Morgunblaðið - 23.07.1967, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 23.07.1967, Blaðsíða 19
MORGUNELAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 1967 19 MARTIN BORMAN í BRASILÍU ÞÝZKUR stríðsglæpamaður, sem dvalizt hefur árum sam- an í Brasilíu og framseldur var Vestur-Þjóðverjum í síð- asta mánuði. staðhæfir, að MARTIN BORMANN Nú 67 ára að aldri. Pípulagn- ingamaður, sem varð staðgengiil Hitlers, þegar Rudolf Hess flaug til Skotlands 1941. Hitler kallaði hann „tryggasta flokksmann sinn“. Martin Bormann, staðgengill Hitlers, lifi góðu lífi í Suður- Ameríku. Frá þessu segir Eric Clark, fréttaritari Ob- servers í Vín, í eftirfarandi grein. stríðsglæpamaðurinn Franz Stangl, sem yfirvöld í Brasilíu framseldu vestur- þýzkum yfirvöldum í síðasta mánuði, hefur játað í yfirheyrsl- um í Vestur-Þýzkalandi, að Martin Bormann, staðgengill Adolfs Hitlers, s'é enn á lífi og segir, að hann hafizt við í fylk- inu Parana í Brasilíu, skammt frá iandamærum Paraguay. Vegna þess, sem fram hefur komið í yfirheyrsl'um yfir Stangl, hefur vestur-þýzka stjórn in farið þess opinberlega á leit við yfirvöld í Brasilíu, að Bor- mann verði handtekinn og fram seldur. Þetta er í fyrsta skipti, j sem vestur-þýzka stjórnin hefur opinberlega gefið til kynna, að hún telji að Bormann sé enn á lífi, en því hefur opinberlega I verið lýst yfir, að hann hafi fall ið í lcikaorrustunni um Berlín 1945. Hjartveikur Fram til þessa hefur ekki ver- ið að því spurt fyrst og fremst, þegar Bormann hefur borið á góma, hvar Bormann, sem kall- aður hefur verið „hinn illi andi Hitlers“, er niðurkominn, heldur hvort hann er enn á lífi. Viðurkennt er, að Stamgl hljóti að vita sannleikann í mál- inu. Stangl var yfirmaður hinna illræmdu eyðingabúða í Tre- blinka í Póllandi á stríðsárunum FRANZ STANGL Nú 59 ára að aldri. Var yfirmað- ur Trcblinka-búðanna skamnit frá Varsjá, þar sem 800.000 manna voru myrtar. Var í fanga- búðum Bandamanna eftir heims- styrjöldina, en flúði með aðstoð ODESSA, flóttasamtaka nazista. og var þriðji maður á skrá yfir þá stríðsglæpamenn nazista, sem mestur fengur hefur þótt í að handtaka. Þegar hann var hand- tekinn, var hann búsettur í borg inni Sao Paulo í Brasilíu, en þar settust margir undirmenn Bor- manns að eftir heimsstyrjöldina. dar Bauéf. CardeazanlratofOr FlrtgafdsáíC. <>. ; {■fniK&X'Fy ., . , :: ... ' ' \ . *■ *~7, W --u Wohrvv4: ^x< •í'-I > t ' '4 :ifíhl Fingraför Martin Bormanns, sem geymd eru í ÞýzkalandS. Lögreglan er sannfærð um, að þau séu ósvikin, og fyrr á þessu ári voru þau notuð til þess að hreinsa landbúnaðarverkamann í Guatemala í Mið-Ameríku af grun um, að hann væri Martin Bormann. Fingraförin voru tekin 18. september 1931 í Miinchen, en ekki 1924, þegar Bormann var dæmdur í eins árs fangelsi, eins og talið hefur verið áður. BOLIVIA RICHARD GLUCKS /Last seen in Chile .Valdivia ____ JOSEF MENGELE £ J L \ Present whereabouts: gÆ Paraguay Æ oSá^auk A| FRÁÍzItaSS :MANnÞ?^s 5™“ nutq. / February in öuts. N. Sao Pau|0i Brazi| MARTIN BORMANN Present whereabouts: • Parana area of Brazil i Örvamar sýna dvalarstað Martin Bormanns í Brasilíu og dval- arstað Josef Mengeles, svo og Vladivia í Chile, þar sem Riehard Gluck sást siðast og Sao Paulo í Brasiliu, þar sem Franz Stangl var handtekinn í febrúar. DR. JOSEF MENGELE Nú 56 ára að aldri. Bauð sig fram sem sjálfboðaliða til starfa í fangabúðum nazista, og varð þekktur undir nafninu „Lækn- irinn frá Auschwitz“. Myrti fjölda fólks í þeim tilgangi að skapa „ofurmenni" og útrýma „óæðri mannverum". á lífi og að hann dvelzt í Suður- Ameríku eins og Mengele, en þar létu nazistar mikið að sér kveða á stríðsárunum og á fyrstu árunum eftir heimsstyrj- öldina. Hópar nazista settust að á vissum svæðum í Chile, Argen tínu, Paraguay og Brasilíu (en eins og einn þeirra, sem rann- sakað hafa miál stríðsglæpa- manna nazista, segir, settust margir að í Parana, þar sem þar er góð veiði í ám og vötnum). Fjársjóðir, sem nazistar höfðu komið fyrir í bönkum í Sviss, Liechtenstein og Tangier á stríðsárunum, voru seinna fl'utt- ir til Suður-Ameríku. Glúcks er heilsutæpur, en um dvalarstað hans er ekki vitað m-eð vissu. Um skeið dvaldizt hann í Chile ásamt Walter Ra'uff, fyrrverandi ofursta í SS- sveitunum, sem tókst að koma í veg fyrir það árið 1963, að til- raun til að fá hann framseldan bæri árangur. Mengele hefur haft þegnrétt í Paraguay síðan 1959 og er nú meðeigandi í verksmiðju, sem framleiðir landbúnaðarvélar og hefur 2.000 verkamenn í sinni þjónustu. Fyrirtækið er einnig starfandi í Argentínu. Nú fyrir skemmstu keypti hann nýjan vél bát, sem hann hefur gefið nafn- ið „Víkingur“. Sonur hans er við nám í Vínarborg. Tilraunir til að fá Mengele framseldan hafa hingað til far- ið út um þúfur. Vegna þess að menn þeir, sem reyndu að hafa upp á Adolf Eichmann, óttuðust að svipaðar tilraunir til þess að fá hann framseldan færu út um þúfur, ákváðu þeir að ræna honum. Mönnum er það hulin ráðgáta, hvar Muller hefur aðsetur — HEINRICH MÚLLER Nú 67 ára gamall. Var yfirmað- ur innanlandsdeildar SS og stað- gengill Himmlers. Átti hvað drýgstan þátt í því að Gestapo varð eitt hroðalegasta mann- drápsfyrirtæki allra tíma. að m-inpst kosti enn sem komið er. En á því virðist enginn vafi leika nú, að hann er á lífi. Jafn- vel margir þeir, sem hafa talið hann látinn, hafa skipt um skoð- un síðan yfirheyrslurnar yfir Stangl hófust. Fyrir fjórum ár- um var opnuð gröf, þar sem staðhæft var a-ð lík Múllers h-efði verið jarðsett. En líkið var af öð-rum manni. Senilega hefur hann eins og m-argir aðrir naz- ist-ar komið skilríkjum sinum fyrir á líki, sem orðið hefu-r -á vegi hans. „Stórlaxarnir" Múller er einn þeirra nazista, sem ekki er víst að felist í Suð- ur-Ameríku. Nú er vitað,. að á síðasta ári heimsstyrjaldarinnar stóð hann í sambandi við rúss- nesku leyniþjónustuna. Kalla má Múller og Borman-n „stórlaxana“. Þegar Bormann hafði verið gerður að staðgengli Hitlers tók hann við stjórn alls skriffinnskubákns Þjóðverja, og hann varð að undirrita ÖU lög áður en þau voru send stjórn- inni eða varnarmálaráðuneyt- inu. Hann hvarf í rústum Berlínar og til hans sást, þegar hann reyndi að brj-ótast gegnum víg- línur Rússa, sem höfðu um- kringt borglna. Sagt var, að hann hefði beðið bana, þegar skriðdreki sprakk í loft upp, og æskulýðsleiðtogi nazista, Artur Axmann, hélt því fra-m, að hann hefði séð likið. Yfirlýsingar Stangls um að Bor, mann sé enn á lífi staðfesta s.koð anir þeirra tveggja manna, sem mest hafa lagt sig fram um að hafa upp á striðsglæpamönnum nazista. Þessir menn eru; dr. Fritz Bauer, ríkissaksóknari í Hessen (sem var einn sækjenda í Auschwitz-réttarhöldunum), og dr. Simon Wiesenthal. maðurinn RICHARD GLÚCKS Nú 78 ára gamall, en áður var talið að hann hefði fyrirfarið sér 1945. Var yfirmaður D-deild ar WVHA og þar með ábyrgur fyrir aðbúnaði í öllum fanga- búðum nazista. sem fann Eichmann, (kaflar úr bók han-ns um leitina að stríðs- glæpamönnum nazista hafa birzt í Lesbók Mbl.). Dr. Wiesenthal ,sem nú er 59 ára að áldri, hefur skrá yfir 22.500 stríðsglæpa-menn nazista í skýrslusafni sínu í Vínarborg, sem hann rekur með fjárfram- lögum hvaðanæva að úr heim- inum. Hann viðar að sér upplýs- ingum úr öllum heimsálfum og Framhald á bls. 24 Nú virðist líklegt, að Bormann hafi við og við skipt um aðset- urs-taði í þremur löndum Suður- Ameríku, Brasilíu, Paraguay og Argentínu. Hann er hjartveikur, og eitt sinn er hann dval-dist í munkaklaustri í Asuncion í Paraguay var „Læknirinn frá Auschwitz“, Josef Mangele, feng inn til að stunda hann. Stangl bíður nú þess, að réttar höld hefjist í máli hans, og er yfirheyrslunum hvergi nærri lokið. Aðeins þeir, sem yfir- heyra hann vita, hvort hann er samvinnuþýður, en margt bend- ir til þess, að hann hafi veitt upplýsingar um aðra háttsetta nazista en Bormann. Að Bormann undanskildum eru það þrír menn, sem mest. er leitað að. Þessir -menn eru Heinrich Múller, fyrrverandi yf- irmaður njósnaþjónustu og gagn njósnaþjónustu SS, en vafasamt er talið, að hann sé látinn; dr. Josef M-engele og Richard Glúcks, sá maður, sem bar ábyrgð á aðbúnaði í öll-um stríðs fangabúðum nazista, en fram að þessu hefur verið álltið, að hann h-afi fyrirfarið sér 194(5. V erksmiðjueigandi Nú er vitað, að Glúcks er enn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.