þessa grein efna-
fræðinnar í helztu vísindalönd-
urn neims, þar eð þekking á
þessum hlutum hefur vaxið svo •
óðfluga undanfarin ár, að þegar j
í dag hyllir undir getu til fram j
leiðslu á ýmsum lífsnauðsynleg- j
um eggjahvítuefnum svo sem j
t.d. insulin, en því er beitt gegn j
sykursýki.
Ýmsir frægir menn á sviði
eggjahvítuefnafræði hafa starf-
að við tækniháskólann í Munch-
en. Má þar geta E. Fischers, að-
aubrautryðjanda þessa sviðs, svo
og F. Weygands, en Jónas starf-
aði við sitt doktorsverkefni hjá
þeim merka manni.
Jónas Bjarnason er fæddur á
Sauðárkróki þann 23.6 1938. For
eldrar hans eru Bjarni heitinn
Pálsson frá Hrísey og fyrrver-
andi lcona hans, Ásta Jónsdótt-
ir, dóttir Jónasar heitins Kristj-
ánsSonár læknis. Hóf hann nám
í efnafræði við tælcniháskólann
í Miinchen haustið 1958 og lauk
aðalprófi við þann skóla árið
1964.
Jónas er kvæntur Kristínu
Hjartardóttur.
HVAÐ á kona að gera við drukkin eiginmann sinn?
Við höfum verið gíft í sex ár og eigum þrjú börn. Við
höfum hlustað á útvarpsþætti yðar upp á síðkastið, og
hann virðist veita orðum yðar athygli, en hann heldur
áfram að drekka. Ég er að reyna að lifa eins og kristin
manneskja, en ég virðist ekki hafa nein jákvæð áhrif á
manninn minn.
ÖLÆÐI er það, sem satan gefur í staðinn fyrir fyll-
ing Guðs. Þegar lærisveinarnir voru fylltir anda
Guðs á hvítasunnudag, voru þeir sakaðir um að vera
drukknir af „nýju víni“ (sætu víni). Það var rétt!
Það var hið nýja vín heilags anda. Ég vil ráðleggja
yður að fyllast svo ninu „nýja víni“ Guðs, að eigin-
maður yðar girnist að dreypa á því með yður. Ég
veit, að það er hræðilegt að eiga við stöðuga of-
drykkju að búa á heimili sínu. En minnist þess, að
innst inni býr þorstinm eftir Guði, hvað sem drykkj-
unni líður. Keith Miller er maður nefndur, frábær
kristinn leikmaður. Hann hefur ritað dásamlega bók,
sem nefnist, „Bragð nýja vinsins“. Þar segir hann frá
þeirri heillandi og undursamlegu reynslu að þekkja
Krist í djúpimu. Biðjið þess, að Kristur verði á þann
veg augljós í lífi yðar, fyrir náð Guðs, að maður yðar
sjái auðnuleysi sitt og taki einnig að leita Drottins.
Þetta hefur oftlega gerzt, og Guð megnar einnig að
gera það fyrir yður, sem hann hefur gert fyrir aðra.
„Þeim, sem Guð elska, samverkar allít til góðs“.
Sumar í sveit. Nú er það heyið, sem allt snýst um. (Ljósm. Ól. K. Magnússon).
TJOLD
Létt göngutjöld kr. 1.700.—
2ja manna tjöld kr. 1.770.—
3ja manna tjöld kr. 1.990.—
4ra manna tjöld kr. 2.295.—
5 manna kr. 2.890.—
Manshard tjöld kr. 4.130.—
3 stærðir af hústjöldum frá
kr. 6 500,—